DROPS Belle uni colour 53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör |
638.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Belle uni colour 53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör 638.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= sl | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat | |
= 2 l slétt saman | |
= takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir | |
= takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Venezia Top |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Belle með gatamynstri í hliðum og a-formi, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 168-33 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. í aftari lykkjubogann í stað fremri) til þess að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er fram- og bakstykki prjónað hvort fyrir sig og til baka niður fyrir handveg. Síðan er prjónað áfram í hring. BAKSTYKKI: Prjónið hægri öxl þannig: Fitjið upp 16-17-17-18-20-20 l á hringprjóna nr 4,5 með Belle. Prjónið þannig (1. umf = rétta): 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= að hálsmáli), prjónið 10-11-11-12-14-14 l sléttprjón, 3 kantlykkjur í garðaprjóni (= að handveg). Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umf. Í næstu umf er aukið út um 1 l innan við 3 l garðaprjón við háls – LESIÐ ÚTAUKNING = 17-18-18-19-21-21 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu og geymið stykkið. Prjónið vinstri öxl þannig: Fitjið upp og prjónið eins og hægri öxl, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. aukið út um 1 l á undan 3 l garðaprjón við hálsmál í 5. umf með sléttprjón. Prjónið 1 umf til baka frá röngu. Snúið við og prjónið eins og áður yfir allar l. Í lok næstu umf eru fitjaðar upp 35-35-37-37-39-39 nýjar l fyrir háls, síðan eru prjónaðar 17-18-18-19-21-21 l frá hægri öxl inn á prjóninn = 69-71-73-75-81-81 l. Nýjar l sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir þessar l er haldið áfram í sléttprjóni með 3 l garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13-12-12-10-10-7 cm frá uppfitjun er aukið út um 3 l garðaprjón í hvorri hlið fyrir handveg. Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 2-4-6-9-11-16 sinnum til viðbótar= 75-81-87-95-105-115 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu og geymið stykkið. FRAMSTYKKI: Prjónið vinstri öxl þannig: Fitjið upp 16-17-17-18-20-20 l á hringprjóna nr 4,5 með Belle. Prjónið þannig (1. umf = rétta): Prjónið 3 l garðaprjón (= að hálsmáli), prjónið 10-11-11-12-14-14 l sléttprjón, 3 l garðaprjón (= til vinstri). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið svona áfram, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7-8-7-8-8-9 cm aukið út fyrir hálsmáli (- sjá útskýringu að neðan) og þegar stykkið mælist 13-12-12-10-10-7 er aukið út fyrir handveg alveg eins og á bakstykki! ATH: Í stærð XXXL byrjar útaukning fyrir hálsmáli! ÚTAUKNING FYRIR HÁLSMÁLI: Aukið út um 1 l innan við 3 l garðaprjón við hálsmál. Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 4-4-5-5-6-6 sinnum til viðbótar = 5-5-6-6-7-7 l fleiri í hálsmáli. Þegar útaukningar hafa verið gerðar er prjónuð 1 umf frá röngu. Geymið stykkið. Prjónið hægri öxl þannig: Fitjið upp og prjónið eins og vinstri öxl, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. aukið út um 1 l á undan 3 l garðaprjón við hálsmál. Þegar allar útaukningarnar hafa verið gerðar er prjónuð 1 umf til baka frá röngu, snúið við og prjónið eins og áður yfir allar l. Í lok umf eru fitjaðar upp 27 nýjar l í öllum stærðum fyrir hálsmáli, prjónið síðan allar l frá vinstri öxl inn á prjóninn. Haldið svona áfram fram og til baka (útaukning fyrir handveg heldur áfram) þar til prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir nýjar l fyrir hálsmál. Prjónið síðan sléttprjón innan við 3 l garðaprjón í hvorri hlið. Þegar öll útaukning fyrir handveg hefur verið gerð eru = 75-81-87-95-105-115 l á prjóni. Eftir síðustu útaukningu er prjónuð 1 umf til baka frá röngu. Snúið við og prjónið yfir allar l á framstykki, fitjið upp 3-5-7-9-11-13 nýjar l undir ermi, prjónið 75-81-87-95-105-115 l frá bakstykki inn á sama hringprjón og fitjið upp 3-5-7-9-11-13 nýjar l undir ermi = 156-172-188-208-232-256 l í umf. Umf byrjun er síðan á eftir síðustu 3-5-7-9-11-13 nýjar l sem fitjaðar voru upp! