Queensland Skirt |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað pils úr DROPS Safran með gatamynstri, heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 190-29 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 stuðli í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð þegar heklað er fram og til baka og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á hverri umferð þegar heklað er í hring. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. ÚTAUKNING -2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 212 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 40) = 5,3. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 5. hverja lykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður þar til klauf í hlið hefur verið hekluð til loka, síðan er heklað í hring til loka. PILS: Heklið 186-209-232-258-279-305 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3,5 með Safran. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, 1 stuðull í hverja af næstu 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 6 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* þar til eftir eru 3-5-7-5-5-3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkju og endið með 1 stuðul í hverja af síðustu 2-4-6-4-4-2 loftlykkjum = 158-178-198-220-238-260 stuðlar. Heklið síðan fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul – lesið HEKLLEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar heklaðar hafa verið alls 5 umferðir á hæðina eru sett 6 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 14-14-16-20-21-22 stuðlar, síðan eru sett 5 næstu prjónamerki með 26-30-33-36-39-43 stuðlar á milli hverra merkja. Á eftir síðasta prjónamerki eru 14-14-17-20-22-23 stuðlar eftir í umferð. Í næstu umferð er aukið út um 1 stuðul á undan öllum prjónamerkjum – lesið ÚTAUKNING-1! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 9-9-10-11-12-13 sinnum – ATH: Aukið út í annað hvert skipti á undan og á eftir prjónamerkjum = 212-232-258-286-310-338 stuðlar. JAFNFRAMT þegar heklaðar hafa verið alls 12 umferðir á hæðina endar klauf í hlið. Stykkið er nú heklað í hring með byrjun á umferð í hlið – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm er aukið út um 40-44-30-26-26-34 stuðla jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-2 = 252-276-288-312-336-372 stuðlar. Heklið A.1 hringinn (= 21-23-24-26-28-31 mynstureining með 12 lykkjum). JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 52-60-64-72-64-60 stuðla jafnt yfir = 304-336-352-384-400-432 stuðlar. Heklið A.2 hringinn (= 19-21-22-24-25-27 mynstureiningar með 16 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið heklað eru 475-525-550-600-625-675 stuðlar í umferð. Heklið nú A.X eins og útskýrt er í A.1 (= 2 umferðir). JAFNFRAMT í síðustu umferð eru 30-28-39-25-36-34 stuðlar jafnt yfir = 505-553-589-625-661-709 stuðlar. Næsta umferð er hekluð þannig: A.3A (= 6 lykkjur), heklið A.3B yfir næstu 492-540-576-612-648-696 stuðla (= 41-45-48-51-54-58 mynstureiningar með 12 lykkjum), endið með A.3C (= 7 lykkjur). Þegar A.3 hefur verið heklað til loka er þráðurinn klipptur frá og festur. Pilsið mælist ca 56-57-58-59-60-61 cm frá mitti og niður. HNESLUR: Meðfram hlið á klauf sem tilheyrir framstykki eru heklaðar hneslur þannig (byrjun frá röngu efst í mitti við klauf): Heklið 2 fastalykkjur um fyrsta stuðul, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul, * heklið 2 fastalykkjur um hverja og eina af 2 næstu stuðlum, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul *, heklið frá *-* alls 3 sinnum upp og endið með 2 fastalykkjum um síðasta stuðul neðst niðri í klauf. Snúið og heklið til baka frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga. Klippið frá og festið enda. KANTUR FYRIR TÖLUR: Meðfram annarri hlið á klauf eru heklaðar 5 umferðir með fastalykkjum fram og til baka (í 1. umferð eru heklaðar 2 fastalykkjur um hvern stuðul = 24 fastalykkjur). Klippið frá og festið enda. Saumið tölur í kantinn. KANTUR: Heklið kant efst í mitti á pilsinu þannig: Byrjið frá réttu með 1 keðjulykkju í ystu lykkju við klauf, heklið 1 loftlykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í næstu loftlykkju *, heklið frá *-* meðfram öllum kantinum efst á pilsi. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (38)
Constance wrote:
How many cm is the small size waist. I am confused If I am calculating correctly it is 28 inches or 72 centimeters but that in the US is a XS and I wanted to double check. Thanks
16.08.2023 - 02:47DROPS Design answered:
Dear Constance, chart is in cm, this means 36 cm flat in the first size = 72 cm circumference, ca 30 inches - convert into inches here. Happy crocheting!
