Hankart Myrna skrifaði:
Bonjour j'adore se modèle j'aimerais le tricot avec deux aiguille taille 3 ans et 8 ans merci
28.01.2019 - 14:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Hankart, vous trouverez ici, comment adapter un modèle sur aiguilles droites.. Bon tricot!
28.01.2019 - 15:14
Marie Klokanová skrifaði:
Dobrý den, nerozumím této části návodu: pleteme prvních 21-23-25-25-27-29 ok a SOUČASNĚ nad těmito oky ujmeme rovnoměrně 4 oka – viz TIP - UJÍMÁNÍ. nevím jak mám ujímat oka nad upletenými oky v jedné řadě. Děkuji Klokanová
25.01.2019 - 07:51DROPS Design svaraði:
Dobry den Marie! TIP - UJÍMÁNÍ: Abychom vypočítali, jak často musíme ujímat, vydělíme počet ok, nad nimiž budeme ujímat (např. 25 ok) počtem ok, která potřebujeme ujmout (tj. 5 ok), takže 25 : 5 = 5. V tomto případě tedy spleteme hladce každé 4. a 5. oko. Ujímání - 2 oka spleteme hladce. Srdečné pozdravy
04.12.2019 - 15:42
Christine skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas pourquoi il faut diminuer autant de mailles. Peut-on monter dès le départ le nombre de mailles finales c'est-à-dire 104, 112, 120, 126, 134, 142 ? D'autant qu'il faut également augmenter des mailles dans la torsade? Merci pour votre réponse
07.01.2019 - 20:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Christine, pour la même largeur, on aura besoin d'un nombre différent de mailles tricotées en côtes, en jersey ou en torsades, raison pour laquelle on va diminuer les mailles en côtes qui doivent ensuite être tricotées en jersey mais aussi (sur une autre base) celles de la torsade. On obtient ainsi la largeur souhaitée (et les côtes ne resserrent pas le bas du pull). Bon tricot!
08.01.2019 - 08:53
Maria skrifaði:
Questo modello può essere eseguito con ferri dritti? quante maglie devo montare per un bambino di 2-3 anni? grazie!
29.08.2018 - 15:39DROPS Design svaraði:
Buonasera Maria, questo modello è lavorato in tondo fino agli scalfi ma può lavorarlo con i ferri dritti aggiungendo una maglia di vivagno a ogni lato per la cucitura. Presti attenzione alla lavorazione del motivo. Per la taglia, di fianco alla foto sono indicate le altezze in cm corrispondenti alle varie taglie. Buon lavoro!
29.08.2018 - 20:12
Marleen Seaux skrifaði:
Kan die pull gebreid worden met normale naalden ik heb een hekel aan rondbreinaald? dank voor antwoord. Ik vindt bijna geen patronene met normale breinaalde. (modellen voor 4 jarig knaapje)
25.10.2017 - 08:42DROPS Design svaraði:
Hallo Marleen, Ja, dat kan wel bij dit patroon. Het voor en achterpand brei je dan apart van elkaar en in de zijdaden dien je een kantsteek toe te voegen. Zie de link voor meer informatie overhet aanpassen van een patroon naar rechte naalden.
25.10.2017 - 09:36
Isak#isaksweater |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með köðlum úr DROPS Air eða DROPS Paris. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 30-13 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 25 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 5. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 4. og 5. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á eftir prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 1 lykkja er eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 120-128-136-144-152-160 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air eða Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= í hlið). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 21-23-25-25-27-29 lykkjur og fækkið jafnframt út um 4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, prjónið A.1 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð = 19-19-19-23-23-23 lykkjur sem auknar eru til 20-20-20-24-24-24 lykkjur í fyrstu umferð), prjónið 21-23-25-25-27-29 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, setjið 1 prjónamerki (= í hlið), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 59-63-67-71-75-79 lykkjur og fækkið jafnframt um 9-9-9-11-11-11 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur. Nú eru 54-58-62-66-70-74 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki og 50-54-58-60-64-68 lykkjur á bakstykki = alls 104-112-120-126-134-142 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: 17-19-21-21-23-25 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.1 (= 20-20-20-24-24-24 lykkjur) og prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.2 yfir þessar 20-20-20-24-24-24 lykkjur. A.2 er síðan endurtekið. Þegar stykkið mælist 23-26-29-32-35-38 cm fellið af 6 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Fram- og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 44-48-52-54-58-62 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar frá hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og síðan 1 lykkju 1-1-2-1-1-2 sinnum í hvorri hlið = 38-42-44-48-52-54 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-38-42-46-50-54 cm fellið af 16-18-20-22-22-24 miðju lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 10-11-11-12-14-14 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 36-40-44-48-52-56 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 48-52-56-60-64-68 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.2 og fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og síðan 1 lykkju 1-1-2-1-1-2 sinnum í hvorri hlið = 42-46-48-54-58-60 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni og A.2 þar til stykkið mælist 31-34-38-41-45-48 cm. Í næstu umferð eru prjónaðar 10-10-10-12-12-12 lykkjur yfir kaðal við miðju að framan slétt saman 2 og 2 (= 5-5-5-6-6-6 lykkjur færri). Í næstu umferð eru miðju 9-11-13-14-14-16 lykkjur settar á þráð og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkju 2-2-2-3-3-3 sinnum = 10-11-11-12-14-14 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 36-40-44-48-52-56 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 32-32-34-34-36-36 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Air eða Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – lesið LEIÐBEININGAR = 28-28-30-30-32-32 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-3-4-3½-4½-3½ cm millibili alls 6-7-7-8-8-10 sinnum = 40-42-44-46-48-52 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-28-32-35-39-42 cm fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið ermakúpu fram og til baka í sléttprjóni jafnframt er fellt af í byrjun hverrar umferðar á hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-2-2-2-2-3 sinnum í hvorri hlið og síðan 1 lykkju 1 sinni í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þar til stykkið mælist 29-34-38-42-46-50 cm. Fellið af 3 lykkjur í byrjun 2 næstu umferðum og fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 30-35-39-43-47-51 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. HÁLSMÁL: Byrjið við miðju aftan í hnakka og prjónið upp frá réttu ca 40 til 62 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjum er aukið jafnt út til 54-64-66-70-70-76 lykkjur. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #isaksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.