Helene Gartmann skrifaði:
Jeg har strikket mange Narvik-gensere i herre- og barnestørrelser. Kan ikke huske at det har vært så stor økning i vidden nedover bolen som det er på dame-modellen. Det ble som en veldig kort tunika. Ble ikke fint. Må rekke opp og strikke bolen på nytt.
09.04.2023 - 21:31
Helene Gartmann skrifaði:
Sorry! Nå kom målskissen fram.
11.12.2022 - 16:45DROPS Design svaraði:
Så bra. mvh DROPS Design
12.12.2022 - 14:31
Helene Gartmann skrifaði:
Jeg finner ikke målskissen til dette mønsteret. Da blir det vanskelig å finne rett størrelse.
11.12.2022 - 16:43DROPS Design svaraði:
Hei Helene. Så bra at den dukket opp. Om nettleseren din har litt problemer / treigt nett kan det ta litt tid å laste ned om diagrammene er store. mvh DROPS Design
12.12.2022 - 14:31
Lolo Sörelius skrifaði:
Hej igen Jag ställde en fråga den 19/2-22 angående mönstret , men har tyvärr inte fått något svar.
02.03.2022 - 10:18
Lolo Sörelius skrifaði:
Hej jag stickar storlek M, jag har stickat oket klart och gjort ökat 4 maskor i sidorna 9 gånger = 235 m. Då är tröjan lagom i storlek. När jag sedan gör sista ökningen med 46 maskor jämnt fördelat blir tröjan jätte, jätte bred, dvs över 64 cm. Hur hänger det ihop? Mönstret har tidigare stämt så att tröjan passat bra som en medium!
19.02.2022 - 14:06
Brisli skrifaði:
Bonjour, Pouvez-vous m’expliquer les diminutions « 6 fois tous les 2 tours et 10 fois tous les tours » pour terminer le bonnet modèle 183-2 en taille small. Est-ce que je dois faire 2 diminutions sur un même tour? Merci
18.12.2021 - 19:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Brisli, pour le bonnet, vous devez diminuer 6 mailles (= 1 maille après chacun des fils marqueurs) ainsi: *tricotez 1 tour en diminuant, 1 tour sans diminuer*, répétez de *-* 6 fois au total, puis tricotez 10 tours en diminuant à chacun de ces tours. Bon tricot!
20.12.2021 - 07:29
Gerd skrifaði:
Jeg strikker genseren i str L. Økningene er greit forklart helt til jeg kommer til A2. Da skjønner jeg ikke hvordan jeg skal få 342 masker. Er det økninger der det er markert med tykkere streker og det blir utvidelse i diagrammet?
01.09.2021 - 16:30DROPS Design svaraði:
Hei Gerd, Økninger er 1 kast (sort runding) på siden av mønsteret (motsatt siden for hver gang). Du har 272 masker før du begynner A.2 og har 17 x A.2 på omgangen som betyr 17 nye masker hver øke-omgang. Du øker 4 ganger i A.2: 4 x 17 = 68, 272 + 68 = 340. Etter det øker du 2 masker jevnt fordelt og da blir det 342 masker. God fornøyelse!
03.09.2021 - 09:35
Patricia skrifaði:
Je vous remercie pour votre réponse mais je pense que nous ne sous sommes pas comprises. Il s'agit de l'augmentation du 23 ème rang sur le shéma A2 taille S, M , L . Le rang se termine par 3 mailles en naturel suivi d'une augmentation (un jeté).
20.11.2020 - 15:49DROPS Design svaraði:
Bonjour Patricia et oops je vais retourner apprendre à compter... effectivement au rang 23 de A.2, taille S,M,L on tricote en naturel avec le motif en gris clair , les jtés vont se faire en naturel et ces jetés vont se tricoter en naturel au tour suivant - de même pour la toute dernière augmentation de A.2, vous faites 1 jeté en naturel (= avec la couleur du fond de ce motif). Bon tricot!
20.11.2020 - 16:12
Patricia skrifaði:
Bonjour, L' avant dernière augmentation du schéma A2 pour taille S M L de quelle couleur se tricote t'elle svp ? en gris ou en naturel ?? Habituellement les jetés correspondants aux augmentations se font sur un rang de couleur unique .... Merci pour votre réponse
18.11.2020 - 21:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Patricia, comme on augmente avec des jetés sur un rang tricoté en gris clair, on va faire les jetés des augmentations en gris clair, au tour suivant, ces jetés seront tricotés torse à l'endroit en naturel. Bon tricot!
