Paola skrifaði:
Nessuno che possa rispondere in italiano? Maniche: lavorare un piccolo arrotondamento della manica avanti e indietro sui ferri circolari. Ho chiuso le 8 maglie centrali sotto la manica, partendo dalle ultime 4 del giro e chiudendo le prime 4 del giro successivo. Ho continuato a lavorare la riga e arrivo alle maglie chiuse. Come continuo? Se uso i ferri circolari, devo sorpassare le 8 maglie. Se devo andare avanti e indietro, devo smontare dai circolari e usare i ferri dritti ?
20.09.2022 - 21:16DROPS Design svaraði:
Buonasera Paola, quando intreccia le 8 maglie poi deve proseguire lavorando in piano. Può comunque continuare ad utilizzare i ferri circolari lavorando avanti e indietro. Buon lavoro!
20.09.2022 - 22:05
PAOLA skrifaði:
Maniche: lavorare un piccolo arrotondamento della manica avanti e indietro sui ferri circolari. Ho chiuso le 8 maglie centrali sotto la manica, partendo dalle ultime 4 del giro e chiudendo le prime 4 del giro successivo. Ho continuato a lavorare la riga e arrivo alle maglie chiuse. Come continuo? Se uso i ferri circolari, devo sorpassare le 8 maglie. Se devo andare avanti e indietro, devo smontare dai circolari e usare i ferri dritti
17.09.2022 - 13:54DROPS Design svaraði:
Buonasera Paola, quando intreccia le 8 maglie poi deve proseguire lavorando in piano. Può comunque continuare ad utilizzare i ferri circolari lavorando avanti e indietro. Buon lavoro!
20.09.2022 - 22:06
PAOLA skrifaði:
Maniche: lavorare un piccolo arrotondamento della manica avanti e indietro sui ferri circolari. Ho chiuso le 8 maglie centrali sotto la manica, partendo dalle ultime 4 del giro e chiudendo le prime 4 del giro successivo. Ho continuato a lavorare la riga e arrivo alle maglie chiuse. Come continuo? Se uso i ferri circolari, devo sorpassare le 8 maglie. Se devo andare avanti e indietro, devo smontare dai circolari e usare i ferri dritti
10.09.2022 - 17:08DROPS Design svaraði:
Buonasera Paola, quando intreccia le 8 maglie poi deve proseguire lavorando in piano. Può comunque continuare ad utilizzare i ferri circolari lavorando avanti e indietro. Buon lavoro!
20.09.2022 - 22:06
Patricia skrifaði:
I am interested in knitting this sweater, but from the dimensions shown in the graph for the smallest size (3 + 56 + 17) would be 76 cm. Divide by 2.54 to get 29.9 inches from shoulder to hem. This is way too long. The hem would be at the middle of my knee cap. Are the dimensions incorrect?
22.03.2021 - 18:15DROPS Design svaraði:
Dear Patricia, according th ethe scematic drawings the FULL LENGTH of the sweater in the smallest size is 56 cm alltohgetherm including the armhole (17 cm), and the the 3 cm ribbing at the bottom. This way you have 36 cm between the ribbing and the lowest point of teh armhole. I hope this helps. Happy Knitting!
22.03.2021 - 23:45
Catherine skrifaði:
Bonjour, pourquoi les manches du modèle Small sont-elles plus longues que les manches du modèle XXXL? Merci
12.07.2020 - 02:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Catherine, dans les grandes tailles, l'encolure et les épaules sont plus larges, les manches seront donc plus courtes - retrouvez toutes les mesures dans le schéma - comparez-les à un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et ajustez si besoin. Bon tricot!
13.07.2020 - 09:02
Eileen skrifaði:
Thank you for clarification. My tension is correct..It would be helpful if instead of just labelling sizes S M L etc you could state the body measurement, or just say something like 'designed to be worn with, for example, 10cm ease'. This would make it easier to judge what the style of the pattern is and whether it is the shape we want. Many other knitwear designers do this.
29.02.2020 - 23:02
Eileen skrifaði:
After checking my knitting tension and getting the correct stitch and rows, I began knitting this pattern in Size M and it was coming up HUGE - far more oversized than it looks on the female model in the photograph. I have unpicked it, planning to work out reduced dimensions for myself. But I have now looked at the Winter Love pattern for Men, and I think you may have mixed up the instructions and diagrams, as the ones accompanying the Mens' version is smaller than the Womens'.
