DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Taormina Sweater

Peysa með gatamynstri, hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS BabyMerino. Stærð S - XXXL.

DROPS 186-29
DROPS Design: Mynstur bm-046
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
400-450-450-500-550-600 g litur 25, fjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 2,5 fyrir kanta með garðaprjóni – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 51 umferð með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir þína stærð (á við um A.1).

ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu á berustykki):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur) og deilið með fjölda lykkja sem eftir er með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 7,25.
Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca til skiptis 7. hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt inn í mynstur svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri), aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það á ekki að myndast gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 116-120-126-132-139-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyMerino. Umferðin byrjar við miðju að aftan. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 16-24-30-36-41-36 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1= 132-144-156-168-180-180 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn svo að það myndist ekki gat).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið A.1a (= 12 lykkjur hringinn yfir allar lykkjur (= 11-12-13-14-15-15 sinnum á breidd)
Haldið áfram með mynstur svona JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir í hverri umferð merktri með útauknings ör í mynsturteikningu A.1 þannig:
Í hvert skipti sem aukið er út um 12 lykkjur er A.1 prjónað alls 1 sinni oftar á breiddina.
Í hvert skipti sem aukið er út um 24 lykkjur er A.1 prjónað alls 2 sinnum oftar á breiddina.
Í hvert skipti sem aukið er út um 36 lykkjur er A.1 prjónað alls 3 sinnum oftar á breiddina.
ÚTAUKNING 1: Aukið út um 24-24-24-24-24-36 lykkjur = 156-168-180-192-204-216 lykkjur.
ÚTAUKNING 2: Aukið út um 24-24-24-24-24-36 lykkjur = 180-192-204-216-228-252 lykkjur.
ÚTAUKNING 3: Aukið út um 24 lykkjur = 204-216-228-240-252-276 lykkjur.
ÚTAUKNING 4: Aukið út um = 228-240-252-264-276-300 lykkjur.
ÚTAUKNING 5: Aukið út um 24 lykkjur = 252-264-276-288-300-324 lykkjur.
ÚTAUKNING 6: Aukið út um 24 lykkjur = 276-288-300-312-324-348 lykkjur.

Þegar A.1a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 14 cm frá kanti í hálsmáli. Nú er prjónað A.1b yfir A.1a og útaukningarnar halda áfram þannig:
ÚTAUKNING 7: Aukið út um 12-24-24-24-24-24 lykkjur = 288-312-324-336-348-372 lykkjur.
ÚTAUKNING 8: Aukið út um 12-12-24-24-24-24 lykkjur = 300-324-348-360-372-396 lykkjur.
ÚTAUKNING 9: Aukið út um 12-12-24-24-24-24 lykkjur = 312-336-372-384-396-420 lykkjur.
ÚTAUKNING 10: Aukið út um 12-12-12-12-24-24 lykkjur = 324-348-384-396-420-444 lykkjur.
Útaukning á nú að vera lokið í stærð S, M og L, en heldur áfram í stærð XL, XXL og XXXL svo þannig:
ÚTAUKNING 11: Aukið út um 12-24-24 lykkjur = 408-444-468 lykkjur.
ÚTAUKNING 12: Aukið út um 12-12-24 lykkjur = 420-456-492 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
= 324-348-384-420-456-492 lykkjur (A.1b er nú endurtekið 27-29-32-35-38-41 sinnum á breidd).
Prjónið mynstur þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: (Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar slétt þegar lykkjur eru prjónaðar slétt og brugðið þegar lykkjur eru prjónaðar brugðið).
Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 44-49-53-60-66-73 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 74-76-86-90-96-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 88-98-106-120-132-146 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 74-76-86-90-96-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja og prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 44-49-53-60-66-73 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 196-216-232-260-284-312 lykkjur. Prjónið mynstur, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri undir ermum eru prjónaðar slétt þegar lykkjur eru prjónaðar slétt og brugðið þegar lykkjur eru prjónaðar brugðið. Þegar A.1b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 27-27-27-30-30-30 cm. Prjónið síðan sléttprjón. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – lesið ÚTAUKNING-2! Aukið svona út í 4. hverri umferð þar til stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum = ca 276-300-324-348-380-412 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið A.2 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 35-35-36-36-36-36 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum og ca 55-57-59-61-63-65 cm frá kanti í hálsi. Fellið af (passið uppá að fella nægilega laust af, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum).

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Setjið 74-76-86-90-96-100 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3 og takið upp 1 lykkju í hverja af 10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 84-86-96-100-106-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja. Prjónið síðan A.1b yfir lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri, lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar brugðið þegar lykkjur eru prjónaðar brugðið og sléttar þegar lykkjur eru prjónaðar sléttar.
Þegar A.1b hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist ermin ca 7-5-4-5-3-1 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki.
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 1½-1½-1-1-1-1 cm millibili alls 14-15-19-20-22-23 sinnum = 56-56-58-60-62-64 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 33-32-31-29-28-26 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið A.2 yfir allar lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru allar lykkjur felldar af (passið uppá að fella nægilega laust af, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum).
Ermin mælist ca 36-35-34-32-31-29 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er EKKI prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = útaukningsör
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Bükki Márta wrote:

A szaporítások szemszáma hibás

26.03.2024 - 14:58

DROPS Design answered:

Kedves Márta, köszönjük, hogy felhívta a figyelmünket a hibára, a minta javításra került. Sikeres kézimunkázást!

