DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cobalt Net

Hekluð stutterma peysa með gatamynstri og sjalkraga úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð S - XXXL.

DROPS 184-31
DROPS Design: Mynstur me-116
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
750-900-1000-1100 g litur 23, gráblár

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð. Mynsturteikning A.2b mælist ca 4,7 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.7.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka í tveimur stykkjum sem síðar eru saumuð saman. Byrjað er neðst niðri með horni á framstykki og aukið er út upp við miðju framan á peysu. Síðan er aukið út fyrir ermum í gagnstæðri hlið.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Byrjið með heklunál 5 og Merino Extra Fine og heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.1.
Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina er heklað frá röngu þannig: Heklið A.2c, A.2b, endið með A.2a. Þegar A.2 er lokið á hæðina hefur verið aukið um 1 mynstureiningu á breiddina, þ.e.a.s. heklið nú frá röngu þannig: A.2c, A.2b alls 2 sinnum á breidd, endið með A.2a. Endurtakið síðan A.2 á hæðina, eftir hverja endurtekningu af A.2 á hæðina er heklað A.2b 1 sinni til viðbótar á breiddina – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram með þessa útaukningu þar til síðasta umferð í A.2 hefur verið heklað til loka þannig: A.2c 1 sinni, A.2b hefur verið heklað 6-7-8-9 sinnum á breidd og A.2a 1 sinni. Stykkið mælist ca 28-31-34-37 cm mælt frá loftlykkjuhring og upp meðfram A.2a. Nú er skástykki lokið. Setjið 1 prjónamerki í síðustu umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Heklið síðan frá röngu þannig: A.3c, A.3b alls 7-8-9-10 sinnum á breidd, endið með A.3a. Endurtakið A.3 á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 16-19-22-21 cm frá prjónamerki – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina, byrjar útaukning fyrir ermi.

ÚTAUKNING FYRIR ERMI (vinstra framstykki):
Heklið nú frá röngu þannig: A.3c, A.3b alls 7-8-9-10 sinnum á breidd, endið með A.5a. Haldið áfram þar til mynsturteikning er lokið á hæðina.
Heklið nú frá röngu þannig: A.3c, A.3b alls 8-9-10-11 sinnum á breidd, endið með A.5a. Haldið áfram þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina. Nú er útaukningu lokið í stærð XXL og XXXL. Í stærð S/M og L/XL er heklað þannig:

STÆRÐ S/M - L/XL:
Heklið nú frá röngu þannig: A.3c, A.3b alls 9-10 sinnum á breidd, endið með A.5a. Haldið áfram þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina.

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið nú frá röngu þannig: A.3c, A.3b alls 10-11-11-12 sinnum á breidd, endið með A.6a. Endurtakið A.3c/A.3b/A.6a á hæðina. Þegar stykkið mælist 55-58-61-60 cm frá prjónamerki – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina, heklið sjalkraga.

SJALKRAGI (vinstra framstykki):
Heklið nú frá röngu þannig: A.3c, A.3b alls 3-3-3-3 sinnum á breidd, endið með A.3a. Endurtakið síðan A.3 á hæðina þar til kraginn mælist ca 10 cm – endið eftir einni umferð frá réttu. Klippið frá og festið enda.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er heklað alveg eins og vinstra framstykki fram að útaukningu fyrir ermi, en skiptið út mynsturteikningu A.1 með A.4, skiptið út A.2 með A.5 og skiptið út A.3 með A.6.

ÚTAUKNING FYRIR ERMI:
Heklið nú frá röngu þannig: A.2c, A.6b alls 7-8-9-10 sinnum á breidd, endið með A.6a. Haldið áfram þar til mynsturteikning er lokið á hæðina.
Heklið nú frá röngu þannig: A.2c, A.6b alls 8-9-10-11 sinnum á breidd, endið með A.6a. Haldið áfram þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina. Nú er útaukningu lokið í stærð XXL og XXXL. Í stærð S/M og L/XL er heklað þannig:

STÆRÐ S/M - L/XL:
Heklið nú frá röngu þannig: A.2c, A.6b alls 9-10 sinnum á breidd, endið með A.6a. Haldið áfram þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina.

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið nú frá röngu þannig: A.3c, A.6b alls 10-11-11-12 sinnum á breidd, endið með A.6a. Endurtakið A.3c/A.6b/A.6a á hæðina. Þegar stykkið mælist 55-58-61-60 cm frá prjónamerki – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina, heklið sjalkraga.

SJALKRAGI:
Heklið nú yfir síðustu 10 loftlykkjuboga frá röngu þannig: A.6c, A.6b alls 3-3-3-3 sinnum á breidd, endið með A.6a. Endurtakið síðan A.6 á hæðina þar til kraginn mælist ca 10 cm – stillið af eftir sjalkraga á vinstra framstykki. Klippið frá og festið enda.

