DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lofoten

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Lima. Stærð S - XXXL.

DROPS 181-9
DROPS Design: Mynstur li-087
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-700-750-800-900-1000 g litur 4305, dökk blár
150-150-150-200-200-200 g litur 0100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

Þú getur skipt út DROPS Lima litum í uppskrift með annarri litasamsetningu. Láttu myndina í uppskriftinni veita þér innblástur og skoðaðu dálkinn Athugasemdir til þess að sjá hvaða litanúmer eru notuð í sýnishornum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8,6.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis 7. og 8. hverja lykkju og 8. og 9. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. og 9. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan.
Byrjið frá réttu með litnum dökk blár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-11-12-13-13-14 lykkjur fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 66-66-72-78-78-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan.

LEIÐBEININGAR-1:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur fleiri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Neðst niðri á fram- og bakstykki skiptist stykkið og það myndast klauf, framstykki og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna, ofan frá og niður. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÁLSMÁL:
Fitjið upp 104-108-116-124-128-136 lykkjur á hringprjón 3 með litnum dökk blár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 92-96-100-108-112-120 lykkjur.
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan.
Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er A.1 prjónað hringinn (= 23-24-25-27-28-30 mynstureiningar 4 lykkjur). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 161-168-175-189-196-210 lykkjur í umferð.
Prjónið A.2 – JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru 31-36-47-51-56-60 lykkjur jafnt yfir (merkt með ör-1 í A.2) = 192-204-222-240-252-270 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-2 í A.2 er aukið út um 28-36-38-40-48-50 lykkjur jafnt yfir = 220-240-260-280-300-320 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka A.3 prjónað hringinn (= 11-12-13-14-15-16 mynstureiningar 20 lykkjur). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir síðustu útaukningu í A.3 eru 275-300-325-350-375-400 lykkjur í umferð. Í umferð merktri með ör-3 í A.3 er aukið út um 1-8-11-10-9-8 lykkjur jafnt yfir = 276-308-336-360-384-408 lykkjur.
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er A.4 prjónað hringinn (veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð = 69-77-84-90-96-102 mynstureiningar 4 lykkjur). Í umferð merktri með ör-4 í A.4 er aukið út um 10-8-14-8-12-16 lykkjur jafnt yfir = 286-316-350-368-396-424 lykkjur.
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 25-25-26-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðu að framan.
Næsta umferð er prjónuð með litnum dökk blár þannig: 43-47-51-55-60-65 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 58-64-74-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið 85-94-101-110-120-130 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 58-64-74-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-47-50-55-60-65 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá.
Fram- og bakstykki og ermar eru prjónaðar til loka hvort fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 186-204-222-240-264-288 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið og byrjið umferð við eitt af prjónamerkjum.
STÆRÐ S, M, L, XL og XXL:
Prjónið A.5 hringinn (= 31-34-37-40-44-48 mynstureiningar 6 lykkjur). Í umferð merktri með ör-5 í A.5 er aukið út um 6-4-2-0-0 lykkjur jafnt yfir (á við um S, M og L, passið uppá að aukið sé út um jafn margar lykkjur og á fram- og bakstykki) = 192-208-224-240-264 lykkjur í umferð (96-104-112-120-132 lykkjur á fram- og bakstykki).
Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er A.6 prjónað hringinn (= 24-26-28-30-33 mynstureiningar 8 lykkjur). Haldið áfram með mynstur þar til A.6 hefur verið prjónað til loka. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan ALLAR STÆRÐIR.
STÆRÐ XXXL = 288 lykkjur. Prjónið A.6 hringinn (= 36 mynstureiningar 8 lykkjur – ATH: Í þessari stærð er ekki prjónað A.5 þar sem mynstureiningin er prjónuð í A.4). Haldið áfram með mynstur þar til A.6 hefur verið prjónað til loka.

