Eva Sjømoen skrifaði:
Jeg får bare opp to diagrammer på min oppskrift. Hvordan skal jeg få oppskrift med alle fem diagrammene. Har fått svar at alle fem skal være i oppskriften. Jeg får kun opp de to diagrammene med A1B i to varianter (til forskjellige størrelser).
17.05.2018 - 20:35DROPS Design svaraði:
Hei Eva. Vi har sjekket denne oppskriften igjen og kunne ikke se noen feil eller mangler med diagrammene. Men vi har nå lastet dem opp på nytt og håper dette løser problemet. God fornøyelse
22.05.2018 - 08:49
Eva Sjømoen skrifaði:
Hvor er mønster A1a? Står øverst i oppskriften at det er to mønstre, A1 og A2, men i oppskriften er de referert til som a og b. Det er kun A1b som ligger ved i oppskriften. Det mangler også tre tegn i tegnforklaringen.
16.05.2018 - 10:52DROPS Design svaraði:
Hej Eva, Du finder alle 5 diagrammer nederst i opskriften (lige ovenfor måleskitsen) God fornøjelse!
17.05.2018 - 14:54
Loly Aguilar skrifaði:
Hola! La vuelta 35 como la tengo que empezar para que me quede bien ,pues no la entiendo del diagrama A.1a en la vuelta de antes al terminar hay que empezar la vuelta 35 o que pues no lo consigo entender poner vídeos de esto para que lo veamos y así entenderlo . Muchas gracias
29.04.2018 - 12:33DROPS Design svaraði:
Hola Loly. El diagrama se trabaja igual como antes.El hueco que hay en esta fila, al principio de la repetición del diagrama, se compensa con el último punto de la repetición del diagrama, el que sobresale hacia fuera por el otro lado. Por lo tanto, el número de puntos en la repetición no varía El dibujo se desplaza, pero hay que seguir trabajando según el diagrama.
30.04.2018 - 20:18Vicky skrifaði:
Sí, así lo hice. Muchísimas gracias! :D
14.04.2018 - 23:40
Vicky skrifaði:
Sí, eso lo tengo claro. Pero la duda es el primer punto de la primera repetición. Hago 3Dr para compensar dicho desplazamiento? No sé si me explico. Muchas gracias
08.04.2018 - 20:20DROPS Design svaraði:
Hola Vicky, no,si haces un punto de más, no vas a llegar al último punto. El dibujo se desplaza y, por tanto, tu también tienes que desplazarte y trabajar según el diagrama.
14.04.2018 - 12:40
Vicky skrifaði:
Duda sobre diagramas. En A-1.a vueltas 35 y 39. Y en A-1.b vuelta 23. Entiendo que el desplazamiento a la izq es para que cuadre el dibujo, y que el último punto (12) de cada repetición se teje con el primero (1) de la siguiente. Pero al empezar la vuelta, ¿qué hago con el primer punto? P.ej. en la v35 el diagrama se desplaza a la izquierda, dejando un Hueco en el 1º Punto y luego 2 dr, etc. ¿Qué tengo que hacer con ese 1º hueco del inicio? ¿Tejo 3 dr al inicio? Muchas gracias
06.04.2018 - 15:39DROPS Design svaraði:
Hola Vicky, no falta ningún punto. El hueco que hay al principio de la repetición del diagrama en esta fila se compensa con el último punto de la repetición del diagrama, que sobresale hacia fuera por el otro lado. El número de puntos en la repetición se mantiene constante.
