DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Für Elise

Prjónuð peysa með laskalínu, gatamynstri, köðlum og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Flora.

DROPS 179-23
DROPS Design: Mynstur fl-020
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-350-400-450 g litur 20, ferskja

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm NR 3 - eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 2,5 fyrir stroff - eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 28 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 9,3. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við mynstureiningu A.1 (= 8 útaukningar í umferð).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við A.1. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 5 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 10 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Prjónað er ofan frá og niður. Byrjun á umferð er við miðju að aftan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 125-125-130-130-140-145 lykkjur á stutta hringprjóna 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt 3 lykkjur brugðiið) þar til stykkið mælist 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út þannig: Prjónið 28-28-28-28-30-30 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 1-3-3-3-3-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING (jafnt yfir), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 6-6-9-9-10-12 sinnum, 57-57-56-56-60-61 lykkja slétt JAFNFRAMT er aukið út um 3-3-4-4-4-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 6-6-9-9-10-12 sinnum, 28-28-28-28-30-30 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 1-3-3-3-3-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 142-146-158-158-170-182 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem allir uppslættirnir eru prjónaðir snúnir slétt (svo að ekki myndist gat). Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 3.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 5-6-9-9-12-15 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), A.1 (= 28 lykkjur), 5 lykkjur slétt (= ermi), A.1, 10-12-18-18-24-30 lykkjur slétt (= framstykki), A.1, 5 lykkjur slétt (= ermi), A.1, 5-6-9-9-12-15 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 23-27-29-33-36-38 sinnum = 326-362-390-422-458-486 lykkjur.
Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 22-25-26-28-30-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan og niður!
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. ATH: Miðja á A.1 er ekki í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma! Haldið áfram með A.2 (= 6 lykkjur) yfir fyrstu 6 lykkjur í A.1 og prjónið A.3 (= 6 lykkjur) yfir síðustu 6 lykkjur í A.1, yfir miðju 16 lykkjur í A.1 eru prjónaðar sléttar lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 46-50-54-60-66-72 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 71-81-87-91-97-99 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 92-100-108-120-132-144 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 71-81-87-91-97-99 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið þær 46-50-54-60-66-72 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki).
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 200-220-240-264-292-320 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi í hvorri hlið (= 4-5-6-6-7-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og 100-110-120-132-146-160 lykkjur á milli prjónamerkja.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni, A.2 og A.3 eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin í hliðum – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 10 sinnum í öllum stærðum = 240-260-280-304-332-360 lykkjur. Þegar stykkið mælist 23-22-23-23-23-24 cm skiptist stykkið í fram- og bakstykki þannig:
Prjónið fyrstu 28-33-38-42-48-53 lykkjur og aukið jafnframt út 9-12-14-18-19-22 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.2, prjónið 25-25-25-27-28-30 lykkjur og aukið jafnframt út 7-7-7-10-9-12 lykkjur jafnt yfir, fellið af næstu 2 lykkjur (= klauf), prjónið 25-25-25-27-28-30 lykkjur og aukið jafnframt út 7-7-7-10-9-12 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.3, prjónið 56-66-76-84-96-106 lykkjur og aukið út 18-23-28-35-38-43 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.2, prjónið 25-25-25-27-28-30 lykkjur og aukið jafnframt út 7-7-7-10-9-12 lykkjur jafnt yfir, fellið af næstu 2 lykkjur (= klauf), prjónið 25-25-25-27-28-30 lykkjur og aukið jafnframt út 7-7-7-10-9-12 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.3, þær 28-33-38-42-48-53 lykkjur sem eftir eru og aukið jafnframt út 9-11-14-17-19-21 lykkjur jafnt yfir. Klippið frá. Setjið lykkjur frá bakstykki á þráð.

STROFF Á FRAMSTYKKI:
= 150-165-180-205-220-245 lykkjur. Stroffið er prjónað fram og til baka. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið frá réttu þannig: 4 lykkjur garðaprjón, prjónið 2 lykkjur slétt, * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni EN haldið áfram með A.2 og A.3 yfir lykkjur. Stroffið er prjónað fram og til baka. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið frá réttu þannig: 4 lykkjur garðaprjón, prjónið 2 lykkjur slétt, * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni EN haldið áfram með A.2 og A.3 yfir kaðla eins og áður og endið með 4 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að fella af með grófari prjónum.

