Detlev skrifaði:
Hallo, ich versuche bei Algawo zu bestellen, komm aber leider nicht auf die Seite. Arbeiten Sie nicht mehr mir Algawo zusammen oder was ist passiert? Gruß Detlev
26.03.2019 - 22:02DROPS Design svaraði:
Lieber Detlev, hier finden Sie die Seite für Algawo, so können Sie auch von dieser Seite ihr Onlinestore besuchen und bestellen. Viel Spaß beim stricken!
27.03.2019 - 08:04
Detlev skrifaði:
Danke für die schnelle Antwort.
14.03.2019 - 15:37
Detlev skrifaði:
Hallo, mit welcher Wolle kann ich dieses Modell noch nachstricken?
14.03.2019 - 13:30DROPS Design svaraði:
Lieber Detleve, Nord und Kid-Silk gehören beide zur Garngruppe A - Sie können dann eine Alternative aus derselben Garngruppe benutzen. Sie können auch 1 Faden Garngruppe C stricken - mehr lesen Sie hier. Benutzen Sie unseren Garnumrechner. Viel Spaß beim stricken!
14.03.2019 - 13:45
Susanne Karup skrifaði:
Er der ikke en fejl i ærmet ? Skal man ikke skifte til mindre pind når man strikker rib ?
09.03.2019 - 09:55DROPS Design svaraði:
Hej Susanne, ja det stemmer, vi skal få skrevet det ind i opskriften. Tak for info :)
12.03.2019 - 09:22
Diana skrifaði:
Thank you for replying. When you announced the selected spring/ summer patterns the bolero version was included. I can’t attach any pictures, but it was lilac and reference was z-841...
07.03.2019 - 23:19DROPS Design svaraði:
Dear Diana, my mistake sorry. All patterns from spring summer collection will be published in the next weeks until summer. Register to our newsletter or follow us on social medias to be informed about the new patterns. Happy knitting!
08.03.2019 - 08:12
Diana skrifaði:
Is the bolero version going to be available soon? Thank you.
06.03.2019 - 23:03DROPS Design svaraði:
Dear Diana, there is only a jumper with that pattern. Happy knitting!
07.03.2019 - 09:26
Tanja Schwabe skrifaði:
Das Schema ist korrekt, ich hatte einen Strickfehler. ;-)
10.02.2019 - 20:09
Tanja Schwabe skrifaði:
Huhu, ich stricke gerade diesen tollen Pulli, stolpere aber über ein paar Dinge: - Muss es nicht bei dem X-Kästchen heißen "1 Masche links in HIN-Reihen"? - Ist im Diagramm ab Reihe 7 wirklich eine Verschiebung des Musters vorgesehen? Wenn ich das Strickmuster mit dem Ausschnittsbild vergleiche, sieht es für mich so aus, als ob die linken Maschen immer übereinander stehen, A1 zeigt diese aber versetzt? Vielen Dank und liebe Grüße.
09.02.2019 - 21:38
Gitte Hansen skrifaði:
Poetry in motion vil jeg strikke i noget andet garn, som er til pind 4. Hvordan kan jeg se om jeg har nok garn, jeg tænker på længden. Det er to forskellige. Jeg har 4 nøgler af hver, den ene er på 50gr på 200mtr. Den anden er på 25gr. På 212 mtr. Jeg kan ikke se længden på jeres garn Vh Gitte Hansen
14.01.2019 - 19:09DROPS Design svaraði:
Hei Gitte, Det er strikkefastheten som avgjør hvilke garn som kan byttes med hverandre, men så lenge du oppnår samme strikkefasthet skal det gå helt fint å bytte. Om du trykker deg inn på hvert garn her vil du se løpelengden. 50g Nord = 170 meter, mens 50g Kid Silk = 420 meter (210 m per nøste a 25 g) God fornøyelse
23.01.2019 - 11:29
Karin skrifaði:
Ist dieser Pulli wirklich aus Drops Nord? Das sieht doch eher nach Brushed Alpaca Silk aus.
