DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Paris yarn
DROPS Paris
100% Bómull
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2244.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 190-35

#sweetfedorahat

DROPS Design: Mynstur w-722
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL
Höfuðmál: 54/56 - 58/60

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150 g litur 16, hvítur
50-50 g litur 29, ljós ísblár
50-50 g litur 41, sinnep
50-50 g litur 102, sprey blár

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 20 stuðlar og 11 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2244.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta stuðli í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju í byrjun á umferð.
Fyrstu fastalykkju í umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð.

LITAMYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.4. Mynsturteikning sýnir liti í mynstri. 1 rúða = 1 fastalykkja.

LITASKIPTI:
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðustu fastalykkju fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin með nýja litnum, heklið síðan næstu fastalykkju. Með þessu verða falleg skil þegar skipt er um lit.
Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir lykkjurnar frá fyrri umferð og heklið utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki innan í lykkjunum, þráðurinn fylgir þar með áfram hringinn.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Byrjað er með flötum, sporöskjulaga toppi, síðan er heklað niður yfir hattinn (kúluna) áður en heklaður er kantur í marglitu mynstri og að lokum er heklað barð.

TOPPUR Á HATTI:
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Byrjið við ör mitt í A.1 og heklið með heklunál 3 með litnum hvítur þannig:
4 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, heklið 14 loftlykkjur, heklið 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá heklunálinni. Nú hefur verið hekluð ein loftlykkjuröð með lykkju á hvorum enda.
Næsta umferð er hekluð þannig: 1 keðjulykkja í fyrstu á 10 loftlykkjum í röðinni, 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), 1 stuðull í hverja og eina af 9 næstu loftlykkjum, heklið A.2 um lykkjuna (byrjið með 1. umferð í mynsturteikningu), heklið 1 stuðul í hverja af 10 loftlykkjum (þ.e.a.s. á gagnstæðri hlið þar sem heklaðir voru 10 stuðlar í byrjun), heklið A.3 um lykkjuna í hinni hliðinni og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Haldið svona áfram með mynstur þar til heklaðar hafa verið alls 6 umferðir. A.1 til A.3 hefur nú verið heklað til loka og það eru 104 stuðlar í umferð í báðum stærðum. Heklið síðan kant efst í kringum hattinn eins og útskýrt er að neðan.

KANTUR EFST Í KRINGUM HATTINN:
Heklið 1 stuðul með 1 stuðul í hvern stuðul og 4 stuðla í loftlykkjuboga mitt í A.2 (heklið 1 stuðul bæði í fyrstu og síðustu loftlykkju og 2 stuðlar í miðju loftlykkju), en í þessari umferð er einungis heklað í fremri lykkjubogann (lykkjuboginn sem er næst þér) = 108 stuðlar í umferð. Setjið 1 prjónamerki á milli 2 stuðla mitt í A.2 (= miðja framan á hatti) og látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu.
Heklið 1 umferð til viðbótar með stuðlum, en nú er hver stuðull heklaður bæði í gegnum stuðul frá fyrri umferð (í gegnum bæði fremri og aftari lykkjubogann) og að auki í gegnum lykkjuliðinn sem er sýnilegur á röngu á stykkinu. Þetta gerir aðeins meiri merktan kant í kringum efsta hluta á hattinum. Heklið síðan kúluna á hattinum eins og útskýrt er að neðan.

KÚLA Á HATTI:
Heklið stuðla í hring með 1 stuðul í hvern stuðul (heklið í gegnum báða lykkjubogana). JAFNFRAMT í 1. umferð er aukið út um 1 stuðul við miðju að framan með því að hekla 2 stuðla í síðasta stuðul á undan prjónamerki. Aukið svona út alls 4-8 sinnum í S/M: Í annarri hverri umferð og í L/XL: Í hverri umferð = 112-116 stuðlar. ATH: Þegar aukið er út eru heklaðir 2 stuðlar til skiptis í fyrsta stuðul eftir prjónamerkið og síðasta stuðul á undan prjónamerki.
Þegar stykkið mælist 6-7 frá kanti efst er heklað LITAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan (= 28-29 mynstureiningar með 4 lykkjum) og lesið LITSKIPTI. ATH: Í 2. og 7. umferð er heklað í aftari lykkjubogann frá fyrri umferð.
JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.4 er aukið út um 0-4 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í 1 lykkju) = 112-120 fastalykkjur. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka er heklað barð með litnum hvítur eins og útskýrt er að neðan.

