DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Nepal yarn
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10010.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 174-14

#twinriversweater

DROPS Design: Mynstur nr ne- 236
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
650-750-800-900-1000-1100 g litur nr 6314, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 24 umf með mynstri A.1 verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10010.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LASKALÍNA:
Fækkið l á undan A.2 þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan A.2, prjónið 2 næstu l slétt saman.
Fækkið l á eftir A.2 þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING (fram- og bakstykki):
Aukið út um 4 l í umf þannig:
Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki á hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Endurtakið útaukningu í hinni hliðinni á stykkinu.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Nýjar l eru prjónaðar í garðaprjóni.

ÚTAUKNING (ermi):
Aukið út mitt undir ermi þannig:
Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Nýjar l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. ATH: Lykkjur hvoru megin við prjónamerki eru prjónaðar í garðaprjóni!

LASKALÍNA (upphækkun):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á eftir A.2 þannig: Prjónið 3 l snúnar slétt saman.
Fækkið l á undan A.2 þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan A.2, 3 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 150-162-168-192-210-234 l með Nepal á hringprjóna nr 5. * Prjónið 1 l br, (1 l sl, 2 l br), endurtakið frá (-) 23-25-26-30-33-37 sinnum til viðbótar, 1 l sl, 1 l br, setjið eitt prjónamerki hér (= hlið) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. ATH: Látið síðan prjónamerki fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með stroff hringinn þar til stykkið mælist 4 cm. Prjónið nú mynstur A.1 þannig: Prjónið 2 síðustu l í A.1, endurtakið síðan A.1 hringinn alla umf þar til 1 l er eftir í umf, prjónið fyrstu l í A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13-13-14-14-15-15 cm aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (fram- og bakstykki)! Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 27-28-29-29-30-30 cm = 158-170-176-200-218-242 l. Þegar stykkið mælist 41-41-42-42-42-42 cm – stillið af að næsta umf sem á að prjóna er eins og 2. umf í A.1, fellið af l fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 5 l í umf, prjónið næstu 69-75-78-90-99-111 l, fellið af næstu 10 l fyrir handveg, prjónið næstu 69-75-78-90-99-111 l, fellið af þær 5 l sem eftir eru. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 42-42-42-48-48-48 l með Nepal á sokkaprjóna nr 5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi). Prjónið stroff þannig: 1 l br, 1 l sl, * 2 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir í umf, 1 l br. Haldið svona áfram hringinn þar til stroffið mælist 4 cm. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 2 síðustu l í A.1, A.1 þar til 1 l er eftir í umf, prjónið fyrstu l í A.1. Þegar stykkið mælist 9-8-7-6-10-9 cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING (ermi)! Aukið svona út í ca 13.-9.-7.-7.-6.-5. hverri umf alls 8-11-14-14-14-17 sinnum = 58-64-70-76-76-82 l. Þegar stykkið mælist 51-50-49-48-47-46 cm – stillið af að næsta umf sem er prjónuð sé eins og 2. umf í A.1, fellið af miðju 10 l undir ermi (= 5 l hvoru megin við prjónamerki) = 48-54-60-66-66-72 l.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón nr 5 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 234-258-276-312-330-366 l. Þetta er gert án þess að prjóna l. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Umferðin byrjar á bakstykki, 4 l á eftir prjónamerki á milli hægri ermi og bakstykkis.
Haldið nú áfram með mynstur eins og áður og prjónið að auki A.2 (= 8 l) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (prjónamerki er staðsett mitt í A.2). Í næstu umf byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH: úrtaka er mismunandi á fram- og bakstykki og ermum þannig:
LASKALÍNA FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fækkið l í annarri hverri umf 21-24-24-24-26-26 sinnum og í hverri umf 0-0-0-6-7-13 sinnum (= alls 21-24-24-30-33-39 sinnum).
LASKALÍNA ERMAR:
Fækkið l í 4. hverri umf 6-6-4-3-5-5 sinnum og í annarri hverri umf 9-12-17-21-19-22 sinnum (= alls 15-18-21-24-24-27 sinnum).

Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 90-90-96-96-102-102 l eftir í umf (= alls 144-168-180-216-228-264 l færri).