BAKSTYKKI:
Heklið 133-157-181-205 loftlykkjur með heklunál 5 með Merino Extra Fine.
Heklið frá röngu þannig: Heklið A.7c, A.7b alls 10-12-14-16 sinnum á breidd, endið eftir A.7c. Endurtakið síðan A.7 á hæðina.
Þegar stykkið mælist ca 47-53-53-55 cm byrjar útaukning fyrir ermar – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina og stillið af eftir framstykkjum.

ÚTAUKNING FYRIR ERMUM:
Heklið nú frá röngu þannig: A.2c, A.6b alls 10-12-14-16 sinnum á breidd, endið með A.5a. haldið áfram þar til mynsturteikning er lokið á hæðina.
Heklið nú frá röngu þannig: A.2c, A.6b alls 12-14-16-18 sinnum á breidd, endið með A.5a. Haldið áfram þar til mynsturteikning er lokið á hæðina. Nú er útaukningu lokið í stærð XXL og XXXL. Í stærð S/M og L/XL er heklað þannig:

STÆRÐ S/M - L/XL:
Heklið nú frá röngu þannig: A.2c, A.6b alls 14-16 sinnum á breidd, endið með A.5a. Haldið áfram þar til mynsturteikning er lokið á hæðina.

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið nú frá röngu þannig: A.3c, A.6b alls 16-18-18-20 sinnum á breidd, endið með A.6a. Endurtakið A.6c/A.6b/A.3a á hæðina. Þegar stykkið mælist 80-86-92-94 cm – stillið af eftir umferð frá réttu og stillið af eftir framstykkjum, heklið axlir til loka hvora fyrir sig. Miðju 3 mynstureiningar = hálsmál, ekki er heklað yfir þessar lykkjur.

VINSTRI ÖXL:
Heklið nú frá röngu þannig: A.3c, A.3b alls 6-7-7-8 sinnum á breidd, endið með A.3a. Haldið áfram þar til mynsturteikning er lokið hæðina. Klippið frá og festið enda.

HÆGRI ÖXL:
Heklið nú frá röngu þannig: A.6c, A.6b alls 6-7-7-8 sinnum á breidd, endið með A.6a. Haldið áfram þar til mynsturteikning er lokið á hæðina. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og saumið hliðarsauma. Saumið saman kraga við miðju að aftan, saumið síðan kraga við hálsmál aftan í hnakka.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = hálfur stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkjuhring
symbols = stuðull í lykkju
symbols = þríbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga/loftlykkjuhring
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 6 loftlykkjur
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð. Byrjið í næstu umferð!
symbols = 4 loftlykkjur, tengið þær saman í 1 hring með 1 keðjulykkju í fyrstu lofltykkju – sjá punkt í hring, fyrsta umferð byrjar hér
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Michelle wrote:

Jeg er i gang med bagstykket, og kan ikke finde ud af, om jeg skal til at tage ud til ærmer. Det er ikke 53 cm (L/XL) men kun ca 40, men til gengæld passer det med forstykkerne, som har den længde opskriften skriver. Når jeg ligger det op mod hinanden passer bagstykket nu til forstykkerne, lige inden der tages ud til ærme på forstykkerne, og jeg kan ikke forstå hvordan der 'mangler' ca 13 cm på bagstykket.

21.05.2020 - 15:15

DROPS Design answered:

Hej Michelle, hvis du kigger på måleskitsen nederst i opskriften, så kan du se at siderne skal være lige lange. Forstykket er skråt, så du er nødt til at måle det langs siden. God fornøjelse!

29.05.2020 - 09:43

country flag BEVERLY K KELLER wrote:

Are there written instructions for this pattern? I find following a diagram very confusing but I LOVE the pattern. Thank you so much!

04.12.2017 - 02:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Keller, there are only diagrams to this pattern. Each symbol represents 1 stitch. Start reading RS rows from the bottom corner on the right side towards the left and WS rows from the left towards the right. Should you need any further assistance by reading diagrams you are welcome to contact your DROPS store. Happy crocheting!

04.12.2017 - 10:30

country flag Christina Tuhy wrote:

Really want to make this pattern but there are no diagrams.

05.09.2017 - 14:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Tuhy, thanks for your feedback, they will be added soon. Happy crocheting!

05.09.2017 - 15:38

country flag Martina Lang wrote:

Ich kann keine Diagramme und auch nicht das Schnittmuster sehen. Ist nicht nur bei dieser Anleitung sondern generell so. Als ich mir das letzte Mal Anleitungen angeschaut habe war noch alles korrekt.

28.08.2017 - 07:43

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lang, Diagramme sowie Schnittmuster sind immer noch da, aktualisieren Sie die Seite. Viel Spaß beim häkeln!

29.08.2017 - 09:15

country flag Kathy wrote:

The schematic and diagrams are not showing in the US English version. (They are shown in the Norwegian version.)

18.08.2017 - 20:02

DROPS Design answered:

Hello Kathy. We will get it fixed as soon as possible. Thank you for pointing it out. Happy knitting!

19.08.2017 - 15:54

Veviticusmjhw wrote:

Where is the diagram? How do you download it?

18.08.2017 - 18:11

DROPS Design answered:

Hi, the diagram is at the bottom of the pattern, just before the schematic drawing. Happy crocheting!

18.08.2017 - 19:03