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið síðan stykkið í hring á hringprjóna. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Haldið áfram með mynstur þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, haldið áfram í sléttprjóni eins og áður yfir næstu 69-75-81-89-99-109 l, 9-11-13-15-17-19 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 69-75-81-89-99-109 l, 6-8-10-12-14-16 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón fyrir neðan nýju l sem fitjaðar voru upp undir ermum. Prjónið síðan sléttprjón þar til 12-13-14-15-16-17 l eru eftir á undan byrjun umf. Nú er þetta byrjun umf! Prjónið nú þannig: Setjið eitt prjónamerki, prjónið A.1 (= 10 l í fyrstu umf), A.2 (= 11 l í fyrstu umf), setjið eitt prjónamerki, prjónið sléttprjón yfir næstu 57-65-73-83-95-107 l, setjið eitt prjónamerki, A.1, A.2, setjið eitt prjónamerki, prjónið sléttprjón yfir næstu 57-65-73-83-95-107 l. ATH: Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu svo að auðveldara verði að skilja mynstureiningu og sléttprjón frá hvort öðru. Mynstureining í sléttprjóni helst stöðug og aukið er út í mynstureiningu með gatamynstri í hliðum. Haldið svona áfram með mynstur þar til alls mynstur A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina. Nú eru 200-216-232-252-276-300 l í umf og stykkið mælist ca 19 cm í öllum stærðum. Endurtakið nú A.X á hæðina, JAFNFRAMT sem útaukning í mynstri heldur áfram eins og áður: Þ.e.a.s. gatamynstur í hvorri hlið er aukið út um 12 l og það verða 2 gataumferðir (1 gataumferð = 1 úrtaka + 1 uppsláttur) fleiri í A.1 og A.2 á hvorri hlið í hvert skipti sem A.X er prjónað til loka 1 sinni á hæðina. Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm eru ca 320-336-352-376-404-432 l í umf. Prjónið 1 umf sléttprjón. Prjónið síðan 4 umf garðaprjón. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (37)
Lise-Lotte wrote:
Jeg kan ikke få maskeantallet til at passe når jeg skal gentage ax. På 1. pind er der 17m og på sidste er der 22m i ax Med venlig hilsen Lise-Lotte
18.06.2023 - 14:30DROPS Design answered:
Hei Lise-Lotte. Ikke tenkt på maskeantallet (maskeantallet stemmer kun første gang når A.X strikkes). Når du skal gjenta A.X i høyden fortsetter du bare mønstret med økningene. mvh DROPS Design
19.06.2023 - 11:05Agata wrote:
Dzień dobry, Skończyłam tył i przód i jestem w momencie, kiedy mam przerobić przód, dodać oczka na podkrój rękawy, przerobić tył i znów dodać oczka na podkrój rękawu. Problem w tym, że długość całkowita przodu mojej robótki jest o jakieś 4cm krótsza niż długość tyłu. Czy tak ma być, czy to mój błąd? Będę bardzo wdzięczna za pomoc.
15.01.2023 - 13:53DROPS Design answered:
Witaj Agato, top jest przerabiany z góry na dół. Przerabiasz najpierw przód i tył oddzielnie, w tę i z powrotem do pokrojów rękawów, a dalej na okrągło. We wzorze jest napisane, że zaczynasz dodawać oczka na podkroje rękawów na tyle i na przodzie na tej samej wysokości, czyli gdy dł. robótki od rzędu nabierania oczek (przodu lub tyłu) wynosi 13-12-12-10-10-7 cm. Oczka na podkroje rękawów na przodzie i na tyle są dodawane tak samo, tak więc obie części robótki powinny mieć taką samą długość jak zostaną dodane. Pozdrawiamy!
16.01.2023 - 18:57Lisa wrote:
Hej! Förstår inte riktigt hur framstycket ska stickas när vänster axeln ska stickas på. På vänster Axel är ju ökningarna för ärmhålen redan stickade så det stycket är ju några cm längre än höger stycket. Men trots olika längd ska det läggas upp nya maskor och vänster och höger stickas ihop? För det står ju att ökningarna ska fortsätta efter styckena har stickats ihop och de 27 maskor till halsen har lagts upp. Kan ni tydliggöra detta? Tack!