Prjónið nú mynstur eins og áður yfir fyrstu 72-72-78-78-84-84 l. Setjið prjónamerki hér (= á milli A.2 og hægri ermi). Prjónið síðan upphækkun fram og til baka í hnakka í mynstri eins og áður JAFNFRAMT er úrtaka fyrir laskalínu í hverri umf frá réttu yfir þær l sem prjónað er yfir – LESIÐ LASKALÍNA (upphækkun) þannig: ATH: Í hvert skipti sem snúið er við verður að herða á þræði svo að ekki myndist gat!
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 55-55-58-58-61-61 l (meðtaldar 8 l sem fækka).
UMFERÐ 2 (= ranga): Snúið við og prjónið 45-45-48-48-51-51 l.
UMFERÐ 3: Snúið við og prjónið 43-43-46-46-49-49 l (meðtaldar 8 l sem fækka).
UMFERÐ 4: Snúið við og prjónið 33-33-36-36-39-39 l til baka.
Nú eru 74-74-80-80-86-86 l í umf.
Snúið við og haldið áfram hringinn með stroffi þannig: Prjónið sl yfir sl og br yfir l í garðaprjóni þar til stroff mælist 4 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Peysan mælist 64-66-68-70-72-74 cm frá uppfitjunarkanti og upp að öxl. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
Diagram for DROPS 174-14
Diagram for DROPS 174-14

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 174-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (214)

country flag Vera skrifaði:

Hartelijk dank voor het antwoord op mijn vraag. Ik begrijp nu dat ik de beschrijving niet goed gelezen heb. Hierin wordt twee keer het minderen beschreven, ik heb de onderste beschrijving, de verkeerde gebruikt voor de raglan, ik minderde daardoor steeds 2 steken per keer en niet 1. Daardoor ging het minderen twee keer zo snel waardoor iksteken tekort kwam.

09.04.2021 - 09:56

country flag Vera skrifaði:

Vraag, daarom nog maar eens: ik begrijp het minderen voor de raglan niet. Ik kom steken te kort, als ik elke 2e naald zowel op de rug als de borst minder. Toch lijkt dat er te staan. Moet ik op de rug 1 keer per 4 naalden aan beide kanten minderen en ook op de voorkant 1 keer per 4 naalden en dit dan afwisselend doen?

07.04.2021 - 11:57

DROPS Design svaraði:

Dag Vera,

De minderingen op de rug en op de borst (dus op het lijf) zijn hetzelfde in aantal. Afhankelijk van je maat, minder je 21-24-24-24-26-26 keer om de naald (dus de ene naald wel en de ander naald niet. Daarna meerder je voor het lijf nog eens 0-0-0-6-7-13 keer op iedere naald. Tegelijkertijd meerder je op de mouwen zoals beschreven staat bij RAGLAN MOUWEN.

08.04.2021 - 09:20

country flag Irene Mattson skrifaði:

När man börjar med raglanintagningarna sätter man en märktråd på bakstycket.. Varvet börjar på bakst, 4 m efter markören mellan hö ärm och bakst. Var börjar man räkna efter intagningarna när man stickar de 72 m? Man hamnar inte vid hö eller vä ärm om man utgår från märkningen i början. Hur räknar man de 8 intagningarna? Är det vanliga raglan int eller förhöjd raglanminskn?

18.03.2021 - 23:32

DROPS Design svaraði:

Hej Irene, du fortsætter med raglanindtagningerne på samme sted som tidligere når du starter med forhøjningen bagpå. Du har 90 masker på pinden. Når du har strikket de første 72 masker, bør du havne lige før første ærme på forstykket, nu starter du med 55 masker fra retsiden , vend og strik 45 masker tilbage osv. God fornøjelse!

08.04.2021 - 09:50

country flag Alex skrifaði:

Hi, are there specific measurements for S/M/L sizes? Like what cm breast size would Small fit?

16.03.2021 - 17:31

DROPS Design svaraði:

Hi Alex, there is not. It depends on garment shape. Please see the lesson DROPS HERE. Happy knitting!

16.03.2021 - 18:53

country flag Irene skrifaði:

Om man minskar för raglan tre maskor tillsammans så finn det inga maskor kvar när man har gjort det antal gånger som det står i mönstret. Vad har jag missat?

