Mercy |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónuð aðsniðin peysa prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Cotton Light með blaðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 168-7 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir handveg á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið er út innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni með því að taka upp þráðinn í bili á milli 2 l, setjið þráðinn frá bili á prjóninn og prjónið þráðinn snúið slétt svo ekki myndist gat (= 1 l fleiri). ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og miðju undir ermi): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l fleiri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = byrjið frá röngu á hægra framstykki og prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman, sláið síðan uppá prjóninn. Fyrsta hnappagatið er fellt af í fyrstu umf frá röngu eftir að útaukning fyrir hálsmáli er lokið. Fellið síðan af 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagöt með 7-7½-8-7-7½-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður og prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á bakstykki, prjónið síðan framstykki áður en öll stykkin eru sett saman og prjónað áfram í eitt stykki til loka. Ermarnar eru prjónaðar hvor fyrir sig, ofan frá og niður. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 17-20-21-24-26-29 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4, prjónið br frá röngu þar til 2 l eru eftir á prjóni og endið á 2 l sl (= kantlykkja við handveg). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantlykkja við handveg), 6-0-1-4-6-0 l sléttprjón, prjónið síðan A.1 yfir næstu 9-18-18-18-18-27 l (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar 9 l). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm er fitjuð upp 1 ný l fyrir hálsmáli í lok næstu umf frá réttu. Prjónið til baka frá röngu eins og áður og fitjið síðan upp 34 nýjar l fyrir hálsmáli í lok næstu umf frá réttu = 52-55-56-59-61-64 l á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl að aftan. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp á sama hátt og á vinstri öxl að aftan og prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4, prjónið 2 fyrstu l slétt (= kantlykkjur við handveg) og prjónið br út umf. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 9-18-18-18-18-27 l (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar 9 l), prjónið 6- 0-1-4-6-0 l sléttprjón og endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm er fitjuð upp 1 ný l fyrir hálsmáli í lok næstu umf frá röngu = 18-21-22-25-27-30 l á prjóni. Prjónið 1 umf mynstur til baka frá réttu. BERUSTYKKI AÐ AFTAN: Setjið inn l frá vinstri og hægri öxl á sama hringprjóna nr 4 = 70-76-78-84-88-94 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir allar l með 2 kantlykkjum í garðaprjóni og 6-0-1-4-6-0 l sléttprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-16-15-15-15-14 cm prjónið næstu umf frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 6-0-1-4-6-0 l sléttprjón, prjónið A.2A einu sinni, prjónið A.2B yfir næstu 45-63-63-63-63-81 l (= 5-7-7-7-7-9 mynstureiningar 9 l), prjónið 6-0-1-4-6-0 l sléttprjón og endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 77-85-87-93-97-105 l á prjóni og nú er 1 l fleiri á milli hverra gataumferða. Haldið síðan áfram með A.3A yfir A.2A og A.3B yfir A.2B alveg eins. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-18-17-17-17-16 cm aukið út um 1 l fyrir handveg í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 2-2-5-7-8-11 sinnum – ATH: Útauknu l eru prjónaðar í sléttprjóni. Í fyrstu umf frá réttu eftir síðustu útaukningu eru fitjaðar upp 2-2-3-3-5-7 nýjar l í lok umf fyrir handveg. Endurtakið í næstu umf frá röngu = 85-93-103-113-123-141 l á prjóni. Geymið stykkið og prjónið framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 17-20-21-24-26-29 l á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Skiptið yfir í hringprjóna nr 4, prjónið br frá röngu þar til 2 l eru eftir á prjóni og endið á 2 l sl (= kantlykkjur við handveg). Næsta umf er prjónuð frá réttu: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantlykkjur við handveg), 6-0-1-4-6-0 l sléttprjón, prjónið síðan A.1 yfir næstu 9-18-18-18-18-27 l (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar 9 l). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 5-5-5-7-7-7 cm fitjið upp nýjar l fyrir hálsmáli í lok hverrar umf frá réttu þannig: Fitjið upp 1 l 4 sinnum, 2 l 3 sinnum og 13 l 1 sinni = 40-43-44-47-49-52 l. Haldið áfram með mynstur með 2 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg og 5 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan (nú er pláss fyrir 3-4-4-4-4-5 mynstureiningar af A.1). Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 15-16-15-15-15-14 cm næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 6-0-1-4-6-0 l sléttprjón, prjónið A.2B yfir næstu 27-36-36-36-36-45 l (= 3-4-4-4-4-5 mynstureiningar 9 l) og endið á 5 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni. Þegar A.2B hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 43-47-48-51-53-57 l á prjóni og það er nú 1 l sléttprjón fleir á milli hverra gataumferða. Haldið síðan áfram með A.3B yfir A.2B alveg eins. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-18-17-17-17-16 cm aukið út um 1 l fyrir handveg í hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 2-2-5-7-8-11 sinnum. Í fyrstu umf frá röngu á eftir síðustu útaukningu eru fitjaðar upp 2-2-3-3-5-7 nýjar l í lok umf fyrir handveg = 47-51-56-61-66-75 l á prjóni. Geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp eins og á hægra framstykki. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá rétu. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4, prjónið 2 fyrstu l slétt (= 1 kantlykkja við handveg) og prjónið br út umf. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 9-18-18-18-18-27 l (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar 9 l), prjónið 6-0-1-4-6-0 l sléttprjón og endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg. Haldið svona áfram með mynstur og prjónið síðan eins og á hægra framstykki, nema fitjið upp nýjar l fyrir hálsmáli í lok hverrar umf frá röngu (í stað hverrar umf frá réttu). Prjónið mynstur eftir mynstri A.2C (í stað A.2B) og haldið áfram með mynstur eftir A.3C (í stað A.3B). Aukið út fyrir handveg frá réttu og fitjið síðan upp 2-2-3-3-5-7 nýjar l fyrir handveg í lok næstu umf frá réttu. Prjónið 1 umf til baka frá röngu eins og áður. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið nú öll stykkin saman frá réttu á hringprjóna nr 4 þannig: Prjónið l frá vinstra framstykki (= 47-51-56-61-66-75 l), setjið 1 prjónamerki, prjónið l frá bakstykki (= 85-93-103-113-123-141 l), setjið 1 prjónamerki og prjónið l frá hægra framstykki (= 47-51-56-61-66-75 l) = 179-195-215-235-255-291 l á prjóni – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka með mynstri eftir mynsturteikningu A.3 og sléttprjón eins og áður og með 5 kantlykkjum við miðju að framan í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 2-2-2½-2½-3-3½ cm millibili alls 7-6-6-6-6-5 sinnum = 151-171-191-211-231-271 l. Þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm (allt stykkið mælist ca 33-35-37-39-41-43 cm frá öxl) takið þá prjónamerkin frá. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.4A (= 11 l), endurtakið A.4B yfir næstu 120-140-160-180-200-240 l (= 12-14-16-18-20-24 mynstureiningar 10 l), prjónið A.4C (= 10 l) og endið á 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (A.4 sem nær yfir allar l koma nú einnig til með að passa við gataumferðina í A.3 á fram og bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út eins og sýnt er í mynstri. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 207-235-263-291-319-375 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.5A (= 15 l), endurtakið A.5B yfir næstu 168-196-224-252-280-336 l (= 12-14-16-18-20-24 mynstureiningar 14 l), prjónið A.5C (= 14 l) og endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 65-67-69-71-73-75 cm frá öxl. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 3 umf stroff (= 1 l sl, 1 l br) með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og 1 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Fellið síðan laust af með sl yfir sl og br yfir br. Peysan mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl. ERMI: Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, síðan er ermin prjónuð í hring á sokkaprjóna til loka. Fitjið upp 23-25-27-31-33-37 l á hringprjóna nr 4 með Cotton Light. Setjið 1 prjónamerki í miðju-l í umf. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið sléttprjón fram og til baka og fitjið upp nýja l fyrir ermakúpu í lok hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 l 1-1-2-5-4-3 sinnum, 2 l 7-8-6-1-1-0 sinnum, 1 l 4-3-5-7-9-14 sinnum og 2-2-3-3-5-7 l 1 sinni = 69-73-79-85-89-97 l á prjóni (stykkið mælist ca 9-9-10-10-11-13 cm). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er prjónað mynstur eftir mynsturteikningu A.6 yfir miðju 17 l (l með prjónamerki í á að passa við miðju-l í mynstri – aðrar l eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar ermakúpan er búin er skipt yfir á sokkaprjóna nr 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi) og haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.6 yfir miðju l. Þegar A.6 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er A.1 prjónað yfir miðju 5 l til loka (aðrar l halda áfram í sléttprjóni). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-12-13-13-14-16 cm er fækkað um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2½-2½-2-2-2-1½ cm millibili alls 15-16-17-19-20-23 sinnum = 39-41-45-47-49-51 l. Þegar stykkið mælist 56-55-55-55-55-55 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri berustykkis) skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan og fellið laust af með sl, ermin mælist ca 57-56-56-56-56-56 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkant. Leggið ermina ca ½ cm inn undri kant í garðaprjóni meðfram handveg og saumið niður þannig að kantur í garðaprjóni sjáist ekki. Endurtakið í hinni hliðinni. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 110 til 116 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er laust af með sl frá réttu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (74)
Diane Csukai wrote:
At the beginning of the pattern left and right shoulder back k1 row from right side and 1 tow from wrong side, which chart am I using, or is it garter stitch?