29.04.2022 - 22:17DROPS Design answered:
Hei Lisa. Venstre og høyre forstykket strikkes likt (like økninger), men høyre del strikkes speilvendt fra venstre del. Når alle hals økningene er ferdig strikket på venstre forstykke, strikkes det 1 pinne tilbake fra vrangen. Når alle økningene til hals er ferdig strikket på høyre fortykke strikkes det 1 pinne tilbake fra vrangen. Snu høyre forstykke og strikk som før over alle maskene. På slutten av pinnen legges det opp 27 nye masker til hals, deretter strikkes alle maskene fra venstre skulder inn på pinnen. Du vil nå ha venstre forstykke, 27 nye masker og så høyre forstykket på samme pinne. Økningen til ermhull fortsetter. mvh DROPS Design
02.05.2022 - 13:07Lovisa wrote:
Hej! När man ska öka för ärmhålen på bakstycket, Vart ska ökningen ske? Ska ökningen vara innan de 3 rätmaskorna eller efter mot mitten?
26.04.2022 - 20:40DROPS Design answered:
Hej Lovisa. Ökningen är mot mitten, så du har de rätstickade maskorna längst ut. Mvh DROPS Design
27.04.2022 - 09:42CORINNE wrote:
Bonjour j'ai tricoté A1 et A2 + 1 fois AX, d'après ce que je comprends il faut continuer en tricotant plusieurs fois AX pour arriver à la bonne dimension est ce bien ça ? excusez moi mais je un peu perdue avec ce modèle merci de votre réponse
01.04.2021 - 08:41DROPS Design answered:
Bonjour Corinne, c'est exact; après avoir tricoté 1 fois A.1 et A.2 en hauteur, vous répétez juste les A.X en hauteur, le nombre de mailles du point ajouré augmente progressivement. Bon tricot!
06.04.2021 - 11:27Ingrid østerlev wrote:
Jeg har en drops model 45-14 kan ikke få maske og opskrift til at gå op. Starter jeg forkert. Håber at i kan hjælpe. På forhånd tak Ingrid østerlev
25.02.2021 - 09:36DROPS Design answered:
Hej Ingrid, Hvilken størrelse strikker du, hvor mange masker har du, hvor langt er du kommet i opskriften.-....
25.02.2021 - 14:11Bonnie Cary wrote:
Just getting started on this pattern. Back piece done through ridges for neck. Now continue til piece measures x amount of inches from cast on edge. Which edge? Shoulder or neckline?
01.08.2020 - 23:08DROPS Design answered:
Hi Bonnie, The measurements are from the neckline. Happy knitting!
03.08.2020 - 07:18Sara wrote:
Hello, Could you please clarify how to repeat A.X?
22.04.2020 - 16:14DROPS Design answered:
Dear Sara, continue lace pattern as before repeating the A.X part of the diagrams, you will just have more stitches from 2nd time because of the increases on the middle of each side. the lace patterns should always be worked so that the lace are worked diagonally as before, increasing at the same time as shown in the diagram. Happy knitting!
22.04.2020 - 16:35Lorena wrote:
Buongiorno. Per favore, avrei bisogno di una conferma. Le misure riportate sotto al disegno del modello si intendono riferite solo ad un pannello (e sono quindi da raddoppiare) ? Grazie e saluti. Lò
14.06.2019 - 19:41DROPS Design answered:
Buongiorno Lorena. Sì le misure sono riferite ad un solo pannello. Buon lavoro!
14.06.2019 - 20:46Monica wrote:
Buongiorno, sto cercando di realizzare il modello e mi trovo sul davanti, non ho capito quando fare gli aumenti per gli scalfi, è corretto farli dopo l avvio delle 27 m per il collo e quindi l unione delle due parti? Grazie, saluti.
17.02.2019 - 09:06DROPS Design answered:
Buongiorno Monica, per il davanti deve lavorare gli aumenti per lo scalfo quando il lavoro misura 13-12-12-10-10-7 cm a seconda della taglia che sta lavorando, tranne per la taglia XXXL, per cui gli aumenti iniziano prima degli aumenti per il collo. Per gli aumenti seguire le istruzioni del dietro. Buon lavoro!
17.02.2019 - 09:33