DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Venezia

Prjónuð peysa með gatamynstri í hliðum og a-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Belle. Stærð S - XXXL.

DROPS 168-34
DROPS Desgin: Mynstur nr vs-013
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio
450-500-550-650-700-750 g nr 06, silfurgrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l x 26 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. í aftari lykkjubogann í stað fremri) til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er fram- og bakstykki prjónað hvort fyrir sig og til baka niður fyrir handveg. Síðan er prjónað áfram í hring.

BAKSTYKKI:
Prjónið hægri öxl þannig:
Fitjið upp 17-18-19-21-21-22 l á hringprjóna nr 4,5 með Belle. Prjónið þannig (1. umf = rétta): 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= að hálsmáli), prjónið 13-14-15-17-17-18 l sléttprjón, 1 kantlykkja með garðaprjóni (= að handveg). Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umf. Í næstu umf er aukið út um 1 l innan við 3 l garðaprjón við háls – LESIÐ ÚTAUKNING = 18-19-20-22-22-23 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu og geymið stykkið.
Prjónið vinstri öxl þannig:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri öxl, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. aukið út um 1 l á undan 3 l garðaprjón við hálsmál í 5. umf með sléttprjóni = 18-19-20-22-22-23 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu. Snúið stykkinu við og prjónið eins og áður yfir allar l. Í lok umf eru fitjaðar upp 35-35-37-37-39-39 nýjar l fyrir hálsmáli, síðan eru prjónaðar 18-19-20-22-22-23 l frá hægri öxl inn á prjóninn = 71-73-77-81-83-85 l. Nýjar l sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli eru prjónaðar í garðaprjóni = 41-41-43-43-45-45 l garðaprjón mitt á bakstykki (meðtaldar 3 l garðaprjón sem prjónaðar voru í hvorri hlið við hálsmál). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir þessar l er haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15 cm í öllum stærðum eru fitjaðar upp nýjar l fyrir handveg í lok hverrar umf þannig: Fitjið upp 1 l 1-2-3-3-2-2 sinnum, 2 l 0-1-1-1-2-3 sinnum og 3 l 0-0-0-1-2-3 sinnum = 73-81-87-97-107-119 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu og geymið stykkið. Stykkið mælist nú 16-17-18-19-20-21 cm frá öxl.

FRAMSTYKKI:
Prjónið vinstri öxl þannig:
Fitjið upp 17-18-19-21-21-22 l á hringprjóna nr 4,5 með Belle. Prjónið þannig (1. umf = rétta): Prjónið 3 l garðaprjón (= að hálsmáli), prjónið 13-14-15-17-17-18 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni (= að handveg). Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 7-8-7-8-8-8 cm aukið út um 1 l fyrir hálsmáli innan við 3 l garðaprjón við háls. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 4-4-5-5-6-6 sinnum til viðbótar = 22-23-25-27-28-29 l. Þegar öll útaukning hefur verið gerð er prjónuð 1 umf til baka frá röngu. Geymið stykkið. Prjónið hægri öxl þannig:
Fitjið upp og prjóni eins og vinstri öxl, nema spegilmynd. Þegar öll útaukning hefur verið ger fyrir hálsmáli eru 22-23-25-27-28-29 l á prjóni. Prjónið 1 umf til baka frá röngu. Snúið við og prjónið eins og áður yfir allar l. Í lok umf eru fitjaðar upp 27 nýjar l í öllum stærðum fyrir hálsmáli, prjónið síðan allar l frá vinstri öxl inn á prjóninn = 71-73-77-81-83-85 l.

Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og prjónið garðaprjón yfir miðju 33 l í öllum stærðum (= þær 27 nýju l sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli + 3 l hvoru megin við þær). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir miðju 33 l í öllum stærðum er haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 15 cm í öllum stærðum eru fitjaðar upp nýjar l fyrir handveg í lok hverrar umf við handveg alveg eins og á bakstykki, prjónið síðan 1 umf til baka frá röngu = 73-81-87-97-107-119 l. Stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm frá öxl.
Prjónið nú þannig: Prjónið sléttprjón yfir allar l á framstykki. Fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar l fyrir handveg, haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l á bakstykki, fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar l fyrir handveg. Nú eru 156-172-188-208-232-256 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið prjónamerki í hvora hlið á stykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið síðan stykkið í hring á hringprjóna. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið 1 umf í sléttprjóni, en endið 12-13-14-15-16-17 l á undan byrjun umf. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1 (= 10 l), A.2 (= 11 l), setjið eitt prjónamerki hér, prjónið sléttprjón yfir næstu 57-65-73-83-95-107 l, setjið eitt prjónamerki hér, A.1, A.2, setjið eitt prjónamerki hér, prjónið sléttprjón yfir þær 57-65-73-83-95-107 l sem eftir eru. ATH: Látið 4 prjónamerkin fylgja með í stykkinu svo auðveldara sé að skilja mynstureininguna með gatamynstri og sléttprjóni frá hvort öðru. Lykkjufjöldinn í sléttprjóni á fram- og bakstykki er haldið stöðugur og aukið er út l í mynstureiningu með gatamynstri í hliðum. Haldið svona áfram með mynstur þar til allt mynstrið A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Nú eru 200-216-232-252-276-300 l í umf og stykkið mælist ca 19 cm í öllum stærðum. Endurtakið síðan A.X á hæðina, JAFNFRAMT þar sem útaukning í mynstri heldur áfram eins og áður: Þ.e.a.s. gatamynstur á hvorri hlið er aukið út með 12 l og það verða 2 gataumferðir (1 gataröð = 1 úrtaka + 1 uppsláttur) fleiri í A.1 og A.2 í hvorri hlið í hvert skipti sem A.X. er prjónað til loka 1 sinni á hæðina. Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm nú eru ca 320-336-352-376-404-432 l í umf. Prjónið 1 umf sléttprjón. Prjónið síðan 4 umf garðaprjón. Fellið af.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna upp að ermakúpu, síðan er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 53-55-57-59-61-63 l á sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (1. l í umf er mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3-4-5-5-3-5 cm aukið út um 1 l hvoru megin við l mitt undir ermi (= 2 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 5½-4½-3½-3-2½-2 cm millibili alls 5-6-7-8-9-10 sinnum til viðbótar = 65-69-73-77-81-85 l. Þegar stykkið mælist 34-34-33-32-29-29 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), fellið af 5-5-7-7-9-9 l mitt undir ermi og ermin er prjónuð til loka fram og til baka. Fellið síðan af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: 2 l 4-4-4-4-3-3 sinnum og 1 l 2-3-3-3-3-8 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 42-43-43-43-43-44 cm. Fellið laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur! Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.09.2016
FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið síðan stykkið í hring á hringprjóna. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið 1 umf með sléttprjóni, en endið 12-13-14-15-16-17 l á undan byrjun umf.
Yfirfarið á vefsvæði: 11.10.2016
Leiðrétting í mynstri A.1

Mynstur

symbols = sl
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður sl svo að það myndist gat
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Lucy Ellen Matheson wrote:

When working the back (or front) I don't understand the armhole increases. I have 85 stitches and work measures 15cm. The instructions say to increase at the end of each row. If I only increase at the end of the row I increase by 17 stitches. The total stitches though should be 119 so this would be 17 plus 17. I conclude that this means I increase at the beginning and at the end of each row? Please clarify. I am very confused.

07.07.2022 - 14:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Matheson, you have to cast on new stitches at the end of every row, this means both from RS and from WS, so that you will have 1 st x 2 + 2 sts x 3 + 3 sts x 3 = 17 new sts on each side side=17+85+17=119 sts. Happy knitting!

07.07.2022 - 16:03

country flag Magda wrote:

Cześć, nadal ilość oczek mi nie pasuje. Robię rozmiar S. Tył i przód to 156 oczek, po przerobieniu. Po przerobieniu A1 i A2 ilość oczek zwiększa się o 10 na każdym boku., jak wynika ze schematu. Chyba, że trzeba przerobić schemat A1 i A2 włącznie z częścią AX. I dopiero od tego momentu powtarzać AX? Tak to należy rozumieć? Po przerobieniu kolejnych czterech schematów AX mam juz 42 cm, ale 296 oczek. Nie wiem czy robić dalej, czy wystarczyli włoczki?

30.08.2021 - 12:47

country flag Magda wrote:

Cześć, mam pytanie co do długości. Przerobiłam A1 i A2, a potem AX w sumie 5 razy. Długość robótki od podkroju rękawa to 41 cm i mam 276 oczek. Czy robić dalej, żeby uzyskać ok. 320 oczek?

