DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8712.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Winter Grace Jacket

Peysa með köðlum, gatamynstri og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Puna. Stærð S - XXXL.

DROPS 183-10
DROPS Design: Mynstur pu-021
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-700 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40, 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA Bogalaga (hvít), NR 521: 7-7-7-7-8-8 st

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8712.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.13. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð í A.1, A.7, A.8 og A.12.

ÚRTAKA:
Lykkjum er fækkað undir ermi þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir fyrsta hnappagati eftir 4 umferð í garðaprjóni í hálsmáli, fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7 næstu með ca 8 cm millibili.
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 97-97-105-105-113-113 lykkjur á hringprjón 4 með Puna. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 20-20-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 117-117-129-129-141-141 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð frá réttu – þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan), A.1 (= 3-3-6-6-9-9 lykkjur), A.2 (= 18 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3 (= 18 lykkjur), A.4 (= 2 lykkjur), A.5 0-0-1-1-2-2 sinnum (= 0-0-6-6-12-12 lykkjur), A.6 (= 3 lykkjur), A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3, A.7 (= 3-3-6-6-9-9 lykkjur), 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan). Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.

Haldið áfram með þetta mynstur, aukið út eins og útskýrt er í A.1, A.4, A.6 og A.7. Á ermum er aukið út hvoru megin við 12 lykkjur í sléttprjóni, aukið út í annarri hverri umferð með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að ofan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, það eiga að myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar A.1 til A.7 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 181-181-193-193-205-205 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu – þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni, A.8 A (= 3-3-7-7-7-7 lykkjur) A.8 B (= 6 lykkjur), A.8 C (= 2-2-1-1-4-4 lykkjur), A.2 eins og áður, 28 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.3 eins og áður, A.9 (= 10 lykkjur), A.10 0-0-1-1-2-2 sinnum (= 0-0-6-6-12-12 lykkjur), A.11 (11 = lykkjur), A.2 eins og áður, 28 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.3 eins og áður, A.12 A (= 2-2-1-1-4-4 lykkjur), A.12 B (= 6 lykkjur), A.12 C (= 3-3-7-7-7-7 lykkjur), 5 lykkjur garðaprjón.
Haldið áfram með þetta mynstur og haldið áfram með útaukningar á ermum. Í hver skipti sem A.8/A.12 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 2 mynstureiningar fleiri af A.8/A.12 B á milli A.8/A.12 A og A.8/A.12 C. Í hvert skipti sem A.9, A.10 og A.11 hefur verið prjónað 1 sinni oftar á hæðina eru prjónaðar 4 mynstureiningar fleiri af A.10 á milli A.9 og A.11. Haldið áfram með mynstur þar til aukið hefur verið út alls 25-29-30-35-37-43 sinnum = 317-349-369-409-437-485 lykkjur.

Næsta umferð er prjónuð þannig (frá röngu): Prjónið fyrstu 51-55-59-64-69-75 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 62-70-72-82-86-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 91-99-107-117-127-139 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 62-70-72-82-86-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur, prjónið síðustu 51-55-59-64-69-75 lykkjur (= vinstra framstykki). Stykkið mælist ca 19-21-22-26-28-31 cm frá uppfitjunarkanti. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 209-225-245-265-289-313 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni, A.2 og A.3. Yfir lykkjur í A.8, A.9, A.10, A.11 og A.12 (= 55-63-71-81-91-103 lykkjur á bakstykki og 28-32-36-41-46-52 lykkjur á hvoru framstykki) prjónið nú mynstur eftir A.13. Byrjið í þeirri umferð í A.13 sem fær mynstrið til með að passa með síðustu mynsturumferð í A.8 til A.12 – þær lykkjur sem ekki ganga upp í hliðum með mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT! Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). Aukið út með 6 cm millibili alls 5 sinnum = 229-245-265-285-309-333 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-35-37-35-36-34 cm, fækkið um 3 lykkjur yfir hvern kaðal í A.2 og A.3 = 217-233-253-273-297-321 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan af. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á stuttan hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.
Setjið til baka lykkjur af þræði á stuttan hringprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-78-82-92-98-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkju – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn á hringprjón/sokkaprjóna. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ LEIÐBEININGAR. Fækkið lykkjum með 2½-2-2-1½-1½-1 cm millibili alls 14-17-18-22-24-29 sinnum. Eftir allar úrtökur eru 42-44-46-48-50-52 lykkjur eftir í umferð. Þegar stykkið mælist 44-43-42-39-38-35 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið síðan af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = 2 lykkjur snúnar slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman

symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur af kaðlaprjóni.

diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Anna wrote:

Hej. En liten fundering. Man ska göra mönster A13 över a9, a10, a11 som är 63 m bakstycke eftersom jag stickar på medium och på framstycket 32 m. Men mönster A13 är 6 m totalt och de är varken delbart med 63 m som är bakstyckets mönster eller 32 m som är framstyckernas mönster. Hur är det tänkt att man ska göra där? För att få det att gå ihop? Tack på förskott för svar 🙂 Mvh Anna

14.06.2019 - 13:18

DROPS Design answered:

Hej Anna, jo men det ser samme mønster som du har strikket hele tiden, så det skal stemme over hinanden. De masker i hver side som ikke stemmer, skal bare strikkes i slätstickat. God fornøjelse!

