DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 190-26
DROPS Design: Mynstur r-730
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
350-350-400-450-500-550 g litur 12, rauður

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 stuðlar verði 10 cm á breidd.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 5 st í öllum stærðum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. A.2 sýnir hvernig umferð byrjar/endar þegar heklað er í hring.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Á við þegar heklað er fram og til baka:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er byrjað með 3 loftlykkjum, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðul).
Í hverri umferð með fastalykkjum er byrjað með 1 loftlykkju (þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju).

ÚRTAKA:
STUÐULL:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig:
Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þræðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næstu lykkju/um loftlykkju, þegar þræðurinn er dreginn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).
FASTALYKKJA:
Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman þannig: Heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri).

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 156 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 26. Í þessu dæmi þá er hekluð 25. og 26. hver lykkja saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Það er 10 cm klauf á hvorri hlið neðst niðri á pilsi, stykkið er fyrst heklað fram og til baka í 2 stykkjum þar til klaufin hefur verið hekluð, síðan er stykkið heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð og heklað fram og til baka í umferð til að áferðin verði alveg eins alla leið. Þegar stykkið skiptist við op fyrir kant með tölum er aftur heklað fram og til baka, en yfir bæði fram- og bakstykki (þannig að það verði bara eitt op í annarri hliðinni).

FRAMSTYKKI:
Heklið 90-97-104-111-125-139 loftlykkjur með Muskat með heklunál 4.
Haldið áfram með 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá hekluálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* umferðina út = 78-84-90-96-108-120 fastalykkjur (loftlykkja sem snúið er við, er talin einnig sem 1 fastalykkja). Snúið og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju til baka. Heklið nú eftir mynsturteikningu A.1 (A.1 er endurtekin á hæðina til loka) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir 10 cm er stykkið lagt til hliðar og bakstykkið er heklað.

BAKSTYKKI:
Heklið 90-97-104-111-125-139 loftlykkjur með Muskat með heklunál 4.
Haldið áfram með 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* umferðina út = 78-84-90-96-108-120 fastalykkjur (loftlykkjan sem snúið er við er talin einnig sem 1 fastalykkja). Snúið og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju til baka. Nú er heklað eftir mynsturteikningu A.1. Haldið áfram þar til stykkið mælist 10 cm – endur í sömu umferð eins og á framstykki.

PILS eftir klauf:
Haldið svona áfram með mynstur – heklið fyrstu lykkjur yfir framstykki, síðan eru lykkjur heklaðar yfir bakstykki, að lokum eru umferðirnar heklaðar saman með einni keðjulykkju í 1/3 lykkju í umferð, heklið lykkju í A.2, snúið stykkinu. Haldið svona áfram fram og til baka með mynstri eftir mynsturteikningu A.1 og A.2. Í umferð með stuðlum eða fastalykkjum eru nú 156-168-180-192-216-240 lykkjur í umferð (A.2 er ekki talið með í lykkjufjölda). Þegar stykkið mælist ca 13-14-15-16-17-18 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé umferð með stuðlum eða fastalykkjum (merkt í mynsturteikningu með stjörnu), fækkið nú um 6 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA og ÚTAUKNING (jafnt yfir). Endurtakið úrtöku alls 6 sinnum í þessum 6 merktu umferðum með stuðlum eða fastalykkjum = 120-132-144-156-180-204 lykkjur í umferð með stuðlum eða fastalykkjum. Haldið áfram með A.1 og A.2. Þegar stykkið mælist 28-30-32-34-36-38 cm er heklað fram og til baka, í lokin á að hekla kant fyrir tölur yfir efstu 12 cm. Stykkið er nú ekki snúið við með A.2, heldur er heklað fram og til baka með umferð þannig að það myndist op efst í annarri hliðinni – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið áfram fram og til baka eftir A.1 þar til stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm, endið eftir umferð merktri með stjörnu í mynsturteikningu. Klippið frá og festið enda.

HNESLUR:
Meðfram annarri hlið á opi sem staðsett er á framstykki eru heklaðar hneslur þannig (byrjið neðst niðri): 2 fastalykkjur eins og ein umferð með stuðlum/fastalykkjum, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm, * heklið 2 fastalykkjur um næsta stuðul/fastalykkju umferðir, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar og endið með 2 fastalykkjur um síðasta stuðul/fastalykkju umferð efst, snúið og heklið til baka þannig: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga. Klippið frá og festið enda.

KANTUR FYRIR TÖLUR:
Meðfram annarri hlið á opi eru heklaðar 5 umferðir með fastalykkjum fram og til baka (í 1. umferð eru heklaðar 2 fastalykkjur um hverja stuðlaumferð og 1 fastalykkja um hverja fastalykkju umferð), klippið frá. Saumið tölur í kant.

SKRAUTKANTUR:
Heklið skrautkant í hring á neðri kanti á pilsi – einnig upp og niður í klauf og opi.
Skrautkanturin er heklaður þannig: 1 fastalykkja, *3 loftlykkjur, 1 stuðull í 3. loftlykkju frá heklunál, hoppið fram ca 1 cm og gerið 1 fastalykkju. * Endurtakið frá *-* umferðina út og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun á umferð.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.09.2018
Leiðrétting: HEKLLEIÐBEININGAR: Á við þegar heklað er fram og til baka: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er byrjað með 3 loftlykkjum, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðul). Í hverri umferð með fastalykkjum er byrjað með 1 loftlykkju (þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju).
Yfirfarið á vefsvæði: 25.03.2019
Leiðrétting: ÚTSKÝRING Á MYNSTURTÁKNI: Stjarna = í þessari umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir í umferð - sjá uppskrift

