Isabel skrifaði:
Hi...I know that this garment fits loosley, but what are the finished measurements so I can decide if I should make a Small or Medium. Thanks, Isabel :)
06.10.2017 - 10:38DROPS Design svaraði:
Dear Isabel, you will find at the bottom of the pattern a measurement chart with all finished measurements for each size. Compare these to a similar garment you have and like the shape to find out the matching size - read more here. Happy knitting!
06.10.2017 - 11:46
Ina Isendam skrifaði:
I love this too :-)
02.07.2017 - 19:53
Diana skrifaði:
Dit is echt mijn favoriet
06.06.2017 - 13:31
Heather Hicks skrifaði:
This one gives me the same OMG I want to make it RIGHT NOW feeling as Sunny Date did for the Spring Summer collection. I sure hope this makes it. I want to make it so bad.
01.06.2017 - 20:20
Norfolk#norfolkcardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Peysa prjónuð frá hlið með köðlum. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Big Merino.
DROPS 179-24 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. MÆLING: Öll lengdarmál á fram- og bakstykki eru tekin þegar stykkið liggur flatt. Vegna þyngdar á stykkinu kemur stykkið til með að teygjast aðeins við mátun miðað við mynsturteikningu – sjá útskýringar undir Stærð. Öll lengdarmál á ermi eru tekin þegar stykkinu er haldið uppi til þess að koma í veg fyrir að stykkið verði of langt (mátið e.t.v. ermina og jafnið lengdinni til að óskaðri lengd). ÚRTAKA-/ÚTAUKNING (á við um handveg): Til að koma í veg fyrir að handvegurinn verði of stór þegar lykkjum er fækkað í einni einingu með köðlum verður að fækka um nokkrar lykkjur jafnt yfir í umferð áður en fellt er af fyrir handveg. Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt við handveg, teljið fjölda lykkja sem fækka/fjölga á um (t.d. 39 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukningu sem á að gera (t.d. 9) = 4,3. Í þessu dæmi eru prjónaðar 3. og 4. hver lykkja saman þegar lykkjum er fækkað. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt ámilli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki eru prjónuð í 2 stykkjum sem saumuð eru saman við miðju að aftan. Prjónað er fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan að miðju að aftan. VINSTRA FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 140-144-148-152-154-158 lykkjur á hringprjón 4,5 með Big Merino. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.1 (= 5 lykkjur), A.2 (= 19-19-19-21-21-21 lykkjur), 40-44-48-44-46-50 lykkjur sléttprjón, A.3 (= 19-19-19-21-21-21 lykkjur), A.4 (= 33-33-33-35-35-35 lykkjur), A.3 (= 19-19-19-21-21-21 lykkjur) og A.1 (= 5 lykkjur). Prjónið til baka frá röngu alveg eins = 158-162-166-170-172-176 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu: Haldið áfram með A.1 (= 5 lykkjur), prjónið A.5 (= 22-22-22-24-24-24 lykkjur), 40-44-48-44-46-50 lykkjur sléttprjón, A.6 (= 22-22-22-24-24-24 lykkjur), A.7 (= 42-42-42-44-44-44 lykkjur), A.6 (= 22-22-22-24-24-24 lykkjur) og endið með A.1 (= 5 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og endurtakið mynsturteikningu á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm – lesið MÆLING, fellið af fyrir handveg þannig: Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir fyrstu 40 lykkjur, prjónið brugðið yfir næstu 39-41-43-45-46-47 lykkjur og fækkið jafnframt um 9 lykkjur jafnt yfir þessar 39-41-43-45-46-47 lykkjur – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING, haldið síðan áfram með mynstur eins og áður yfir þær 79-81-83-85-86-89 lykkjur sem eftir eru. Í næstu umferð er fellt af fyrir handveg frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 79-81-83-85-86-89 lykkjur, fellið af næstu 30-32-34-36-37-38 lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður yfir síðustu 40 lykkjur. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá röngu þannig: Prjónið 40 lykkjur eins og áður, fitjið upp 30-32-34-36-37-38 nýjar lykkjur á prjóninn og haldið áfram með mynstur út umferðina eins og áður. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 79-81-83-85-86-89 lykkjur eins og áður, prjónið 30-32-34-36-37-38 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 9 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur 30-32-34-36-37-38 lykkjur – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið síðan þær 40 lykkjur eins og áður. Haldið síðan áfram með mynstur fram og til baka eins og áður yfir allar 158-162-166-170-172-176 lykkjurnar (passið uppá að halda áfram í réttri umferð í mynsturteikningu yfir handveg miðjað við afgang af mynstri). Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm frá uppfitjunarkanti er skipti yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka í hnakka með stuttum umferðum þannig: Byrjið frá röngu uppi við hnakka og prjónið sléttar lykkjur frá röngu yfir fyrstu 40 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka. Haldið svona áfram með því að prjóna yfir 5 lykkjur færri þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir síðustu 5 lykkjur. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar 158-162-166-170-172-176 lykkjur. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu – ATH: Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverri lykkju jafnframt er fellt af (uppslátturinn er felldur af eins og venjulegt lykkja). HÆGRA FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 140-144-148-152-154-158 lykkjur á hringprjón 4,5. Prjónið 8 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.1 (= 5 lykkjur), A.2 (= 19-19-19-21-21-21 lykkjur), A.8 (= 33-33-33-35-35-35 lykkjur), A.2 (= 19-19-19-21-21-21 lykkjur), 40-44-48-44-46-50 lykkjur sléttprjón, A.3 (= 19-19-19-21-21-21 lykkjur) og A.1 (= 5 lykkjur). Prjónið til baka frá röngu alveg eins = 158-162-166-170-172-176 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.1 (= 5 lykkjur), prjónið A.5 (= 22-22-22-24-24-24 lykkjur), A.9 (= 42-42-42-44-44-44 lykkjur), A.5 (22-22-22-24-24-24 lykkjur), 40-44-48-44-46-50 lykkjur sléttprjón, A.6 (= 22-22-22-24-24-24 lykkjur) og endið með A.1 (= 5 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og endurtakið mynstureiningar á hæðina. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm – lesið MÆLING, fellið af fyrir handveg þannig: Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir fyrstu 40 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 39-41-43-45-46-47 lykkjur og fækkið jafnframt um 9 lykkjur jafnt yfir þessar 39-41-43-45-46-47 lykkjur – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING, haldið síðan áfram með mynstur eins og áður yfir þær 79-81-83-85-86-89 lykkjur sem eftir eru. Í næstu umferð er fellt af fyrir handveg frá röngu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 79-81-83-85-86-89 lykkjur, fellið af næstu 30-32-34-36-37-38 lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður yfir síðustu 40 lykkjur. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þannig: Prjónið 40 lykkjur eins og áður, fitjið upp 30-32-34-36-37-38 nýjar lykkjur á prjóninn og haldið áfram með mynstur út umferðina eins og áður. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 79-81-83-85-86-89 lykkjur eins og áður, prjónið 30-32-34-36-37-38 lykkjur brugðið og aukið jafnframt út um 9 lykkjur jafnt yfir þessar 30-32-34-36-37-38 lykkjur – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið síðan 40 lykkjur sem eftir eru eins og áður. Haldið síðan áfram með mynstur fram og til baka eins og áður yfir allar 158-162-166-170-172-176 lykkjur (passið uppá að halda áfram í réttri umferð í mynsturteikningu yfir handveg miðað við afgang af mynstri). Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm frá uppfitjunarkanti er skipt yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka í hnakka með stuttum umferðum þannig: Byrjið frá réttu uppi við hnakka og prjónið sléttar lykkjur frá réttu yfir fyrstu 40 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, snúið stykkinu og prjónið sléttar lykkjur til baka. Haldið svona áfram með því að prjóna yfir 5 lykkjur færri þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir síðustu 5 lykkjur. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu yfir allar 158-162-166-170-172-176 lykkjur. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu – ATH: Til a affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ERMI: Ermi er prjónuð ofan frá og niður. Prjónað er fram og til baka á stutta hringprjóna þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka. Prjónið síðan ermina í hring á stutta hringprjóna, en skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Fitjið upp 18-20-24-28-30-34 lykkjur á stutta hringprjóna 5,5. Prjónið sléttprjón og fitjið JAFNFRAMT upp 5 lykkjur í lok hverrar umferðar alls 4 sinnum í hvorri hlið = 58-60-64-68-70-74 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 4 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar. Prjónið sléttprjón hringinn og látið prjónamerki fylgja með áfram – munið eftir MÆLING. Þegar stykkið mælist 2½ cm í öllum stærðum frá þar sem prjónamerki er sett í er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3½-3-3-3-2½ cm millibili alls 12-12-14-15-15-16 sinnum = 34-36-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 49 cm frá prjónamerki. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, skiptið til baka yfir á sokkaprjón 5,5 og fellið síðan laust af. Ermin mælist ca 55 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman bakstykki við miðju að aftan – saumið í ysta lykkjubogann svo að saumurinn verði flatur. Saumið ermar í. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #norfolkcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.