27.03.2024 - 22:43

country flag Sara wrote:

Che significa questo: " lavorare le maglie che non completano una intera ripetizione come segue: lavorarle a diritto quando le maglie del motivo vengono lavorate a diritto e a rovescio quando vengono lavorate a rovescio" ? Potreste spiegarmi a cosa si riferisce? Perché se si tratta dello schema non è fatto solo di diritti e rovesci , ci sono gettati , diminuzioni, ecc. , per cui non capisco a cosa si riferisce. Grazie

11.02.2022 - 19:10

DROPS Design answered:

Buonasera Sara, deve lavorare le maglie che non rientrano nel motivo come si presentano. Buon lavoro!

05.03.2022 - 22:19

country flag Sara wrote:

Questo capo indossato dalla modella che taglia è ?

01.02.2022 - 13:27

DROPS Design answered:

Buonasera Sara, solitamente le modelle indossano la taglia M. Buon lavoro!

01.02.2022 - 22:17

country flag Brongkoll wrote:

Ich habe ein Problem bei der Anleitung, ich steicke A 1a und weiß nicht wie ich die 35 Reihe stricken muss, nach dem ersten Rapport 12 Maschen weiß ich nicht weiter

03.11.2020 - 13:51

DROPS Design answered:

Liebe Frau Brongkoll, A.1a wird je nach der Größe 11 bis 15 Mal in der Breite wiederholt: stricken Sie die 1. Reihe von A.1a x 11-12-13-14-15-15 Mal in der Runde, dann 2. Reihe, dann 2. Reihe, usw. Gleichzeitig sollen Sie Maschen regelmäßig zunehmen, wenn Sie 12 M zunehmen, stricken Sie A.1a 1 Mal mehr in der Runde und wenn Sie 24 M zunehmen, stricken Sie A.1a 2 Mal mehr in der Runde - hier lesen Sie, wie man ein Diagram in Runden strickt. Viel Spaß beim stricken!

03.11.2020 - 15:29

country flag Vickie Parsons wrote:

Where is the pattern chart for A2? I checked 'to the left' (where the person from Germany was told to look, and it's not there. Is chart A1b actually chart A2? Help! Thanks :)

06.10.2018 - 23:31

DROPS Design answered:

Dear Vickie, the pattern for A.2 is just to the left of the pattern A.1a It is small, the column of two stitches and 14 round/ rows. Happy Knitting!

07.10.2018 - 23:03

country flag Sabina Jansen wrote:

Eigentlich komme ich gut zurecht mit dieser Anleitung. Aber wo ist dasMuster A2??? Hab jetzt alles schon mehrfach ausgedruckt, finde es nicht !! Hilfe

01.09.2018 - 13:31

DROPS Design answered:

Liebe Frau Janse, A.2 ist links auf der Seite (vor A.1a in der Grösse S-M-L), es wird über 2 M und 14 Reihen. Viel Spaß beim stricken!

04.09.2018 - 11:22

country flag Ricarda Klein wrote:

Obwohl ich genau nach Anleitung gestrickt, habe rollt am Rumpf die untere Abschlusskante ein. Schade und ärgerlich.

23.06.2018 - 17:52

DROPS Design answered:

Liebe Frau Klein, Sie können den Pullover mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen.

25.06.2018 - 09:36

country flag Ricarda Klein wrote:

Hallo und guten Tag ich habe eine Frage zum Diagramm. Wie sind die eingerückten 2 Zeilen in oberen Viertel zu verstehen ?

01.06.2018 - 16:03

DROPS Design answered:

Liebe Frau Klein, am Anfang der Reihe, stricken Sie die erste Masche aber diese Masche wird dann mit der letzten Maschen im letzten Rapport gestrickt. Am ende jedes Rapport, wird die letzte Maschen zusammen mit der ersten Maschen vom nächsten Rapport gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

01.06.2018 - 16:54

country flag Kari wrote:

Jeg har kommet til rad 35 i diagrammet A1a og jeg ser at alt forflytter seg med en maske, men hva gjør jeg med den første masken? Jeg kan ikke strikke kun 2 m rett for da forflytter motivet seg. Skal jeg strikke 3 masker eller hvordan gjør jeg det for å få det til å stemme ?

18.05.2018 - 10:31

DROPS Design answered:

Hei Kari. Hvis du ser på den siste masken i A.1a på samme omgang ser du at det er en felling som strekker seg 1 maske inn i neste rapport av A.1a. Det er denne fellingen som ser ut som en mangelende maske på starten av rapporten – men første maske blir altså strikket som en del av fellingen på forrige rapport. Strikk den alle første masken på omgangern rett, fortsett diagrammet som vanlig (2 rett, kast, felling), og når du kommer til slutten av omgangen vil omgangens første maske inngå i fellingen til den siste rapporten av A.1a. God fornøyelse.

25.05.2018 - 10:48

country flag Aurelie wrote:

Bonjour, je crois que je ne comprends pas bien le début du diagramme. Puisque le pull se tricote du haut en bas, dois je commencer le diagramme ( 3ème rang maille envers) ou par le bas( 3ème rang maille glissée) ? Lorsque je glisse 1 maille à l’endroit tricote la suivante et passe par dessus, je perds une maille à chaque fois? J’es Que mes questions sont assez claires. Cordialement. Merci pour ces beaux modèles.

18.03.2018 - 17:01

DROPS Design answered:

Bonjour Aurélie, les diagrammes se lisent toujours en commençant en bas à droite et de droite à gauche tous les tours. Suivez bien les symboles du diagramme tels qu'ils sont décrits, sans rien modifier. Bon tricot!

19.03.2018 - 10:56