DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Fritid

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með fölsku klukkuprjóni og A-formi. Stærð S - XXXL.

DROPS 195-31
DROPS Design: Mynstur ai-126
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-350-400-450 g litur 03, perlugrár

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni (séð frá röngu) með fölsku klukkuprjóni = 10 x 10 cm.
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Uppslátturinn í mynstri er ekki talin með sem lykkja.

ÚTAUKNING-1 (á við um jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 11,7.
Í þessu dæmi þá er aukið út um 1 lykkju á eftir ca 12. hverja lykkju. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt.

ÚTAUKNING-2 (á við um fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Prjónið og aukið svona út við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri alls).

ÚRTAKA (á við um ermar):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki er prjónað í hring, ofan frá og niður með klukkuprjóni. Berustykki skiptist upp fyrir ermar og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring í sléttprjóni með kanti í klukkuprjóni. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, í sléttprjóni og með kanti í klukkuprjóni.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 66-72-78-82-85-91 lykkjur á hringprjón 5,5 með Air.
Prjónið 2-2-2-4-4-4 sléttar umferðir JAFNFRAMT í 3. umferð er aukið út um 0-0-0-6-11-13 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 66-72-78-88-96-104 lykkjur.
Prjónið A.1a ( 6-6-6-8-8-8 lykkjur) alls 11-12-13-11-12-13 sinnum á breidd.
Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Athugið vel að þegar aukið er út í mynsturteikningu, að draga ekki í lykkjuna sem aukið er út í meira en nauðsynlegt er, það myndast lítið gat í þessari lykkju. Þegar A.1a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 154-168-182-176-192-208 lykkjur í umferð. Prjónið nú A.1b yfir A.1a. Þegar A.1b hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 198-216-234-264-288-312 lykkjur í umferð.
Stykkið mælist ca 20-20-20-24-24-24 cm frá uppfitjunarkanti. Endurtakið 2 síðustu umferðirnar í A.1b þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti, passið uppá að endað sé með 1 umferð án uppsláttar.
Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út um 14-20-30-16-12-16 lykkjur jafnt yfir = 212-236-264-280-300-328 lykkjur.
Í næstu umferð skiptist stykkið upp fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig: Prjónið 31-34-38-41-45-50 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-50-56-58-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur undir ermi, 62-68-76-82-90-100 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 44-50-56-58-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur undir ermi og endið með 31-34-38-41-45-50 lykkjur slétt (= hálft bakstykki) = 140-152-168-184-200-220 lykkjur.
Berustykki mælist ca 22-24-25-27-29-31 cm.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-8-10-10-10 nýrra lykkja í hvorri hlið á stykki (= 70-76-84-92-100-110 lykkjur á hvoru framstykki/bakstykki). Haldið áfram í sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING-2! Aukið svona út með 3-3-4-4-3-3 cm millibili alls 7-7-6-6-7-7 sinnum = 168-180-192-208-228-248 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-25-26-26-26-26 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist upp frá ermum er prjónaður kantur þannig: Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 10 lykkjur jafnt yfir = 178-190-202-218-238-258 lykkjur. Prjónið A.2 (= 2 lykkjur) yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað í ca 6 cm er fellt af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 44-50-56-58-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-58-64-68-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-8-10-10-10 nýrra lykkja. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 7-9-11-13-13-14 sinnum = 38-40-42-42-44-46 lykkjur. Þegar ermin mælist 35-34-34-33-32-32 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, prjónið A.2 yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.09.2018
Leiðrétting. Stykkið er prjónað með klukkuprjóni (áður hálfu klukkuprjóni)

Mynstur

symbols = brugðið
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið
symbols = prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman
symbols = = prjónið 5 lykkjur í lykkju og uppslátt þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppsláttinn yfir á vinstri prjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum áður en lykkjunum er lyft af vinstri prjóni = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Angela wrote:

Hallo! kann man den pullover trotzdem im halbpatent muster stricken? oder schaut der dann total anders aus? ich kenn mich leider nicht so gut aus und wüsste jetzt nicht wie ich das im falschen patent stricken soll. mfg

22.12.2021 - 11:58

country flag Kristy G wrote:

I found A.2. Sorry, must need new glasses :)

05.05.2021 - 21:00

country flag Kristy G wrote:

In the pattern it says: PATTERN: See diagrams A.1 and A.2. Choose diagram for your size. The yarn overs in the pattern are not counted as stitches. Work A.2 (= 2 stitches) over all stitches. When A.2 has been worked for approx. 6 cm / 2 3/8'' bind off with knit. But there is NO diagram for A.2 included in this pattern.

