DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sunny Day Stripes Jacket

Prjónuð peysa fyrir börn með laskaínu úr DROPS Merino eða DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður röndum. Stærð 2 – 12 ára.

DROPS Children 32-14
DROPS Design: Mynstur me-048-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-150-200-200-200 g litur 08, ljós beige
150-150-150-150-200-200 g litur 30, sinnep

Eða notið:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-150-200-200-200 g litur 61, ljós beige
150-150-150-150-200-200 g litur 30, vanillugulur

-------------------------------------------------------
FYLGIHLUTIR FYRIR STYKKIÐ:

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 – fyrir sléttprjón á ermum.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir stroff á ermum.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS TALA, Eik NR 503: 5-5-6-6-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

RENDUR:
Stykkið er prjónað í röndum (ekki kantar að framan), prjónaðar eru mismunandi rendur á berustykki og fram- og bakstykki/ermum. Ekki klippa þráðinn frá eftir hverja rönd, hann fylgir áfram með í stykkinu.
Rendur á berustykki:
Prjónið * 4 umferðir með sinnep, prjónið 2 umferðir með ljós beige *, prjónið frá *-* þar til berustykki hefur verið prjónað til loka. Stillið af að endað sé með 4 umferðir sinnep (þ.e.a.s. stykkið skiptist og prjónað er áfram í röndum eins og á berustykki þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir með sinnep).
Prjónið síðan áfram með rendur á fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið * 4 umferðir með ljós beige, prjónið 2 umferðir með sinnep *, prjónið frá *-* þar til fram- og bakstykki/ermar hefur verið prjónað til loka.

LEIÐBEININGAR (á við um kanta að framan):
Allur kantur að framan er prjónaður með sinnep. Þ.e.a.s. notið 1 dokku af sinnep í hvorn kant að framan þegar þess er þörf (þ.e.a.s. þar sem sinnep er ekki hluti af mynstri).
Skipt er um enda á milli kants að framan og berustykkis (þetta er gert svona til að koma í veg fyrir að endar séu festið meðfram kanti að framan). Þegar skipt er um þráð eru þeir tvinnaðir saman með hvorum öðrum til að lykkjurnar hangi saman.

ÚTAUKNING-1 (á við um laskalína):
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út við öll prjónamerki (= alls 8 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðinn í næstu umferð (= frá röngu), það eiga ekki að myndast göt.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 138 lykkjur), mínus kanta að framan (= 128 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 4,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1-1½ cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-6-6 næstu með ca 6-7-6½-7-7-7 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á sokkaprjóna/hringprjón 3 með sinnep/vanillugulur.
Stykkið er prjónað í RENDUR – sjá útskýring að ofan og lesið LEIÐBEININGAR. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til eftir eru 7 lykkjur, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir, skiptið yfir á sokkaprjóna/hringprjóna 4. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Peysan er nú prjónuð áfram í sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og sett eru 4 prjónamerki fyrir laskalínu í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 15-15-17-17-19-19 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, 10 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki, 28-32-32-36-36-40 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, 10 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki, 15-15-17-17-19-19 lykkjur og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 94-98-102-106-110-114 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir laskalínu. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1, í annarri hverri umferð alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 214-226-238-250-262-274 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni, garðaprjóni yfir kanta að framan og rendur eins og áður þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 29-31-33-35-37-39 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 58-62-66-70-74-78 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 44-46-48-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 29-31-33-35-37-39 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= framstykki = 138-146-154-162-170-178 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið síðan áfram í sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og röndum. Þegar stykkið mælist 15-17-20-23-26-29 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 30-34-34-38-42-42 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð – sjá ÚTAUKNING-2 = 168-180-188-200-212-220 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stykkið mælist 17-19-22-25-28-31 cm frá skiptingu, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Peysan mælist alls 33-36-40-44-48-52 cm, mælt frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 44-46-48-50-52-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og takið upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið síðan rendur eins og á fram- og bakstykki í sléttprjóni hringinn. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 1 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-5-5-7-6 cm millibili alls 5-6-5-6-5-6 sinnum = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Þegar stykkið mælist 19-23-27-31-35-38 cm frá skiptingu, skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff yfir allar lykkjur (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum.
Ermin mælist alls 23-27-31-35-39-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 32-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Jan C wrote:

I was wondering why all the stitch increases right before you start the ribbing hem? Doesn't this make the lower edge of the sweater flare out? Thanks!

27.01.2024 - 01:03

DROPS Design answered:

Dear Jan C, this increases we done because the ribb pattern would "shrink" and there will be a marked difference between the plain knitted part of the jacket and the elastic ribbing hem. Happy knitting!

27.01.2024 - 06:53

country flag Monica wrote:

Den randiga koftan är väl stickad ändå stickad i slätsticknng och nye rätstickning?? Så ser det i alla fall ut på bilden!

