Nathalie Guillet wrote:
Bonjour, j\'aurais voulue savoir si ce modèle peut se tricote avec des aiguilles non circulaire ?
30.01.2024 - 13:40DROPS Design answered:
Bonjour Mme Guillet, tout à fait, on utilise ici des aiguilles circulaires pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, retrouvez plus d'infos sur les aiguilles circulaires ici<\a>. Bon tricot!
31.01.2024 - 08:13Diana Lovatt wrote:
Hej, I diagrammen (alla diagram) så finns detta täcken som sitter mitt på linjen i diagrammen och betyder att man skall göra ett omslag mellan två maskor. Jag vill veta hur jag skall göra med just detta stygn. Ta diagram A3 på rad 5 så ser du "ikonen" längst till vänster, mitt på linjen innan man gör första maskan. så förklara hur jag skall göra denna. Tack på förhand. /Diana A3
12.01.2024 - 09:45DROPS Design answered:
Hej Diana, A3 varv 5 stickas : 2 räta tillsammans, 1 omslag, 2 räta tillsammans 1 omslag osv.. Omslaget gör du så här: omslag :)
12.01.2024 - 12:04Treyer wrote:
Bonjour, j’ai un doute sur les augmentations. Pouvez-vous, svp, me confirmer qu’il faut augmenter de 1 fois 4 mailles, 1 fois 6 mailles et 1 fois 19 mailles pour la taille 3 mois Merci beaucoup
08.01.2024 - 18:35DROPS Design answered:
Bonjour Mme Treyer, quand vous pensez augmentations, pensez-vous aux mailles des manches à monter en fin de rang? En taille 1/3 mois, vous allez alors monter 4 fois 6 mailles et 1 fois 19 mailles soit 43 mailles pour chaque manche. Bon tricot!
09.01.2024 - 07:32Diana Lovatt wrote:
Hej igen, Du svarar ej på min fråga i meddelande 156 och hur jag skall tolka just "denna" maska i mönstret som sitter mitt på en linje mellan två maskor. Du ger bara förslag på de olika varianterna och ej svar på hur jag skall göra just denna maska i detta mönster.
08.01.2024 - 13:58DROPS Design answered:
Hej Diana, Vilket diagram, varv nummer (räkna nerifrån) og storlek, så skal vi beskrive raden med just den maskan för dig :)
11.01.2024 - 14:58Diana Lovatt wrote:
Jag förstår ej hur jag stickar omslaget mellan 2 maskor. Jag har fått förslag på att sticka ihop 2 maskor + ett omslag, men då hamnar ju ej omslaget mellan de 2 maskorna. Tacksam för svar på hur detta görs.
28.12.2023 - 17:01DROPS Design answered:
Hei Diana. Du følger forklaringen til diagrammene. Noen steder gjør du et kast deretter strikkes 2 masker sammen (enten 2 masker rett sammen eller ta 1 maske løs av pinnen som om den skulle strikkes rett, 1 rett, løft den løse masken over). Gjørs dette vil kastet komme på "siden" av minskningen og du vil få et pent hull mønster. mvh DROPS Design
08.01.2024 - 13:40Ghislaine Lutz wrote:
Vous dites que l échantillon fait 24x48, alors que sur la pelotes c'est noté 24x32 rangs.
11.12.2023 - 15:30DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lutz, l'échantillon est toujours indiqué en jersey, ici, on le tricote au point mousse, il faudra donc 48 rangs point mousse pour avoir 10 cm de hauteur. Bon tricot!
12.12.2023 - 09:41Grazu wrote:
Bonjour, Je ne comprends pas très bien l'assemblage. Il y a t-il deux techniques à suivre? Si oui, quelles sont-elles?
24.11.2023 - 12:36DROPS Design answered:
Bonjour Grazu, vous pouvez utiliser les 2 techniques que l'on montre dans la vidéo: la première pour le dessus des manches/les épaules et la 2ème pour le dessous des manches (pour éviter que la couture ne soit trop épaisse). Bon assemblage!
27.11.2023 - 07:38Karin Stensgaard wrote:
Antal masker stemme ikke. Stikker tøjlerne skal sætte 2x11 masker på hold og derefter strikke over de resterende 8 masker, men startede med 36 masker. Så hvad gør jeg?
19.10.2023 - 11:44DROPS Design answered:
Hej Karin, det ser ud til at du har glemt at tage de (6) 8-6-6-6- (10-14) masker ind jævnt fordelt på sidste pind fra retsiden = (30) 30-34-38-38 (42-42) masker.