05.05.2021 - 20:57

DROPS Design answered:

Dear Kristy, the small chart for diagram A.2 is just above the shematic drawing between the two different sized A.1a charts. Happy Knitting!

05.05.2021 - 21:18

country flag Kristy G wrote:

I cannot find the instructions for A.2 in this pattern.

03.05.2021 - 19:05

DROPS Design answered:

Dear Kristy, explanations for the diagrams are just above the charts, symbols meaning the same in all charts. Happy Knitting!

03.05.2021 - 23:31

country flag Kerstin wrote:

Eine Frage zur Länge der Ärmel: kann es sein, dass der Ärmel in Größe S länger ist als bei den großen Größen? Es heißt, "bei einer Länge des Ärmels von 35 cm ab der Teilung...." in Gr. S. Das verstehe ich nicht. Besten Dank für eine Rückmeldung.

24.01.2021 - 13:32

DROPS Design answered:

Liebe Kerstin, ja genau so stimmt es, bei den größren Größen ist die Passe länger, deshalb werden die Ärmel dann kürzer sein- schauen Sie mal die Maßen in die Skizze - länge können Sie auch gerne anpassen (Pullover anziehen, um die Länge zu prüfen). Viel Spaß beim stricken!

25.01.2021 - 09:52

country flag Hanne Hedeman wrote:

Jeg vil gerne lære,hvordan jeg finder ud af ,at fordele masker til bluse foroven ,f.eks halskant hvordan inddeler jeg hals ,for arme,ryg,arme eks Raglan ,har du 1 forslag til.bluse.sa.jeg.ksn se måskeantallet.fordelt jeg kan ikke.finde.ud af fordelingen af.makerne.mvh Hanne hedeman.

10.04.2020 - 17:06

DROPS Design answered:

Hej Hanne, Fordelingen beskriver vi altid tydeligt i opskriften. Her ser du en generel video hvordan man gør

How to knit a jumper top down from Garnstudio Drops design on Vimeo.

24.04.2020 - 09:44

country flag Pia wrote:

Salve, ho finito il lavoro e mi è molto piaciuto. Tuttavia come tutti i modelli topdown lo scolo è uguale davanti e dietro. Dunque è troppo scollato dietro. Finito il lavoro è possibile creare una alzatina dietro? E come?

31.03.2020 - 22:47

DROPS Design answered:

Buongiorno Pia. Potrebbe provare a riprendere le maglie intorno al collo e lavorare qualche giro a legaccio, con ferri accorciati sul dietro. Può contattare il suo rivenditore Drops di fiducia per ulteriore assistenza personalizzata. Buon lavoro!

01.04.2020 - 09:37

country flag Anneke wrote:

Klopt het stekenaantal wel na de eerste keer meerderen in de pas, na A 1a? Er staat 154-168-182-176-192-208. Volgens mij zijn het derde en vierde getal omgedraaid.

20.03.2020 - 19:39

DROPS Design answered:

Dag Anneke,

Het aantal opgegeven steken heb ik nagerekend en ze zijn juist. Let erop dat je het juiste telpatroon neemt voor jouw maat. Wanneer je A.1b boven A.1a hebt gebreid heb je wel weer meer steken in XL dan in L.

29.03.2020 - 12:55

country flag Vita Catania wrote:

Dove trovo aggiungi ai preferiti? Grazie

03.01.2020 - 14:54

DROPS Design answered:

Buongiorno Vita, per aggiungere il modello ai preferiti deve cliccare sul cuore che trova dopo la prima parte delle spiegazioni, e inserire la propria mail. Buon lavoro!

04.01.2020 - 10:47

country flag Léa K wrote:

Merci pour votre réponse.\r\nJ’ai finalement recommencé le tricot en faisant pour les fausses côtes anglaises : *maille envers - maille glissée envers - jeté*  (au lieu de maille envers - jeté - maille glissée envers) et ça semble fonctionner !

09.12.2019 - 09:58