ALLAR STÆRÐIR:
= 192-208-224-240-264-288 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 8-8-6-6-4-3 cm frá skiptingu við handveg. Prjónið síðan sléttprjón með litnum dökk blár. JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir A.6 er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 8-6-8-6-6-6 cm millibili alls 2-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið = 200-220-236-252-280-304 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-22-23-24-24-24 cm frá skiptingu eru prjónaðar 6 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið (3 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin – aðrar lykkjur halda áfram í sléttprjóni). Þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir í garðaprjóni á hæðina skiptist stykkið við prjónamerkin fyrir klauf og framstykki og bakstykki eru prjónað hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 100-110-118-126-140-152 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm frá öxl (ca 5 cm frá skiptingu fyrir klauf) prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 24-26-30-30-32-36 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir 3 kantlykkjur í hvorri hlið) = 124-136-148-156-172-188 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 3 kantlykkjur slétt í hvorri hlið (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat). Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 3 kantlykkjum með garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir 2 cm eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út (séð frá réttu) til 3 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í hverri skiptingu á milli 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið = 153-168-183-193-213-233 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að ekki myndist gat.
Prjónið síðan þar til stroffið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og fellið af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Öll peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
= 100-110-118-126-140-152 lykkjur. Prjónið alveg eins og útskýrt er í FRAMSTYKKI.

ERMI:
Setjið 58-64-74-74-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-84-84-90-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur og byrjið umferðina við prjónamerki (= mitt undir ermi).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
STÆRÐ S, M, L, XL og XXL:
Prjónið A.5 hringinn (= 11-12-14-14-15 mynstureiningar 6 lykkjur). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er A.6 prjónað hringinn, en passið uppá að A.6 gengur ekki jafnt upp mitt undir ermi í öllum stærðum. Þegar A.6 byrjar hefur fækkað um 1-1-2-2-0 sinum mitt undir ermi eins og útskýrt undir ALLAR STÆRÐIR = 64-70-80-80-90 lykkjur í umferð. Þ.e.a.s. í S, L og XL byrjar A.6 með fyrstu lykkju í mynsturteikningu og prjónaðar 8-10-10 mynstureiningar 8 lykkjur. Í stærð M byrjar A.6 með 2. lykkju í mynsturteikningu og í stærð XXL byrjar A.6 með 8. lykkju í mynsturteikningu.
STÆRÐ XXXL: Prjónið A.6 hringinn (= 12 mynstureiningar 8 lykkjur – ATH: Í þessari stærð er A.5 ekki prjónað þar sem mynstureiningin er prjónuð í A.4).

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar A.5 og A.6 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón síðan með litnum dökk blár, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu undir ermi er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 11-13-18-18-19-21 sinnum = 44-46-48-48-52-54 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 32-32-32-32-31-29 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 12-10-12-12-12-14 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 40-40-40-40-39-37 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.10.2017
FRAMSTYKKI:= 100-110-118-126-140-152 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjum með garðaprjóni á hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm frá öxl (ca 5 cm frá skiptingu fyrir klauf) prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 24-26-30-30-32-36 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir 3 kantlykkjur á hvorri hlið) = 124-136-148-156-172-188 lykkjur.

Mynstur

symbols = dökk blár
symbols = natur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með grunnlit í mynsturrönd, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Lofoten

Merike Rahkema, Estonia

Lofoten

Anne-Mette, Denmark

Lofoten

Anita, Sweden

Lofoten

Ada, Croatia

Lofoten Sweater

Daniela, Slovakia

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Françoise Dumont wrote:

Question numéro 2 : Dans le modèle, on trouve les indications suivantes : "Terminer maintenant le dos/le devant et les manches séparément. MESURER DÉSORMAIS L'OUVRAGE À PARTIR D'ICI!!" Et puis plus loin : " "DOS & DEVANT: (...) Tricoter A.5 en rond " Je voudrais savoir si je dois tricoter le dos et le devant séparément, comme indiqué au-dessus, ou en rond, comme indiqué plus bas ? Merci pour votre aide précieuse.

18.02.2024 - 14:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dumont, lorsque vous avez mis les mailles des manches en attente, vous tricotez le bas du pull en rond jusqu'à la fente des côtés, alors vous terminerez le devant et le dos séparément en allers et retours. Bon tricot!

19.02.2024 - 09:21

country flag Françoise Dumont wrote:

Dans le modèle, vous indiquez ceci : "Quand A.4 a été tricoté 1 fois en hauteur, l'ouvrage mesure environ 25-25-26-27-29-31 cm depuis le rang de montage au milieu devant." Je voudrais savoir quel est le rang que vous appelez le rand de montage ? Est-ce que la mesure comprend le col ? Si oui, j'ai suivi vos indications à la lettre, mais je suis largement au-delà des 29 cm de longueur. Merci pour votre aide.

