Maja skrifaði:
Hei! Jeg bare lurer på om det er like greit å strikke shortsen med rundpinner istedenfor settpinner?
08.09.2020 - 08:31DROPS Design svaraði:
Hej Maja, ja hvis du har masker nok til at de når rundt på rundpinden, så må du selvfølgelig gerne gøre det :)
09.09.2020 - 13:57
Courveille Chantal skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas l'explication du chausson, au niveau du marqueur, on diminue que d'un côté du marqueur 1 maille tout les 2 rangs ou on diminue sur tout le rang de chaque côté du marqueur.
03.09.2020 - 07:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Courveille, à la fin des chaussons, on diminue 4 mailles tous les rangs sur l'endroit = 1 m en début de rang, 1 m de chaque côté du marqueur (= 2 m ens à l'end, marqueur, 2 m ens à l'end) et 1 m à la fin du rang. Bon tricot!
03.09.2020 - 09:14
Beverley skrifaði:
On the slippers size 0-1 "When A.2 has been completed in height, work 2 RIDGES – ... decrease (6) 8-6-6-6- (10-14) stitches evenly on the last row from the right side = (30) 30-34-38-38 (42-42) stitches. Cut the strand." My last ROW is a Wrong side so therefore I cannot decrease on my last ROW on the right side?
22.07.2020 - 18:44DROPS Design svaraði:
Hi Beverley, The decreases are worked on the second row from the right side, while working the ridges. Happy knitting!
23.07.2020 - 07:12
Sandy Magesis skrifaði:
I’m knitting the shorts. The increases are written for every cm or 3/8 inch. 1 cm is closer to 6/8 inch. Can you please tell me which is correct.
05.05.2020 - 00:14DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Magesis, increases should be worked on every 1 cm = 0.39 inches (see converter into inches here. Happy knitting!
05.05.2020 - 11:23
Gery Mol-kok skrifaði:
Ik heb een vraag over de slofjes ik wil de 2de maat breien nu moet is k stylen op de huisraad zetten en dan breien tot de gewenste lengte nu brei ik dit voor een kraamcadeau welke lengte moet ik dan aanhouden
26.04.2020 - 20:59
Serina skrifaði:
Hei, jeg strikker tøffel. Og litt uti oppskriften står det at : "Strikk maskene fra tråden i den ene siden tilbake på rundpinnen". Men her skal det vel være settpinne og ikke rundpinne? Rundpinne er ikke nevnt tidligere i denne oppskriften.
21.04.2020 - 22:57DROPS Design svaraði:
Hej Serina, ja det stemmer som du siger, tøflerne strikkes på settpinne :)
22.04.2020 - 15:25
Sandra skrifaði:
De slofjes. Ik heb nu de middelste 8 steken gebreid tot de gewenste lengte. Er staat dan “ knip de draad af” is het dan ook de bedoeling dat die 8 steken afgekant worden. Dat staat er namelijk niet. Als ik verder lees kom ik er niet uit of ik deze steken nog nodig heb. Dank je wel alvast! Sandra
12.04.2020 - 21:13DROPS Design svaraði:
Dag Sandra,
Het is de bedoeling dat je de draad afknipt. Je laat de 8 steken even staan. Dan plaats je de steken van de hulpdraad aan de ene kant van het werk op een breinaald zonder knop, je neemt vervolgens steken op langs de zijkant van het lapje van 8 steken wat je zojuist hebt gebreid, dan brei je de 8 steken en vervolgens neem je aan de andere zijkant steken op en zet je de steken van de hulpdraad aan de andere kant ook op de naald.
13.04.2020 - 10:02
Shari skrifaði:
I am making the slippers and the instructions needs to be changed from A.3 to A.2 and from A.4 to A.3.
28.03.2020 - 16:39
Nicole FORTIN skrifaði:
Bonjour, je ne saisis pas bien la concordance entre les tailles et le nombre de mailles à monter (chaussons)... pour un bb de 3 mois c'est 40 mailles ? merci
20.03.2020 - 18:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Fortin, si vous tricotez la taille 1/3 mois alors tout à fait, vous suivez les 3èmes indications soit 40 mailles à monter. Bon tricot!
23.03.2020 - 09:05
Gisela skrifaði:
Hallo bei der Gesamtlänge vir dem Lochmuster die cm Angabe. Muß ich vorne oder hinten messen?
07.01.2020 - 17:35DROPS Design svaraði:
Liebe Gisela, die Gesamtlänge wird vorne gemessen, hinten ist mit den verkürzten Reihen die Arbeit länger. Viel Spaß beim stricken!
08.01.2020 - 08:16
Odeta Pants#odetapants |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónaðar stuttar buxur og tátiljur fyrir börn með gatamynstri og garðaprjóni úr DROPS BabyMerino. Stærð fyrirburar - 4 ára.