BARÐ:
Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 1: * Heklið 1 stuðul í hverja af 7-7 fyrstu fastalykkjum, 2 stuðlar í næstu fastalykkjur *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 126-135 stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 8-8 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 140-150 stuðlar.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 9-9 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 154-165 stuðlar.
UMFERÐ 5: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul = 154-165 fastalykkjur.
Klippið frá og festið enda. Barðið mælist ca 5 cm.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.06.2021
BARÐ: UMFERÐ 1: * Heklið 1 stuðul í hverja og eina af 7-7 fyrstu fastalykkjum, 2 stuðlar í næstu fastalykkjur *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 126-135 stuðlar.

Mynstur

1 loftlykkja = 1 loftlykkja
byrjið hér = byrjið hér
4 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð = 4 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð
1 keðjulykkja = 1 keðjulykkja
stuðull í lykkju = stuðull í lykkju
stuðull um hringinn/loftlykkjuboga = stuðull um hringinn/loftlykkjuboga
heklið um þennan hring = heklið um þennan hring
1 fastalykkja með litnum hvítur = 1 fastalykkja með litnum hvítur
1 fastalykkja með litnum sinnep = 1 fastalykkja með litnum sinnep
1 fastalykkja með litnum ljós ísblár = 1 fastalykkja með litnum ljós ísblár
1 fastalykkja með litnum sprey blár = 1 fastalykkja með litnum sprey blár
Diagram for DROPS 190-35
Diagram for DROPS 190-35
Diagram for DROPS 190-35
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag VINCENZA skrifaði:

Buonasera, vorrei sapere se è possibile realizzare questo modello in raffia. Grazie

15.06.2021 - 20:10

DROPS Design svaraði:

Buonasera Vincenza, può realizzarlo con il filato che desidera, tenendo conto della corrispondenza del campione. Buon lavoro!

15.06.2021 - 21:41

country flag Ildikó skrifaði:

Kedves Drops Design! Ha ki akarom váltani az A.4 jelű mintát és csak színnel horgolom, akkor elég 50 g C fonal vagy többre lesz szükségem? Köszönöm a segítséget.

30.03.2021 - 15:47

DROPS Design svaraði:

Kedves Ildikó! nagy valószínűséggel elég lesz 50 grammal több fonal, de a felhasznált fonalmennyiség is több tényezőtől függ, pl. attól, mennyire horgol szorosan. Ha biztosra akar menni, 2 plusz gombolyagot szerezzen be, a maradékból mindig lehet valami apróságot készíteni :-). Sikeres kézimunkázást kívánok!

30.03.2021 - 19:50

country flag Cayherine skrifaði:

Please explain how to work A2. I do not understand the chains on top of the double crochet around the ring are the adding stitches for every round. Thank you very much

03.12.2020 - 23:08

DROPS Design svaraði:

Dear Cayherine, A.2 will be worked around loop at one end of the foundation row. on row 1 in A.2 work: 3 dc, 3 ch, 3 dc (US-crochet terms / tr Uk-crochet terms) around the ring. on row 2 work 1 dc in each of the first 3 dc, around the 2-ch-space work: 3 dc, 2 ch, 3 dc, and 1 dc in each of the last 3 dc. And continue like this, there should be 1 dc in each of the dc from previous round and 3 dc,2ch, 3 dc around the 2-ch-sp from previous round. Happy crocheting!