01.08.2022 - 13:40

DROPS Design answered:

Hej Monica, du börjar vid halsen med resår, sedan stickas koftan i slätstickning med framkanter i rätstickning... men allt står i beskrivningen :)

05.08.2022 - 08:50

country flag Jacqueline wrote:

En augmentant pour le raglan 15 fois, vous dites obtenir 214 mailles. En séparant les parties devant, manches 6 illes, dos, 6 mailles et devant vous me dites avoir 138 mailles. Qu'en est-il exactement? Merci pour votre réponse

15.01.2022 - 18:35

DROPS Design answered:

Bonjour Jacqueline, tout à fait, vous avez bien 214 mailles en 2 ans quand toutes les augmentations sont faites; puis, lorsque vous allez diviser l'ouvrage pour terminer le dos/le devant et les manches séparément, vous aurez alors 138 mailles pour le dos/le devant. Bon tricot!

17.01.2022 - 08:25

country flag Mabel Rodriguez wrote:

Thank you so much for sharing this pattern. I'm having some difficulties between the yoke and the body. When I finished the yoke, I have 214 st. Then I have to knit: 5+29+44+6+58+44+6+29+5=226. I'm 12 st short. And then, the pattern said I suppose to have 138 st on the needle, but 226-100 (sleeves)=126 not 138, again 12 st short. I don't know what I'm doing wrong or if I misunderstood the instructions.

17.08.2021 - 06:12

DROPS Design answered:

Hi Mabel, I think you have forgotten to include the 6 stitches cast on under each sleeve, which add 12 stitches to the body and 6 stitches to each sleeve. Hope this helps and happy knitting!

17.08.2021 - 09:40

country flag Karin Brandt wrote:

Ich habe die Jacke jetzt beendet und es hat alles sehr gut geklappt. Danke für die Hilfe. Liebe Grüße

18.05.2021 - 09:58

country flag Karin Brandt wrote:

Hallo, es kann ja sein, dass ich einen Denkfehler bei der Arbeit habe, aber ich verstehe die Rechnung an der Passe nicht. Wenn ich mit 94 M. beginne die Markierer zu setzen und 15x in jeder 2. Reihe 4x2 Maschen zunehme (jeweils vor und hinter dem Markierer), wie komme ich dann nur auf 214 Maschen?

14.05.2021 - 19:28

DROPS Design answered:

Liebe Frau Brandt, es wird für den Raglan jeweils 8 Maschen zugenommen und insgesamt 15 Mal in jeder 2. Reihe (= bei jeder Hinreihe) = 8x15= 120 M + die 94 M = 214 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

17.05.2021 - 08:38

country flag Sylviane wrote:

Je n'ai pas bien lu les instructions et je viens de remarquer que les diminutions se faisaient selon la taille tous les tant de cm.Désolée de vous avoir déranger inutilement.

23.01.2019 - 15:04

country flag Sylviane wrote:

Bonjour pour les diminutions de la manche pouvez-vous m'indiquer si il faut le faire tous les 2 rangs.Merci.Cordialement.Sylviane

23.01.2019 - 14:47

DROPS Design answered:

Bonjour Sylviane, on diminue pour les manches 2 mailles pour toutes les tailles, mais en fonction de la taille, vous diminuerez 5-6-5-6-5-6 fois au total tous les 4-4-5-5-7-6 cm. - mesurez dans une partie jersey le nombre de cm correspondant à la hauteur indiquée pour votre taille pour savoir le nombre de rangs correspondant. Bon tricot!

23.01.2019 - 16:07

country flag Fillette wrote:

Je ne sais pas comment reprendre les 6 mailles sous la manche. pouvez vous m’aider ? serait il possible de les monter lorsque l’on reprend la manche après séparation des différentes parties merci

29.11.2018 - 17:22

DROPS Design answered:

Bonjour Fillette, cette vidéo montre comment tricoter un pull de haut en bas, vous monterez les mailles sous les manches de la même façon (à partir du time code 6:50 environ: on met les mailles des manches en attente), et, plus tard, vous relèverez les mailles pour les manches comme dans la vidéo. Bon tricot!

30.11.2018 - 08:05

Ilana wrote:

Hello I like this pattern and knitt already 11/5 cm.from the beginning(middle back mesure) I began with 92 st.( for a 3 y old child) and worked as written. 10cm=21 st. as written..... Why the back is already 31 cm??? the sleeve 22 cm.??? Must be a mistake somewhere... Can you help me? Thanks

30.09.2018 - 11:20

DROPS Design answered:

Dear Hana, with 21 sts = 10 cm, the 32 sts for back piece will be 15 cm and the 13 sts on sleeve will be 6 cm. Please make sure you get the correct tension, adjust needle size if necessary. Happy knitting!

01.10.2018 - 09:10