Luisa skrifaði:
Liebes DROPS-Team, ich habe folgendes Problem: nachdem ich die Erhöhung gestrickt habe und dann in Runden rechts weiter ergibt sich bei mir rechtsseits der Erhöhung ein Loch, welches aber nicht durch Umschläge entsteht. Wie kann ich das verhindern? Ich vermute, dass ein Versatz zwischen eigentlicher Halsblende und der letzten Reihe der Erhöhung entsteht.
25.06.2024 - 03:42DROPS Design svaraði:
Liebe Luisa, das kann wegen verkürzten Reihen sein, um dieses Loch zu vermeiden/schliessen können Sie einen Faden zwichen dem Übergang auffassen und verschränkt mit der nächsten Maschen stricken. Viel Spaß beim Stricken!
25.06.2024 - 09:11
Nicole skrifaði:
Hallo zusammen, ich habe angefangen 7 cm gestrickt. Die 6 Reihen kraus am Kragen legen sich auf die Vorderseite um. Ist das normal, geht das durchs Tragen weg? Bin schon am Überlegen alles nochmal aufzuziehen und gleich als rechts/links-Bündchen zu machen . Herzlichen Dank vorab und viele Grüße, Nicole
09.03.2024 - 09:14DROPS Design svaraði:
Libe Nicole, ie können den Pullover danach mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Kragen nicht mehr rollen.
11.03.2024 - 07:49
Desvignes Victoria skrifaði:
J'ai besoin de faire la taille XXXL mais pour l'empiècement je dois augmenter de 176 mailles à intervalles réguliers en partant de 320 mailles pour en obtenir 476. La division ne donne pas un nombre entier: 1.81 . Je fais comment?
15.03.2021 - 17:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Desvignes, cette leçon explique comment répartir des augmentations à intervalles réguliers en fonction du nombre de mailles/de diminutions et du résultat, comment arrondir, etc... Bon tricot!
16.03.2021 - 08:25
Winnie Albrecht skrifaði:
Maschenprobe stimmte, Genau nach Anleitung gestrickt, Leider eine furchtbare Passform, der Pullover sieht nur im Stehen gut aus. Sobald ich sitze oder mich bewege rutscht alles hoch. Schade um die Arbeit
06.01.2020 - 19:38DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Albrecht, Ihr Strickstück Ihrem DROPS Laden bitte zeigen (auch mal im Foto), gerne bekommen Sie dann persönnliche Hilfe. Viel Spaß beim stricken!
07.01.2020 - 09:14
De Lee Gina skrifaði:
Evergreen by DROPS Design Gebreide trui met ronde pas, Valse patentsteek en A-lijn, van boven naar beneden gebreid. Maten S - XXXL. Het werk wordt gebreid in DROPS Alpaca. Hoe kan ik dit bestellen in maat M met het nodige materiaal ?
30.01.2019 - 10:18DROPS Design svaraði:
Dag De Lee Gina,
Voor maat M heb je 450 g Alpaca van kleur 7233, geel/groen nodig. Deze kun je bijvoorbeeld bestellen via een van onze verkooppunten
30.01.2019 - 16:12
Nanna Thune Andersen skrifaði:
Hejsa Hvordan downloader jeg denne opskrift? Evergreen Mvh Nanna
22.12.2018 - 14:53DROPS Design svaraði:
Hei Nanna. Vi har dessverre ikke noen downloadfunksjon på vår side, da må du kopiere og så lagre den selv, eventuelt ta en screen shot. Vi har en funksjon for å printe den ut om du ønsker det. God fornøyelse
02.01.2019 - 10:06
Bettina Baudach skrifaði:
Hallo liebes Dropsteam, ich finde das Modell ganz toll, bekomme aber nicht einen so großen Ausschnitt wie auf dem Foto. Müssen mehr Maschen aufgenommen werden? Meine Maschenprobe war korrekt.
29.07.2018 - 17:38DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Badach, sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann sollen Sie die genaue Maßen wie in der Maßskizze bekommen. Beachten Sie, daß Sie auch beim stricken immer noch die gleiche Maschenprobe haben. Viel Spaß beim stricken!
31.07.2018 - 09:20
Ingrid Cardinaels skrifaði:
Dit is mijn eerste trui breien van boven naar beneden. Is er een filmpje over het breien met een half achterpand. Ik vind wel filmpjes over raglan mouwen, maar niet dit soort mouw. Ik zit nu vast in de pas bij de laatste meerdering.
