Elin skrifaði:
Stickar denna nu och den är jättefin, men armarna är snäva i jämförelse med kroppen. Det är lite tråkigt, ville ha en mysig oversize tröja :(
07.04.2022 - 10:34
Crocus skrifaði:
Joli modèle: je vais le faire en "air". J'adore cette qualité très agréable à travailler et à porter.
25.11.2018 - 21:51
Laura Skov Andersen skrifaði:
Hej! Hvilken størrelse er trøjen som modellen har på?
24.09.2017 - 16:46DROPS Design svaraði:
Hei Laura. Plaggene som modellene har på seg er som regel str. S eller M. Det beste å finne hvilken str man skal strikke er å se på målskissen under oppskriften. God Fornøyelse!
27.09.2017 - 08:24
Heather skrifaði:
Ignore my question...I read it as Alpaca NOT Alaska...my goodness!!!!!!! Silly me.........
06.07.2017 - 18:40Heather skrifaði:
I assume this is worked in 2 strands of alpaca at once? It doesn't say in the pattern, unless I am not seeing it?
06.07.2017 - 17:51
Gogo skrifaði:
Der ideale Pullover für Büro, Stadt und Freizeit. Einfach bequem. Super.
03.07.2017 - 09:19
Gabriela skrifaði:
Kuscheltiel dich strick ich nach ... Du bist mein!
01.07.2017 - 05:19
Donna Eastwood skrifaði:
I love this pattern. It is large and bulky. Nice for snuggling under at a football game. How can I get to where all the catalogs are? I can only find a few!
18.06.2017 - 21:21
Karin skrifaði:
Seed stitch, cables, oversize, drop shoulder, big statement sleeves, that Hygge feel of snuggly home comfort--this sums up so many trends of AW 2017 in one sweater. I'd prefer mine light as (DROPS) Air, rather than Alaska, but they're fortunately both Group C yarns.
16.06.2017 - 23:28
Nicole skrifaði:
Auch dieses Modell mein Wunsch, um meine wunderbare Hundewolle in ein einzigartiges Kleidungsstück zu verwandeln
09.06.2017 - 21:50
Douce Nuit#doucenuitsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum og perluprjóni. Stærð S-XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Alaska.
DROPS 179-16 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. ÚTAUKNING: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur perluprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í perluprjón. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stutta hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 200-212-224-236-252-272 lykkjur á hringprjón 5,5 með Alaska. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar. Prjónið þannig: ** 6-9-12-15-19-24 lykkjur í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 (= 24 lykkjur), * 8 lykkjur í perluprjóni, A.1 yfir næstu 24 lykkjur *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, 6-9-12-15-19-24 lykkjur í perluprjóni ** (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið frá **-** yfir lykkjur á bakstykki. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm skiptist stykkið við prjónamerkin. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 100-106-112-118-126-136 lykkjur. Fitjið upp 6-5-3-1-1-1 lykkjur fyrir ermi (þ.e.a.s. breiðari axlir) í lok 2 næstu umferða = 112-116-118-120-128-138 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í perluprjóni, aðrar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir ermi (stykkið mælist alls 60-62-64-66-68-70 cm), setjið miðju 32-32-34-34-36-36 lykkjur á þráð fyrir háls og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 40-42-42-43-46-51 lykkjur eftir á öxl). Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá háls = 39-41-41-42-45-50 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist alls 62-64-66-68-70-72 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 13-14-13-14-13-14 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir ermi (stykkið mælist alls 54-56-56-58-58-60 cm). Setjið miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur á þráð fyrir háls og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 48-50-50-51-54-59 lykkjur eftir á öxl). Fellið síðan af fyrir háls í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur alls 1 sinni og 2 lykkjur alls 3 sinum = 39-41-41-42-45-50 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist alls 62-64-66-68-70-72 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Fitjið upp 40-40-44-44-48-48 lykkjur á sokkaprjóna 5,5 með Alaska. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Setjið 1 prjónamerki í byrjun stykkis. Prjónið þannig: 8-8-10-10-12-12 lykkjur í perluprjóni, A.1 yfir næstu 24 lykkjur, 8-8-10-10-12-12 lykkjur í perluprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 6-6-8-6-6-8 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2½-2½-2½-2½-2 cm millibili alls 13-15-14-16-15-16 sinnum = 66-70-72-76-78-80 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 45-45-45-45-44-42 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermar í. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 80 til 96 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur af þræði) á stutta hringprjóna 5,5 (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #doucenuitsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.