DROPS Baby 31-4 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Buxur: Sjá mynsturteikningu A.1. Tátiljur: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um buxur): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- STUTTAR BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. STUTTAR BUXUR: Fitjið upp (80) 96-96-112-112 (128) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með BabyMerino. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Prjónið stroff frá miðju að aftan þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 3 lykkjur, endið með 2 lykkjum brugðið og 1 lykkju slétt. Þegar stroffið mælist (2) 2-2-3-3 (3) cm prjónið gataumferð fyrir snúru í næstu umferð þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið 1 umferð stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið síðan upphækkun í stroff, að aftan þannig: Prjónið (7) 9-9-9-9 (9) lykkjur, snúið, herðið á þræði, prjónið (14) 18-18-18-18 (18) lykkjur til baka, snúið, herðið á þræði, prjónið (20) 24-24-24-26 (26) lykkjur, snúið, herðið á þræði, prjónið (26) 30-30-30-34 (34) lykkjur til baka, snúið, herðið á þræði, prjónið (32) 36-36-36-42 (42) lykkjur, snúið, herðið á þræði, prjónið (38) 42-42-42-50 (50) lykkjur til baka. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið (6) 6-6-6-8 (8) lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls (62) 66-66-66-82 (82) lykkjur. Snúið, herðið á þræði, prjónið síðan stroff hringinn aftur yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist (4) 4-5-5-5 (5) cm við miðju að framan er skipt yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um (10) 14-10-22-14 (26) lykkjur jafnt yfir = (70) 82-86-90-98 (102) lykkjur. Í næstu umferð er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki þannig: Prjónið (17) 20-21-22-24 (25) lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, setjið 1 prjónamerki (= hálft bakstykki), prjónið (35) 41-43-45-49 (51) lykkjur garðaprjón, setjið 1 prjónamerki (= framstykki), prjónið (18) 21-22-23-25 (26) lykkjur garðaprjón (= hálft bakstykki). Stykkið er nú prjónað áfram í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið á stykki (= 4 lykkjur fleiri) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum cm alls (6) 7-8-11-11 (14) sinnum, síðan eru auknar út 2 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = (96) 112-120-136-144 (160) lykkjur. Þegar stykkið mælist (10) 12-14-16-17 (19) cm, stillið af að síðasta umferð er prjónuð brugðið, prjónið mynstur A.1 yfir allar lykkjur (= alls (12) 14-15-17-18 (20) sinnum á breidd). Þegar A.1 hefur verið prjóna 1 sinni á hæðina, prjónið stykkið til loka í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist (15) 17-19-21-22 (24) cm, fellið af lykkjur fyrir skálmar þannig: Fellið af fyrstu (41) 49-53-61-63 (71) lykkjur, prjónið (14) 14-14-14-18 (18) lykkjur, fellið af síðustu (41) 49-53-61-63 (71) lykkjur = (14) 14-14-14-18 (18) lykkjur eftir. Klippið frá. Nú er stykkið prjónað áfram fram og til baka. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í ca (2) 2-2-3-4 (5) cm yfir lykkjur á prjóni. Fellið af. Saumið garðaprjón við affellingarkant á bakstykki, mitt í ystu lykkjubogana. SNÚRA: Heklið snúru þannig: Heklið loftlykkjur með heklunál 2,5 með BabyMerino í 75-80-85-90-95 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju. Klippið frá og festið enda. Þræðið snúruna út og inn í gegnum gataumferðina (byrjið og endið við miðju að framan). ---------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tátiljurnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður, þ.e.a.s. fyrst er stroffið prjónað á tátiljuna, síðan fóturinn. TÁTILJA: Fitjið upp (36) 38-40-44-48 (52-56) lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN - lesið útskýringu að ofan, A.2 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið (2) 3-0-2-0 (2-0) lykkjur sléttprjón, A.3 (= 8 lykkjur) alls (4) 4-5-5-6 (6-7) sinnum á breidd og endið með (2) 3-0-2-0 (2-0) lykkjur sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.2 þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, A.2 þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni (snúra er þrædd í gegnum þessa gataumferð í lokin). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og fækkið um (6) 8-6-6-6- (10-14) lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá réttu = (30) 30-34-38-38 (42-42) lykkjur. Klippið frá. Setjið nú fyrstu (11) 11-12-13-13 (15-15) lykkjur og síðustu (11) 11-12-13-13 (15-15) lykkjurnar á sitt hvorn þráðinn. Stykkið er nú prjónað í garðaprjóni til loka. Prjónið (3) 3½-4-4½-5½ (6½-8) cm, yfir miðju (8) 8-10-12-12 (12-12) lykkjur (= mitt ofan á tátilju), klippið frá. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið til baka lykkjur af þræði í annarri hlið á hringprjóninn, prjónið upp (7) 9-10-11-13 (16-21) lykkjur í ystu lykkjubogana meðfram hlið á miðju stykki, prjónið (8) 8-10-12-12 (12-12) lykkjur á prjóni (= fram), prjónið upp (7) 9-10-11-13 (16-21) lykkjur í ystu lykkjubogana meðfram annarri hlið á miðju stykki og prjónið til baka lykkjur frá seinni þræði á hringprjóninn = (44) 48-54-60-64 (74-84) lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið alls (2½) 3-3-4-5 (5-5) cm garðaprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið ca (1) 1½-1½-2-3 (3-3) cm, setjið 1 prjónamerki (22) 24-27-30-32 (37-42) lykkjur inn (= mitt á tátilju). Fækkið nú lykkjum í annarri hverri umferð til loka þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 4 lykkjur 2 og 2 slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt (= 4 lykkjur færri í annarri hverri umferð) = ca (32) 36-42-48-52 (62-72) lykkjur. Fellið af og saumið saum undir fæti og upp meðfram miðju að aftan í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. SNÚRA: Heklið snúru þannig: Heklið loftlykkjur með heklunál 2,5 með BabyMerino í ca 30-40 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju. Klippið frá og festið enda. Þræðið snúruna út og inn í gegnum gataumferð á tátilju (byrjið og endið við miðju framan á tátilju). ---------------------------------------------------------- Sjá peysu DROPS Baby 31-3 ---------------------------------------------------------- |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #odetapants eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 31-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.