Patricia Liefeld skrifaði:
I'm confused. First, the diagram shows the waist as 33 inches, however, going by the gauge, the waist would be 26.6 inches. Even adding the addition for the buttons it would not equal an additional 6 inches. Is the gauge off or the diagram off? Also, the vent is 11 cm, but the diagram is showing 12. Is that cm, rows, inches, or? The instructions state to continue until it equals 15 1//2 inches but again the diagram is showing 40. Is that inches, rows or what????
22.04.2018 - 08:15
Estival skrifaði:
Bonjour, J ai acheté LA laine dans le but de crocheter la jupe. Cependant je ne comprend pas les explications . Notamment au debut DE LA jupe pour la ceinture. Quelqu un pourrait M aider S il vous plait ? UN grand merci
20.04.2018 - 16:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Estival, pour commencer la jupe, crochetez une chaînette du nombre de ml indiqué, puis, au 1er rang, sautez des ml à intervalles réguliers en répétant de *à* (pour éviter que la chaînette de base ne soit trop serrée), et continuez ensuite en crochetant les diagrammes A.2: Répétéez A.2a 1 fois en hauteur, puis répétez A.2b en augmentant comme indiqué. Bon crochet!
23.04.2018 - 08:13Varsha skrifaði:
Hi, Beautiful design I would like to make this for my niece. She is 6 yrs old. How can I use this pattern ? Thanks in advance
14.04.2018 - 03:51DROPS Design svaraði:
Dear Varscha, we are unfortunately not able to adjust every our single pattern to each individual request. You can ask your DROPS store or any crochet forum for any further individual assistance. Happy crocheting!
16.04.2018 - 08:44
Krisztina skrifaði:
Végre horgolt szoknya! Örülök neki, egyszer tényleg horgolok egyet, mindig csak tervezem... Olyan ritkán látok horgolt/kötött szoknyát, de most már tényleg nekem is lesz ilyen. :)) Nagyon szép darab!
18.12.2017 - 21:18
Simone skrifaði:
Hvor er den bare fin den nederdel! Den ville jeg helt sikkert hækle. Ville vælge en neutral farve og et let elastisk uldgarn.
14.12.2017 - 13:18
Rosalina#rosalinaskirt |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað pils með sólfjaðramynstri úr DROPS Muskat, heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 190-28 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar (þ.e.a.s. þegar heklað er fram og til baka er ekki hekluð 1 keðjulykkja í loftlykkju í byrjun á umferð). HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur (koma ekki í stað fyrsta stuðul). Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju). ÚTAUKNING: Aukið er út í umferð 1, 4, 7, 11 og 12 í mynstri A.2b (þ.e.a.s. aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir alls 5 sinnum í hverri endurtekningu í A.2b á hæðina). Aukið er út með því að hekla 2 stuðla í/um sömu lykkju. Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 132 stuðlar) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 22. Í þessu dæmi þá er aukið út um 1 stuðul í/um/á milli 22. hverrar lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka þar til klauf í hlið hefur verið hekluð til loka, síðan er heklað í hring. PILS: Heklið 142-156-170-184-212-233 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 4 með Muskat. Fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 1 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 120-132-144-156-180-198 stuðlar. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul. Heklið A.2a alls 20-22-24-26-30-33 sinnum á breidd. Þegar A.2a hefur verið heklað, heklið A.2b yfir A.2a (fyrsta umferð í A.2b er frá röngu) og aukið út þannig (þ.e.a.s. aukið út í fyrstu umferð og A.2b er endurtekið á hæðina): ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Aukið út um 6 stuðla jafnt yfir - lesið ÚTAUKNING – alls 16-16-17-18-18-20 sinnum = 216-228-246-264-288-318 lykkjur. Í hvert skipti sem aukið er út, heklið 1 mynstureiningu fleiri af A.2b á breiddina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11 cm endar klaufin í hlið og stykkið er nú heklað í hring með byrjun á umferð í hlið. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm, endið fallega miðað við mynstur. KANTUR AÐ OFAN: Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju þar sem stuðlar voru heklaðir í fyrstu umferð 120-132-144-156-180-198 fastalykkjur. Heklið alls 3 umferðir með fastalykkjum. Klippið frá og festið enda. HNESLUR: Meðfram hlið á opi sem tilheyrir framstykki eru heklaðar hneslur þannig (byrjið neðst niðri): Heklið 2 fastalykkjur um hverja stuðlaumferð og 1 fastalykkju um hverja fastalykkju umferð þannig: Heklið 1 keðjulykkju um fyrstu umferð, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm, * heklið fastalykkjur um næsta stuðul/fastalykkju umferð, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* alls 4 sinnum og endið með 2 fastalykkjum um 2 síðustu fastalykkju umferðir efst, snúið og heklið til baka þannig: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og 3 fastalykkjur í hvern loftlykkjuboga. Klippið frá og festið enda. KANTUR FYRIR TÖLUR: Meðfram annarri hlið á opi eru heklaðar 5 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram og til baka (í 1. umferð eru heklaðar 2 fastalykkjur um hverja stuðla umferð og 1 fastalykkja um hverja fastalykkju umferð), klippið frá. Saumið tölur í kantinn. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosalinaskirt eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.