24.10.2023 - 08:18Bensemhoun Deborah wrote:
Pour cet ensemble existe t’il une video tuto pour simplifier les choses ?\r\nMerci bcp
26.09.2023 - 14:43DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bensemhoun, nous faisons en sorte de pouvoir faire autant de vidéos que possible pour accompagner nos modèles, sur la base des questions et demandes que nous recevons; nous avons ainsi de nombreuses vidéos où nous montrons les techniques, mais une vidéo entière pour un gilet bébé pendrait plusieurs heures et n'est donc pas d'actualité. Lisez attentivement les explications, regardez les vidéos et les leçons en bas de page, et, si vous avez une question, n'hésitez pas à utiliser cet espace, nous vous répondrons volontiers. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!
26.09.2023 - 15:14
Odeta |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu án ermasauma og tátiljum fyrir börn í garðaprjóni. Stærð fyrirburar - 4 ára. Settið er prjónað úr DROPS BabyMerino.
DROPS Baby 31-3 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynstur fyrir þína stærð. Tátiljur: Sjá mynsturteikningu A.3 og A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um peysu): Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju að framan í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju að framan þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju að framan þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fram- og bakstykki er prjónað fyrst, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir ermar, framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp (111) 125-145-157-173 (181-205) lykkjur á hringprjón 3 með BabyMerino. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið (3) 2-4-2-2 (2-2) lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – (= kantur að framan), prjónið A.1 (= 8 lykkjur) yfir næstu (104) 120-136-152-168 (176-200) lykkjur (= (13) 15-17-19-21 (22-25) sinnum á breidd), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með (3) 2-4-2-2 (2-2) lykkjum í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í mynsturteikningu A.1 er lykkjufjöldinn jafnaður út til (112) 124-146-158-172 (182-204) lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkið prjónað áfram í garðaprjóni til loka. Stykkið mælist ca (10) 12-16-16-16 (19-19) cm. Setjið 1 prjónamerki (34) 37-44-48-52 (55-62) lykkjur inn frá hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þær sýna framstykki og bakstykki = (44) 50-58-62-68 (72-80) lykkjur á bakstykki. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! LYKKJUM ER FÆKKAÐ FYRIR HÁLSMÁLI INNAN VIÐ 1 KANTLYKKJU AÐ FRAMAN Á HVORRI HLIÐ Á STYKKI JAFNFRAMT SEM STYKKIÐ SKIPTIST OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI. LYKKJUM ER FÆKKAÐ VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN ÞANNIG: Þegar stykkið mælist (10) 12-16-16-17 (20-23) cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju að framan í hvorri hlið á stykki (= 1 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls (18) 18-22-24-26 (28-32) sinnum, síðan eru lykkjum fækkað í 4. hverri umferð alls 2 sinnum. STYKKIÐ SKIPTIST OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI ÞANNIG: HÆGRA FRAMSTYKKI: Þegar stykkið mælist (12) 15-19-20-21 (24-27) cm, skiptist stykkið við 2 prjónamerkin og fram- og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig. Stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Prjónið nú yfir lykkjur fram að fyrsta prjónamerki (= hægra framstykki). Setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð. Fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu (= að hlið) fyrir ermi þannig: Fitjið upp (3) 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum og síðan (16) 19-19-18-19 (23-26) lykkjur 1 sinni. Þegar allar lykkjurnar fyrir ermi hafa verið fitjaðar upp og úrtaka fyrir hálsmáli er lokið eru (42) 52-63-70-79 (90-102) lykkjur í umferð fyrir öxl/ermi. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist (20) 24-28-30-32 (36-40) cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið yfir síðustu lykkjur sem settar voru á þráð, fram að prjónamerki í hlið. Prjónið eins og hægra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. fitjaðar eru upp lykkjur fyrir öxl/ermi í lok hverrar umferðar frá röngu. Haldið áfram að fækka lykkjum innan við 1 kantlykkju að framan í lok umferðar frá réttu eins og áður (að hálsmáli). BAKSTYKKI: = (44) 50-58-62-68 (72-80) lykkjur. Fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið á stykki fyrir ermar þannig: Fitjið upp (3) 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum og síðan (16) 19-19-18-19 (23-26) lykkjur 1 sinni = (100) 120-144-158-178 (202-228) lykkjur. Þegar stykkið mælist (19) 23-27-29-31 (35-39) cm eru felldar af miðju (16) 16-18-18-20 (22-24) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig = (42) 52-63-70-79 (90-102) lykkjur eftir á hvorri ermi/öxl. Prjónið þar til stykkið mælist (20) 24-28-30-32 (36-40) cm, stillið af við framstykki. Fellið af. Prjónið hina öxlina/ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma yfir ermum með lykkjuspori frá réttu. Saumið saum undir ermum kant í kant í ystu lykkjubogana. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál 2,5 með BabyMerino í kringum allt opið á peysunni (þ.e.a.s. heklið frá hægra framstykki, upp meðfram opi á peysu, í kringum hálsmál og niður meðfram op á peysu að uppfitjunarkanti á vinstra framstykki) þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 keðjulykkju í uppfitjunarkanti á hægra framstykki, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 2 lykkjur/umferðir, 1 fastalykkja í næstu lykkju/umferð *, heklið frá *-* að horni þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjaði. Heklið snúru þannig: 1 fastalykkja í horni, heklið síðan loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka, síðan er hekluð 1 fastalykkja aftur í horni á framstykki, haldið áfram að hekla kant í kringum peysuna og hálsmál fram að horni á vinstra framstykki, heklið snúru eins og á hægra framstykki, heklið síðan meðfram vinstra framstykki og endið með 1 keðjulykkju í uppfitjunarkanti. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkja á fyrri umferð, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkjur frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkju + 1 fastalykkju, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að hekla yfir snúru þannig að snúran liggi neðst), endið með 1 keðjulykkju í síðustu lykkju. Heklið umferð 1 og 2 alveg eins neðst í kringum báðar ermar (umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju). Heklið 2 lausar snúrur: Heklið loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka. Klippið frá og heklið 1 til viðbótar alveg eins. Saumið niður eina snúru innan á hægri hlið og 1 snúru utan á vinstri hlið í hlið. Passið uppá að þær verði í sömu hæð og hinar snúrurnar. ---------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tátiljurnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður, þ.e.a.s. fyrst er stroffið prjónað á tátiljuna, síðan fóturinn. TÁTILJA: Fitjið upp (36) 38-40-44-48 (52-56) lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN - lesið útskýringu að ofan, A.3 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið (2) 3-0-2-0 (2-0) lykkjur sléttprjón, A.4 (= 8 lykkjur) alls (4) 4-5-5-6 (6-7) sinnum á breidd og endið með (2) 3-0-2-0 (2-0) lykkjur sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæð er prjónað A.3 þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, A.3 þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni (snúra er þrædd í gegnum þessa gataumferð í lokin). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæð, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og fækkið um (6) 8-6-6-6 (10-14) lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá réttu = (30) 30-34-38-38 (42-42) lykkjur. Klippið frá. Setjið nú fyrstu (11) 11-12-13-13 (15-15) lykkjur og síðustu (11) 11-12-13-13 (15-15) lykkjur á sitt hvorn þráðinn. Stykkið er nú prjónað í garðaprjóni til loka. Prjónið (3) 3½-4-4½-5½ (6½-8) cm, yfir miðju (8) 8-10-12-12 (12-12) lykkjur (= mitt ofan á tátilju), klippið frá. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið til baka lykkjur af þræði í annarri hlið á hringprjóninn, prjónið upp (7) 9-10-11-13 (16-21) lykkjur í ystu lykkjubogana meðfram hlið á miðju stykki, prjónið (8) 8-10-12-12 (12-12) lykkjur á prjóni (= fram), prjónið upp (7) 9-10-11-13 (16-21) lykkjur í ystu lykkjubogana meðfram annarri hlið á miðju stykki og prjónið til baka lykkjur frá seinni þræði á hringprjóninn = (44) 48-54-60-64 (74-84) lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið alls (2½) 3-3-4-5 (5-5) cm garðaprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið ca (1) 1½-1½-2-3 (3-3) cm, setjið 1 prjónamerki (22) 24-27-30-32 (37-42) lykkjur inn (= mitt á tátilju). Fækkið nú lykkjum í annarri hverri umferð til loka þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 4 lykkjur 2 og 2 slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt (= 4 lykkjur færri í annarri hverri umferð) = ca (32) 36-42-48-52 (62-72) lykkjur. Fellið af og saumið saum undir fæti og upp meðfram miðju að aftan í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Prjónið hina tátiljuna á sama hátt. SNÚRA: Heklið snúru þannig: Heklið loftlykkjur með heklunál 2,5 með BabyMerino í ca 30-40 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju. Klippið frá og festið enda. Þræðið snúruna út og inn í gegnum gataumferð á tátilju (byrjið og endið við miðju framan á tátilju). --------------------------------------------------------- Sjá buxur DROPS Baby 31-04. ---------------------------------------------------------- |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Diana Lovatt wrote:
Hej! Tack för ett utförligt svar och när jag läser ditt svar så stämmer det ej med hur mönstret är skrivet, varpå jag ej förstod hur jag skulle göra. Det står att man skall göra "1 omslag mellan 2m" det du beskriver är ett omslag mellan 4 maskor ; Hej Diana, A3 varv 5 stickas : 2 räta tillsammans, 1 omslag, 2 räta tillsammans 1 omslag osv.. Omslaget gör du så här: omslag :) PS: jag vet hur man gör omslag efter många års stickande.....
13.01.2024 - 10:23