Rosemary Newton skrifaði:
Re:194-7, I notice a difference in the photo of the pattern and the diagram: The photo shows an early introduction of light grey, but it doesn’t show until line 20 on the diagram. Also is there a written chart for the pattern? I have started this twice and am using Drops Air. When I increase the pattern of 12 stitches to 13 in the row each time it’s repeated, how do I maintain the pattern’s integrity?
22.08.2020 - 22:51DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Newton, read diagrams bottom up from the right towards the left from RS and from the left towards the left from WS, this means the rows with light grey will be worked on 5th + 6th rows in size S+M - 6th+7th in size L+XL + XXL + XXXL. The increases (= yarn overs in diagrams) are worked as shown on next row in diagram. You can add a marker after each diagram, this can help you to check your number of sts (from 4 sts on 1st row to 12 or 14 sts depending on your size). Read more about diagrams here. Happy knitting!
24.08.2020 - 08:29
Elvia McCormack skrifaði:
Thanks for responding to my earlier question. The pattern says increases are only on the right side. But if the chart is both right/wrong side, then I’ll be making increases on the wrong side which is contrary to what the pattern instructions for increases say. Could you please clarify? Thanks so much.
11.06.2019 - 22:53DROPS Design svaraði:
Dear Mrs McCormack, when pattern says to increase evenly on a row, you will work increase from right side, but when working diagram, you will increase as shown in diagram, ie both from right side and from wrong side. Happy knitting!
12.06.2019 - 07:29
Elvia McCormack skrifaði:
Good morning. Thank you for another beautiful pattern. I’m starting diagrams 1a and b. Is the diagram shown from right side only? What do you do for the purl side? Thanks.
11.06.2019 - 12:26DROPS Design svaraði:
Dear Mrs McCormack, diagrams show all rows, ie RS as well as WS rows - read more here about diagrams. Happy knitting!
11.06.2019 - 13:01
Tine skrifaði:
Om man skal øke på retten og strikke frm og tilbake så stemmer ikke diagrammet, da skal det økes på 2 omganger etter hverandre. Hva er riktig?
01.01.2019 - 11:49DROPS Design svaraði:
Hei Tine. Når du strikker etter diagram øker du ikke alltid fra retten, så dette stemmer. Om du sikter til ØKETIPS (der det står man skal øke fra retten) gjelder dette når du skal øke jevnt fordelt (slik du gjør på HALSKANTEN). Når du strikker etter diagram øker du som anvist, både fra retten og vrangen. God fornøyelse
02.01.2019 - 15:40
Hanka skrifaði:
2.část: .Poté jedu zpět zleva doprava (rubovou stranu),upletu prvních pět ok légy,poté dle vz. A1b, upletu pouze to jedno,tj. šesté oko obrace a dále pokračuji už jen podle vz.A1a a střídám vzor už jen dle tohoto rozpisu?
06.10.2018 - 13:36DROPS Design svaraði:
Ano, v rubu musíte postupovat v opačném pořadí, než na lícové straně, aby jednotlivé vzory ležely nad sebou. Při pletení jednotlvých úseků vzoru už vás navede schéma. Hodně zdaru! Hana
08.10.2018 - 13:21
Hanka skrifaði:
1.část: Svetr je nádherný,jsem ale začátečník při vyplétání norského vzoru.Sedlo: Začínám tedy od vz.A1a, zprava doleva,pletu hladce,po každém čtvrtém oku přidávám jedno oko a před šestým okem se řídím vz.A1b,tj. jedno oko upletu hladce (jsem na lícové straně) a posledních pět ok légy vroubkovým vzorem?
06.10.2018 - 13:35DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Hanko, ano je to přesně tak, jak píšete :-) Hodně zdaru! Hana
08.10.2018 - 13:19
Caty skrifaði:
Bonjour, lorsque vous ne précisez pas que l'on peut faire une réhausse pour l'encolure dans vos explications, peut-on en faire une quand même? merci de votre réponse
26.08.2018 - 11:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Caty, si vous souhaitez que l'encolure dos soit légèrement plus haute que celle des devants, vous pouvez tout à fait tricoter une réhausse - elle n'est pas prévue dans ce modèle, mais vous pouvez vous inspirer d'un modèle de même tension qui en propose une. Bon tricot!
05.09.2018 - 13:33Ingunn Hrefnudóttir skrifaði:
There is no chest size , can u give me an estimate ? And if I only use tvo colors, is 50gr enough for the pattern
28.07.2018 - 18:02DROPS Design svaraði:
Hi Ingunn, Right at the bottom of the pattern you will find a diagram with all the sizes. Depending on your size, you will need 100g or 150 g of the colour for the pattern. Happy knitting!
30.07.2018 - 07:52
Monique skrifaði:
Bitte Anleitung veröffentlichen! Eine tolle Jacke, die immer geht und die Farbkombination ist schön
13.07.2018 - 08:46
Morning Rain Jacket#morningrainjacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með norrænu mynstri úr DROPS Air eða DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 194-7 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Öll útaukning er gerð frá réttu! Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 6,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ATH: Kantar að framan eru prjónaðir með grunnlit í mynsturrönd. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í kraga mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu með ca 8½-8½-9-8-8½-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-96-104 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með litnum þoka. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 2 cm. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 11-15-19-19-7-7 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 95-103-111-115-103-111 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, frá réttu – þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1a þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 21-23-25-26-23-25 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.1b (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1a og A.1b hefur verið prjónað upp að umferð merktri í þinni stærð eru 263-287-311-323-333-361 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 26-28-29-31-33-35 cm mælt við miðju að framan frá uppfitjunarkanti. Prjónið e.t.v. áfram í mynsturteikningu án útaukninga að réttu máli (eftir síðustu umferð er prjónað áfram með litnum þoka). Haldið síðan áfram í næstu umferð í A.1a og A.1b (e.t.v. með litnum þoka eftir síðustu umferð), kantlykkjur að framan halda áfram eins og áður til loka og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið yfir fyrstu 43-46-49-52-55-59 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 51-57-63-63-62-67 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-6-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 75-81-87-93-99-109 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 51-57-63-63-62-67 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-6-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 43-46-49-52-55-59 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar eru síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 173-185-197-209-233-251 lykkjur. Prjónið þar til öll mynsturteikning A.1a/A.1b er lokið á hæðina og síðan er prjónað sléttprjón með litnum þoka, kantlykkjur að framan í hvorri hlið halda áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 35-35-39-39-47-49 lykkjur jafnt yfir = 208-220-236-248-280-300 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið næstu umferð frá réttu – þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjón 5,5. Öll peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMI: Setjið 51-57-63-63-62-67 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón/stuttan hringprjón 5,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 57-63-69-69-74-79 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-6-12-12 lykkjur undir ermi og byrjið á umferð hér, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Ef það verður eftir umferð í A.1 í þinni stærð, prjónið áfram þar til A.1a og A.1b hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið síðan með litnum þoka og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6.-5.-4.-4.-3.-3. hverri umferð alls 10-12-15-14-16-17 sinnum = 37-39-39-41-42-45 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 37-35-35-33-32-30 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-9-9-7-10-7 lykkjur jafnt yfir = 44-48-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjón 5,5. Ermin mælist ca 40-38-38-36-35-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #morningrainjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.