Corbel skrifaði:
As quand le restedles explications des modèles printemps été 2018
06.02.2018 - 12:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Corbel, les explications sont mises en ligne progressivement les unes après les autres et devraient être toutes en ligne d'ici la fin du mois. D'autres modèles non retenus seront publiés entre temps et jusqu'en juillet. Bon tricot!
06.02.2018 - 13:12
Dominique LEDIEN skrifaði:
Il est trop trop beau!!!! Magnifique!
30.01.2018 - 15:40
Susanne Damgaard skrifaði:
Den er skøn, og måske lige noget for min datter på 14½ år. Men hvornår bliver opskriften tilgængelig? Mvh Susanne
22.01.2018 - 11:24
Tove Rye-Andersen skrifaði:
Denne vil jeg strikke🤗
09.01.2018 - 12:10
Lilian Hamberg skrifaði:
Skir och vacker modell, passande till både långbyxor, tights och kjol.
09.01.2018 - 09:04
Kjersti Stenstad skrifaði:
Gannigenser...
19.12.2017 - 15:30
Marianne skrifaði:
Lækker. Vil jeg bo i :)
13.12.2017 - 07:59
Nimbus#nimbussweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk.
DROPS 188-11 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað ofan frá og niður. Prjónið fram og til baka þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka, síðan er framstykki og bakstykki sett saman og prjónað er í hring. Ermar eru prjónaðar í lokin. FRAMSTYKKI: HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 24-26-26-29-29-33 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 7-9-10-13-14-18 lykkjur sléttprjón, 2 lykkjur brugðið, A.1 (= 8 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, 5-5-4-4-3-3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 3 cm, endið eftir umferð frá réttu. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl. VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 24-26-26-29-29-33 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5-5-4-4-3-3 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, 7-9-10-13-14-18 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 3 cm, endið eftir eina umferð frá réttu – ATH! Passið uppá að prjónaðar séu jafn margar umferðir eins og á hægra framstykki. Næst umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið lykkjur frá vinstri öxl, fitjið upp 19-19-21-21-23-23 nýjar lykkjur, prjónið lykkjur frá hægri öxl = 67-71-73-79-81-89 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 7-9-10-13-14-18 lykkjur í sléttprjóni, 2 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, garðaprjón yfir næstu 29 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, A.3, 2 lykkjur brugðið, 7-9-10-13-14-18 lykkjur sléttprjón. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 29 lykkjur, haldið áfram með A.2 yfir þessar lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm, endið eftir umferð frá röngu, geymið stykkið og prjónið bakstykki. BAKSTYKKI: HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 24-26-26-29-29-33 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 2 cm, endið eftir umferð frá réttu. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl. VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 24-26-26-29-29-33 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón. Haldið áfram þar til stykkið mælist 2 cm, endið eftir umferð frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið lykkjur frá vinstri öxl, fitjið upp 9-9-11-11-13-13 nýjar lykkjur, prjónið lykkjur frá hægri öxl = 57-61-63-69-71-79 lykkjur. ATH! Fitjaðar eru upp færri lykkjur fyrir hálsmáli á bakstykki en á framstykki þar sem öldumynstur í A.2 dregst saman á breiddina. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 19-21-22-25-26-30 lykkjur sléttprjón, garðaprjón yfir næstu 19 lykkjur, 19-21-22-25-26-30 lykkjur sléttprjón. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni yfir miðju 19 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm, endið eftir umferð frá röngu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 1 umferð frá réttu yfir lykkjur á bakstykki, fijtið upp 6-6-8-8-12-12 nýjar lykkjur, prjónið til baka lykkjur frá framstykki á prjóninn og fitjið upp 6-6-8-8-12-12 nýjar lykkjur = 136-144-152-164-176-192 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón eins og áður, nýjar lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm frá þar sem stykkin voru sett saman, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið síðan af með sléttum lykkjum. Peysan mælist alls 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMI: Ermin er prjónuð neðan frá og upp og í hring á sokkaprjóna. Skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Fitjið upp 22-24-26-28-30-32 lykkjur á sokkaprjón 8 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 6 umferðir garðaprjón, síðan er sléttprjón prjónað í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING! Aukið út með 6-6-5-5-4-3½ cm millibili alls 6-6-7-7-8-8 sinnum = 34-36-40-42-46-48 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-40-39-37-37-35 cm fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki undir ermi, ermakúpan er prjónuð til loka fram og til baka. Haldið áfram í sléttprjóni, jafnframt er lykkjum fækkað hvoru megin í annarri hverri umferð þannig: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 1-1-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, síðan eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist alls 48-47-47-45-45-43 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nimbussweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.