Marine skrifaði:
Bonjour,en regardant les dimensions sur le schéma, j'ai un doute : je ne comprends pas pourquoi il y a 2 séquences de 3 cm au début (la première correspond aux côtes, mais je ne vois pas à quoi correspond la seconde, A1 semble suivre les côtes dans l'explication). Ces 3 centimètres correspondent-ils à une partie des explications que j'aurais mal identifiée ? Sinon, faut-il rajouter 3 centimètres dans le dos/devant pour obtenir 58 cm de longueur ? Merci d'avance !
24.10.2018 - 18:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Marine, les 3 premiers cm correspondent à la hauteur d'épaules (quand le pull est posé à plat) et les 3 suivants aux côtes du col. Vous avez bien ainsi: 3+3+20+1+28+3= 58 cm. Bon tricot!
25.10.2018 - 08:15
Taru Nenonen skrifaði:
1 skein of the first color is enough for size M and S, no need for two. :) Still had some leftovers.
22.09.2018 - 20:52
Susanne Kjær skrifaði:
Jeg kan ikke se diagrammet til denne trøje :-)
21.08.2018 - 06:08DROPS Design svaraði:
Hej Susanne, så er diagrammet lagt ud. Tak for info :)
21.08.2018 - 11:06
Ceecee skrifaði:
Great pattern!
10.08.2018 - 09:24
Diamond Delight#diamonddelightsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 196-15 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 9,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 9. og 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo að ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Eftir berustykkið er fram- og bakstykkið prjónað í hring á hringprjóna. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stutta hringprjónar. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-8-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 84-88-92-100-104-108 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Prjónið A.1 hringinn (= 21-22-23-25-26-27 mynstureiningar með 4 lykkjum) – sjá MYNSTUR og LEIÐBEININGAR að ofan. Haldið áfram með A.1 eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 252-264-276-300-312-324 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. STÆRÐ S: Haldið áfram í sléttprjóni með litnum hveiti án útaukningar þar til stykkið mælist 24 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. STÆRÐ M - L - XL - XXL - XXXL: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna fyrst lykkjurnar: Setjið 1. prjónamerki á eftir fyrstu 40-41-45-48-52 lykkjur (= hálft bakstykki), 2. prjónamerkið er sett á eftir næstu 52-56-60-60-58 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 80-82-90-96-104 lykkjur (= framstykki) og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 52-56-60-60-58 lykkjur (= ermi), nú eru 40-41-45-48-52 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= hálft bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum hveiti – JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona fyrir laskalínu í 4. hverri umferð alls 1-2-2-3-4 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 272-292-316-336-356 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni án útaukninga þar til stykkið mælist 26-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið síðan með litnum hveiti til loka. Næsta umferð er prjónuð í sléttprjóni þannig: Prjónið 38-41-43-47-51-56 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 50-54-60-64-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 76-82-86-94-102-112 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 50-54-60-64-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 38-41-43-47-51-56 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-188-204-224-244 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í annarri hliðinni og byrjið umferð héðan. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-28-32-32-36-40 lykkjur jafnt yfir = 192-204-220-236-260-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón 5,5. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. ERMI: Setjið 50-54-60-64-66-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-68-72-76-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-12-15-16-17-16 sinnum = 36-36-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 39-37-37-35-33-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir = 40-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Ermin mælist ca 42-40-40-38-36-35 cm frá skiptingu. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón 5,5. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #diamonddelightsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.