22.07.2021 - 18:37DROPS Design answered:
Dear Mrs Csukai, you are not using diagrams at this step, you just knit 2 rows (first one is a wrong side row and 2nd one is a right side row = 1 ridge in garter stitch), then on 3rd row = from WS, purl all stiches and finish with K2, then start working as established with diagram A.1 on next row from RS. Happy knitting!
23.07.2021 - 08:24Chantal Coulon wrote:
Bonjour Je n'ai toujours pas de réponse. Je fais quoi avec mon travail inachevé?
22.06.2021 - 17:04DROPS Design answered:
Bonjour Mme Coulon, nous sommes désolés, nous n'avons eu aucun autre retour à présent sur la quantité pour ce modèle avec une tension correcte à la fois en largeur et en hauteur (quelque soit la taille des aiguilles) mais avons bien noté votre remarque. Bonne continuation!
23.06.2021 - 08:27Chantal Coulon wrote:
Bonjour. Suite à votre réponse du 25 /05/21 J'ai bien achetée la laine du modèle en taille L 12 pelotes de drops cotton night 22 brun . Avec aiguille 4 .
10.06.2021 - 15:45Chantal Coulon wrote:
Bonjour. Suite à votre réponse du 25 /05/21 J'ai bien achetée la laine du modèle en taille L 12 pelotes de drops cotton night 22 brun .
10.06.2021 - 15:43Coulon Chantal wrote:
Bonjour . j'ai commandée ce model le 20 03 2021 en taille L donc 12 pelotes . je ne peut pas le finir il me manque de la laine pour 5cm de manche et le col .
22.05.2021 - 17:19DROPS Design answered:
Bonjour Mme Coulon, aviez-vous bien le bon échantillon en largeur mais aussi en hauteur? autrement dit 21 m x 28 rangs jersey = 10 x 10 cm avec les aiguilles 4?
25.05.2021 - 07:39Marisa Olivieri wrote:
Cortesemente si potrebbe avere la spiegazione cominciando dal basso verso l'alto?
30.03.2021 - 16:16DROPS Design answered:
Buonasera Marisa, questo modello è stato progettato per essere lavorato dall'alto in basso, ma sul nostro sito può trovare tanti altri modelli gratuiti lavorati dal basso verso l'alto. Buon lavoro!
30.03.2021 - 23:49Gunillac wrote:
Jag har stickat det här mönstret och med rätt garn. Jag stickade i S och det fattas 1 nystan. Jag har ett halvt varv innan resåren +resår kvar. (6 varv) Det har hänt mig med ett annat mönster från Drops för 2 veckor sen. Ska man behöva skicka efter +1 garn hela tiden?
24.02.2021 - 07:39DROPS Design answered:
Hej Gunilla, Vi har ikke fået nogle andre kommentarer om at der skal være for lidt garn til dette mønster. Vi takker for din information og skal se på garnforbruget. God weekend!
05.03.2021 - 13:29Pam Dale wrote:
When starting the decrease on the sleeves do I measure from mid under sleeve and not from the cap? Thanks
12.10.2020 - 17:39DROPS Design answered:
Hi Pam, You measure from the top of the cap. Happy knitting!
13.10.2020 - 07:18Pam Dale wrote:
Thank you for your prompt response to my previous question. I have another question... where i do the increases for the armhole (when the piece measures 18cm) I understand how to do the increase (after the first two edge stitches) but should I be doing an increase each side RS and WS over 6 rows?
15.09.2020 - 18:09DROPS Design answered:
Dear Mrs Dale, the increases for armholes (starting at 18 cm) are worked inside 2 garter stitches on each side - see DECREASE TIP at the beg of the pattern, in size M you work these a total of 2 times on every other row = 2 times on 2 right side row (separated by 1 WS row between both increases) = you increase 4 sts in total, 2 sts on each side. Then at the end of next RS row after last increase, cast on 2 sts at the end of the row (= RS row), turn and cast on 2 sts at the end of this row (WS) = you have now 93 sts (83 + 2x2 sts inc + 2 x 2 sts cast on). Happy knitting!
16.09.2020 - 09:18Pam Dale wrote:
I have just started this pattern and would like to know on the yoke at the back where it says ‘when piece measures 15cm’ where am I measuring this from? Is it the top of the shoulder or the neckline? Thanks
14.09.2020 - 13:23DROPS Design answered:
Dear Pam Dale, mesure from the cast on row from one of both shoulders. Happy knitting!
14.09.2020 - 13:41