Kerstin Sheldrake skrifaði:
Manon hat recht. Die Socken sind viel zu gross für Grösse 35-37. :(
24.02.2018 - 17:20DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Sheldrake, Stimmt Ihre Maschenprobe? Die Socken sind mit einer Maschenprobe 22 M x 30 Reihen = 10 x 10 cm. Viel Spaß beim stricken!
26.02.2018 - 10:28
Laila Rud skrifaði:
Hei. Jeg skjønner ikke felling etter at hæl er strikket. Skal det ikke felles på undersiden? Hvis jeg feller på oversiden kan det jo ikke bli riktig??
05.02.2018 - 16:29DROPS Design svaraði:
Hei Laila. Du feller på hver side av de 31 midterste maskene oppå foten som forklart i oppskriften. På denne måten vil det bli færre masker med A.5 på hver side av de 33 midterste maskene oppå foten (31 masker + 1 felle-maske i hver side). God fornøyelse!
26.02.2018 - 12:56Manon skrifaði:
The size is not correct and I have the same woll as in the description. 64 & 60 stitches for every size is much to big and certainly for my size 38, even with smaller needles. I'm very dissapointed.
02.01.2018 - 00:24
Julie skrifaði:
Lovely Scandinavian motif in a DK-weight; will be toasty to keep my tootsies warm.
26.06.2017 - 23:14
Lisbeth skrifaði:
This pattern really stands out - fabulous! So traditional and love the colours. No need to look further for what to give for Christmas present this year!
23.06.2017 - 15:08
Marion skrifaði:
Lekkere sokken voor een winteravond op de bank. Mooi kerstcadeau om voor iemand te maken.
10.06.2017 - 05:32
Lofoten Socks#lofotensocks |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðir sokkar með marglitu norrænu mynstri úr DROPS Lima. Stærð 35-43.
DROPS 181-12 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 13-11-13 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um tá): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju í A.2 þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum natur, prjónið miðju lykkjuna í A.2 eins og áður, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman með litnum natur (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 64 lykkjur í öllum stærðum á sokkaprjón 3 með litnum dökk blár DROPS Lima. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2-3-3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir (prjónið 15. og 16. hverja lykkju slétt saman) = 60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 5-6-6 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.2 (= 3 lykkjur), A.3 (= 27 lykkjur), A.2 (= 3 lykkjur) og A.4 (= 27 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar síðasta umferð í A.4 er eftir er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir 27 lykkjur í A.4 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður án úrtöku) = 56 lykkjur og stykkið mælist ca 14-15-15 cm. Setjið lykkjur í A.2 + A.3 + A.2 á þráð (= 33 lykkjur ofan á fæti). Nú eru 23 lykkjur eftir á prjóni í öllum stærðum fyrir hæl. Fitjið upp 1 nýja lykkju í byrjun umferðar með litnum dökk blár, prjónið A.5A yfir fyrstu 22 lykkjur á hæl, prjónið A.5B (= 1 lykkja) og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar með litnum dökk blár – nýjar lykkjur eru kantlykkjur og eru prjónaðar með litnum dökk blár. Haldið áfram með A.5A/A.5B fram og til baka yfir 25 lykkjur. Þegar prjónaðir hafa verið 5½-6-6 cm yfir hællykkjur er sett 1 merki fyrir miðju í stykkið. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan (A.5 heldur jafnframt áfram þegar lykkjum er fækkað fyrir hæl). Eftir hælúrtöku er fyrsta umferðin prjónuð þannig: Haldið áfram með A.5 yfir 13-11-13 hællykkjur, prjónið upp 12-14-14 lykkjur meðfram hlið á hæl, haldið áfram með A.2 + A.3 + A.2 eins og áður yfir 33 lykkjur ofan á fæti og prjónið upp 12-14-14 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl = 70-72-74 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur með A.5 undir fæti, A.3 ofan á fæti og A.2 í hvorri hlið. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 31 miðjulykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á undan 31 miðjulykkjum ofan á fæti slétt saman með litnum natur og prjónið fyrstu 2 lykkjur á eftir 31 miðjulykkjum snúnar slétt saman með litnum natur. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = 58-60-62 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 17-19-22 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Í næstu umferð eru sléttar lykkjur prjónaðar með litnum natur yfir 27 miðjulykkjur ofan á fæti (aðrar lykkjur halda áfram eins og áður). Prjónið síðan til loka þannig: Haldið áfram með A.5A/A.5B yfir lykkjur undir fæti, haldið áfram með A.2 í hlið, prjónið A.5A yfir næstu 26 lykkjur ofan á fæti, prjónið A.5B (= 1 lykkja), haldið áfram með A.2 í hlið og A.5A yfir þær lykkjur sem eftir eru undir fæti. Þegar stykkið mælist ca 18-20-23 cm frá merki á hæl, fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við miðjulykkjur í A.2 í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 10-11-12 sinnum = 18-16-14 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 9-8-7 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lofotensocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.