16.12.2018 - 04:51
Poetry in Motion#poetryinmotionsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tilfærslum á lykkjum, stroffi og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-8 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 17 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 3,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður. Fyrst fram og til baka, síðan er prjónað í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 108-116-124-124-132-140 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Nord og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 7-8-8-8-9-9 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: 1 kantlykkja garðaprjón, stroff eins og áður yfir næstu 14-18-22-22-26-30 lykkjur, snúið, herðið á þræði svo ekki myndist stórt gat. UMFERÐ 2: Prjónið storff til baka þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Klippið frá. Prjónið nú alveg eins í gagnstæðri hlið á stykki, þ.e.a.s. yfir síðustu 15-19-23-23-27-31 lykkjur í umferð (séð frá réttu). Byrjið frá röngu og prjónið þannig: UMFERÐ 1: 1 kantlykkja garðaprjón, stroff yfir næstu 14-18-22-22-26-30 lykkjur, snúið, herðið á þræði svo að ekki myndist stórt gat. UMFERÐ 2: Prjónið stroff til baka þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Klippið frá. Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er prjónað yfir allar lykkjur í umferð með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 14-18-22-22-26-30 lykkjur, prjónið (2 lykkjur brugðiið saman, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 78 lykkjur (= 20 lykkjur færri), sléttprjón yfir næstu 14-18-22-22-26-30 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í hvorri hlið til baka frá röngu = 88-96-104-104-112-120 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 14-18-22-22-26-30 lykkjur, A.1 (= 58 lykkjur – mynstur á að ganga jafnt upp þannig að prjónaðar eru sléttar lykkjur yfir 2 lykkjur slétt og garðaprjón yfir brugðnar lykkjur í stroffi), sléttprjón yfir næstu 14-18-22-22-26-30 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm fitjið upp 5-5-5-9-10-11 nýjar lykkjur í lok næstu 2 umferða = 98-106-114-122-132-142 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur A.1, sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir handveg, fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu 2 umferðum (merkir klauf) = 96-104-112-120-130-140 lykkjur. Prjónið nú mynstur eins og áður, en prjónið 2 lykkjur garðaprjóni í hvorri hlið (= kantur meðfram klauf í hvorri hlið). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina alls 5 sinnum mælist stykkið ca 32-32-31-30-30-29 cm frá handvegi. Haldið síðan áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón yfir lykkjur í A.1 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður) þar til stykkið mælist 33-33-33-34-34-35 cm frá handveg og niður – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu: 2 kantlykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir næstu 17-21-25-29-34-39 lykkjur þar sem aukið er út um 5-5-5-5-4-7 lykkjur jafnt yfir (= 22-26-30-34-38-46 lykkjur sléttprjón) – sjá ÚTAUKNING, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón yfir næstu 58 lykkjur og aukið jafnframt út um 1 lykkju brugðið á eftir hverri lykkju í garðaprjóni (= 20 lykkjur fleiri = 78 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 17-21-25-29-34-39 lykkjur þar sem aukið er út um 5-5-5-5-4-7 lykkjur jafnt yfir (= 22-26-30-34-38-46 lykkjur), 2 kantlykkjur garðaprjón = 126-134-142-150-158-174 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka – lykkjur sem auknar voru út á eftir lykkjum í garðaprjóni í A.1 eru prjónaðar áfram slétt frá röngu og lykkjur sem auknar voru út í sléttprjóni í hvorri hlið eru prjónaðar snúnar brugðið frá röngu, svo ekki myndist gat. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff þannig: 2 kantlykkjur garðaprjón, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 2 kantlykkjur garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka svona þar til stroffið mælist 7-8-9-9-10-10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki. ERMI: Ermarnar eru fyrst prjónaðar fram og til baka á hringprjón, síðan er prjónað í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. Fyrst er prjónað fram og til baka á hringprjón svo hægt sé að sauma ermina við handveg á fram- og bakstykki. Fitjið upp 54-58-61-65-68-71 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Nord + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 2-2-2-5-5-6 cm haldið áfram í sléttprjóni hringinn á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 4-4-4-2-2-2 cm frá þar sem byrjað var að prjóna í hring, fækkið um 2 lykkjur undir ermum – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 7.-6.-5.-4.-4.-3. hverri umferð alls 7-8-9-10-10-11 sinnum = 40-42-43-45-48-49 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist alls 28-27-26-26-25-24 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Nú er aukið út um 8-6-9-7-8-7 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 4 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Ermin mælist alls 34-33-32-32-31-30 cm frá öxl og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma í lykkjurnar eina og eina, skiljið eftir ca 27-28-29-29-30-31 cm fyrir op í hálsmáli. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir handveg og niður að klauf í hvorri hlið (= 17 cm klauf). Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við uppfitjunarkant á ermum og saumið saman op undir ermi niður að þar sem ermin er prjónuð í hring. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #poetryinmotionsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.