Nina-Merethe Kasbo-Eilertsen skrifaði:
Mulig jeg er trött, men menes det at man skal felle 15 masker på en pinne, og så 15 masker på neste rettpinne, eller skal man felle 1 maske 15 ganger ?
22.04.2025 - 23:06DROPS Design svaraði:
Hei Nina-Merethe, Du feller av 15 masker fra siden på den første pinnen, strikker tilbake som før, og feller av 15 masker fra siden en gang til. Alle maskene er felt av og du har en skrå skulder. God fornøyelse!
23.04.2025 - 06:43
Nina-Merethe Kasbo-Eilertsen skrifaði:
Mulig jeg er trött, men menes det at man skal felle 15 masker på en pinne, og så 15 masker på neste rettpinne, eller skal man felle 1 maske 15 ganger ?
22.04.2025 - 23:03DROPS Design svaraði:
Hej Nina, mener du til skrå skulder, hvis ja så feller du 15 masker 1 gang og næste gang du strikker fra skulderen og ind mod halsen feller du 15 masker igen :)
30.04.2025 - 13:23
Henriette Philipsen skrifaði:
Er det rigtigt, at der strikkes 4 masker retstrikning på hver side af bagstykket, og hver af forstykkerne, så der kommer en stribe glatstrikning ned af trøjen, under ærmet?
13.05.2024 - 15:05DROPS Design svaraði:
Hej Henriette, nja... der hvor vi skriver retstrik i opskriften, strikkes der ret både fra retsiden og vrangen og bliver til retstrik (ikke glatstrik). På ærmet har du én kantmaske i hver side som strikkes i retstrik :)
14.05.2024 - 12:12
Hildigunnur skrifaði:
Í uppskriftinni segir "lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum" stykkin eru prjónuð fram og til baka og af myndinni að dæma eru þau prjónuð slétt frá réttu og brugðið frá röngu (ekki garðaprjón að sjá á myndinni) hvað er rétt í þessu?
10.10.2022 - 19:48DROPS Design svaraði:
Blessuð Hildigunnur. Þar sem segir prjónið GARÐAPRJÓN þá eru allar lykkjur prjónaðar slétt í öllum umferðum og á við um kantinn á peysunni sem eru 4 lykkjur hvoru megin framan á peysunni. Gangi þér vel.
10.10.2022 - 20:59
Sophie skrifaði:
Bonjour Pourquoi utiliser des aiguilles circulaires ?
24.01.2021 - 23:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Sophie, question de culture, il est courant en Scandinavie de tricoter sur aiguilles circulaires, mais aussi parce qu'on a ainsi beaucoup plus de place pour y loger toutes les mailles, elles sont ainsi moins serrées. Retrouvez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!
25.01.2021 - 11:28
Ati skrifaði:
Hallo, ich habe gerade die Wolle erhalten und freue mich auf‘s Stricken 😊 Das Puderrosa ist ja eher ein lila - wird die Jacke durch die Mischung mit dem Bouclefaden in Natur eher rosa oder zartlila? Ich würde sie dann eventuell durch „Rosasand“ ersetzen. LG
20.05.2020 - 18:22Ati svaraði:
Ok, hab die Maschenprobe gemacht und es sieht klasse aus - werde das Garn (Puderrosa) behalten 😍👍 Allen einen schönen sonnigen Tag ☀️
21.05.2020 - 12:54
Elin skrifaði:
Hej! Jag har stickat en bit nu och har två rätstickade kanter på bakstycket på 4 maskor. Det jag inte förstår är varför dessa ska vara med på bakstycket när det räcker att ha det på framstyckena mitt framtill? Har det blivit fel i mönstret? Är det meningen att jag ska montera ihop delarna sen så att kanterna på 4 maskor ska synas? Är det tänkt att vara en form av dekoration? Mvh Elin
25.08.2019 - 21:57DROPS Design svaraði:
Hej. Ja det är meningen att det ska vara rätstickade kanter även i sidorna som kommer att synas. Mvh DROPS Design
27.08.2019 - 09:09
Brigitte Roos skrifaði:
Ich komme bisher wunderbar zurecht mit der Strickanleitung und auch mit der Wolle. Beides gefällt mir sehr gut. Ich habe aber folgende Frage: Ich stricke mit Nadelstärke 9, was auch gut passt,. Aber der Faden zwischen den Metallnadeln ist zu steif für die schöne, weiche Wolle. Gibt es einen Trick, wie man ihn weicher machen kann? LG Brigitte Roos
09.07.2019 - 14:40DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Roos, am besten fragen Sie - auch telefonisch oder per Email den Laden, wo Sie Ihre Nadel gekauft haben., Sie haben sicher Tip für Sie. Viel Spaß beim stricken!
09.07.2019 - 16:15
Ragnhild skrifaði:
Hei, Er det normalt med så trange armer i forhold til resten av jakken? 15 cm høyde på armhull i str. L må vel være lite.
