Mara skrifaði:
Guten Tag Wie muss ich stricken, wenn ich den Rock nur knielang möchte? Bei Grösse S. Wieviel Garn benötige ich? Vielen Dank Mara Senn
18.01.2024 - 15:06DROPS Design svaraði:
Liebe Mara, gerne können Sie sich von einem Rock mit der gewünschten Länge inspirieren (siehe hier für Garngruppe C, so können Sie kalkulieren, je nach der gewünschten Länge, wie Sie die Abnahmen arrangieren können, und wieviele Garn Sie dann brauchen. Damit kann Ihnen sicher Ihr DROPS Händler -auch per Telefon oder per E-Mail weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
19.01.2024 - 08:24
Helga skrifaði:
Vil strikke skjørtet i 3XL, men ønsker å strikke det ankellangt. Er dette mulig? Ev. tips på hvordan?
22.10.2023 - 01:38DROPS Design svaraði:
Hej Helga, hvis du kigger på måleskitsen, så skal du lægge de ekstra cm til lige efter hulmønsteret (efter de 25 cm) inden du begynder at tage ind ifølge opskriften :)
24.10.2023 - 09:12
Raija Tervo skrifaði:
Mallineulekuvassa 5.rivi merkattu neulottavaksi nurjalla kaikki silm. Kuitenkin selityksissä ohjeistetaan neulomaan ensimm.langankierto OIKEIN ja ( toinen pudotetaan.).
09.10.2022 - 15:21
Stitch Maker skrifaði:
In the lace chart after the first shift, the knitter should shift the round 1 stitch to the right on every other row (those with the yarn overs) else the first lace repeat will not line up correctly. Subsequent lace repeats take care of themselves, but the shift it's vital to get the first properly arranged.
22.11.2019 - 20:30
Stitch Maker skrifaði:
There appear to be some errors in the lace chart compared to the photo. The k2tog in the third row from the top appears out of place. Also, the eyelets in the V lace pattern appear in the photo to be single yo (in contrast to those in the old shale pattern which appear to be 2yo.) Can you verify these issues?
15.11.2019 - 21:06DROPS Design svaraði:
Dear Stitch Marker, the yarn overs have been worked "doubled" to make larger holes, but you can make only 1 if you like to. On the last V lace pattern (arrow 2) you displace the beg of round of 1 st (= still working over 12 sts in width), then on 3rd row from the top, you need to decrease 1 stitch in each repeat, that's why you K2tog before 2nd yarn over. Happy knitting!
18.11.2019 - 08:31
Love Story#lovestoryskirt |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað pils úr DROPS Paris með gatamynstri og snúru. Stærð S - XXXL.
DROPS 190-32 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. MÆLING: Þegar öldumynstur er prjónað þá kemur stykkið til með að bylgjast í neðri kanti. Öll mál á lengdina eru tekin þar sem bylgjan er styst. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp. PILS: Fitjið aðeins laust upp 266-304-342-380-418-456 lykkjur á hringprjón 5 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 14-16-18-20-22-24 mynstureiningar með 19 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH. Í umferð merktri með ör-1 í A.1 færist byrjun á umferð um 2 lykkjur til vinstri til að mynstrið gangi jafnt upp, þ.e.a.s. steypið yfir 2 fyrstu lykkjurnar á hægri prjóni án þess að prjóna þær, prjónið síðan A.1 hringinn. Þær 2 lykkjur sem steyptar voru yfir á hægri prjón eru prjónaðar í síðustu endurtekningu með A.1. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt. Síðan byrjar næsta umferð eins og venjulega. Í umferð merktri með ör-2 í A.1 færist byrjun á umferð um 1 lykkju til vinstri alveg eins. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 154-176-198-220-242-264 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 28-28-28-28-30-30 cm – lesið MÆLING, setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett eftir fyrstu 18-21-24-27-30-35 lykkjur, 2. prjónamerki er sett eftir næstu 41-46-51-56-61-62 lykkjur, 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 36-42-48-54-60-70 lykkjur og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 41-46-51-56-61-62 lykkjur. Nú eru 18-21-24-27-30-35 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Í næstu umferð er lykkjum fækkað eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 6-5-4-4-3½-3½ cm millibili alls 8-10-12-13-14-14 sinnum við hvert prjónamerki = 122-136-150-168-186-208 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm. Prjónið nú áfram op / göng fyrir snúru eins og útskýrt er að neðan. Ef þú vilt hafa teygju í mittinu í stað snúru er ekki fellt af fyrir gati fyrir snúru að framan (op / göng eru annars prjónuð eins). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 24-28-30-36-40-46 lykkjur slétt, fellið af 2 lykkjur fyrir op fyrir snúru að framan, prjónið 9-8-9-8-9-8 lykkjur slétt, fellið af 2 lykkjur fyrir op að framan og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af = 122-136-150-168-186-208 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 74-76-78-80-82-84 cm. Prjónið 1 umferð brugðna (= uppábrot), prjónið sléttprjón í 2 cm fyrir saum og fellið laust af. TVINNUÐ SNÚRA: Ef þú vilt ekki hafa snúru, hoppaðu yfir þennan kafla og farðu beint í frágang. Klippið 2 þræði Paris ca 4-4-4½-4½-5-5 meter. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Festið litla tréperlu á hvorn enda á snúrunni. Gerið aðra snúru á sama hátt. FRÁGANGUR: Leggið báðar snúrurnar á röngu á pilsinu, leggið kantinn efst og þræðið endana út með tréperlum í gegnum gat fyrir snúru á framstykki. Brjótið kant fyrir saum yfir að röngu þannig að snúrurnar séu faldar innan í göngunum. Saumið niður með smáu spori, en passið að sauma ekki í snúrurnar. ATH: Ef þú velur að hafa teygju í mittinu í stað snúru er kantur fyrir saum brotinn yfir að röngu og saumaður niður fallega, skiljið eftir smá op til að þræða teygjuna í gegn. SKÚFAR Á SNÚRU: Gerið 4 skúfa og saumið einn skúf á hvorn enda á snúruna, undir tréperlunni í hvorri hlið. 1 skúfur = Klipið 12 þræði Paris ca 11 cm. Klippið 1 þráð ca 25 cm til að sauma skúfinn með og leggið þennan þráð mitt í 12 þræðina. Leggið þræðina tvöfalda og hnýtið einn nýjan þráð um skúfinn (ca 1 cm frá toppi), festið vel og saumið skúfinn við snúru eins og útskýrt er að ofan. Gerið hina skúfana á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lovestoryskirt eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.