STROFF Á BAKSTYKKI:
= 150-165-180-205-220-245 lykkjur. Prjónið alveg eins og stroff á framstykki.

ERMI:
Setjið 71-81-87-91-97-99 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 79-91-99-103-111-115 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 4-5-6-6-7-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Byrjun umferðar er mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón í hring með haldið áfram með A.2/A.3 yfir 2 litlu kaðlana frá laskalínu. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu er lykkjum fækkað þannig:
Fyrst er lykkjum fækkað mitt undir ermi:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 8.-5.-4.-4.-3.-3. hverri umferð alls 3-5-7-5-6-6 sinnum = 73-81-85-93-99-103 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum í gagnstæðri hlið við A.2/A.3 (= á efri hlið á ermi), þ.e.a.s. fækkið lykkjum þannig:
Prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið A.3, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir á undan A.2, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 8.-5.-4.-4.-3.-3. hverri umferð alls 10-14-15-18-20-21 sinnum = 53-53-55-57-59-61 lykkjur.
Haldið síðan áfram í sléttprjóni og A.2/A.3 þar til ermin mælist 38-35-35-33-31-31 cm frá skiptingu (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis).
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 5 lykkjur þar sem auknar eru út 2 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.3, prjónið 31-31-33-35-37-39 lykkjur þar sem auknar eru út 8-8-11-9-7-10 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.2, prjónið 5 lykkjur þar sem auknar eru út 2 lykkjur jafnt yfir = 65-65-70-70-70-75 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið nú stroff þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.3, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið *-* 7-7-8-8-8-9 sinnum, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram hringinn þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Ermin mælist ca 43-40-40-38-36-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.06.2020
BERUSTYKKI:..Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 46-50-54-60-66-72 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 71-81-87-91-97-99 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 92-100-108-120-132-144 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 71-81-87-91-97-99 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið þær 46-50-54-60-66-72 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki).

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Rose wrote:

Hi there, I’m a little confused on incorporating the diagrams. When there is reference to A.1 in the same round for example, do you just keep repeating the same row? At what point do you go to a new row of the A.1 diagram?

19.07.2023 - 23:48

DROPS Design answered:

Dear Rose, you can read the following lesson about our knitting diagrams: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. Yes, when A.1 is worked several times in the same round, you repeat the same row/ round of A.1 in this round. On the next round, you will work row 2 of A.1 over the stitches of row 1 of A.1, as in the chart. Happy knitting!

20.07.2023 - 11:52

country flag Britt Lindholm Hansen wrote:

Forstår ikke diagram A.1 række 11 og 12. Er de miderste masker ret?? Og uden de 2 vrangmasker.

18.12.2022 - 21:32

DROPS Design answered:

Hej Britt, du fortsætter mønsteret over de midterste masker, du starter altså forfra. Men snoningen på hver side af A.1 gentages for hver 4.pind :)

20.12.2022 - 08:43

country flag Erika Wiegand wrote:

Ich stricke z.Zt. das Modell Für Elise und habe folgende Frage:\\\\\\\\r\\\\\\\\nIch bin beim Rumpfteil und muß jetzt die Arbeit teilen. In der nächsten Reihe soll ich insgesamt 134 Maschen zunehmen. Warum ist das so? Ich verstehe, daß sich der Pullover nach unten erweitert, aber die 134 Maschen erscheinen mir sehr viel. Vielleicht kann ich eine Erklärung bekommen, damit ich weiter arbeiten kann. Vielen Dank im Voraus.\\r\\nErika Wiegand

06.02.2022 - 16:38

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wiegand, es wird je nach der Größe in glatt rechts + in Diagramme zugenommen, damit die Bündchen unten nicht so eng werden - aber wie kommen Sie zu 134 Zunahmen? Ich finde nur 130 M in die grössere Größe. Viel Spaß beim stricken!