27.02.2020 - 21:49DROPS Design svaraði:
Dear Eileen, if your tension is right you should have same measurement as in chart - the man pattern requires less stitches but the shape is also different. The woman version is more "oversized". Happy knitting!
28.02.2020 - 08:08
Caillard Micheline skrifaði:
Merci pour votre réponse. Mon problème c’est que Big Merino et Air n’ont pas la même longueur de fil pour 50g l’un 75 m l’autre 150m. Je commande 8 pelotes Big au lieu de 3. Mais cela veut dire que le fil n’est pas épais. Donc il faut plus de mailles ou pas ? Merci
19.08.2019 - 10:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gaillard, ces fils sont du même groupe car on aura la même tension, le métrage est différent car la texture des deux fils est différente, il vous faudra juste bien vérifier votre échantillon/tension - Votre magasin DROPS pourra vous apporter toute assistance complémentaire individuelle, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
19.08.2019 - 11:48
Caillard Micheline skrifaði:
Je fais connaître autour de moi votre site et vante toutes ses qualités. Merci d’existe
18.08.2019 - 14:50
Caillard Micheline skrifaði:
Puis je réaliser le modèle Winter love en Big mérinos pour ma petite fille qui vient d’entrer à l’opera D’Oslo. Merci
18.08.2019 - 14:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Caillard, félicitations à votre petite fille! Comme Air et Big Merino sont toutes deux du même groupe de fils (= C) vous pouvez tout à fait utiliser Big Merino, pensez à bien vérifier votre échantillon au préalable, utilisez notre convertisseur si besoin, vous trouverez ici plus d'infos sur les alternatives. Bon tricot!
19.08.2019 - 10:29
Winter Love#winterlovesweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum að framan úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 184-11 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 228 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 36) = 6,3. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. Hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í mynstur svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í mynstur. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er fellt af með ½ númeri grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 228-258-258-282-282-312 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 36-42-42-42-42-48 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING að ofan = 192-216-216-240-240-264 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 96-108-108-120-120-132 lykkjur (= hliðar) og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan þannig: Prjónið 31-37-37-43-43-49 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 34 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir þær 127-145-145-163-163-181 lykkjur sem eftir eru. Þegar A.1 er lokið á hæðina eru 204-228-228-252-252-276 lykkjur í síðustu umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan þannig: Prjónið 31-37-37-43-43-49 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 46 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir þær 127-145-145-163-163-181 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur, A.2 er endurtekið á hæðina til loka. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af 5-5-5-9-9-9 lykkjur á hvorri hlið fyrir handveg (= 2-2-2-4-4-4 lykkjur á undan/3-3-3-5-5-5 lykkjur á eftir báðum prjónamerkjum). Fram- og bakstykki er nú prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 91-103-103-111-111-123 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Haldið áfram í sléttprjóni eins og áður, með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm fækkið um miðju 25-25-27-27-27-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 32-38-37-41-41-46 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fellið af – lesið AFFELLING. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 103-115-115-123-123-135 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-55-57-59 cm fækkið um 12 lykkjur jafnt yfir A.2 = 91-103-103-111-111-123 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 13-13-15-15-15-17 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig í sléttprjóni, kantlykkja er prjónuð eins og áður. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 32-38-37-41-41-46 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi) og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 16-14-10-9-7-6 cm millibili alls 3-3-4-4-5-5 sinnum = 54-58-60-64-68-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-43-44-42-43-41 cm fellið af miðju 8-8-8-10-10-10 lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og prjónuð er smá ermakúpa til loka fram og til baka á hringprjóninn. Prjónið sléttprjón og fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 5-5-6-5-6-6 lykkjur 2 sinnum og fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 48-45-46-44-45-43 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn þannig að það verða 4 umferðir garðaprjón ofan á öxl. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 78-90 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 78-78-84-84-90-90 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 12 cm. Prjónið síða 1 umferð brugðið, fellið af. Brjótið uppá kant í hálsmáli inn þannig að hann verði 6 cm hár, saumið kantinn niður með smáu, fallegu spori á innanverðri peysunni. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterlovesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.