Monica Tjärnberg skrifaði:
Tycker att uppdateringen på det här mönstret i storlek 5-6 år är svår att förstå. Jag får inte antalet maskor som ska ökas att stämma. Med vänlig hälsning
18.03.2020 - 21:33DROPS Design svaraði:
Hej Texten i mönstret är uppdaterad med rättelsen så du behöver bara följa mönstret som det står. Du börjar med 84 m och sedan ökas det 4+4 m på varvet där du sätter markörer = 92 m. Efter det ökar du till raglan där du ökar 8 m på vartannat varv totalt 17 gånger. 8 x 17 = 136 maskor ökade totalt till raglan. 92+136 = 228 m. Lycka till!
19.03.2020 - 11:38
Nynke Tempelaar skrifaði:
Waarom moet je 30 steken meerderen als je de boord van het lijf gaat breien. Lijkt me zoveel, maar begrijp het ook niet wat de bedoeling hiervan is.
27.03.2019 - 14:10DROPS Design svaraði:
Dag Nynke,
Dit is bedoeld om de boord wijder te maken dan de rest van het pand, omdat de boordsteek vaak wat samentrekt. Soms is de boord juist wat strakker om deze op het lijf aan te laten sluiten, maar bij dit ontwerp is dat juist niet de bedoeling.
28.03.2019 - 12:37
Melanie H skrifaði:
Hallo, bezieht sich die Maschenprobe auf die Nadeln der Stärke 3 oder 4? Mit 4 bin ich zu gross in der Maschenprobe. Muss ich dann beide Nadeln eine Nummer kleiner nehmen? Danke und Grüsse
14.12.2018 - 19:54DROPS Design svaraði:
Liebe Melanie H, die Maschenprobe wird mit den größeren Nadeln gestrickt, dh für das glatt rechts Teil im Pullover. Viel Spaß beim stricken!
17.12.2018 - 09:08
Melanie H skrifaði:
Hallo, bezieht sich die Maschenprobe auf die Nadeln der Stärke 3 oder 4?\r\nMit 4 bin ich zu gross in der Maschenprobe.\r\n\r\nMuss ich dann beide Nadeln eine Nummer kleiner nehmen?\r\n\r\nDanke und Grüsse
14.12.2018 - 19:52
Manoa skrifaði:
Merci de votre réponse. Je suis à 14 cm sur les indications initiales, auriez-vous un conseil pour me permettre de corriger l‘erreur discrètement sans devoir tout reprendre, svp ? Grand merci, bonne journée.
22.11.2018 - 10:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Manoa, je ne suis pas certaine de pouvoir vous aider, à titre personnel, je reprendrai au début pour être certaine du résultat. N'hésitez pas à demander à votre magasin, on pourra peut être vous suggérer une idée. Bon tricot!
23.11.2018 - 11:20
Manoa skrifaði:
Bonjour,je comprends que pour le dos/devant, ce sera le même nombre de mailles (66 en 5-6ans). Alors je ne comprends pas pourquoi pour les premières augmentations 1- en raglan (jusqu’a 15cm), on n’a pas le même nombre de mailles entre le devant et le dos (66/50/62/50 pour atteindre 228 mailles). Pouvez-vous m’aider, svp? Merci à vous, bonne Journée. Manoa
21.11.2018 - 14:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Manoa, le nombre de mailles va être corrigé dans cette taille, on doit avoir dès le début 30 m pour le devant et donc 17 m pour le demi-dos en fin de rang. Merci pour votre retour. Bon tricot!
22.11.2018 - 08:49
Fabienne Jaulin skrifaði:
Bonjour, J'adore ce modèle. Avez-vous une version au point de riz? Merci!
10.11.2018 - 22:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Jaulin, seule une version jersey rayée existe pour ce modèle. Bon tricot!
12.11.2018 - 09:37
Fabienne Jaulin skrifaði:
Bonjour, Je voudrais faire ce pull pour mon fils mais j'ai dû tricoter l'échantillon avec des aiguilles de 3,5 au lieu de 4 pour avoir le bon nombre de mailles. Puis-je quand même utiliser des aiguilles de 3 pour les côtes? Il est très difficile de trouver des aiguilles de 2,5 près de chez moi... Merci!
30.10.2018 - 14:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Fabienne! Bien sur que tu peux utiliser des aiguilles de 3 pour les côtes. Bon tricot!
30.10.2018 - 15:40
Sunny Day Stripes#sunnydaystripessweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa fyrir börn með laskaínu úr DROPS Lima eða DROPS MUSKAT. Stykkið er prjónað ofan frá og niður röndum. Stærð 2 - 12 ára.
DROPS Children 32-13 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: Stykkið er prjónað í röndum, prjónaðar eru mismunandi rendur á berustykki og fram- og bakstykki/ermum. Ekki klippa þráðinn frá eftir hverja rönd, hann fylgir áfram með í stykkinu. Rendur á berustykki: Prjónið * 4 umferðir með litnum gulur, prjónið 2 umferðir með litnum ljós grár *, prjónið frá *-* þar til berustykki hefur verið prjónað til loka. Stillið af að endað sé með 4 umferðir með litnum gulur (þ.e.a.s. stykkið skiptist og prjónað er áfram í röndum eins og á berustykki þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir með litnum gulur). Prjónið síðan áfram með rendur á fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið * 4 umferðir með litnum ljós grár, prjónið 2 umferðir með litnum gulur *, prjónið frá *-* þar til fram- og bakstykki/ermar hefur verið prjónað til loka. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (á við um laskalínu): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út við öll prjónamerki (= alls 8 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 128 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 4,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er prjónað berustykki með byrjun ca miðju að aftan, síðan skiptist berustykki fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram hringinn á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á sokkaprjóna/hringprjón 3 með litnum gulur/vanillugulur (í 2 minnstu stæðunum verður að fitja upp og prjóna á sokkaprjóna áður en lykkjur eru auknar út, í öðrum stærðum er hægt að fitja upp og prjóna með stuttum hringprjónum). Stykkið er prjónað í RENDUR – sjá útskýring að ofan. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir, skiptið yfir á sokkaprjóna/hringprjóna 4. Peysan er nú prjónuð áfram í sléttprjóni og sett eru 4 prjónamerki fyrir laskalínu í næstu umferð þannig: Prjónið 13-13-13-13-17-17 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, prjónið 12 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki, 24-28-28-30-32-36 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, prjónið 12 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki og endið með 15-15-17-19-19-19 lykkjur = 84-88-92-96-100-104 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir laskalínu. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, í annarri hverri umferð alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 204-216-228-240-252-264 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og rendur eins og áður þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 28-30-31-32-36-38 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 44-46-48-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 58-62-66-70-74-78 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 44-46-48-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi og endið með 30-32-35-38-38-40 lykkjur sléttprjón = 128-136-144-152-160-168 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið síðan áfram í sléttprjóni og rendur. Þegar stykkið mælist 15-17-20-23-26-29 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 156-168-176-188-200-208 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 = 158-170-178-190-202-210 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist 17-19-22-25-28-31 cm frá skiptingu, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Peysan mælist alls 33-36-40-44-48-52 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-46-48-50-52-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og takið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið síðan rendur eins og á fram- og bakstykki í sléttprjóni hringinn. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 1 lykkjur færri) – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-5-5-7-6 cm millibili alls 5-6-5-6-5-6 sinnum = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Þegar stykkið mælist 19-23-27-31-35-38 cm frá skiptingu, skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff yfir allar lykkjur (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist alls 23-27-31-35-39-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunnydaystripessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 32-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.