08.04.2018 - 19:04
Taormina Top#taorminatop |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur með gatamynstri, hringlaga berustykki og stuttum ermum, prjónaður ofan frá og niður úr DROPS BabyMerino. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-37 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir þína stærð (á við um A.1). ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu á berustykki): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur) og deilið með fjölda lykkja sem eftir er með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 7,25. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca til skiptis 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt inn í mynstur svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri), aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það á ekki að myndast gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Kantur á ermum er prjónaður í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 116-120-126-132-139-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyMerino. Umferðin byrjar við miðju að aftan. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 16-24-30-36-41-36 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1= 132-144-156-168-180-180 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið A.1a (= 12 lykkjur hringinn yfir allar lykkjur (= 11-12-13-14-15-15 sinnum á breidd) Haldið áfram með mynstur svona JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir í hverri umferð merktri með útauknings ör í mynsturteikningu A.1 þannig: Í hvert skipti sem aukið er út um 12 lykkjur er A.1 prjónað alls 1 sinni oftar á breiddina. Í hvert skipti sem aukið er út um 24 lykkjur er A.1 prjónað alls 2 sinnum oftar á breiddina. Í hvert skipti sem aukið er út um 36 lykkjur er A.1 prjónað alls 3 sinnum oftar á breiddina. ÚTAUKNING 1: Aukið út um 24-24-24-24-24-36 lykkjur = 156-168-180-192-204-216 lykkjur. ÚTAUKNING 2: Aukið út um 24-24-24-24-24-36 lykkjur = 180-192-204-216-228-252 lykkjur. ÚTAUKNING 3: Aukið út um 24 lykkjur = 204-216-228-240-252-276 lykkjur. ÚTAUKNING 4: Aukið út um = 228-240-252-264-276-300 lykkjur. ÚTAUKNING 5: Aukið út um 24 lykkjur = 252-264-276-288-300-324 lykkjur. ÚTAUKNING 6: Aukið út um 24 lykkjur = 276-288-300-312-324-348 lykkjur. Þegar A.1a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 14 cm frá kanti í hálsi. Nú er prjónað A.1b yfir A.1a og útauknig heldur áfram þannig: ÚTAUKNING 7: Aukið út um 12-24-24-24-24-24 lykkjur = 288-312-324-336-348-372 lykkjur. ÚTAUKNING 8: Aukið út um 12-12-24-24-24-24 lykkjur = 300-324-348-360-372-396 lykkjur. ÚTAUKNING 9: Aukið út um 12-12-24-24-24-24 lykkjur = 312-336-372-384-396-420 lykkjur. ÚTAUKNING 10: Aukið út um 12-12-12-12-24-24 lykkjur = 324-348-384-396-420-444 lykkjur. Útaukning á nú að vera lokið í stærð S, M og L, en heldur áfram í stærð XL, XXL og XXXL svo þannig: ÚTAUKNING 11: Aukið út um 12-24-24 lykkjur = 408-444-468 lykkjur. ÚTAUKNING 12: Aukið út um 12-12-24 lykkjur = 420-456-492 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 324-348-384-420-456-492 lykkjur (A.1b er nú endurtekið 27-29-32-35-38-41 sinnum á breidd). Prjónið mynstur þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: (Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar slétt þegar lykkjur eru prjónaðar slétt og brugðið þegar lykkjur eru prjónaðar brugðið). Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 44-49-53-60-66-73 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 74-76-86-90-96-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 88-98-106-120-132-146 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 74-76-86-90-96-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja og prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 44-49-53-60-66-73 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 196-216-232-260-284-312 lykkjur. Prjónið mynstur, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri undir ermum eru prjónaðar slétt þegar lykkjur eru prjónaðar slétt og brugðið þegar lykkjur eru prjónaðar brugðið. Þegar A.1b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 27-27-27-30-30-30 cm. Prjónið síðan sléttprjón. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – lesið ÚTAUKNING-2! Aukið svona út í 4. hverri umferð þar til stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum = ca 276-300-324-348-380-412 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið A.2 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 35-35-36-36-36-36 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum og ca 55-57-59-61-63-65 cm frá kanti í hálsi. Fellið af (passið uppá að fella nægilega laust af, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum). KANTUR Á ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 74-76-86-90-96-100 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3 og takið upp 1 lykkju í hverja og eina af 10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 84-86-96-100-106-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja. Prjónið síðan A.1b yfir lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri, lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar brugðið þegar lykkjurnar eru prjónaðar brugðið og sléttar þegar lykkjurnar eru prjónaðar sléttar. Þegar ermin mælist 3 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, stillið af að endað sé fallega ef miðað er við mynstur, skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið 4 umferðir garðaprjón, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #taorminatop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.