26.08.2021 - 15:27

DROPS Design answered:

Witaj Magdo, ścieg ażurowy zwiększa się o 12 o. z każdej strony (24 o. w okrążeniu). Skoro po przerobieniu schematów A.1 i A.2 liczba oczek była poprawna, czyli 200, to po powtórzeniu 5 x schematu A.x powinnaś otrzymać 320 oczek: 200+(5x24). W twoim przypadku mogą być 2 przyczyny: 1. niewłaściwa liczba dodawanych oczek na bokach, 2. niezgodna próbka. Przymierz sweterek i zobacz jak będzie leżał. Jak nie jesteś zadowolona, trzeba będzie poprawiać, czyli niestety szukać błędu i pruć :( Pozdrawiamy!

27.08.2021 - 09:13

country flag Paige wrote:

I do not understand the instructions below, where to start on the chart the A1 and A2 patterns for the increase stitches. Do you start over on line one at the bottom of the chart? Then repeat A.X vertically AT THE SAME TIME continue inc in diagram as before: I.e. lace pattern in each side inc with 12 sts and there are 2 eyelet rows (1 eyelet row = 1 dec + 1 YO) more in A.1 and A.2 in each side every time A.X is worked 1 time vertically.

01.01.2021 - 20:16

DROPS Design answered:

Dear Paige, A.1 and A.2 are worked in the middle of the sides, the first stitch in A.2 is the middle stitch on the sides. When diagrams have been worked in height, repeat A.x, ie work lace pattern as shown in A.x (begin/end lace pattern as shown in diagram and increase on each side of the middle stitch (1st stitch in A.2) as shown in diagram. Happy knitting!

04.01.2021 - 14:39

country flag Manuela wrote:

Hallo vielen Dank, der Pullover ist wunderschön geworden.

21.10.2020 - 11:50

country flag Arlenproject wrote:

Pattern descritto piuttosto male (sia in italiano che in inglese); ho visto che altre si sono scontrate con i miei stessi problemi (p.es. continuazione del diag. AX). E poi non vedo la necessità di fare il capo top down dal momento che ci sono troppi tagli e riprese successive o cuciture. Per non dire della manica! Il bello del topdown è lavorare in circolare senza cuciture e senza sprecare filato. Spero che queste osservazioni possano essere costruttive per migliorare.

22.08.2020 - 16:49

country flag Manuela wrote:

Hilfe ich komme nicht weiter. Ich habe alle Maschen 232 auf der Nadel .A1 A2 bis AX ergibt gerechnet und gestrickt(wieder aufgetrennt) 252. Wo muss ich noch zunehmen um auf 276 M zu kommen?

15.07.2020 - 13:09

DROPS Design answered:

Liebe Manuela, Sie stricken die 232 M mit A.1, A.2 auf beiden Seiten = 11 M werden in jedem beiden A.1 und 11 M in jedem beiden A.2 zugenommen = 232 +(11+11)x2= 276 Maschen wenn beide A.x fertig in der Höhe sind. Viel Spaß beim stricken!

15.07.2020 - 16:06

country flag Manuela wrote:

Hallo, habe gerade diese schöne Stück in Arbeit. Die cm Angabe beim Vorderteil im letzten Absatz ist nicht richtig, da die Schulter schon 8 cm misst und dann noch die Zunahme am Ausschnitt. Das sind natürlich mehr als die 20 cm wie der Rücken. Freue mich auf den fertigen Pulli in malve. MfG Manuela

14.07.2020 - 09:17

country flag Joan wrote:

Hej jeg har fundet ud af det 😀i må undskylde dejligt man kan spørge jer 😊strikker altid efter jeres opskrifter Hilsen Joan

22.11.2019 - 12:09

DROPS Design answered:

Hej Joan, dejligt at høre :) Rigtig god fornøjelse!

03.12.2019 - 13:35

country flag Joan Vollertsen wrote:

Hvor skal jeg starte når udtagningen er taget ud til ærmegabet og jeg slutter efter Udtagningen og jeg er på forstokket ( stop 13 masker før ) men hvor..

14.11.2019 - 09:45

DROPS Design answered:

Hej Joan, jeg kan ikke finde hvor du er i opskriften. Skriv hvilken størrelse og hvor du er i opskriften, så skal vi prøve at hjælpe dig :)

21.11.2019 - 15:41