07.02.2022 - 11:16

country flag Dolores Amorós Mariscal wrote:

En las vueltas 11-12 en el centro cómo hay que hacer, punto derecho? Estoy utilizando las agujas indicadas de 2,5 mm para el resorte y no veo que quede tan amplio el cuello como en las fotos ni utilizando agujas 3,3 mm. Es la misma calidad Flora

03.04.2021 - 11:38

DROPS Design answered:

Hola Dolores. Este modelo se trabaja según el patrón con la tensión del tejido indicada en el patrón y con el número de aguja recomendada para obtener la tensión indicada. La foto es solo una referencia para una visión completa del modelo. La textura del tejido depende de cada tejedora.

03.04.2021 - 16:32

country flag Sandra wrote:

Økningsprosessen etter vrangbord på bærestykke før diagrammønster et kan ikke være rett. Ender opp med for mange masker. Hadde også vært greit om det sto noe om hvor mange masker det skal være framme/bake og over ermene når man er ferdig med Raglansøkningen på bærestykke slik at man ikke tar av maskene til ermene på feil plass.

24.01.2021 - 11:07

country flag Sandra Rondesrveit wrote:

Økningsprosessen etter vrangbord på bærestykke før diagrammønster et kan ikke være rett. Ender opp med for mange masker. Hadde også vært greit om det sto noe om hvor mange masker det skal være framme/bake og over ermene når man er ferdig med Raglansøkningen på bærestykke slik at man ikke tar av maskene til ermene på feil plass.

24.01.2021 - 11:06

country flag Julia wrote:

Hallo, wie wird nach den rechts gestrickten Raglan-Umschlägen verfahren? Werden diese weiter rechts gestrickt oder wird das Muster verschoben? Danke und Grüße

09.09.2020 - 23:00

DROPS Design answered:

Liebe Julia, die Raglanzunahmen werden rechts gestrickt, diese Zunahmen werden immer beidseitig von A.1 gestrickt damit die Maschenanzahl zwischen A.1 jeweils von 2 M zunimmt (= 8 Zunahmen pro Runde). Viel Spaß beim stricken!

10.09.2020 - 09:38

country flag Rosi wrote:

Hola!! Podrían por favor aclararme dónde situar los marcadores? Sería una gran ayuda!! Gracias!!

10.03.2020 - 00:08

DROPS Design answered:

Hola Rosi. Los marcapuntos los colocamos en los lados (laterales) del cuerpo, en el medio de los puntos que montamos bajo las mangas.

10.03.2020 - 23:29

country flag Hannelore Edeling wrote:

Hallo, Ich habe eine Frage: Beim Muster A1 wird auf der linken Seite die rechten Masche nach dem Umschlag sehr locker, ähnlich einer Leiter, wie vermeide ich das? Rechts sieht das viel besser aus. Auf dem Foto sind auch die Löcher sehr gut zu sehen, bei mir nur auf der linken Seite. Danke für die Info. Viele Grüße

22.02.2020 - 13:45

DROPS Design answered:

Liebe Frau Edeling, versuchen Sie alle Umschläge genauso locker/fest zu stricken, blockieren (spannen) Ihren fertigen Pullover kann auch später helfen. Gerne wenden Sie sich an Ihrem Laden, sicher haben Sie mehr individuellen Tipps für Sie. Viel Spaß beim stricken!

24.02.2020 - 08:19

country flag Josiane Bocquet wrote:

Bonjour vos model son très beaux mes pour comprendre ses dure les explication son pas trés simple josiane

11.05.2019 - 14:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bocquet, Les modèles DROPS sont réalisés par des milliers de personnes du monde entier. Nous comprenons toutefois qu’en fonction du pays, les explications puissent être formulées différemment. Nous faisons naturellement en sorte que nos modèles soient compréhensibles. Vous pouvez volontiers poser votre question ici, et pour toute assistance individuelle, vous adresser au magasin où vous avez acheté votre laine – même par mail ou téléphone. Bon tricot!

13.05.2019 - 10:51