Diette skrifaði:
Bonjour, Je voudrais savoir s'il est possible de tricoter ce modèle avec seulement la qualité Alpaca. Faut-il prendre trois fils dans ce cas ? Si c'est possible combien faut-il de pelotes pour le modèle S. Je vous remercie pour votre aide
17.09.2019 - 13:30DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Diette, tout à fait, il vous faudra alors tricoter avec 3 fils Alpaca au lieu d'1 fil Alpaca et 2 fils Kid-Silk - utilisez notre convertisseur pour connaître la quantité nécessaire pour remplacer Kid-Silk (et pensez à l'additionner à celle de l'Alpaca pour votre taille). Bon tricot!
17.09.2019 - 13:33
KatherineNorambuena skrifaði:
Hola! Me pueden explicar más en detalle la parte de \"tips para los aumentos\". No me queda claro en el ejemplo cómo hay que hacer el aumento si se debe hacer cada 4 o 5 filas, ya que siempre que he visto un canesu los aumentos se hacen por todas las filas del lado derecho del tejido. Gracias!
17.07.2019 - 14:38
Hege skrifaði:
Hei. Etter at armene er satt på hjelpetråd skal en strikke mønster i 19-15-16-18-16-17 cm...er det riktig at en str large skal ha mye kortere jakke enn XS/s? Eller tenker jeg helt feil?!
15.05.2019 - 02:48DROPS Design svaraði:
Hei Hege. Bærestykket på jakken måler 18-24-25-25-29-30 cm fra oppleggskanten midt foran, og det stemmer at du så skal strikke 19-15-16-18-16-17 cm fra delingen, før du strikker 4 cm vrangbord. Hel lengde på jakken blir gradvis lenger oppover i størrelsene, som du også kan se på målskissen nederst på siden. Om du ønsker selve bolen lenger er det selvfølgelig ikke noe i veien for at du legger til på lengden. God fornøyelse
15.05.2019 - 12:48
Ann-Karin skrifaði:
Eg Had tenkt å strikke meg ei slik jakke men K andre fargar, kva fargekombinasjoner vil dokke anbefale til brun eller blå jakke ? Kan vel ikkje ha naturfarge som tråd nr 2 då?
19.04.2019 - 11:48DROPS Design svaraði:
Hei Ann-Karin. Her er det ingen fasitsvar, dette går helt på smak og behag. Hvis fargen du velger er relativtlys kan en naturhvit tråd passe (og da duse ned fargen), men om du har en mørk farge vil det bli en tydligere kontrast mellom trådene. Det finnes flere nyanser av både brun og blå i begge kvalitetene (fra lys til mørk). Så her er det bare å mixe og matche som du selv ønsker. Det beste er nok å gå i en butikk så du får sett garnene ved siden av hverandre, om du har mulighet til det. God fornøyelse
25.04.2019 - 13:41
Kari Mette skrifaði:
Hei. Jeg ønsker å stikke denne jakken i rødt, men er usikker på hvilke farge i alpaca som matcher kid silk best??
17.04.2019 - 09:29DROPS Design svaraði:
Hei Kari Mette. Om du vil strikke i rød burde du bruke en rød kid-silk også, natur vil nok da bli en for stor kontrast (hvis du ønsker at plagget skal være mest mulig jevn i fargen da). Kid-silk farge 32 feks, passer fint sammen med de fleste mørkere røde, og mer rød-rosa Alpaca-fargene (som feks 3650, 3900, 2922). Om du ønsker en veldig sterk rød kan du vurdere Alpaca 3620 og Kid silk 14. Her er det egentlig ikke noe fasitsvar, det beste er nok å besøke en butikk der du kan se på begge kvalitetene sammen, hvis du har mulighet til det. God fornøyelse
23.04.2019 - 15:01
Marcia skrifaði:
Hi. Do you have a single thread yarn that I could substitute for the 3 threads the pattern calls for? I'd prefer not alpaca because it makes me itch!
04.04.2019 - 00:47DROPS Design svaraði:
Hi Marcia! You should try DROPS Melody (1 single thread): 71% Alpaca, 25% Merino Wool, 4% Polyamide. It is very soft and light. Happy knitting!
04.04.2019 - 08:20
Lavedan skrifaði:
Bonjour\\r\\nPour le début de l empiècement,il faut répéter le motif A1 au dessus des 15 mailles .Mais nous avons 16 mailles. Si on commence par une maille endroit on finit alors par 2 mailles endroit?\\r\\nJe vous remercie de m’éclairer sur ce point .\\r\\nBonne journée
05.03.2019 - 15:06DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lavedan! Il faut répéter A.1 seulement au-dessus des 15 mailles suivantes (en commençant et en terminant par 1 maille endroit): on commence par 1 maille endroit, 1 maille envers, etc, et on termine par 1 maille envers, 1 maille endroit. Ensuite il faut faire 1 jeté, tricoter 2 mailles jersey (le fil marqueur est entre ces 2 mailles), et travailler comme on voit dans les explications. Bon tricot!
