Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Valencia Cardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa með röndum, v-hásmáli og laskalínu. Stykkið er prjónað úr DROPS Air, ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. STUTTAR UMFERÐIR-1 (á við um fyrri kant í hálsmáli sem er prjónaður): Byrjið frá réttu og prjónið þannig: * 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 4 fyrstu lykkjur, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar 5 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. STUTTAR UMFERÐIR-2 (á við um seinni kant í hálsmáli sem er prjónaður): Byrjið frá röngu og prjónið þannig: * 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 4 fyrstu lykkjur, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar 5 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, prjónið síðan 1 umferð slétt frá röngu yfir allar 5 lykkjur. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 62 lykkjur), mínus kanta í hálsi/kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda lykkja sem eftir er með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 4,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta í hálsi/kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 14) = 3,9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. RENDUR BERUSTYKKI: Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður eins og útskýrt er að neðan, en 5 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur í hálsmáli): 9-10-10-11-11-12 cm með lit, 10, þoka, 9-10-10-11-11-12 cm með lit 22, gulur, 0-0-2-2-4-4 cm með lit 06, svartur. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður eins og útskýrt er að neðan, en 5 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur að framan): 9-10-8-9-7-8 cm með lit 06, svartur (þ.e.a.s. svarta röndin verður alls 9-10-10-11-11-12 cm meðtalin umferð frá berustykki), 9-10-10-11-11-12 cm með lit 03, perlugrár, 12-10-12-10-12-10 cm (eða til loka) með lit 16, blár. RENDUR ERMI: Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig: 13-13-11-11-9-9 cm með lit 06, svartur (þ.e.a.s. svarta röndin verður alls 13 cm í öllum stærðum meðtalin umferð frá berustykki), 13-13-13-13-13-13 cm með lit 03, perlugrár, 20-19-20-18-19-18 cm (eða að óskuðu máli) með lit 16, blár. V-HÁLSMÁL: Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Aukið út um 1 lykkju innan við 5 kantlykkjur að framan með því að slá 1 sinni uppá prjóninn strax eftir 5 kantlykkjum að framan í byrjun á umferð og á undan 5 kantlykkjum að framan í lok umferðar. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri hvoru megin við prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar prjónað hefur verið ca 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 2 næstu hnappagötum með ca 10 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru prjónaðir 2 lausir kantar í hálsi. Þeir eru settir síðan inn á hringprjóninn þegar fitjað er upp fyrir hálsmáli eins og útskýrt er í uppskrift (kantar í hálsmáli eru síðan saumaðir saman við miðju að aftan og síðan saumaðir við hálsmál aftan í hnakka). Síðan er berustykki prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. JAFNFRAMT er aukið út fyrir v-hálsmáli og laskalínu. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 5 lykkjur á prjón 5,5 með litnum þoka og prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan (1. umferð = rétta). Þegar kantur í hálsmáli mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm prjónið STUTTAR UMFERÐIR-1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka eins og útskýrt er að ofan, prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar 5 lykkjur í 6 cm í öllum stærðum, endið eftir 1 umferð slétt frá röngu (allur kantur í hálsmáli á að mælast ca 14-14-14-15-15-15 cm innst þar sem stykkið er styst). Klippið frá og geymið stykkið. Prjónið annan kant í hálsmáli alveg eins, en þegar kanturinn mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm prjónið STUTTAR UMFERÐIR-2 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka eins og útskýrt er að ofan, prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar 5 lykkjur í 6 cm í öllum stærðum, endið eftri 1 umferð slétt frá réttu (allur kantur í hálsmáli á að mælast ca 14-14-14-15-15-15 cm innst þar sem stykkið er styst. Setjið lykkjur á hringprjón 5,5, ekki klippa þráðinn frá, en fitjið upp 52-52-56-58-54-54 lykkjur á sama hringprjón beint á eftir kanti í hálsi og prjónið síðan sléttar lykkjur frá réttu yfir 5 lykkjur frá hinum kanti í hálsi = 62-62-66-68-64-64 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-12-8-10-14-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 74-74-74-78-78-86 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur í hálsi er prjónaður í garðaprjóni eins og áður) síðan er berustykki prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 7 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 36-36-36-40-40-48 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 7 lykkjur eftir í öllum stærðum á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Prjónið RENDUR BERUSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð (rétta) er aukið út fyrir V-HÁLSMÁLI og LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út fyrir V-hálsmáli (2 lykkjur) og laskalínu (8 lykkjur) í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 18-20-22-24-26-28 sinnum = 254-274-294-318-338-366 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli og laskalínu mælist stykkið ca 22-24-26-28-30-32 cm frá öxl. Ef stykkið mælist styttra en þetta er prjónað áfram að réttu máli án útaukninga. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 42-45-47-51-55-60 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-52-58-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 74-80-84-92-100-110 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 48-52-58-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-45-47-51-55-60 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 170-182-194-210-230-250 lykkjur. Prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan! Þegar stykkið mælist 23 cm frá skiptingu í öllum stærðum er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni) þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 176-188-200-216-236-256 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu (með blár) þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 5,5. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-56-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna /stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-68-72-74 lykkjur. Prjónið RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar ermin mælist ca 40-39-38-36-35-34 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd – nú eru eftir ca 6 cm að loka máli), prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-18-22-26-26-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm með blár. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur hægt að fella af með hringprjón 5,5. Ermin mælist ca 46-45-44-42-41-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið saman kanti í hálsimáli við miðju að aftan svo að saumurinn snúi inn. Strekkið aðeins á kanti í hálsmáli og saumið við hálsmál aftan í hnakka. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 309 vörulista og 11518 mynstur - 7032 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (25)
Avila Janssen skrifaði:
Hello, how much yarn (Air) is needed if knitted in one colour only? 16 balls seems a lot...Thank you!