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja í aftari lykkjuboga á lykkju frá réttu og í fremri lykkjuboga á lykkju frá röngu
symbols = fastalykkja um loftlykkju
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull á milli 2 stuðla
symbols = stuðull um loftlykkju
symbols = hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðull í/um næstu fastalykkju/loftlykkju, 1 stuðull í/um lykkju sem hoppað er yfir
symbols = stuðlahópur: Heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 2 stuðla í sama stuðul alveg eins, dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni.
symbols = í þessari umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir - sjá uppskrift
symbols = þessi umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig hekla á næstu umferð í lykkjurnar.
symbols = keðjulykkja
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Palina Wendel wrote:

Väldigt otydligt i beskrivningen vad det gäller om man ska virka runt eller fram och tillbaka. Ordvalet är otydlig. Samt NÄR man ska minska. Och om man kan gissa sig fram till när man ska virka fram och tillbaka och när man ska virka runt, så är det väldigt svårt att gissa sig fram när det gäller minskning. När man virkar första 10cm så ska man följa A1 där det står minskning redan på 4e raden. Det står inte hur många maskor. Otydlig instruktion!

06.07.2022 - 13:23

country flag Cecilia Espinosa Rebolledo wrote:

Hola!!! Si quisiera hacer una falda larga, hasta los tobillos, que me recomienda hacer para calcular numero de cadenas para el ruedo?

27.11.2019 - 01:17

DROPS Design answered:

Hola Cecilia. Esta falda se trabaja de abajo arriba. Para hacerla más larga solo tienes que trabajar según el patrón hacia arriba hasta la largura deseada, no tienes que montar más puntos.

30.11.2019 - 19:36

country flag Eija wrote:

Missä kerrotaan kavennusten määrä?

12.08.2019 - 14:32

DROPS Design answered:

Hei kavennusten määrä löytyy ohjeesta: "Kun työn pituus on n. 13-14-15-16-17-18 cm ja seuraavaksi virkattava kerros on pylväs tai kiinteä silmukka -kerros (merkitty piirrokseen tähdellä), kavenna tasavälein 6 silmukkaa (lue KAVENNUSVINKKI ja KAVENNUSVINKKI (kaventaminen tasavälein)). Toista tällaiset kavennukset yhteensä 6 kertaa, piirrokseen nuolilla merkityillä pylväs- tai kiinteä silmukka -kerroksilla = 120-132-144-156-180-204 silmukkaa pylväs- tai kiinteä silmukka -kerroksella." Eli työstä kapenee yhteensä 36 silmukkaa.

15.08.2019 - 14:28

country flag Eija wrote:

Edelliseen liittyen: huomasin videon, kun olin aikani yrittänyt ohjeen mukaan. Hyvin vaikeasti oli selitetty.

10.08.2019 - 07:55

country flag Eija wrote:

Uskomattomat käännökset! Esim. tuo 2. rivi: "= jätä 1 silmukka väliin, 1 pylväs seuraavaan kiinteään silmukkaan/seuraavan ketjusilmukan ympäri, 1 pylväs väliin jätettyyn silmukkaan/väliin jätetyn silmukan ympäri "

10.08.2019 - 07:32

country flag Ortuno Catherine wrote:

Je voudrais commander des pelotes Muskat rouge 12 avec un bain particulier 574. Comment faire? Je n'ai pas assez de laine pour finir mon ouvrage. Merci d'avance

03.08.2019 - 08:06

DROPS Design answered:

Bonjour Catherine! Vous devez vous adresser à votre magasin DROPS qui saura vous aider. Bon tricot!

03.08.2019 - 19:58

country flag Elke wrote:

In anderen Anleitungen steht aber: Maschenprobe 18 Stb = 10 cm (s.o. 17 Stb = 10 cm= Druckfehler?) Und, da A.1 zuerst in Reihen gehäkelt wird, beginnt Häkelschrift dann "rechts" bzw. beginnt die R immer abwechselnd einmal rechts und einmal links? und werden dann am Ende die Wende-Luftmaschen nicht gehäkelt, d.h. ausgelassen? (s. Häkeltipp: Am Anfang jeder Reihe mit Stb 3 Lm häkeln (ersetzen nicht das erste Stäbchen) Sorry, ich versteh's nicht richtig. Danke für Info!

04.06.2019 - 12:59

DROPS Design answered:

Liebe Elke, für dieses Modell muss Ihre Maschenprobe 17 M = 10 cm in der Breite sein. Häkelnadel ist nur einen Vorschlag, passen Sie die Größe an, damit die Maschenprobe richtig ist. Die Wende-Lufmaschen (= A.2) werden zusätzlich zu A.1 gehäkelt, dh sie werden nicht am Ende der Reihe gearbeitet. Viel Spaß beim häkeln!

04.06.2019 - 14:23

country flag Elke wrote:

Warum wird in vielen von euren Anleitungen die Maschenprobe NUR mit der Breite angegeben? Ist die Höhe nicht relevant? s.o. : 17 Stäbchen = 10 cm in der Breite.

03.06.2019 - 14:33

DROPS Design answered:

Liebe Elke, bei solchen Anleitungen ist die Länge immer in cm gegeben - und dann wird auch dazu geschrieben z.B. daran angepasst, dass die nächste Runde eine Runde mit Stäbchen oder festen Maschen. Bei den ählinchen Modellen (= mit der selben Häkelnadeln - können Sie auch dann eine Maschenprobe in der Reihen finden - hier zum Beispiel. Viel Spaß beim häkeln!

03.06.2019 - 15:23