04.12.2020 - 07:53

country flag Anna Paola Majer skrifaði:

Buonasera, ho ultimato lo schema A1,2,3, facendo un bordo, che ha piegato il lavoro in dentro; ora però cosa significa "Lavorare 1 altro giro di maglie alte ma lavorare ora tutte le maglie alte puntando l’uncinetto nelle maglie del giro precedente (quindi attraverso il filo davanti e quello dietro delle maglie) e anche attraverso il filo visibile sul rovescio del lavoro"? Devo fare un altro bordo? Grazie!

15.07.2020 - 22:33

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Anna Paola. Al giro precedente, ha lavorato puntando l'uncinetto attraverso 1 solo filo della maglia; questo dovrebbe averle lasciato un filo visibile. Al giro che sta lavorando, deve puntare l'uncinetto attraverso i due fili della maglia ma anche attraverso questo filo visibile. Si forma così quel bordo più marcato che delimita la parte sopra del cappello. Buon lavoro!

16.07.2020 - 15:56

country flag Sabine Motti skrifaði:

Liebes Drops-Team, das Häkeln des Hutes hat viel Freude bereitet. Er ist tatsächlich relativ fest und die Krempe wölbt sich wie selbstverständlich nach oben. Dankeschön für diese Anleitung. :-)

18.06.2020 - 20:44

country flag Sabine Motti skrifaði:

Liebes Drops-Team! Für die Fertigung der KREMPE heißt es: "1. RUNDE: * je 1 Stäbchen in die 7-7 ersten Stäbchen, 2 Stäbchen in das nächste Stäbchen " - doch zuvor wurden gar keine Stäbchen gehäkelt, sondern feste Maschen. Oder habe ich etwas übersehen? Dank vorab!

17.06.2020 - 17:28

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Motti, Sie sind ja recht, Anleitug wird korrigiert, danke für den Hinweis. Viel Spaß bei häkeln!

18.06.2020 - 09:24

country flag Martine De Jager skrifaði:

Ik heb een vraag over dit patroon van Sweet Fedora 190/35. Ik heb nu al meerdere malen de rand geprobeerd te haken, maar het lukt me niet. Ik snap het niet helemaal. Een stokje door de voorste lus van de vorige toer snap ik, maar dan? Nog een stokje door beide lussen én de lus van de vorige toer? Van alles geprobeerd. Kunt u het mij laten zien? Met vriendelijke groeten, Martine de Jager

17.04.2020 - 15:56

DROPS Design svaraði:

Dag Martine,

De eerste toer haak je de stokjes alleen door de voorste lus van de steek en op de tweede toer haakje ieder stokje door beide lussen van de vorige toer (er stond beide stokjes, maar dat is fout; er moet staan beide lussen, dat is nu gecorrigeerd.)

18.11.2020 - 23:42

country flag Giusta skrifaði:

Ho fatto 3 cappelli per mia figlia e i miei nipotini poi irrigiditi con la colla vinilica bellissimi

03.09.2019 - 17:26

country flag Bénédicte skrifaði:

Bonjour, faut-il utiliser un double fil pour ce chapeau? J'ai commencé avec un seul fil mais je trouve que le résultat est beaucoup trop mou... Merci pour votre réponse

17.06.2019 - 15:42

DROPS Design svaraði:

Bonjour Bénédicte, on ne crochète qu'avec un seul fil Paris, mais vous devez avoir le bon échantillon soit 20 brides x 11 rangs = 10 x 10 cm - ajustez la taille du crochet si besoin, et pensez surtout à bien conserver la même tension lors de la réalisation du chapeau. Bon crochet!

17.06.2019 - 15:46

country flag Aleta skrifaði:

Grazie per la vostra risposta! Un'ultima domanda: nel diagramma A.2, tra la terza e la quarta maglia alta intorno all'anello di catenelle, devo fare 3 catenelle? Grazie e complimenti per i vostri video tutorial.

08.06.2019 - 18:48

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Aleta. Sì ci sono 3 catenelle tra la terza e la quarta maglia alta. Buon lavoro!

08.06.2019 - 21:27