Bianca Röhrig skrifaði:
Jetzt habe ich es herausbekommen: auch bei Größe S und M muss man 4 Rapporte von A7 dazu stricken, weil man wieder von "unten" A6 und A8 anfängt zu stricken und nun aber mehr Maschen hat. Logisch, eigentlich! Es macht viel Spaß , das Muster stricken!
17.01.2018 - 13:46
Bianca Röhrig skrifaði:
Liebes Team, leider haben Sie meine Frage nicht richtig beantwortet: Da ich ja Größe S stricke, ist es doch gar nicht vorgesehen, dass ich A7 stricke, oder? Es heißt A7 0-0-1-1-2-2! Dann muss ich, nachdem ich die Höhe einmal gestrickt habe, die A7 dann trotzdem oder gar nicht stricken?
17.01.2018 - 12:55DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Röhrig, in der 1. Größe wird zuerst A.7 nicht gestrickt, aber nachdem Sie A.6 und A.8 1 x in der Höhe gestrickt haben, dann haben Sie genügend Maschen um A.7 zwischen A.6 und A.8 zu stricken. Viel Spaß beim stricken!
17.01.2018 - 14:16
Bianca Röhrig skrifaði:
Ich stricke Größe S. Kann ich die Anweisung im 4. Abschnitt ignorieren, dass ich 4 Rapporte von A7 zwischen A6 und A8 stricken soll, da ich ja gem. des Absatzes zuvor gar nicht A7 stricken musste. Hab ich das richtig verstanden?
17.01.2018 - 10:22DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Röhrig, wenn Sie A.6, A.7 und A.8 1 x in der Höhe gestrickt haben, haben Sie genügend Maschen um 4 Rapporte mehr von A.7 zwischen A.6 und A.8 zu stricken, dh das Lochmuster wird breiter sein und es wird dann mehr Maschen im A.7 gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
17.01.2018 - 11:26Oksana skrifaði:
Please say in other words: Every time A.6, A.7 and A.8 have been worked 1 time vertically, work 4 repetitions more of A.7 between A.6 and A.8. From this line I dont get if there are 5 vertical repetitions of all A.6-A.8 or it says something different. thanks!
12.11.2017 - 10:31DROPS Design svaraði:
Dear Oksana, the line means that every time you finish a pattern repeat vertically of the rows of pattern A.6 / A.7 / A.8, you will have enough stitches in the round to knit 4 more repeats, horisontally of the pattern. Happy Knitting!
12.11.2017 - 21:43
Anne Lise Weigand skrifaði:
Habe jetzt A6-A7und A8 ein mal in der Höhe. Habe jetzt 278 Maschen. Was bedeutet jetzt 4 Raporte mehr von A7,
11.11.2017 - 19:04DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Weigand, wenn Sie A.6 bis A.8 1 x in der Höhe gestrickt haben, wurden 24 M zugenommen (in A.6 und A.8), dh Sie stricken dann wie zuvor: A.6 bis A.8 von 1. Reihe wieder, aber jetzt haben Sie genügend Maschen um A.7 4 x mehr in der Breite zu stricken. Viel Spaß beim stricken!
13.11.2017 - 09:39
Susanne skrifaði:
Undskyld, jeg mener selvfølgelig 5 rapporter af A.7 anden gang i højden og 9 rapporter tredje gang i højden osv, hvis jeg altså forstår det rigtigt :-) ?
24.10.2017 - 18:25DROPS Design svaraði:
Hej Susanne, ja det stemmer det du siger her :)
15.11.2017 - 13:48
Susanne skrifaði:
Hvordan forstås følgende: "For hver gang A.6, A.7 og A.8 er strikket 1 gang i højden strikkes der 4 rapporter mere af A.7 mellem A.6 og A.8." Skal jeg strikke 8 rapporter af A.7, anden gang jeg strikker A.6, A.7 og A.8 i højden? og derefter 12 rapporter osv...
24.10.2017 - 18:06DROPS Design svaraði:
Ja, hver rapport består af 6 masker, du strikker automatisk 1 ny rapport af A7 når du følger udtagningerne og diagrammet. God fornøjelse!
31.10.2017 - 14:46
Winter Grace#wintergracesweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Peysa með köðlum, gatamynstri og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Puna eða DROPS Daisy. Stærð S - XXXL.
DROPS 183-9 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. ÚRTAKA: Lykkjum er fækkað undir ermi þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og prjónað er ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 86-86-94-94-102-102 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með Puna eða Daisy. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 20-20-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 106-106-118-118-130-130 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig: * A.1 (= 18 lykkjur), A.2 (= 2 lykkjur), A.3 0-0-1-1-2-2 sinnum (= 0-0-6-6-12-12 lykkjur), A.4 (= 3 lykkjur), A.5, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Haldið áfram með þetta mynstur, aukið út eins og útskýrt er í A.2 og A.4. Á ermum er aukið út hvoru megin við 12 lykkjur í sléttprjóni, aukið út í annarri hverri umferð með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að ofan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í sléttprjón. Aukið út alls 8 lykkjur í annarri hverri umverð. Þegar A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjóna 1 sinni á hæðina eru 170-170-182-182-194-194 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: *A.1 (= 18 lykkjur), A.6 (= 10 lykkjur), A.7 0-0-1-1-2-2 sinnum (= 0-0-6-6-12-12 lykkjur), A.8 (= 11 lykkjur), A.5 (= 18 lykkjur), 28 lykkjur í sléttprjóni (= ermi) *, prjónið *-* alls 2 sinnum. Haldið áfram með þetta mynstur og haldið áfram með útaukningu á ermum. Í hvert skipti sem A.6, A.7 og A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 4 mynstureiningar fleiri af A.7 á milli A.6 og A.8. Haldið áfram með mynstur þar til aukið hefur verið út alls 25-29-30-35-37-43 sinnum í A.2, A.3, A.6 og A.8 og í hvorri hlið á ermi = 306-338-358-398-426-474 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 91-99-107-117-127-139 lykkjurnar (= framstykki), setjið næstu 62-70-72-82-86-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 91-99-107-117-127-139 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 62-70-72-82-86-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur. Stykkið mælist ca 19-21-22-26-28-31 cm frá uppfitjunarkanti. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 198-214-234-254-278-302 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur. Haldið áfram með A.1 og A.5 eins og áður og prjónið sléttprjón yfir nýjar lykkjur í hlið. Yfir lykkjur í A.6, A.7 og A.8 (= 55-63-71-81-91-103 lykkjur á bakstykki og á framstykki) prjónið mynstur eftir A.9. Byrjið á þeirri umferð í A.9 sem gerir það að mynstrið passi við síðustu mynsturumferð í A.6 til A.8 – þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). Aukið út um 6 cm millibili alls 5 sinnum = 218-234-254-274-298-322 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-35-37-35-36-34 cm, fækkið um 3 lykkjur yfir hvern kaðal í A.1 og A.5 = 206-222-242-262-286-310 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, síðan er fellt af. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á stuttan hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Setjið til baka lykkjur af þræði á stuttan hringprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-78-82-92-98-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkju – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn á hringprjón/sokkaprjóna. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ LEIÐBEININGAR. Fækkið lykkjum með 2½-2-2-1½-1½-1 cm millibili alls 14-17-18-22-24-29 sinnum. Eftir allar úrtökur eru 42-44-46-48-50-52 lykkjur eftir í umferð. Þegar stykkið mælist 44-43-42-39-38-35 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið síðan af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintergracesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.