Jane skrifaði:
I love Eskimo and i love this sweater. Cannot wait to make it.
11.06.2018 - 03:35
Jocelyne Boulart skrifaði:
Enfin un col montant : très joli .
07.06.2018 - 12:08
Britta Fietzke skrifaði:
Ich würde den ein wenig auf Taille stricken und das Muster dementsprechend verändern, damit der etwas eleganter daherkommt. Und dann ist das der perfekte Pulli fürs Büro im Winter. So Stehkragen sind einfach übelst praktisch und schick.
06.06.2018 - 13:36
Warm Fall#warmfallsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og háum kraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 196-35 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 56 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 4,7. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis ca 3. og 4. hverja lykkju og 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1/A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjón/hringprjón, ofan frá og niður. Þegar kraginn er tilbúinn er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur, þannig að berustykkið verður aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu í neðar í uppskrift. Eftir berustykki er prjónað fram- og til baka í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. KRAGI: Fitjið upp 56-56-60-60-64-64 lykkjur á sokkaprjón 10 með Snow. Skiptið yfir á sokkaprjón 9 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 14 cm. Prjónið síðan 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í þriðju umferð (= umferð með sléttum lykkjum) er fækkað um 12-10-14-12-14-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 44-46-46-48-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 10. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða fara beint áfram í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 6-6-7-7-7-8 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur við miðju að aftan. Klippið frá. Byrjið næstu umferð (þ.e.a.s. á berustykki) eftir fyrstu 6-6-6-7-7-8 lykkjum í umferð. BERUSTYKKI: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og prjónið fyrstu umferð þannig: * Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt í hverja af 3 næstu umferð (prjónið í fremri og í aftari lykkjubogann = 3 lykkjur fleiri), 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt (= ermakúpa), 1 lykkja brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt í hverja af 3 næstu lykkjum (= 3 lykkjur fleiri), 1 lykkja brugðið, 11-12-12-13-14-15 lykkjur slétt (= framstykki/bakstykki) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 56-58-58-60-62-64 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið A.1 (= 8 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= ermakúpa), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 (= 8 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 11-12-12-13-14-15 lykkjur slétt (= framstykki/bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 64-66-66-68-70-72 lykkjur. Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 7-8-11-9-12-13 sinnum (meðtalin útaukning sem var prjónuð í síðustu umferð) og síðan í 4. hverri umferð alls 2-2-1-3-2-2 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 128-138-154-156-174-184 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 3-3-3-4-4-5 lykkjur sléttprjón (= á bakstykki), setjið næstu 29-31-35-33-37-37 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 35-38-42-45-50-55 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 29-31-35-33-37-37 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir síðustu 32-35-39-41-46-50 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 78-84-92-102-112-122 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-6-6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 10 cm millibili alls 3 sinnum = 90-96-104-114-124-134 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33 cm frá skiptingu (ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-16-16-22-20-26 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 104-112-120-136-144-160 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 9 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 5 cm eru auknar út aðrar hverjar 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = 117-126-135-153-162-180 lykkjur. Prjónið síðan sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 8 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 29-31-35-33-37-37 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 10, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-6-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 33-35-39-39-43-43 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-6-6 lykkjur undir ermi og byrjið á umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-5-3½-4-3-3 cm millibili alls 7-7-9-8-10-9 sinnum = 19-21-21-23-23-25 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 36-35-33-32-30-29 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-3-3-5-5-7 lykkjur jafnt yfir = 24-24-24-28-28-32 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 9 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Ermin mælist ca 44-43-41-40-38-37 cm frá skiptingu. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #warmfallsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.