14.03.2021 - 17:33

DROPS Design svaraði:

Hej Irene. Det är bara när du stickar förhöjning du minskar 3 maskor på varje sida av markören vid raglan. Annars minskar du enligt förklaring "RAGLAN: Minska så här före A.2: Sticka tills det återstår 2 m före A.2, sticka de 2 nästa m räta tills, Minska så här efter A.2: Lyft 1 m, 1 rm, drag den lyfta m över." Mvh DROPS Design

17.03.2021 - 08:07

country flag Barbara skrifaði:

Hello! I am knitting the size M. I am at the RAGLAN part, and I decreased 24x4 stich every round, in the sleeves 18x8 sts=240 sts decreased oveall. According to the description it is decreased 168. What is the problem, can you help me? Thanks a lot!

12.03.2021 - 15:06

DROPS Design svaraði:

Dear Barbara, you should decrease only 2 sts on each front/back piece and sleeves, ie 2 sts x 24 times on front/back piece = 96 sts in total on body and 2 sts x 18 times on each sleeve x 2 sleeves = 72 sts. There were 258 sts - 96-72= 90 sts remain. Happy knitting!

12.03.2021 - 15:37

country flag Bianka skrifaði:

Kedves Garnstudio! M-es méretet kötök. Vállrésznél a testrésznél 24x4szemet fogyasztok körönként, ujjakon összesen 18x8szemet=240 szemet fogyasztottam összesen. A minta viszont 168szemet fogyaszt összesen. Tudnának segíteni mi lehet a baj?

12.03.2021 - 15:02

DROPS Design svaraði:

Kedves Bianka, csak 2 szemet kell fogyasztania az elején és a hátán és ujján, vagyis 12 szem X 24 alkalommal az eleje / háta darabon, = összesen 96 szem a testen és 2 szem x 18 alkalommal x 2 ujján= 72 szem. Eredetileg 258 szemmel indult - 96-72= 90 szem maradt. Sikeres kötést!

23.03.2021 - 00:23

country flag Liette Boucher skrifaði:

J'essai de suivre votre patron mais il n'est pas facile a suivre. Voci ma question quand on fait une jete de chaque cote des marqueurs ont les tricoter en point mousse part la suite au prochain tour, si oui nous n'avons plus le style du debut qui est une maille a l'end, 2 a l'env etc. alors comment faire pour continuer avec le meme style du debut?

11.03.2021 - 18:27

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Boucher, les augmentations sur les côtés se tricotent au point mousse (1 tour à l'endroit, 1 tour à l'envers), et les mailles du devant et du dos se tricotent comme avant dans le point fantaisie. On augmente que 2 mailles avant ou après chaque marqueur (4 mailles par tour au total x 2 ), autrement dit, on n'augmente pas assez pour tricoter un nouveau motif du point fantaisie, raison pour laquelle les augmentations se tricotent au point mousse. Bon tricot!

12.03.2021 - 08:23

country flag Jette Ottesen skrifaði:

Jeg skal nu strikke mønster over de første 84 masker i XXL og derefter sætte en markering. Herefter skal jeg strikke 61 masker og lave forhøjningen. Den forhøjning ender altså på et af ærmerne, når der tælles på denne måde. Det kan ikke være rigtigt. Samtidigt skriver I hele tiden 8 masker til raglanindtagninger. Hvordan kan det blive det, når der skal strikkes 3 masker sammen på raglan ved forhøjning? Kan I hjælpe?

23.02.2021 - 16:09

country flag Cynthell93 skrifaði:

Ik ben aangekomen in het patroon bij het afmaken van de trui. Ik moet alleen de hals nog. Ik heb 90 steken op de rondbreinaald. Ik heb 72 steken gebreit in de eerste naald van het telpatroon. Markeerder geplaatst en vanaf hier begrijp ik het patroon niet meer! Als ik 55 steken terug ga breien zit ik a. Aan de verkeerde kant en b. Ik kom maar langs 5 punten waarop ik moet minderen waarop de trui voor de rest van de steken ongebreit is een scheef zal worden. Hoe moet dit?

22.02.2021 - 21:59

DROPS Design svaraði:

Dag Cynthell93,

Het is de bedoeling dat je vanaf dat punt verder breit, dus vanaf de rechter mouw brei je NLD 1 zoals beschreven, pas na deze eerste naald keer je het werk en brei je naald 2 enz.

23.02.2021 - 12:21