Irene Lysøe skrifaði:
Hei! Er i gang å strikke Lofoten sokker, men hvordan kan mønsteret foran bli lik som før når der skal felle masker?? Er forøvrig kjekke å strikke. Irene Lysøe
09.06.2025 - 19:36DROPS Design svaraði:
Hej Irene, du tager ikke ind i A.3 blomsten som strikkes ovenpå foden :)
12.06.2025 - 09:39
Jenny skrifaði:
Hei! får ikke stripemønsteret til å gå opp i hælfellingen i strl 38/40 er det meningen? følger hælfellingen helt til punkt og prikke men det blir likevel hakk i stripene.
07.12.2024 - 18:23DROPS Design svaraði:
Hei Jenny. Usikker på hva du mener med hakk i stripene, mulig å utdype spørsmålet noe mer? Stripene fortsetter med mørkeblå over mørkeblå og natur over natur når hælfellingen strikkes. mvh DROPS Design
10.12.2024 - 11:17
Rabea skrifaði:
Hej, jeg vil gerne strikke disse sokker, men jeg har allerede problemer med garnkøbet. Skal jeg købe 100gr af hver farve eller 100gr. i alt?
01.10.2024 - 15:18DROPS Design svaraði:
Hej Rabea. Du ska købe 100gr af hver farve. Mvh DROPS Design
14.10.2024 - 14:24
Grosir Kaos Kaki skrifaði:
I love that the content on your website is very inspiring. I would also like to extend an invitation to you to visit my website Grosir Kaos Kaki and we can collaborate with each other. Warm Regard
19.07.2024 - 09:46
Majbritt Pedersen skrifaði:
Har strikker hælen, er kommet til at man skal strikke to masker sammen oven på foden for 31 masker og to sammen efter. Dette kan jeg ikke få til at passe me de 27 masker jeg har oven på foden
06.03.2022 - 20:56DROPS Design svaraði:
Hej Majbritt, sæt gerne et mærke på hver side af de midterste 31 masker, så bliver det lettere at se :)
09.03.2022 - 10:42
Anita skrifaði:
Kjempeflotte sokker som er veldig kjekke å strikke! Jeg strikker den største størrelsen og den passer perfekt til min fot, som vanligvis bruker 41. Men jeg måler arbeidet mitt til en strikkefasthet på 27m/10cm (bruker et annet garn enn anbefalt, garnet jeg bruker har oppgitt 22m/10cm med pinne 4, så litt tykkere garn sikkert).
22.01.2022 - 20:15
Janka skrifaði:
I chose this as my first stranded knitting pattern and picked the 35/37 size of the sock, and I'm so disappointed. I casted on 64 stitches, and when I did first 15 rows of the color work, I saw that the leg of the sock is SO WIDE. Yes, I have my gauge correct - 22 st on 10 cm. Let's do the Match - the leg part should have 60 stitches, that means radius of the leg is 13 cm - my other socks have ~9 cm in leg part. Please fix the pattern for all sizes :/
22.01.2022 - 20:11
Mildred skrifaði:
Jammer van het vele werk, las al dat t patroon te groot maar het is enkel het been dat veel te wijd is, voet is ok. Hierdoor kan ik noch mijn dochter de sokken dragen 😭
11.11.2021 - 13:10
Sigga skrifaði:
Kan jeg finde opskriften på norsk?
12.02.2020 - 16:38DROPS Design svaraði:
Hej Sigga, ja det er bare at "Endre språk" du finder knappen lige under billedet til venstre :)
13.02.2020 - 11:22
Rose skrifaði:
This pattern is way too big - 64 stitches is appropriate for fingering yarn, not for the yarn this pattern calls for. Very disappointed
17.12.2019 - 19:29
Lofoten Socks#lofotensocks |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðir sokkar með marglitu norrænu mynstri úr DROPS Lima. Stærð 35-43.
DROPS 181-12 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-6 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-6 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 13-11-13 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA (á við um tá): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við miðju lykkju í A.2 þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman með natur, prjónið miðju lykkjuna í A.2 eins og áður, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman með natur (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 64 lykkjur í öllum stærðum á sokkaprjón 3 með litnum dökk blár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2-3-3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir (prjónið 15. og 16. hverja lykkju slétt saman) = 60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 5-6-6 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.2 (= 3 lykkjur), A.3 (= 27 lykkjur), A.2 (= 3 lykkjur) og A.4 (= 27 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar síðasta umferð í A.4 er eftir er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir 27 lykkjur í A.4 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður án úrtöku) = 56 lykkjur og stykkið mælist ca 14-15-15 cm. Setjið lykkjur í A.2 + A.3 + A.2 á þráð (= 33 lykkjur ofan á fæti). Nú eru 23 lykkjur eftir á prjóni í öllum stærðum fyrir hæl. Fitjið upp 1 nýja lykkju í byrjun umferðar með dökk blár, prjónið A.5A yfir fyrstu 22 lykkjur á hæl, prjónið A.5B (= 1 lykkja) og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar með litnum dökk blár – nýjar lykkjur eru kantlykkjur og eru prjónaðar með litnum dökk blár. Haldið áfram með A.5A/A.5B fram og til baka yfir 25 lykkjur. Þegar prjónaðir hafa verið 5½-6-6 cm yfir hællykkjur er sett 1 prjónamerki mitt í stykkið. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan (A.5 heldur jafnframt áfram þegar lykkjum er fækkað fyrir hæl). Eftir hælúrtöku er fyrsta umferðin prjónuð þannig: Haldið áfram með A.5 yfir 13-11-13 hællykkjur, prjónið upp 12-14-14 lykkjur meðfram hlið á hæl, haldið áfram með A.2 + A.3 + A.2 eins og áður yfir 33 lykkjur ofan á fæti og prjónið upp 12-14-14 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl = 70-72-74 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur með A.5 undir fæti, A.3 ofan á fæti og A.2 í hvorri hlið. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 31 miðjulykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 31 miðjulykkjum ofan á fæti slétt saman með litnum natur og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir 31 miðjulykkjum snúnar slétt saman með litnum natur. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = 58-60-62 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 17-19-22 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 5 cm til loka, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Í næstu umferð eru sléttar lykkjur prjónaðar með litnum natur yfir 27 miðjulykkjur ofan á fæti (aðrar lykkjur halda áfram eins og áður). Prjónið síðan til loka þannig: Haldið áfram með A.5A/A.5B yfir lykkjur undir fæti, haldið áfram með A.2 í hlið, prjónið A.5A yfir næstu 26 lykkjur ofan á fæti, prjónið A.5B (= 1 lykkja), haldið áfram með A.2 í hlið og A.5A yfir þær lykkjur sem eftir eru undir fæti. Þegar stykkið mælist ca 18-20-23 cm frá prjónamerki á hæl, fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við miðjulykkjur í A.2 í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 10-11-12 sinnum = 18-16-14 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 9-8-7 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lofotensocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.