19.11.2020 - 10:06
Anu skrifaði:
Hei, miksi kuvan puseron pääntie on erilainen kuin ohjeessa?Ohjeen mukaan pääntien reunuksen joustinneuleen jälkeen tulee 3 oikein kerrosta ( pääntien reunuksessa,kaarrokkessa ja A1 mallineuleessa).Näyttäisi siltä, että kuvassa on yksi oikein kerros + lisäykset ja sen jälkeen on aloitettu A1 mallineule.Olenko oikeassa?
03.03.2020 - 10:16
Narvik#narviksweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Settið samanstendur af: Peysu með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL. Húfa með marglitu norrænu mynstri og dúsk. Settið er prjónað úr DROPS Karisma.
DROPS 183-2 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 3,4. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist göt. Ef fækka á lykkju þá er prjónuð ca 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja slétt saman. UPPHÆKKUN (á við um aftan í hnakka á peysu): Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum vínrauður og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-15-16-17 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-26-28-30-32-34 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-39-42-45-48-51 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-52-56-60-64-68 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-70-75-80-85 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 72-78-84-90-96-102 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Húfa: Sjá mynsturteikningu A.3 og A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef að það herpist saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjiið upp 96-99-105-108-111-117 lykkjur á hringprjón 3 með litnum vínrauður Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 28-33-39-40-41-43 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 124-132-144-148-152-160 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að ofan. BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR! Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka er A.1 prjónað hringinn (= 31-33-36-37-38-40 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnframt út í hverri umferð merktri með ör í A.1 eins og útskýrt er að neðan – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð með ör-1 er aukið út um 28-32-36-36-36-40 lykkjur jafnt yfir = 152-164-180-184-188-200 lykkjur. Í umferð með ör-2 er aukið út um 24-28-36-32-36-36 lykkjur jafnt yfir = 176-192-216-216-224-236 lykkjur. Í umferð með ör-3 er aukið út um 24-24-28-28-32-36 lykkjur jafnt yfir = 200-216-244-244-256-272 lykkjur. Í umferð með ör-4 er aukið út um 24-24-28-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 224-240-272-272-288-304 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er A.2 prjónað hringinn (= 14-15-17-17-18-19 mynstureiningar með 16 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir síðustu útaukningu í A.2 eru 280-300-340-374-396-418 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.2 og aukið jafnframt út 2-6-2-4-0-2 lykkjur jafnt yfir í umferð með ör-5 í A.2 = 282-306-342-378-396-420 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað hringinn (= 47-51-57-63-66-70 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð með ör-6 í A.3 er aukið út um 6-14-6-2-4-4 lykkjur jafnt yfir = 288-320-348-380-400-424 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 23-23-23-27-27-27 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið síðan sléttprjón með litnum ljós grár þar til stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (ef prjónfestan passar á hæðina er þetta mál náð í stærð S þegar A.3 hefur verið prjónað til loka). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 42-46-50-56-60-65 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 84-92-100-112-120-130 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-46-50-56-60-65 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-220-244-264-288 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjum og prjónið síðan sléttprjón með ljós grár. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 8. hverri umferð (ca 3. hverjum cm) alls 9 sinnum í hvorri hlið = 220-236-256-280-300-324 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 44-46-50-56-60-66 lykkjur jafnt yfir = 264-282-306-336-360-390 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 6. hverja lykkju JAFNFRAMT er fellt af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-68-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 3-2-2-3-2-2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 40-39-37-36-35-33 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-8-6-7-8-6 lykkjur jafnt yfir = 51-54-54-57-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 43-42-40-39-38-36 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 111-117-123 lykkjur á hringprjón 3 með litnum vínrauður Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-4-4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-5-7 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 108-112-116 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið A.4 (= 27-28-29 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.4 er fækkað um 0-4-2 lykkjur jafnt yfir = 108-108-114 lykkjur. Prjónið síðan A.3 hringin (= 18-18-19 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 16-17-17 cm. Haldið áfram í sléttprjóni og í litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 18-19-20 cm eru sett 6 prjónamerki í stykkið með 18-18-19 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-6-7 sinnum og síðan í hverri umferð alls 10 sinnum í öllum stærðum = 12 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 25-26-28 cm ofan frá og niður. DÚSKUR: Gerið einn dúsk ca 8 cm að þvermáli með litnum natur. Saumið dúskinn efst á húfuna. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #narviksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.