16.08.2023 - 09:13Corrie wrote:
I have a question about the first row. It says " work from *-* until 3-5-7-5-5-3 chain stitches remain, skip 1 chain stitch and finish with 1 double crochet in each of the last 2-4-6-4-4-2 chain stitches" I don't understand what the numbers "3-5-7-5-5-3" and " 2-4-6-4-4-2" mean. I love this skirt and would like to make it, but I don't want to mess up the pattern because I don't understand. Thanks!
14.08.2023 - 23:55DROPS Design answered:
Hi Corrie, The series of numbers correspond to the different sizes, so if you are working size S you use the first number in each series, size M the second and so on. Happy crocheting!
15.08.2023 - 06:39Jomi wrote:
Im A2 ab Reihe 8, meint das dritte Zeichen von rechts 2 Luftmaschen oder 7 Luftmaschen? In den nächsten Reihen taucht das Zeichen wieder auf wie viele Luftmaschen sind da jeweils gemeint? Viele Grüße Jomi
15.02.2023 - 20:07DROPS Design answered:
Liebe Jomi, hier sind es 2 Luftmaschen, das Symbol für die 7 Luftmaschen finden Sie in A.3. Viel Spaß beim häkeln!
16.02.2023 - 11:52Maureen wrote:
This and many of your patterns are being sold on Etsy by the shop Fab Patterns
24.10.2022 - 13:22Anne Kaelber wrote:
I just saw this pattern being sold on Etsy. DROPS Design has been so gracious in providing all of these stunning FREE patterns. It bugs me that someone else is trying to cash in on your generosity.
04.09.2022 - 22:01DROPS Design answered:
Hi Anne, thank you very much for noticing :)
05.09.2022 - 09:17Mel wrote:
Bonjour, A quoi correspond vraiment le ’nombre de cm? Est-ce pour 1 face ( et donc à multiplier par 2) ou pour le tour de taille entier... car 59 cm pour un tour de taille XXL Ce n’est pas possible....
16.07.2022 - 19:58DROPS Design answered:
Bonjour Mel, les mesures sont effectivement prises ouvrage (jupe en l'occurrence) posé à plat, et d'un côté à l'autre, autrement dit, le tour de taille en XXXL sera de 59x2 = 118 cm. Retrouvez ici plus d'infos sur les schémas. Bon crochet!
02.08.2022 - 11:11Mai wrote:
I didn’t know about this your free pattern. I just purchased this pattern on Etsy!
31.05.2022 - 09:03Maggy wrote:
Is it possibly to buy this skirt already made from your site?
25.04.2022 - 18:07DROPS Design answered:
Dear Maggy, we don't sell crochet products; this site is only to read and print our patterns and showcase our yarns and where you can buy these. Happy crochetting!
25.04.2022 - 21:34Alisha Handley wrote:
Hi I was wondering how long it takes to crochet these? I'm a beginner crocheter with a couple of hours max spare time per day.
25.02.2022 - 17:08DROPS Design answered:
Dear Alisha, this pattern is not beginner-friendly, since it has many different patterns and diagrams. This means that it may take you much longer than an experienced crocheter, since you may need to redo some sections or read carefully over some instructions before working them. Happy crocheting!
27.02.2022 - 18:24Lynne James wrote:
Thank you for your prompt reply. I am now back on course.
23.07.2021 - 20:49