27.03.2018 - 13:38DROPS Design svaraði:
Hallo Ingrid, Bedoel je de meerderingen die je maakt voordat de steken verdeeld worden voor mouwen en lijf? Je kunt dan zien bij 'Tip voor meerderen'. De meerderingen maak je door een omslag te maken.
02.04.2018 - 14:37
Nicole skrifaði:
Hallo liebes Drops-Team Ich habe im PAtent einen Fehler entdeckt und nun die beiden betreffenden Maschen „fallenlassen“. Aber ich kann sie jetzt doch nicht mehr richtig hochholen. Habt ihr dafür auch ein Video? Lieben Dank
08.01.2018 - 21:40DROPS Design svaraði:
Liebe Nicole, vielleicht kann Ihnen dieses Video helfen. Viel Spaß beim stricken!
09.01.2018 - 09:37
Christine Roderick skrifaði:
Love this and your 2 beautiful models. Ordering my yarn today
18.12.2017 - 14:53
Evergreen#evergreensweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Peysa með hringlaga berustykki, klukkuprjóni og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Alpaca. Stærð S - XXXL.
DROPS 180-11 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 140 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 7. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 7. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 8-8-9-9-10-11 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 16-16-18-18-20-22 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-27-27-30-33 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 32-32-36-36-40-44 lykkjur brugðið. Haldið áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 8-8-9-9-10-11 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við (munið eftir að herða á þræði í hvert skipti sem snúið er við) þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir alls 64-64-72-72-80-88 lykkjur og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI: UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið (stingið inn hægri prjón í lykkjuna á vinstri prjóni frá hægri að vinstri), prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 3. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn Endurtakið umferð 2 og 3. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 108-116-122-128-134-140 lykkjur á hringprjóna 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-8-12-16-20 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 110-120-130-140-150-160 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Haldið eftir lykkjum á hringprjón 2,5. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka eru prjónað sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan er aukið út um 110-120-130-140-150-160 lykkjur jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverri lykkju á prjóni = 220-240-260-280-300-320 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón, en í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist göt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan er næsta umferð prjónuð þannig: * prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Þegar prjónaðar hafa verið 4-4-4-6-6-6 umferðir stroff er síðan prjónað KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI– sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 6-6-6-7-7-7 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan er skipt yfir á hringprjón 3. Haldið áfram í klukkuprjóni. Þegar stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (passið uppá að síðasta umferð sé 2. umferð í klukkuprjóni) og prjónið næstu umferð þannig: * Prjónið uppslátt og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 112-132-140-152-168-176 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 332-372-400-432-468-496 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: 49-54-57-63-70-76 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 68-78-86-90-94-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= á hlið undir ermi), prjónið 98-108-114-126-140-152 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 68-78-86-90-94-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 49-54-57-63-70-76 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar eru prjónaðar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-232-248-272-304-332 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er prjónað A.1 yfir miðju 4 lykkjurnar í hvorri hlið, þ.e.a.s. byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki í byrjun á umferð, prjónið A.1, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í annarri hlið, prjónið A.1 og prjónið sléttprjón út umferðina = 4 lykkjur fleiri. Haldið svona áfram í sléttprjóni og A.1 í hvorri hlið, þ.e.a.s. það verður ein gataumferð í hvorri hlið á fram- og bakstykki og aukið er út um 2 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð. Þegar stykkið mælist 37 cm frá skiptingu eru ca 324-344-360-384-416-444 lykkjur í umferð (ef prjónfestan passar á hæðina jafngildir það 28 útauknings umferðum í hvorri hlið). Prjónið 6 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið síðan af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverri lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 68-78-86-90-94-96 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-86-96-100-106-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2-2-3-3-4-4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 13-17-20-21-22-22 sinnum = 50-52-56-58-62-66 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 42-40-39-37-35-34 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið 6 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið síðan af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverri lykkju jafnframt er fellt af. Ermin mælist ca 43-41-40-38-36-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FORMUN: Til að fá jafna áferð á mynstri í klukkuprjóni er allt stykkið bleytt í lokin. Pressið vatnið varlega úr (án þess að vinda stykkið). Leggið síðan stykkið flatt í rétt form eftir máli og látið þorna. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #evergreensweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.