18.02.2024 - 14:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dumont, le rang de montage correspond au tout début du col/du pull, autrement dit, vous avez 3 cm de côtes + les diagrammes A.1 à A.4 = environ 26 cm soit 29 cm de hauteur totale, avez-vous bien vos 28 rangs = 10 cm comme dans l'échantillon? Si ce n'est pas le cas, vous devrez ajuster les augmentations/le jacquard en augmentant plus fréquemment en hauteur pour qu'elles soient toutes terminées au moment de diviser l'ouvrage. Bon tricot!

19.02.2024 - 09:20

country flag Adriana wrote:

Por que en unos patrones se hace aumento con lazadas y luego con el punto de abajo ?

29.12.2023 - 05:18

DROPS Design answered:

Hola Adriana, cuando haces la hebra retorcida cogiendo el hilo de entre los puntos (hilo horizontal) el agujero quedará más pequeño. Pero puedes hacer la hebra retorcida normal si prefieres; solo cambia cómo de grande es el hueco formado por la hebra.

07.01.2024 - 15:27

country flag Catherine wrote:

Bonjour, Je ne trouve pas les grilles A.5A et A.6A pour tricoter les manches dans les explications de ce modèle. Il y a juste A.5 et A.6. Est ce que je dois utiliser ces dernières ? Merci de votre réponse

22.11.2022 - 17:45

DROPS Design answered:

Bonjour Catherine, tout à fait, les explications ont été corrigées, merci pour votre retour. Bon tricot!

23.11.2022 - 08:58

country flag Therese wrote:

Vad menas med "bottenfärgen i mönsterranden"? Bottenfärgen på tröjan skulle jag säga är blå i detta fallet, men det är kanske färgen på maskan rakt under ni menar? Eller något helt annat....

06.06.2022 - 17:31

DROPS Design answered:

Hej Therese, Bottenfärgen på det varvet du håller på att sticka är den färgen, som du stickar mest på just det varvet :)

08.06.2022 - 14:35

country flag Sara Iglesias wrote:

¿Cuántos ovillos necesito de cada color? es que no lo veo por ningún sitio y era para comprar los materiales hoy mismo a poder ser

21.02.2022 - 18:00

DROPS Design answered:

Hola Sara, mira la leccion DROPS AQUI - ver la sección sobre los materiales. Los ovillos de esta lana tienen 50 g. Saludos!

22.02.2022 - 10:21

country flag Bodil Dalbjerg wrote:

Hej Har lige strikket denne i str M i Karisma, men garnmængde er den samme. Jeg købte som står 700 g = 14 ngl blå, men står nu med 4 ngl garn til rest. Det forstår jeg ikke.

04.11.2021 - 14:16

DROPS Design answered:

Hej Bodil, det er mange som har strikket den og vi har kun hørt en gang før at garnforbruget ikke stemmer, men da fik vi ikke størrelsen. Vi noterer at du strikker str M og har 4 nøgler for meget, så skal vi se på det. Tak for information!

05.11.2021 - 11:56

country flag Anke wrote:

Mooi patroon, maar wanneer moet ik beginnen met minderen bij de mouwen?

15.03.2021 - 14:26

country flag Marj Crane wrote:

P.S.: I'd like to keep the sleeves as narrow (that is, in the Small-size width) if I can, given the other alterations I've asked about. Is that possible? Many, many, thanks!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

16.12.2020 - 21:15

country flag Marj Crane wrote:

I am 4 feet 10 inches tall. My bust is 37 inches (94 cm.), & my hips are 41 inches (104 cm.). I'm knitting the yoke in the S. size because I have narrow shoulders. I've completed chart A-3 except for its last 2 rounds. I have 275 stitches on my needles as the pattern requires. How many stitches should I "increase evenly" to get to 94 cm. at the bust line? Then, where & how do I increase so that the sweater measures 42 inches (107 cm.) at the hip? How do I get 58 cm. length? THANK YOU!!!!

16.12.2020 - 21:08

DROPS Design answered:

Dear Mrs Crane, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, thank you for your comprehension. You can get help from the measurements in the chart for every size to adjust to your own fit - do not hesitate to contact the yarn where you bought the yarn, they should be able to assist you there, even per mail or telephone. Happy knitting!

17.12.2020 - 08:49