26.06.2020 - 16:01DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Janssen, this jacket has been worked with stripes, we therefore do not have the amount of yarn in one colour - you can add all colours but you will probably request less - check other patterns with Air to compare and request help from your DROPS store - even per mail or telephone. Happy knitting!
29.06.2020 - 07:17Ragnhild skrifaði:
Er det riktig at halskanten bare skal være 14 cm i størrelse S? Har strikket et stykke på jakken og ser at halskanten blir for kort selv om jeg strekker i den.
24.04.2020 - 23:22DROPS Design svaraði:
Hei Ragnhild. Ja, det skal være riktig med 14 cm. Har du tatt en titt på videoen som er laget til denne halskanten? Og om du har gjort det riktig? mvh DROPS design
27.04.2020 - 14:54Suzie skrifaði:
Bonjour, je vois que ce modèle a eu deux corrections. Est-ce qu'elles ont été corrigées à même le patron ou je dois les trouver quelque part pour les corriger moi même?
08.04.2020 - 18:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Suzie, si vous avez imprimé les explications avant la date des corrections, il faut soit les réimprimer, soit corriger votre version, si vous avez imprimé ce modèle après la date des corrections, la version imprimée est correcte. Bon tricot!
14.04.2020 - 15:09ROSA skrifaði:
Si se teje en un único color, para una talla L, ¿cuántos gramos serían necesarios? muchas gracias
14.11.2019 - 14:16DROPS Design svaraði:
Hola Rosa. Para hacer este modelo en un solo color se necesitan aprox. 350 g ( siempre y cuando tengan la misma tensión del tejido y las medidas del patrón).
17.11.2019 - 19:30Anita skrifaði:
Bonjour Très envie de tricoter ce modèle avec du DROPS air d'une seule couleur J'aime bien le concept du haut en bas mais l'explication des rangs raccourcis me paraît compliquée . Existe t il un tuto ou une vidéo pour mieux visualiser et comprendre? Merci
29.10.2019 - 16:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Anita! Regardez le video DROPS sur ce sujet ICI. Bon tricot!
30.10.2019 - 18:40Agathe P skrifaði:
Bonjour, Je souhaiterais réaliser ce gilet dans un coloris unique. Pourriez vous m'indiquer la quantité de laine nécessaire pour une taille S ? Merci !
28.10.2019 - 10:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Agathe! Vous devez avoir 300 g de DROPS Air. Bon tricot!
28.10.2019 - 17:07Miia skrifaði:
Ohjeessa on virhe. Pääntien reunuksen jälkeen silmukoita pitäisi olla 74-74-74-78-78-86. Kaarrokkeen alussa laitetaan 4 silmukkamerkkiä, 7, 12, 36-36-38-40-40-48, 12 ja 7 silmukan jälkeen. Huomaatteko virheen? S, M ja L koossa silmukoita on saman verran, mutta takakappaleessa L koossa onkin 2 silmukkaa enemmän. Tarkistin myös muun kielisiä ohjeita, ja kaikki jotka tarkistin, oli niissä sama virhe.
05.10.2019 - 20:51Angelina skrifaði:
Je suis sur le point de démarrer cet ouvrage, laine et aiguilles en main mais franchement c’est une prise de tête en commençant par le haut ! pour moi qui tricote à temps perdu et pour me détendre Je n’ai qu’une envie mettre cette belle laine au feu 🤬
18.05.2019 - 08:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Angelina, Les modèles DROPS sont réalisés par des milliers de personnes du monde entier. Nous comprenons toutefois qu’en fonction du pays, les explications puissent être formulées différemment. Pour toute assistance, vous pouvez volontiers poser votre question ici, et pour toute aide individualisée, vous adresser au magasin où vous avez acheté votre laine – même par mail ou téléphone. Bon tricot!
20.05.2019 - 14:15Kudzon skrifaði:
Hvor mye garn trengs for å strikke denne ensfarget i str M?
10.03.2019 - 13:27DROPS Design svaraði:
Hej, så behøver du nok omkring 350 g :)
12.03.2019 - 14:21Celine Froment skrifaði:
Bonjour a vous,pourquoi tous vaux modèles commence par le haut du pull merci
16.02.2019 - 11:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Celine! En travaillant votre ouvrege du haut en bas, vous avez plus d’options de l’ajuster a vos propres measures. Il est aussi plus facile d’essayer le pull tout en travaillant, modifier la longueur de l’empiecement, des manches. Suivez les explications pas a pas. Bon travail.
18.02.2019 - 08:11