DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Pink Moon

Prjónað sjal úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni, gatamynstri og tvegja lita klukkuprjóni.

DROPS 201-4
DROPS Design: Mynstur bs-148
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Mál: Ca 50 cm á hæð mælt fyrir miðju. Lengd mæld meðfram efri hlið ca 190-198 cm.

EFNI:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 3250, ljós bleikfjólublár
100 g litur 0100, natur
100 g litur 4088, bleikfjólublár
50 g litur 8112, ísblár
50 g litur 6347, bláfjólublár

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN (fram og til baka):
UMFERÐ 1 frá réttunni: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki á prjóninn hér * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, setjið eitt prjónamerki hér, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt. Snúið ekki stykkinu, næsta umferð er einnig prjónuð frá réttu (= 2 lykkjur fleiri).

UMFERÐ 2 frá réttu: 3 lykkjur garðaprjón (prjónamerki situr hér), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, steypið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næsta uppslátt og fellið brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir (prjónamerki situr hér), prjónið 3 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, næsta umferð er prjónuð frá röngu.

UMFERÐ 3 frá röngu: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr hér), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, steypið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næsta uppslátt og lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir (prjónamerki situr hér), prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkju slétt. Snúið ekki stykkinu við, næsta umferð er einnig prjónuð frá röngu (= 2 lykkjur fleiri).

UMFERÐ 4 frá röngu: Prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr hér), * prjónið næsta uppslátt og fellið slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og steypið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir (prjónamerki situr hér), prjónið 4 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, næsta umferð er prjónuð frá réttu.

Eftir umferð 1-4 hafa verið auknar út 4 lykkjur alls (2 lykkjur í hvorri hlið). Nú er hægt að prjóna þessar 2 lykkjur inn í klukkuprjóns mynstrið.

UMFERÐ 5 frá réttu: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Nú eru 2 lykkjur að framan þar sem prjónamerkið situr, færið prjónamerkið þangað og prjónið þessar 2 lykkjur í klukkuprjóns mynstri þannig: prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og steypið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Nú eru 2 útauknu lykkjurnar prjónaðar inn í klukkuprjón.
Prjónið svona yfir næstu lykkjur: * prjónið næsta uppslátt og fellið af slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og steypið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir (prjónað hefur verið fram að prjónamerki). Takið frá prjónamerkið og prjónið inn fyrstu 2 lykkjur í klukkuprjóns mynstri þannig:
Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og steypið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Nú eru 2 útauknu lykkjurnar prjónaðar inn í klukkuprjón. Setjið nú prjónamerkið hér. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur fleiri).

Endurtakið síðan umferð 2-5 (= 4 lykkjur fleiri í hverri endurtekningu).

FORMUN.
Bleytið sjalið og leggið það varlega út í rétt form. Láið það þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Vegna mismunandi áferðar á sjalinu verður að forma það til þegar það hefur verið prjónað til loka – sjá FORMUN í útskýringu að ofan.

SJAL:
Fitjið upp 13 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós bleikfjólublár. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri).

Prjónið 1. og 2. umferð 3 sinnum til viðbótar (alls 4 sinnum) = 29 lykkjur í umferð.

Prjónið síðan næstu umferð þannig:
UMFERÐ 3 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 8 sinnum, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 10 lykkjur fleiri) = 39 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 4 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 41 lykkjur í umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Prjónið umferð 1-2 alls 10 sinnum = 81 lykkjur í umferð.

Skiptið yfir í litinn natur og prjónið þannig:
UMFERÐ 5: Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 83 lykkjur.
UMFERÐ 6: Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 85 lykkjur.

UMFERÐ 7 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið þær slétt (= 29 lykkjur fleiri) = 114 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 8 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 116 lykkjur í umferð.

UMFERÐ 9: Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 118 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 10: Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 120 lykkjur í umferð.

Nú á að prjóna tveggja lita klukkuprjón með litnum ljós bleikfjólublár og litnum natur frá réttu þannig:
Skiptið yfir í litinn ljós bleikfjólublár, prjónið 1 umferð með TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= 2 lykkjur fleiri). * Skiptið yfir í litinn natur og prjónið umferð 2 af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN. Skiptið yfir í litinn ljós bleikfjólublár og prjónið umferð 4 af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN. Skiptið yfir í litinn ljós bleikfjólublár og prjónið umferð 5 af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN (= 2 lykkjur fleiri) *.
Prjónið frá *-* þar til umferð 2-5 hafa verið prjónaðar alls 8 sinnum á hæðina = 154 lykkjur í umferð. Snúið ekki stykkinu, næsta umferð á einnig að prjóna frá réttu.

UMFERÐ 11 (= rétta): Skiptið yfir í litinn natur og prjónið allar lykkjur slétt, allar lykkjur með uppslætti á að prjóna slétt saman með uppslætti. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið allar lykkjur slétt. Snúið stykkinu.

