Brigitte skrifaði:
Meine Frage ist: Kann ich den Pullover auch ab der Passe in der Weite und Länge verändern. Können Sie mir bitte mitteilen, wie ich das mit dem Aufnehmen machen soll. Der Pullover ist wunderschön, aber für mich etwas zu weit und zu kurz. Danke für Ihre Hilfe.
18.01.2019 - 10:48DROPS Design svaraði:
Liebe Brigitte, leider können wir nicht einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen, aber gerne können Sie sich von so einem Modell inspirieren. Viel Spaß beim stricken!
18.01.2019 - 11:33
Gabriele skrifaði:
Hallo ihr Lieben,gibt es nicht mehr die Möglichkeit seine Liebingsmodelle zu speichern,ich glaube es war unter _meine Favoriten- möglich?
16.01.2019 - 12:57DROPS Design svaraði:
Liebe Gabriele, diese Möglichkeit kommt schnell zurück, danke im voraus für Ihren Geduld. Viel Spaß beim stricken!
16.01.2019 - 13:11
BEATRICE skrifaði:
Très joli modèle.Aime les couleurs et le motif....
05.01.2019 - 20:50
Gonny skrifaði:
Love the colours and the pattern on the yoke. Very sweet.
29.12.2018 - 07:39
Anneli skrifaði:
Ilusad värvid, armas kampsun!
14.12.2018 - 12:14
Dear to my Heart Sweater#deartomyheartsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-7 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykki er prjónað í hring, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum natur og prjónið 14-15-16-16-17-18 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-30-32-32-34-36 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-45-48-48-51-54 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 56-60-64-64-68-72 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 70-75-80-80-85-90 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er að neðan. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út alveg eins við hitt prjónamerkið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermar): Byrjið 3 lykkjum fyrir prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-116-120-124-128 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum sinnep. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 3 cm. Skiptið yfir í stuttan hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-21-31-18-26-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 126-133-147-138-150-156 lykkjur. Prjónið síðan 1 umferð slétt. Prjónið síðan UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef ekki er óskað eftir upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI: BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (= 18-19-21-23-25-26 mynstureiningar með 7-7-7-6-6-6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 288-304-336-368-400-416 lykkjur í umferð. Prjónið síðan með litnum gráblár þar til stykkið mælist ca 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 42-45-49-54-60-63 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 59-61-69-75-79-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-12-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 85-91-99-109-121-127 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 59-61-69-75-79-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-12-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 43-46-50-55-61-64 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-202-218-238-266-286 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-10-10-10-12-16 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn með litnum gráblár. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 8 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 198-214-230-250-278-298 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 22 cm frá skiptingu í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3 cm til loka). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 38-38-46-46-54-58 lykkjur jafnt yfir = 236-252-276-296-332-356 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið dragist saman. Skiptið yfir í hringprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 59-61-69-75-79-81 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-10-12-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-79-85-91-97 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-10-10-10-12-16 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum gráblár. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkju mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 9-11-14-14-17-20 sinnum = 49-49-51-57-57-57 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 40-39-37-36-34-33 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 6 cm til loka, úrtöku mitt undir ermi er lokið og það eru styttri mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt með litnum gráblár og fækkið um 1-1-3-1-1-1 lykkjur í umferð = 48-48-48-56-56-56 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn (= 6-6-6-7-7-7 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð með litnum natur þar sem fækkað er um 0-0-0-4-4-0 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-52-52-56 lykkjur. Nú eru eftir ca 3 cm til loka. Ef óskað er eftir að hafa ermina lengri er hægt að prjóna áfram með litnum natur að óskaðri lengd. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir í litinn sinnep og prjónið 1 umferð stroff. Fellið síðan laust af með litnum sinnep og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 46-45-43-42-40-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #deartomyheartsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.