05.04.2019 - 22:33
POnchaux Claude skrifaði:
Comment dois faire pour mettre un modèle dans mes favoris ? Merci
17.02.2019 - 09:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Ponchaux, juste à côté de l'icône pour imprimer les explications, vous avez un petit bouton "♥ Ajouter à mes favoris", cliquez là et ajoutez votre adresse mail pour conserver ce modèles dans vos favoris. Bon tricot!
18.02.2019 - 10:01
Anaïs skrifaði:
Je voudrais faire une remarque, voire signaler une petite erreur. À la fin du dos/devant, il est écrit de "tricoter le rang suivant ainsi sur l'envers: 4 m au point mousse, *1 m end, 2 m env*, répéter de *-* jusqu'à ce qu'il reste 5 mailles, 1 m env et 4 mailles au point mousse. Or il me semble que c'est plutôt *1 m env, 2 m end*. Cependant, mille mercis pour ce ravissant modele que je viens de terminer.
07.02.2019 - 00:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Anaïs et merci, nos stylistes vont probablement corriger les côtes. Bon tricot!
07.02.2019 - 10:36
Sharon skrifaði:
Oh! I need to do another swatch in that case, perhaps I mis measured or made the water too warm, it was warm, not luke warm. Thanks for your advice.
28.11.2018 - 14:18
Le Conquet#leconquetcardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með laskalínu, perluprjóni og ¾ ermum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr 1 þræði DROPS Alpaca eða DROPS Flora og 2 þráðum DROPS Kid-Silk.
DROPS 191-8 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 63 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 4,6. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir 4. og 5. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (perluprjón). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið síðan út hvoru megin við 4 prjónamerkin. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat. Prjónið síðan útauknnar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. Þær 2 lykkjur í hverri laskalínu eru prjónaðar í sléttprjóni þar til berustykkið hefur verið prjónað til loka. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi þær slétt saman, prjónið næstu lykkju eins og útskýrt er í A.1 og steypið 2 lyftu lykkjunum yfir. Með þessu þá kemur A.1 til með að halda fallega áfram yfir úrtöku í næstu umferð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8-7-7½-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón ofan frá og niður, skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 63-63-69-75-78-81 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Alpaca eða 1 þræði DROPS Flora + 2 þráðum DROPS Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Eftir stroff er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 12-12-14-14-11-10 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 75-75-83-89-89-91 lykkjur. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur): Fyrsta prjónamerki er sett á eftir fyrstu 16-16-18-20-20-20 lykkjur (= framstykki), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 9 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 25-25-29-31-31-33 lykkjur (= bakstykki) og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 9 lykkjur (= ermi). Nú eru 16-16-18-20-20-20 prjónamerki á eftir síðasta prjónamerki á framstykki. Prjónið nú berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 11-11-13-15-15-15 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 7 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 23-23-27-29-29-31 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 7 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 11-11-13-15-15-15 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt) og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= 8 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með A.1 fram og til baka með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og 2 lykkjur í sléttprjóni meðfram hverri laskalínu. JAFNFRAMT heldur útaukning fyrir LASKALÍNA áfram hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan, þar til aukið hefur verið út alls 11-15-16-16-19-20 sinnum meðfram hverri laskalínu (meðtaldar útaukningar í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti í hálsi). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu eru 163-195-211-217-241-251 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur með 2 lykkjur sléttprjón meðfram hverri laskalínu þar til stykkið mælist 18-24-25-25-29-30 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 26-30-32-34-38-40 lykkjur eins og áður, setjið næstu 33-41-45-45-49-49 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-7-7-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 45-53-57-59-67-73 lykkjur eins og áður, setjið næstu 33-41-45-45-49-49 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-7-7-11 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið síðustu 26-30-32-34-38-40 lykkjur eins og áður. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 107-123-131-141-157-175 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju 5-5-5-7-7-11 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 6-4-4-8-8-8 cm millibili alls 3-3-3-2-2-2 sinnum í hvorri hlið = 95-111-119-133-149-167 lykkjur. Þegar stykkið mælist 19-15-16-18-16-17 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 13-12-13-17-19-19 lykkjur jafnt yfir = 108-123-132-150-168-186 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Skiptið til baka yfir á hringprjón 7 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 33-41-45-45-49-49 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 7 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-5-7-7-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-46-50-52-56-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju á 5-5-5-7-7-11 lykkjum undir ermi. Haldið áfram með A.1 hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 13-3½-3-3-2-1½ cm millibili alls 3-7-8-8-10-11 sinnum = 32-32-34-36-36-38 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 32-27-26-26-23-22 cm frá skiptingu (styttra máli í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-5-3-3-4 lykkjur jafnt yfir = 36-36-39-39-39-42 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 36-31-30-30-27-26 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #leconquetcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.