Eva skrifaði:
Hej igen. Jeg kan slet ikke se nogen opskrift på huen under model nr 197-19. Derimod har jeg nu fundet den under model nr 197-18 nedenunder opskriften på jakken. Men opskriften burde vel også ligge på nr 197-19, som kun viser huen?
14.11.2018 - 12:06DROPS Design svaraði:
Hej Eva, Så er opskriften lagt ud. God fornøjelse!
14.11.2018 - 15:29
Eva skrifaði:
Hvor mange masker skal man slå op?
13.11.2018 - 15:54DROPS Design svaraði:
Hej Eva, Du går ned i opskriften hvor der står HUE, Slå 110-116-122 masker op. Her vælger du det antal som passer til den størrelse du vil strikke. Hvis du vælger M/L så følger du det midterste tal igennem hele opskriften. God fornøjelse!
13.11.2018 - 15:57
Ute Müller skrifaði:
Hallo an das tolle Team, kurze Frage, gibt es einen Tip / einfache Übersicht, wie ich dieses schöne Modell EINFARBIG stricken kann? danke und einen freundlichen Gruß aus Hessen, Ute
07.11.2018 - 00:23DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Müller, Sie können die Anleitung so folgen, aber anstatt Mosaikmuster und stricken Sie einfach krausrechts (dabei folgen Sie die Reihen im Diagram = 1 Reihe im Diagram = 2 gestrickte Reihe) - die Abnahmen wie beschrieben nicht vergessen (= beim Pfeil 1 und 2) - einige Reihe dazu stricken wenn nötig. Viel Spaß beim stricken!
07.11.2018 - 08:29
Danyelle skrifaði:
Quand allez-vous publier le patron
12.08.2018 - 21:08
Lena skrifaði:
Gorgeous!!! Please publish!!
06.07.2018 - 01:12
Aka skrifaði:
Krásný rebarborový model!
01.07.2018 - 14:16
Hint of Heather Hat#hintofheatherhat |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð húfa úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í garðaprjóni, mosaik mynstri og opi fyrir tagl.
DROPS 197-19 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 8. og 9. hverja lykkju slétt saman. Ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur. MOSAIK MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og sjá útskýringu á aðferð að neðan. Hver umferð í mynsturteikningu jafngildir 2 umferð. Þ.e.a.s. frá réttu er mynsturteikning prjónuð frá hægri til vinstri og frá röngu er sama umferð prjónuð frá vinstri til hægri. Í öllum umferðum frá réttu er þræðinum haldið aftan við stykkið (þ.e.a.s. frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni. Í öllum umferðum frá röngu er þræðinum haldið framan við stykkið (þ.e.a.s. að þér og ennþá frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni. Passið uppá að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Til þess að fá betri yfirsýn yfir mynstur er hægt að setja prjónamerki á milli hverra mynstureininga með A.1B. A.1A = byrjunar lykkja frá réttu og enda lykkja frá röngu (það á að prjóna lykkjuna) A.1B = 1 mynstureining A.1C = enda lykkja frá réttu og byrjunar lykkja frá röngu (það á að prjóna lykkjuna) Í þeim umferðum sem eru alveg einlitar í mynsturteikningu eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að lyfta lykkjum af. Í fyrstu mynsturrönd í A.1 sem er með auða rúðu í A.1A og A.1C (litur A- umferð er merkt með stjörnu í A.1A), eiga allar lykkjur með lit A að prjónast slétt og allar lykkjur með lit C er lyft af prjóni. Í hinum mynsturröðum sem hafa auða rúðu eða rúðu með stjörnu í A.1A og A.1C (litur A eða C), eiga allar lykkjur með lit A eða C að prjónast slétt og allar lykkjur með lit B er lyft af prjóni. Í hverri mynsturrönd sem hafa svarta rúðu í A.1A og A.1C (litur B), eiga allar lykkjur með lit B að prjónast slétt og allar lykkjur með lit A eða C er lyft af prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Fyrst er prjónaður kantur neðst. Síðan er prjónað mosaik mynstur. Mikilvægt er að fylgja mynsturteikningu vel. Allt litamynstrið er prjónað í garðaprjóni, en ekki er prjónað mynstur í venjulegum lykkjum í garðaprjóni. Litamynstur næst með því að lyfta lykkjum af prjóni eins og útskýrt er að ofan. Lesið alla útskýringuna með mosaik mynstri áður en byrjað er að prjóna! Að lokum er prjónaður kantur efst á húfunni áður en stykkið er saumað saman við miðju að aftan. Húfan er opin efst fyrir tagl. HÚFA: Fitjið upp 110-116-122 lykkjur á hringprjón 3 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðna og endið með 1 lykkju slétt. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 2-2-3 cm frá uppfitjunarkanti. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið MOSAIK MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. A.1A er prjónað yfir fyrstu lykkju, A.1B er endurtekið þar til 1 lykkja er eftir á prjóni (= 18-19-20 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.1C yfir síðustu lykkju. Haldið svona áfram með mynstur, en munið eftir 1 umferð í mynsturteikningu = 2 umferðir. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1B er fækkað jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚRTAKA. Í umferð merktri með ör-1 er fækkað um 12-10-12 lykkjur jafnt yfir = 98-106-110 lykkjur í umferð (nú er pláss fyrir 24-26-27 mynstureiningar með 4 lykkjum). Í umferð merktri með ör-2 er fækkað um 24-26-24 lykkjur jafnt yfir = 74-80-86 lykkjur í umferð. A.1 hefur nú verið prjónað til loka. Haldið áfram fram og til baka yfir allar lykkjur með litnum perlugrár þar til stykkið mælist 15-16-17 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðin og endið með 1 lykkju slétt. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til prjónaðar hafa verið jafn margar umferðir í kanti neðan á húfu, þ.e.a.s. ca 2-2-3 cm. Prjónið síðan 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar JAFNFRAMT er fækkað um 24-26-28 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 50-54-58 lykkjur. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 18-19-21 cm ofan frá og niður. FRÁGANGUR: Saumið húfuna saman við miðju að aftan innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hintofheatherhat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.