09.07.2019 - 12:18

country flag Anna wrote:

Hej. Jag har kommit till att sticka mer rapporter på mönster A8-b och A12-b. Men på A 8 så på andra varvet med mönster så kommer det en trekant mellan a och b så hur ska jag kunna repetera bara b igen då? Samma gäller A12 så kommer det att man ska ta två ihop mellan a och b och samma där hur ska man kunna göra fler rapporter av endast b då? Som har 6 m. Hur löser jag det? Tacksam för svar 🙂 Mvh Anna

07.06.2019 - 08:24

DROPS Design answered:

Hei Anna. Nå vet ikke jeg hvilke størrelse du strikker, men si at du strikker L/XL: fellingen på slutten av A.8b (= 2 masker vridd rett sammen) vil bli slått sammen med fellingen av den første masken, slik at du isteden strikker = " ta 1 maske løs av pinnen som om den skal strikkes rett, 2 masker rett sammen, løft den løse masken over maskene som ble strikket sammen " over de 2 siste + den førset masken i rapportene av A.8b. Dette kan du også se på rad 11: der er den sorte trekanten tegnet inn over de 2 siste maskene i A.8b + første maske av A.8c. Der A.8b gjentas strikkes denne fellingen i overgangen mellom rapportene. God fornøyelse

07.06.2019 - 09:16

country flag Tiziana Gorini wrote:

Come faccio per sapere cosa corrisponde la taglia l o xl in cm?

19.05.2019 - 18:28

DROPS Design answered:

Buongiorno Tiziana. Alla fine delle spiegazioni, trova un grafico con le misure espresse in cm. Confrontando queste misure con quelle di un capo simile, riesce a capire a quale taglia lavorare. Buon lavoro!

19.05.2019 - 18:36

country flag Phan wrote:

Hello , Could You teach me to add 6 stitches in the A.8 , A.12 . A.10 and A.9 ( ( How to insert stitches in the patterns ? Increase many stitch a row ? Thank very much.

05.01.2019 - 21:51

DROPS Design answered:

Dear Phan, I'm not sure to understand your question properly. The increases in this diagram are already shown in diagram (as in A.4-A.6 worked before). Happy knitting!

07.01.2019 - 11:00

country flag Sonja Helgesen Ofte wrote:

Hei, kjempefin jakke. Jeg har fått ros for den av tilfeldige forbispasserende! Det sier sitt! mvh Sonja

16.09.2018 - 13:40

country flag Kate wrote:

Hej igen Undskyld, jeg har fundet ud af det. Det var en tanketorsk vedr læsning af diagram så alt passer nu.

21.08.2018 - 08:06

country flag Kate wrote:

Hej Jeg kan simpelt hen ikke få målene til st passe efter endt udtagning. Strikker str L og ender ud med ca 30-31 cm i bærestykke. Strikkefastheden passer så hvad gør jeg forkert? Mvh Kate

18.08.2018 - 12:03

DROPS Design answered:

Hej Kate, det lyder til at dine pinde fylder en anelse mere i højden, du kan prøve med ½ nummer mindre, eller så må du vælge en mindre størrelse, men følge længde målene som passer dig. God fornøjelse!

20.08.2018 - 09:38

country flag M Eijpe wrote:

Bij het telpatroon van model DROPS design: Patroon pu-021Garengroep B\r\n\r\nstaat er 2x hetzelfde bij de uitleg van de kabel: \r\n= zet 3 steken op een kabelnaald en houd deze achter het werk, 3 recht, 3 recht van de kabelnaald \r\n= zet 3 steken op een kabelnaald en houd deze achter het werk, 3 recht, 3 recht van de kabelnaald.\r\nde 2e moet volgens mij \"VOOR\" de naald zijn.

22.07.2018 - 07:46

country flag Sandra Pinkerton wrote:

In chart 4, row seven has 2 increases but the next row only shows 1 additional stitch. In Row 15 there are 4 increases but only 1 double decrease. I am not sure what to follow the pattern and ignore the stitch count or adjust the pattern to match the stitch count. Thanks for your help.

10.06.2018 - 00:48

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pinkerton, the first row in A.4 (on row 7) is for the increase to the raglan, the 2nd YO will replace the last st in A.4 (= the one that you will dec in A.5 slipping 1 st as if to K, K2 tog, psso). Happy knitting!

11.06.2018 - 09:17

country flag Teresa Luís wrote:

O início do esquema A1, começa com uma laçada (esquerda) ou com uma malha em meia (direito)? Eu estava a ler os esquemas da esquerda para a direita, mas ao ver a sequência do esquema A8, parece-me que a leitura será da direita para a esquerda. Fico na dúvida se os esquemas devem ser lidos da esquerda para a direita, ou da direita para a esquerda.\r\nObrigada pela vossa ajuda!\r\nTeresa

03.05.2018 - 11:09