Genie Stanton skrifaði:
In A.2 row 12 I\\\'m told to knit 2 stitches together 2 times, which leave me w/27 stitches. How do I get 29 stitches for the next row?
24.05.2018 - 05:44DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Stanton, read diagrams from the bottom corner on the right side from RS and towards the left on every round (from the left towards the right from WS), ie on row 1 in A.2 you dec 2 sts (1 st on each side of middle P st) and make 2 YOs (= 1 YO on each side of the middle P st) so that the number of sts will keep constant, you should always have 29 sts in A.2. Happy knitting!
24.05.2018 - 10:09Elizabeth Edgcumbe skrifaði:
Is the pattern carried on the back as well as front of poncho?
12.01.2018 - 16:29DROPS Design svaraði:
Dear Elizabeth, yes, there is a pattern at the back of the poncho as well as on the front. Happy Knitting!
13.01.2018 - 21:54Oksana Merklas skrifaði:
Please help to understand: NOTE! make sure the first row of garter stitch is on a row where you are working pattern in A.2 Isnt pattern A.2 present in each row since started? Is there particular row of A.2 meant? Thanks!
20.11.2017 - 22:31DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Merklas, this is meant a row with dec/YO so that this row will be worked from RS and the even numbered rows will be worked from WS. Happy knitting!
21.11.2017 - 08:25
Bettina Ross skrifaði:
Diagramm A.1 Fehler: Zopf ist in Reihe 6 eingezeichnet. Ich vermute jedoch, beide Zöpfe sollten parallel, also in Reihe 5 gestrickt werden. (Reihe 6 ist zudem eine Rückreihe.)
30.10.2017 - 08:30
Bettina Ross skrifaði:
Poncho: „106-114-122 Maschen. 1 Markierungsfaden auf beiden Seiten des Ponchos anbringen, d.h. 1 am Rundenbeginn und 1 nach 53-55-57 Maschen.“ Fehler: Es muß heißen „1 nach 53-57-61 Maschen“
30.10.2017 - 08:28
Fleetwood#fleetwoodponcho |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónuðu poncho með köðlum og gatamynstri, prjónað ofan frá og niður og handstúkum með köðlum. Stærð S - XXXL. Settið er prjónað úr DROPS Big Merino.
DROPS 184-30 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. PONCHO: Fitjið upp 132-138-144 lykkjur á hringprjón 4,5 með Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur. Prjónið stroff í 18 cm, prjónið síðan 2 umferðir GARÐAPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 26-24-22 lykkjur jafnt yfir = 106-114-122 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 1 í byrjun á umferð og 1 á eftir 53-57-61 lykkjum = í hliðum. Prjónið 1-2-3 lykkjur slétt, A.1 (= 10 lykkjur), 1-2-3 lykkjur slétt, A.2 (= 29 lykkjur), 1-2-3 lykkjur slétt, A.3 (= 10 lykkjur), 2-4-6 lykkjur slétt, A.1, 1-2-3 lykkjur slétt, A.2, 1-2-3 lykkjur slétt, A.3, 1-2-3 lykkjur slétt. Haldið áfram með þetta mynstur, jafnframt er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.1/A.3 (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Aukið svona út í annarri hverri umferð 10-14-17 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 5 sinnum og síðan í 6. hverri umferð 5 sinnum (alls 20-24-27 sinnum) = 266-306-338 lykkjur. Skiptið yfir á lengri hringprjón eftir þörf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-39-43 cm (mælt frá hálsmáli) prjónið garðaprjón yfir 6 lykkjur í hvorri hlið (= 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). ATH! Passið uppá að fyrsta umferð í garðaprjóni sé prjónuð í umferð þar sem mynstur er prjónað í A.2. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón eru fyrstu 133-153-169 lykkjur settar á þráð fyrir bakstykki og haldið áfram yfir síðustu 133-153-169 lykkjur í umferð (= framstykki). Prjónið nú fram og til baka. Haldið áfram með mynstur eins og áður, 3 lykkjur í hvorri hlið eru nú prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið 16 cm frá klauf eru sléttar lykkjur í A.1/A.3 prjónaðar saman 2 og 2 (= 127-147-163 lykkjur). Prjónið síðan 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, í síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 25-29-31 lykkjur jafnt yfir = 152-176-194 lykkjur. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 3 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og 3 lykkjur garðaprjón. Í 4. hverri umferð (önnur hver umferð frá réttu) eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir allar lykkjur, svo að stroffið dragist ekki mikið saman. Prjónið stroff í 4 cm, síðan eru allar lykkjur felldar af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. BAKSTYKKI: Setjið til baka 133-153-169 lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið eins og framstykki. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HANDSTÚKA: Fitjið upp 42 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt. Haldið áfram með þetta stroff þar til stykkið mælist 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5 og prjónið síðan þannig: A.1 yfir fyrstu 10 lykkjur, stroff eins og áður yfir 32 lykkjur sem eftir eru. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 18 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff þannig: 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt. Prjónið stroff í 4 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda vel. Prjónið aðra handstúku á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fleetwoodponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.