Claudia skrifaði:
Ist es richtig, dass die 33 Maschen Abnahme in der letzten Rückreihe von A1 gemacht werden müssen?
03.04.2017 - 10:47DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, die Abnahmen sind am 6. Reihe und am 12. Reihe, bei beiden Reihe werden Sie 2 M in jedem Diagram abnehmen, so daß bei der letzten Reihe in A.1 17 M bleiben. Viel Spaß beim stricken!
03.04.2017 - 11:22
Jorun Holmen skrifaði:
Prøv å endre til svensk...der er oppskriften, Britt
02.04.2017 - 20:58
Britt Henningsen skrifaði:
Det er faktisk ikke en hel oppskrift til denne jakken. Mangler vesentlige opplysninger som maskeantall osv. til de forskjellige str. Er det mulig å få en hel oppskrift?
02.04.2017 - 12:45DROPS Design svaraði:
Hej Britt, Ja men det skal vi få lagt ud. Tak for info :)
03.04.2017 - 14:35
Summer Swing Cardigan#summerswingcardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Peysa með gatamynstri og laskalínu, prjónuð neðan frá og upp úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.
DROPS 178-31 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 282 lykkjur), mínus kant að framan (10 lykkjur) og deilið lykkjunum með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 33) = 8,5. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis 7. og 8. hver lykkja og 8. og 9. hver lykkja saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki: 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 8 lykkjur færri í umferð). HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = byrjið frá röngu og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni við miðju að framan, sláið 2 sinnum uppá prjóninn og prjónið síðustu 2 lykkjurnar slétt. Snúið stykkinu, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu lykkju slétt saman með fyrri uppslættinum, prjónið seinni uppsláttinn slétt saman með næstu lykkju, prjónið síðan áfram eins og áður. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm M: 3, 12, 20, 28, 36, 44 og 52 cm L: 3, 12, 21, 30, 38, 46 og 54 cm XL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm XXL: 3, 13, 22, 31, 40, 49 og 58 cm XXXL: 3, 13, 23, 33, 42, 51 og 60 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Kantur á ermum er prjónaður í hring á sokkaprjóna. PEYSA: Fitjið upp 346-346-388-430-472-514 lykkjur á hringprjóna 4 með Muskat. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT! Prjónið frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið a.1 (= 21 lykkjur) 16-16-18-20-22-24 sinnum, endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 282-282-316-350-384-418 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur þar sem fækkað er um 33 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 249-249-283-317-351-385 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú áfram frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2 (= 34 lykkjur) 6-6-7-8-9-10 sinnum, prjónið A.3 (= 35 lykkjur), prjónið kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2 og A.3 hafa verið prjónað til loka á hæðina eru 193-193-219-245-271-297 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 178-194-210-230-258-282 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð M er aukið út um 1 lykkju. Í stærð S, L, XL, XXL og XXXL er fækkað um 15-9-15-13-15 lykkjur jafnt yfir). Haldið síðan áfram í sléttprjóni og garðaprjóni í kanti að framan. Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 43-47-50-55-61-66 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 76-84-90-100-112-122 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur, prjónið þær 43-47-50-55-61-66 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið kant á ermum. KANTUR Á ERMUM: Kantur á ermum er prjónaður í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 68-76-84-88-92-98 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Muskat. Prjónið A.4 í hring. Þegar allt A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= undir ermum), prjónið sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru og fækkið um 1-0-0-0-0-1 lykkju jafnt yfir = 59-68-74-78-80-83 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermakanta á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 280-314-338-366-394-420 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður, JAFNFRAMT í 1. umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 21-23-25-28-30-33 sinnum = 112-130-138-142-154-156 lykkjur. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 3,5. Prjónið A.4 með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Í umferð með ör í mynsturteikningu er fækkað um 2-14-18-16-24-20 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir kant að framan) = 110-116-120-126-130-136 lykkjur. Fellið af þegar A.4 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerswingcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.