Vivi skrifaði:
Dette mønsteret stemmer ikke. Mange har stilt spørsmål i kommentarfeltet, men jeg tror ikke dere har forstått problemet. Tror dere må prøve å strikke sokken i str. 41/43 og selv se at det er feil.
04.11.2024 - 22:04
Bianca skrifaði:
Hei. Disse mønster rapportene er ikke riktig. Gi meg en Mail slik at jeg kan vise dere hvor feilen i mønsteret ligger.
20.01.2022 - 11:51
Marie skrifaði:
J\'ai acheté des aiguilles doubles pointes en bois pour tricoter ce modèle. Mais elles dégagent une forte odeur désagréable ! C' est dommage de tricoter de la laine certifiée okeo tex avec des aiguilles recouvertes de produit chimique..
18.01.2021 - 08:40
Silje skrifaði:
A2B til største størrelse er feil. Når man skal strikke 3xA2B (18x3=54masker) mister man den siste raden i X-delen, og det går ikke opp møsntermessig. Det burde etter hva jeg kan se være en svart maske i tilknytning til X-mønsteret også på rad 1 i diagram A2B slik at X-en fullføres i begge ender?
02.02.2020 - 12:27
Solfrid Mykletun Vik skrifaði:
Korleis ser desse sokkane ut bak?
21.11.2019 - 23:06DROPS Design svaraði:
Hei Solfrid! Hælen på sokken strikkes med enkel metode. Hvordan det gjøres kan man se her: Hvordan strikke hæl til en sokk (enkel metode) Det ligger flere bilder av sokkene på Ravelry, de kan sees her: Ravelry: Project gallery Lykke til!
22.11.2019 - 08:03
Jorunn Fillingsnes skrifaði:
Lagt opp str 38/40. Hvordan gjør jeg det i str 41/43 & 44/46 med mønster bord A2C? Begynner jeg på A2A, og videre på A2B og slutter omg med A2C? Står ingen steder at det blir en mønsterbord midt bak. Finner ikke noen bilder av disse strømpene på baksiden.
20.03.2019 - 14:26DROPS Design svaraði:
Hei Jorunn. Etter at du har strikket A.1 strikker du slik: Strikk A.2A over de første 3 maskene, strikk A.2B over de neste 54 maskene (altså 3 ganger i bredden), avslutt med A.2C over de siste 1-1-5-5 maskene på omgangen. Du velger diagram A.2B og A.2C etter din størrelse, mens A.2A er det samme diagrammet uavhengig av størrelse. God fornøyelse.
26.03.2019 - 13:37
Mia Merethe Bye skrifaði:
Mønster A.2B passer ikke . Så bak på sokken blir det helt feil. 58 masker går ikke opp i 18 masker på mønster. Er det noe jeg gjør feil eller er det feil i oppskrift?
21.01.2018 - 18:46DROPS Design svaraði:
Hei Mia. I str 35/37 - 38/40. Du skal først strikke A.2A (= 3 masker), så strikker du A.2B 3 ganger (3 x 18 = 54 masker) og tilslutt A.2C (= 1 maske). Da får du 3+54+1 = 58 masker, som det står i oppskriften og da går mønstret opp. God Fornøyelse!
24.01.2018 - 10:43
Claudia skrifaði:
Voor maat 38-38 moet ik in het patroon onder kopje:sok: A.1 in de 2de naald minderen van 60 steken naar 58 steken. Het patroon A.1 kloot dan biet. Ik houd dan 2 steken over? Hoe kan ik dit oplossen?
17.12.2017 - 22:54DROPS Design svaraði:
Hoi Claudia, Je mindert in de naald met de pijl en dat is een naald waarin je 1 kleur over houdt. Na het minderen heb je 58 steken op de naald. In de naald die daarop volgt brei je A.2.a (= 3 steken), dan 3 herhalingen van A.2 B (= 54 steken) en dan A2.c (= 1 steek).
20.12.2017 - 10:20
DROPS Design skrifaði:
Colour combinations shown are: A) DROPS Karisma 72, 45, 50 B) DROPS Karisma 72, 21, 16 C) DROPS Karisma 71, 40, 64 D) DROPS Karisma 77, 55, 54 E) DROPS Karisma 55, 11, 56 F) DROPS Karisma 55, 52, 54
27.09.2017 - 10:25
Nanci Cartwright skrifaði:
I love these socks! Just downloaded and printed the pattern and ordered the yarn in these exact colors from Nordic Mart. They are in my queue, will start in time to have them for winter. Thank you for so many free patterns that you provide.
01.07.2017 - 00:32
Nova Scotia Toes#novascotiatoessocks |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðir sokkar með Fana mynstri úr DROPS Karisma. Stærð 35-46.
DROPS 180-23 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 64 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 16. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 15. og 16. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR (á við um hæl): Til að styrkja hælin er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8-8 lykkjur eru eftir, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8-8 lykkjur eru eftir, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7-7 lykkjur eru eftir, takið næstu lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7-7 lykkjur eru eftir, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 12-14-14-14 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA-2 (á við um tá): Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 64-64-68-68 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 = 60-60-64-64 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn (= 15-15-16-16 mynstureiningar með 4 lykkjum). Í umferð merktri með ör-1 í mynsturteikningu er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 58-58-62-62 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið A.2A (= 3 lykkjur), prjónið A.2B yfir næstu 54 lykkjur (= 3 mynstureiningar 18 lykkjur), prjónið A.2C (= 1-1-5-5 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-2 í mynsturteikningu er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 56-56-60-60 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 19 cm í öllum stærðum. Prjónið síðan A.3 hringinn. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20 cm er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 52-52-56-56 lykkjur. Endurtakið úrtöku í stærð 35/37 þegar stykkið mælist 21 cm = 48-52-56-56 lykkjur. Haldið áfram með A.3 þar til stykkið mælist ca 22-22-25-25 cm – endið eftir heila rönd með litnum ljós ólífa eða litnum ljós perlugrár. Haldið nú eftir fyrstu 12-13-14-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24-26-28-28 lykkjur á þráð (= miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum ljós perlugrár yfir 24-26-28-28 hæl lykkjurnar í 5-5½-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt á prjóninn – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtöku er lokið eru prjónaðar upp 11-12-13-14 lykkjur hvoru megin við hæl með litnum ljós perlugrár og 24-26-28-28 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 58-64-68-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-28-28 lykkjur ofan á fæti. Prjónið A.3 hringinn (haldið áfram með næstu rönd í mynstri svo að rendurnar passi mitt á fæti) og fækkið lykkjum hvoru megin við 24-26-28-28 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur Á UNDAN fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur Á EFTIR seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 7-8-8-7 sinnum = 44-48-52-56 lykkjur. Prjónið síðan A.3 þar til stykkið mælist ca 17-19-21-24 cm frá prjónamerki á hæl (endið eftir heila rönd með litnum ljós ólífa og prjónið e.t.v. áfram með litnum ljós perlugrár að réttri stærð – nú eru eftir ca 5-5-6-6 cm til loka). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 22-24-26-28 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið nú lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-6-6-7 sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #novascotiatoessocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.