Elize Moolman skrifaði:
Please help at collar end it say knit 1 round while decrease 4 stitches evenly, should it not be increase rather than decrease, I include a photo of my knitting and where I struggle
10.04.2019 - 09:59DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Moolman, when you have worked the 9 cm ribbing, you knit one round while decreasing 4 sts evenly = there are now 32-32-36-36-40-44 sts. Now work A.1 increasing as shown in diagram. Happy knitting!
10.04.2019 - 10:22
Rebe Bar skrifaði:
Me gustan
24.03.2019 - 21:28
Åse skrifaði:
Hei. Hvorfor står det strikkepinner nr 15 på oppskriften, men på garnet anbefales nr 12? Drops Polaris
22.03.2019 - 14:05DROPS Design svaraði:
Hei Åse. Det har med strikkefatsheten å gjøre. Til denne oppskriften skal strikkefastheten være 7 masker i bredden og 8 pinner i høyden med glattstrikk = 10 x 10 cm, og da må du nok bruke tykkere pinner enn pinne 12. Det er alltid strikkefatsheten som avgjør hvilken pinnestørrelse du trenger. Strikkefasthet er individuel og da brukes pinnestørrelse for å justere opp eller ned slik at DIN strikkefasthet stemmer overens med det som står i oppskriften. Det pinnenummer vi oppgir er kun veiledende, det er strikkefastheten som må overholdes. God fornøyelse.
26.03.2019 - 15:05
Mary Hiley skrifaði:
Thank you for you previousreple. If reading each row of the chart from right to left we find 2yo’ s together ar the end and beginning of rows 2-3 and 3-4. This sounds as though it will leave a big hole. Please clarify.
26.02.2019 - 22:26DROPS Design svaraði:
Hi Mary, In each repeat of the rows in the diagram there is just 1 yarn over, either at the beginning or end of each repeat in width, depending on which row you are on. So there will not be 2 yarn overs next to each other in the pattern. The yarn overs are worked twisted on the next round to avoid any holes. Happy knitting!
27.02.2019 - 06:35
Mary Hiley skrifaði:
Couple of things. Is the chart for Siri 195-21 to be read back and forth or just right to left?? This affects the lacement of the yarn overs. The stitch count doesn’t seem to work out! The pattern says that when the chart has been completed for M size you should have 112 But the number at the top of the chart says 12 ( which tallies with the number of increases) worked in 8 sections making only 96.
22.02.2019 - 15:52DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hiley, diagram A.1 is worked in the round, ie you will read every row from the right towards the left (starting on the bottom corner on the right side). In size M you ahve 32 sts and repeat the 4 sts on row 1 in A.1 a total of 8 times = 32 sts. When A.1 is done, there are 14 sts in each A.1 x 8 repeats = 112 sts. Happy knitting!
22.02.2019 - 16:39
Sira#sirasweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Polaris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með háum kraga og norrænu mynstri í perluprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 195-21 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- SKIPT UM ÞRÁÐ (á við um þegar prjónað er með Polaris): Þegar skipt er um dokku af Polaris þá er endanum skipt í tvo hluta á þræðinum sem er að ljúka ca 15 cm. Klippið af annan endann og það sama er gert við nýja þráðinn. Leggið fyrstu og síðustu 15 cm á endunum yfir hvorn annan þannig að þráðurinn nái eðlilegum grófleika og prjónið síðan áfram - með þessu er komið í veg fyrir að samskeytin sjáist. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 36 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 9. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 8. og 9. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. GALDRALYKKJA: Ef prjónað er í hring á hringprjón sem er of langur fyrir lykkjufjöldann er hægt að gera það þannig: Hringprjóninn á að vera langur og hafa sveigjanlega snúru. Færið lykkjurnar að miðju á snúrunni. Deilið lykkjunum í tvennt og dragið snúruna út á milli lykkja fyrir miðju. Færið lykkjurnar að prjónaendanum í hvorri hlið, passið uppá að lykkjurnar verði ekki snúnar. Þráðurinn sem prjóna á með er á aftari prjóni og þú byrjar á að prjóna með fremri prjóni. Dragið út aftari prjóninn til að prjóna lykkjurnar á þeim fremri. Þegar lykkjur á fremri prjóni hafa verið prjónaðar, snúið við og færið lykkjurnar til baka á auða prjóninn og prjónið hina hliðina alveg eins. Haldið svona áfram hringinn, passið uppá að draga alltaf út prjóninn í þeirri hlið þar sem þú hefur þráðinn. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju með því að slá einu sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um ermar): ATH: Til að úrtakan komi til skiptis í hægri og vinstri hlið á stykki er lykkjum fækkað þannig: Í stærð S, M og L er lykkjum fækkað til skiptis í byrjun og í lokin á umferð sem er með úrtöku. Í stærð XL, XXL og XXXL er lykkjum fækkað í byrjun á hverri umferð sem er með úrtöku (til skiptis frá réttu og frá röngu). Lykkjum er fækkað frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Lykkjum er fækkað frá röngu þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón og saumaðar saman í lokin. Sjá SKIPT UM ÞRÁÐ. KRAGI: Fitjið upp 36-36-40-40-44-48 lykkjur á hringprjón 15 með litnum dökk grár. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ ÚTAUKNING = 32-32-36-36-40-44 lykkjur. ATH: Í vöruúrvalinu okkar höfum við ekki styttri hringprjóna en 60 cm í prjónanúmeri 15. Nú hefur lykkjum verið fækkað þannig að ummálið á stykkinu er minna en 60 cm í stærð S-XXL. Prjónið nú áfram með GALDRALYKKJA – sjá útskýringu að ofan, þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að nota hringprjón 60 eða 80 cm. BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur A.1 hringinn (= 8-8-9-9-10-11 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 96-112-117-126-140-154 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20-25-25-28-30-33 cm frá eftir kraga. Prjónið áfram með sléttprjón og milligrár, en án útaukningar þar til stykkið mælist 24-25-27-29-31-33 cm frá eftir kraga. Prjónið 1 umferð slétt með milligrár þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 100-112-116-128-136-156 lykkjur – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Næsta umferð er prjónuð í sléttprjóni þannig: Prjónið 15-16-17-19-20-23 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 20-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 30-32-34-38-40-46 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 20-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 15-16-17-19-20-23 lykkjur (= hálft bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 68-72-76-84-92-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út. Haldið áfram í sléttprjóni og milligrár. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju á undan báðum prjónamerkjunum – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið síðan út þannig: Þegar stykkið mælist 8 cm aukið út um 1 lykkju á eftir hvoru prjónamerki. Þegar stykkið mælist 10 cm aukið út um 1 lykkju á undan hvoru prjónamerki. Þegar stykkið mælist 12 cm aukið út um 1 lykkju á eftir hvoru prjónamerki. Í stærð M og XXXL heldur útaukningin áfram þannig: Þegar stykkið mælist 14 cm aukið út um 1 lykkju á undan hvoru prjónamerki. Þegar stykkið mælist 16 cm aukið út um 1 lykkju á eftir hvoru prjónamerki. ALLAR STÆRÐIR: Nú eru 76-84-84-92-100-116 lykkjur í umferð. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og litnum milligrár þar til stykkið mælist 23-24-24-24-24-24 cm frá skiptingu. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. ERMI: Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón og saumaðar saman í lokin. Setjið 20-24-24-26-28-32 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón 15 og fitjið upp 2-2-2-2-3-3 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 24-28-28-30-34-38 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með litnum milligrár. Þegar stykkið mælist 4-4-2-4-4-2 cm er fækkað um 1 lykkju í hægri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum til skiptis í vinstri og hægri hlið á stykki í annarri hverri – annarri hverri – annarri hverri – hverri – hverri – hverri umferð alls 8-12-12-14-14-18 sinnum (= 4-6-6-7-7-9 sinnum í hvorri hlið) = 16-16-16-16-20-20 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 33-33-31-30-27-25 cm frá skiptingu (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sirasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.