| Birch Woods#birchwoodssweater | ||||||||||||||||||||||||||||||||||
|  |  | |||||||||||||||||||||||||||||||||
| Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
							DROPS 202-11 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||
| ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.4 og A.5). ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni/mynstri. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 238 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 38) = 6,3. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 5. og 6. hverja lykkju saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er neðan frá og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Síðan er fram- og bakstykki og ermar sett saman og berustykkið er prjónað til loka í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 160-170-190-200-220-240 lykkjur á hringprjón 5 með Air. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið síðan þannig: Prjónið A.2 yfir allar lykkjur (= 16-17-19-20-22-24 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið áfram þar til A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 12-12-13-14-13-13 cm (eða að óskuðu máli – ef maður vill stilla af lengd á stykki þá er það gert hér) – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.4 yfir allar lykkjur (= 16-17-19-20-22-24 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið áfram með þetta mynstur þar til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Endurtakið A.4 1 sinni á hæðina, en síðasta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 37-39-43-46-50-54 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), fellið af næstu 6-6-8-8-10-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið 74-80-88-92-100-108 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af næstu 6-6-8-8-10-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðustu 37-39-43-46-50-54 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki) = 148-158-174-184-200-216 lykkjur. Stykkið mælist ca 32-32-33-34-35-35 cm. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 31-33-35-37-39-41 lykkjur á sokkaprjón 5 með Air. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað síðar þegar auka á út lykkjum mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna/hringprjón 5,5. Prjónið næstu umferð þannig: 0-1-2-3-4-0 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 10 lykkjur, endurtakið A.2 þar til eftir eru 1-2-3-4-5-1 lykkjur í umferð (= 2-2-2-2-2-3 mynstureiningar með 10 lykkjum), A.3 yfir næstu lykkju, endið með 0-1-2-3-4-0 sléttar lykkjur. Haldið áfram þar til A.1 til A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið síðan sléttprjón – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7-7-8-7-9-8 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-12-14-15-16-16 sinnum = 51-57-63-67-71-73 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 21-19-19-18-16-14 cm (eða að óskuðu máli – ef maður vill stilla af lengd á ermum þá er það gert hér), prjónið A.4 yfir allar lykkjur – passið uppá að lykkja með stjörnu verði mitt á ermi og aðlagið mynstrið af út í hvora hlið. Þ.e.a.s. þegar útaukning hefur verið gerð til loka undir ermi, prjónið þannig: 0-3-1-3-0-1 lykkjur slétt, A.4 (= 5-5-6-6-7-7 mynstureiningar með 10 lykkjum) og 1-4-2-4-1-2 lykkjur slétt. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni og útaukar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.4 (passið uppá að það sé sami fjöldi úrtöku og uppsláttar í mynstri). Haldið áfram með þetta mynstur þar til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Endurtakið A.4 1 sinni til viðbótar á hæðina, en síðasta umferðin er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 3-3-4-4-5-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 45-51-55-59-61-61 lykkjur eins og áður og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-6 lykkjur fyrir handveg = 45-51-55-59-61-61 lykkjur. Stykkið mælist ca 41-39-39-38-38-36 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón 5,5 og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 238-260-284-302-322-338 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið A.5 yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.5 er lykkjum fækkað jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan: ÖR-1: Fækkið um 38-40-44-42-42-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 200-220-240-260-280-300 lykkjur. (A.5 er nú prjónað 20-22-24-26-28-30 sinnum á breidd). ÖR-2: Fækkið um 40-50-50-50-40-40 lykkjur jafnt yfir = 160-170-190-210-240-260 lykkjur. (A.5 er nú prjónað 16-17-19-21-24-26 sinnum á breidd). ÖR-3: Fækkið um 40-40-40-40-40-40 lykkjur jafnt yfir = 120-130-150-170-200-220 lykkjur. (A.5 er nú prjónað 12-13-15-17-20-22 sinnum á breidd). ÖR-4: Fækkið um 28-30-42-30-40-40 lykkjur jafnt yfir = 92-100-108-140-160-180 lykkjur. ÖR-5: Fækkið um 16-20-18-28-42-30 lykkjur jafnt yfir = 76-80-90-112-118-150 lykkjur. STÆRÐ: XL-XXL: ÖR-6: Fækkið um 18-20 lykkjur jafnt yfir = 94-98 lykkjur. STÆRÐ XXXL: ÖR-7: Fækkið um 28 lykkjur jafnt yfir = 122 lykkjur. ÖR-8: Fækkið um 20 lykkjur jafnt yfir = 102 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Þegar allt A.5 hefur verið prjónað til loka mælist berustykki ca 20-22-23-24-25-27 cm og það eru 76-80-90-94-98-102 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið laust af, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (skiptið e.t.v. yfir á grófari prjón). FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Skýringar á teikningu | ||||||||||||||||||||||||||||||||||
| 
 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||
|  | ||||||||||||||||||||||||||||||||||
|  | ||||||||||||||||||||||||||||||||||
|  | ||||||||||||||||||||||||||||||||||
|  | ||||||||||||||||||||||||||||||||||
|  | ||||||||||||||||||||||||||||||||||
|  | ||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #birchwoodssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.