Skiptið yfir í litinn ísblár og prjónið þannig:
UMFERÐ 13: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 155 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 14: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 156 lykkjur í umferð.

UMFERÐ 15 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 2 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og prjónið 3 lykkjur slétt (= 31 lykkjur fleiri) = 187 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið 21 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 188 lykkjur í umferð.

UMFERÐ 17: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 189 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 18: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 190 lykkjur í umferð.

Skiptið yfir í litinn natur og prjónið þannig:
Prjónið A.1 yfir 8 lykkjur, prjónið A.2 fram þar til 8 lykkjur eru eftir (29 mynstureiningar á breidd), prjónið A.3 yfir 8 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina, nú eru 206 lykkjur í umferð.

Skiptið yfir í litinn bláfjólublár og prjónið þannig:
UMFERÐ 19 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 207 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 20 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 208 lykkjur í umferð.

UMFERÐ 21 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið þær slétt (= 69 lykkjur fleiri) = 227 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 22 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 278 lykkjur í umferð.

UMFERÐ 23 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 279 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 24 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 280 lykkjur í umferð.

Prjónið nú tveggja lita klukkuprjón með litnum bleikfjólublár og litnum natur.
Skiptið yfir í litinn bleikfjólublár, prjónið 1. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. * Skiptið yfir í litinn natur og prjónið 2. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN. Skiptið yfir í litinn bleikfjólublár og prjónið 3. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið 4. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN.
Skiptið yfir í litinn bleikfjólublár og prjónið 5. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN *.
Prjónið frá *-* þar til 2.-5. umferð hefur verið prjónuð alls 12 sinnum á hæðina (= 50 lykkjur fleiri) = 330 lykkjur í umferð. Snúið ekki stykkinu. Snúið ekki stykkinu, næsta umferð er einnig prjónuð frá réttu.

Skiptið yfir í litinn natur og prjónið þannig:
UMFERÐ 25 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 331 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 26 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 332 lykkjur í umferð.

UMFERÐ 27 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið 2 lykkjur slétt (= 1 lykkja fleiri) = 333 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 28 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 334 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 29 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 335 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 30 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 336 lykkjur í umferð.

Skiptið yfir í litinn ljós bleikfjólublár og prjónið umferð 29-30 10 sinnum (20 umferðir garðaprjón þar sem aukið er út um 2 lykkjur í annarri hverri umferð = 20 lykkjur fleiri) = 336 lykkjur í umferð.

Skiptið yfir í litinn natur og prjónið þannig:
UMFERÐ 31 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 357 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 32 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 358 lykkjur í umferð.

UMFERÐ 33 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið þær slétt (= 1 lykkja fleiri) = 359 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 34 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 360 lykkjur í umferð.

UMFERÐ 35: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 361 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 36: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 362 lykkjur í umferð.

Prjónið nú tveggja lita klukkuprjón með litnum bláfjólublár og litnum ísblár.
Skiptið yfir í litinn bláfjólublár, prjónið 1. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. * Skiptið yfir í litinn ísblár og prjónið 2. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN. Skiptið yfir í litinn bláfjólublár og prjónið 3. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN. Skiptið yfir í litinn ísblár og prjónið 4. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN. Skiptið yfir í litinn bláfjólublár og prjónið 5. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN *. Prjónið frá *-* þar til 2.-5. umferð hefur verið prjónuð alls 8 sinnum á hæðina (34 lykkjur fleiri) = 396 lykkjur í umferð.

Skiptið yfir í litinn bleikfjólublár og prjónið þannig:
UMFERÐ 37: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 397 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 38: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 398 lykkjur í umferð.

UMFERÐ 39 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið þær slétt (= 1 lykkja fleiri) = 399 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 40 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 400 lykkjur í umferð.

UMFERÐ 41: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 402 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 42: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 404 lykkjur í umferð.

Skiptið yfir í litinn ljós bleikfjólublár og prjónið þannig:
Prjónið A.4 yfir 4 lykkjur, prjónið A.5 fram þar til 4 lykkjur eru eftir (66 mynstureiningar á breidd), prjónið A.6 yfir 4 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina, nú eru 420 lykkjur í umferð.

Skiptið yfir í litinn bleikfjólublár og prjónið þannig:
UMFERÐ 43: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 421 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 44: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 422 lykkjur í umferð.

UMFERÐ 45 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið þær slétt (= 1 lykkja fleiri) = 423 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 46 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 424 lykkjur í umferð.

UMFERÐ 47: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 425 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 48: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 426 lykkjur í umferð.