10.05.2019 - 21:21DROPS Design svaraði:
Hei Ragnhild. Du feller av til ermhull når arbeidet måler 64 cm, så fortsetter du å strikke og feller av på toppen av skulderen når arbeidet måler 84 cm. Åpningen til ermhullet er derfor ca 20 cm (= 40 cm i omkrets). God fornøyelse
13.05.2019 - 07:38
Lea Leviäkangas skrifaði:
Haluaisin tehdä ohjeen Andes langasta (lankaryhmä E), niin mikä on langan menekki?
26.10.2018 - 07:51DROPS Design svaraði:
Hei, tähän malliin tarvitset esim. koossa M 10 kerää Andes-lankaa.
19.11.2018 - 17:22
Copenhagen#copenhagencardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa með v-hálsmáli, klauf í hliðum og víðri öxl. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Brushed Alpaca Silk.
DROPS 188-17 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 71 lykkja), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 10,1. Í þessu dæmi þá ca 9. og 10. hver lykkja saman prjónaðar saman. ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 4 lykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 4 lykkjum í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 4 lykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið er út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 35, 44 og 53 cm M: 36, 45 og 54 cm L: 37, 46 og 55 cm XL: 38, 47 og 56 cm XXL: 39, 48 og 57 cm XXXL: 40, 49 og 58 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 71-71-77-83-89-95 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Alpaca Bouclé og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu – þannig: 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 5 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið 1 umferð slétt (með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið) þar sem fækkað er um 7-3-5-7-9-11 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir lykkjur í garðaprjóni) – lesið ÚRTAKA-1= 64-68-72-76-80-84 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm frá uppfitjunarkanti. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar af 3 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg = 58-62-66-70-74-78 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 73-75-77-79-81-83 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður), fellið síðan af miðju 8-8-10-10-12-12 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju innan við 4 lykkjur í garðaprjóni í næstu umferð frá hálsi = 24-26-27-29-30-32 lykkjur. Í næstu umferð frá hlið/handveg er fellt af fyrir öxl: Fellið af í annarri hverri umferð 12-13-14-15-15-16 lykkjur 1 sinni og 12-13-13-14-15-16 lykkjur 1 sinni. Stykkið mælist ca 80-82-84-86-88-90 cm frá efst á öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 41-41-47-47-53-53 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Alpaca Bouclé og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu – þannig: 4 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur garðaprjón í hlið. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið 1 umferð slétt (með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið) þar sem fækkað er um 5-3-7-5-9-7 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir lykkjur í garðaprjóni) = 36-38-40-42-44-46 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 4 lykkjur í garðaprjóni að hlið – munið eftir HNAPPAGAT! Þegar stykkið mælist 54-55-56-57-58-59 cm fækkið um 1 lykkju innan við 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni fyrir v-hálsmáli – lesið ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 9-9-10-10-11-11 sinnum JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm fellið af 3 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið til loka. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 24-26-27-29-30-32 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist ca 76-78-80-82-84-86 cm – stillið af eftir bakstykki, fellið af frá hlið/handveg fyrir öxl: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 12-13-14-15-15-16 lykkjur 1 sinni og 12-13-13-14-15-16 lykkjur 1 sinni. Stykkið mælist ca 80-82-84-86-88-90 cm efst frá öxl og niður. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 41-41-47-47-53-53 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Alpaca Bouclé og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu – þannig: 4 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur garðaprjón í hlið. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið 1 umferð slétt (með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið) þar sem fækkað er um 5-3-7-5-9-7 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir lykkjur í garðaprjóni) = 36-38-40-42-44-46 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 4 lykkjur í garðaprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 54-55-56-57-58-59 cm fækkið um 1 lykkju innan við 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – lesið ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 9-9-10-10-11-11 sinnum JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm fellið af 3 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið til loka. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 24-26-27-29-30-32 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist ca 76-78-80-82-84-86 cm – stillið af eftir bakstykki og hægra framstykki, fellið af frá hlið/handveg fyrir öxl: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 12-13-14-15-15-16 lykkjur 1 sinni og 12-13-13-14-15-16 lykkjur 1 sinni. Stykkið mælist ca 80-82-84-86-88-90 cm efst frá öxl og niður. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 26-26-26-32-32-32 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 8 með 1 þræði Alpaca Bouclé og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 11-9-8-11-9-8 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 11-9-10-15-13-9 cm millibili alls 2-3-4-2-3-4 sinnum = 30-32-34-36-38-40 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-43-42-41-40-39 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Frágangur á peysunni er með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana niður yfir hlið á fram- og bakstykki frá undir handveg og niður þar til eftir eru ca 17 cm á peysunni (= klauf). Endurtakið í hinni hliðinni. Klippið frá og festið enda. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #copenhagencardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.