Fiona skrifaði:
Explain heel decrease please as asked previously thank you
07.01.2025 - 17:17DROPS Design svaraði:
Dear Fiona, on the first row on heel decrease, knit 17 (first size) -19 (2nd size), then slip 1, K1,psso and turn (5 sts remain), purl 11-13, slip 1, P1, psso (12-13 sts on needle), (5 sts remain), turn, continue like this working until 1 stitch less remain, you should always knit 11-13 from RS before decrease (slip 1, K1, psso) and purl 11-13 from WS before decrease (slip 1, P1, psso) - until 12-14 sts remain on needle. See also video linked below and under video tab. Happy knitting!
08.01.2025 - 07:04
Fiona skrifaði:
When heel decreasing: knit until last 7 Sts slip 1 psso, next row purl until last 7 Sts, psso. next row knit until last 6 Sts but there are now only 5 explain please thank you
07.01.2025 - 14:13DROPS Design svaraði:
Dear Fiona, in this video, we show how to work such heel decreases, this means you will work the middle 12-14-14-14 stitches, decreasing 1 stitch on each side at the end of each row until all stitches have been worked (note that the heel in the video is worked over a different number of stitches but technique remains the same). Happy knitting!
07.01.2025 - 17:07
Mona skrifaði:
Hej! Det stämmer inte i mönstret. När jag ska stickat A2A (58 maskor). Andra varvet blir fel. 1 maska färg 1, 4 maskor färg 2. Det går ju inte jämt upp?
22.10.2024 - 10:52DROPS Design svaraði:
Hej Mona. Om du stickar den minsta storleken så stickar du 5 maskor av A.2A, 48 maskor av A.2B och 5 maskor av A.2C. 5+48+5=58 m. Mvh DROPS Design
23.10.2024 - 12:54
Åshild Markussen skrifaði:
Svar på spørsmål Hei.Det er str 38/40 Overgangen mellom 2a og 2c blir ikke pen . Mulig det er fordi det er start og slutt på omgangen,men får det ikke til å ligne et mønster.Det hadde vært bedre om feltet hadde vært uten mønster. Mvh Åshild
28.04.2022 - 17:24DROPS Design svaraði:
Hej Åshild, det skal ikke blive et kryds bag på strømperne. Du kan prøve at sætte diagram a og c sammen, så ser du hvilket mønster det skal være. Du kan naturligvis altid vælge at strikke det ensfarvet :)
03.05.2022 - 08:47
Åshild Markussen skrifaði:
Hei.Jeg får ikke mønsterA2a og A2c til å stemme.Har rekket opp ,og forsøkt igjen.Går ikke ...det blir stygt...🤔😔 Hilsen Åshild
25.04.2022 - 18:57DROPS Design svaraði:
Hej Åshild, Har du mere information? Hvilken størrelse er det du strikker? Er det selv overgangen fra A til B eller fra B til C som ikke stemmer?
26.04.2022 - 15:32
Marianne Trønnes skrifaði:
Jeg finner ikke ut hvordan en feller ned fra 58 til 48 masker fra A2A til A2B🤯Jeg er på sokkens legg i starten.
07.12.2019 - 12:43DROPS Design svaraði:
Hei Marianne! Når A.1 er fullført skal det felles 2 masker, det er da 58 masker totalt. Deretter skal A.2A strikkes over 5 masker, A.2B strikkes over de neste 48 maskene, og omgangen avsluttes med at A.2C over 5 masker. På siste omgang av A.2B felles det 4 masker, på siste omgang av A.3 felles det 6 masker. Etter disse fellingene vil det være 48 masker igjen på pinnen. Alle omganger der det skal felles er markert med en pil i mønsterdiagrammene. Lykke til!
09.12.2019 - 09:39
Hanna skrifaði:
Er mønsteret til krysset riktig? Jeg får ikke et kryss i midten når jeg følger diagrammet. Det mangler også to kryss i A. 2B på linje 5.
27.10.2019 - 17:43
Chodu Kumar skrifaði:
Very good
29.08.2019 - 08:41
Kati skrifaði:
Please erase my previous comment as it is incorrect. Sorry
02.02.2018 - 19:01
Kati skrifaði:
Tere, eestikeelses õpetuses väike viga: Koo ringselt parempidises koes helehalli lõngaga ja kahanda mõlemal pool jalapeale 24-26-26-28 silmust järgmiselt: koo 2 parempidi kokku ENNE silmusemärkijat enne jalapealseid silmuseid ja 2 parempidi keerdsilmustena kokku teisel küljel, PÄRAST silmusemärkijat pärast jalapealseid silmuseid. Need kahandamise silmused peaksid olema 14-16-16-18, mitte 24-26-26-28
15.01.2018 - 05:16
Narvik Socks#narviksocks |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónaðir sokkar með marglitu norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stærð 35-46.
DROPS 183-4 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 63 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 21. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar 20. og 21. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR (á við um hæl): Til að styrkja hælin er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 12-14-14-14 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 63-63-69-69 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum vínrauður. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-3-5-5 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 60-60-64-64 lykkjur. Prjónið A.1 (= 15-15-16-16 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð slétt með litnum natur og fækkað um 2 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir = 58-58-62-62 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2A (= 5-5-7-7 lykkjur), prjónið A.2B yfir næstu 48 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 16 lykkjum í öllum stærðum) og endið með A.2C (= 5-5-7-7 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.2 er fækkað um 4-4-2-2 lykkjur jafnt yfir = 54-54-60-60 lykkjur. Prjónið síðan A.3 (= 9-9-10-10 mynstureiningar með 6 lykkjum). Í síðustu umferð í A.3 er fækkað um 6-2-6-4 lykkjur jafnt yfir = 48-52-54-56 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 20 cm. Sokkurinn er síðan prjónaður í sléttprjóni með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 21-22-23-24 cm haldið eftir fyrstu 12-13-14-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24-26-26-28 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir 24-26-28-28 hællykkjur í 5-5½-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt á prjóninn – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtaka hefur verið gerð til loka þá eru prjónaðar upp 11-12-13-14 lykkjur hvoru megin við hæl og 24-26-26-28 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 58-64-66-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-26-28 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós grár og fækkið lykkjum hvoru megin við 24-26-26-28 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á UNDAN fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið fyrstu 2 lykkjur á EFTIR seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 7-8-7-7 sinnum = 44-48-52-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-20-22-25 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 4-4-5-5 cm til loka, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 22-24-26-28 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við þessi tvö prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-6-6-7 sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #narviksocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.