AFFELLING:
Í næstu umferð frá réttu er fellt af með i-cord affellingu. Mikilvægt er að fella laust af í kanti svo að sjalið fái fallegt form og fallega affellingu. Notið gjarna grófari prjón til að fella af með og passið uppá að prjóna lykkjurnar laust.
Prjónið og fellið af þannig: * Prjónið 2 lykkjur slétt, næstu 2 lykkjur eru prjónaðar snúnar slétt saman. Færið síðan 3 lykkjurnar til baka frá hægri prjón yfir á vinstri prjón (í sömu röð sem þær eru í) *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur á vinstri prjóni hafa verið felldar af og eftir eru 3 lykkjur á hægri prjóni. Færið þessar 3 lykkjur yfir á vinstri prjón og fellið þær af slétt. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.10.2019
Leiðrétting:..UMFERÐ 27 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið 2 lykkjur slétt (= 1 lykkja fleiri) = 333 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 28 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 334 lykkjur í umferð.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Það eiga að myndast göt
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna.
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Nicole wrote:

Le rang 1 des côtes anglaises * 1 endroit, un jeté , glissé la maille suivante * répéter jusqu’à la fin du rang ???? Sûrement plus de deux mailles d’augmentation à la fin ?? À l’aide svp

19.03.2024 - 00:05

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, les jetés des côtes anglaises appartiennent aux mailles glissées et ne sont pas comptées comme des mailles, dans cette vidéo vous verrez comment tricoter ce type de côtes anglaises (sans augmentations dans la vidéo). Bon tricot!

19.03.2024 - 11:37

country flag Mokrima wrote:

Hat dieses Modell Randmaschen? 2?

24.05.2020 - 18:06

DROPS Design answered:

Liebe Mokrima, wenn man Patentmuster strickt, gibt es 1 Randmasche auf beiden Seite, aber sonnst stricken Sie keine - und beginnen die Reihen mit 1 Umschlag wie in diesem Video. Viel Spaß beim stricken!

25.05.2020 - 10:05

country flag Karin wrote:

Vielen. lieben Dank für die schnelle Beantwortung meiner Frage.

11.12.2019 - 15:14

country flag Karin wrote:

Reihe 3 und 4 habe ich gestrickt. Danach steht "Die 1.-2. Reihe insgesamt 10 x arbeiten ....." Nun meine Frage: 1. und 2. Reihe - kraus re. oder 3. und 4. Reihe mit Loch?

11.12.2019 - 10:56

DROPS Design answered:

Liebe Karin, Sie wiederholen die 1. -2. REIHE (= die 2 Reihen die Sie am Anfang gestrickt haben, und schon 4 x wiederholt). Viel Spaß beim stricken!

11.12.2019 - 13:01

country flag Dea wrote:

Si alla fine ho fatto il FERRO 33. Grazie. :)

27.09.2019 - 17:23

country flag Dea wrote:

Si ho fatto il FERRO 33 e viene giusto. Grazie ^_^

27.09.2019 - 17:21

country flag Dea wrote:

Scusate lavorando il FERRO 27 rimangono 3 magli e non va bene nemmno lavorare comeil FERRO 21 perchè è un'altra cosa, comunque dove sta l'errore? Grazie

27.09.2019 - 15:57

DROPS Design answered:

Buongiorno Dea. Inoltreremo la sua segnalazione al settore design. Provi a verificare se il ferro 27 deve essere lavorato come il ferro 33. La correzione verrà inserita nel testo online. Buon lavoro!

27.09.2019 - 17:00

country flag Dea wrote:

Buongiorno, sto lavorando la RIGA 27, ma seguendo ciò che è scritto non rimangono 2 maglie, per otternerle devo lavorare come la RIGA 21...c'è qualche errore? Grazie.

27.09.2019 - 15:39

country flag Claudia wrote:

Spett.le Drops, grazie mille per tutti i modelli fantastici; avrei una domanda, per i gomitoli dei primi tre colori: 100 g colore 3250, rosa antico chiaro 100 g colore 0100, panna 100 g colore 4088, erica .... si usano completamente o si usa parte dei 100 gr... ??? Perché vorrei fare questo scialle con vari avanzi di altri progetti... GRAZIE MILLE DI NUOVO.

17.06.2019 - 16:45

DROPS Design answered:

Buongiorno Claudia. Le consigliamo di prevedere la quantità di filato indicata nel modello. Il suo rivenditore Drops di fiducia è a sua disposizione per ulteriori consigli. Buon lavoro!

19.06.2019 - 08:59

country flag Astrid wrote:

Mir ist nicht klar, wie ich die Umschläge in der folgenden Reihe stricken muss. Verschränkt, so dass kein Loch ensteht oder rechts, dann entsteht ja ein Loch

25.05.2019 - 11:45

DROPS Design answered:

Liebe Astrid, die Umschläge werden "normal" gestrickt, dh nicht verschränkt. Viel Spaß beim stricken!

27.05.2019 - 09:57