DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Charlotte Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Paris með gatamynstri, laskalínu og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 168-9
DROPS Design: Mynstur nr w-588
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
400-400-450-500-550-600 g nr 100, ljós þveginn

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf sléttprjón verði 10 x 10 cm
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5
DROPS PERLUTALA, bogalaga (hvít) NR 522: 6-6-7-7-7-7 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið l frá réttu þannig: Byrjið 3 l á undan l með prjónamerki: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið l frá röngu þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki: 2 l snúnar brugðið saman, 2 l br (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), 2 l brugðið saman.

LEIÐBEININGAR:
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of stíft þá kemur laskalínan til með að verða of stutt og handvegur of lítill.
Þetta er hægt að jafna út með því að prjóna 1 auka umf án úrtöku með jöfnu millibili á milli úrtöku.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. l frá miðju að framan slétt saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 5, 13, 21, 30, 39 og 48 cm.
STÆRÐ M: 5, 14, 23, 32, 41 og 50 cm.
STÆRÐ L: 4, 12, 20, 28, 36, 44 og 52 cm.
STÆRÐ XL: 4, 12, 20, 28, 36, 45 og 54 cm.
STÆRÐ XXL: 4, 12, 20, 29, 38, 47 og 56 cm.
STÆRÐ XXXL: 4, 13, 22, 31, 40, 49 og 58 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

PEYSA:
Fitjið upp 155-171-183-199-219-239 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú frá réttu þannig: 5 l garðaprjón, 2 l br, A.1 (= 5 l), 2 l br, sléttprjón yfir næstu 48-56-62-70-73-83 l, * 2 l br, A.1*, endurtakið frá *-* alls 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 l br, A.2 (= 13 l), 2 l br, *A.1, 2 l br,* endurtakið frá *-* alls 1-1-1-1-2-2 sinnum, sléttprjón yfir næstu 48-56-62-70-73-83 l, 2 l br, A.1, 2 l br og 5 l garðaprjón. Þær 5 l garðaprjón í hvorri hlið = kantur að framan. Kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka. Haldið áfram með þetta mynstur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 41-45-48-52-57-62 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 73-81-87-95-105-115 l). Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin, endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 4 sinnum til viðbótar – lesið ÚRTAKA = 135-151-163-179-199-219 l. Þegar stykkið mælist 21 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 6 -6-7-7-8-8 cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 147-163-175-191-211-231 l. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm (í einni umf frá réttu) fellið af 6 l í hvorri hlið (= 3 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið), aðrar l eru prjónaðar eins og áður = 135-151-163-179-199-219 l.

KANTUR ERMI:
Fitjið upp 52-56-60-62-66-70 l á sokkaprjóna nr 5 með Paris. Prjónið 4 umf garðaprjón, síðan er prjónað sléttprjón þar til stykkið mælist 3 cm. Fellið af 6 l mitt undir ermi = 46-50-54-56-60-64 l.
Prjónið annan kant á ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 227-251-271-291-319-347 l á prjón. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni og mynstur eins og áður, jafnframt sem í næstu umf er lykkjum er fækkað fyrir laskalínu í hverja af 4 skiptingunum á milli fram- og bakstykkis og erma (þ.e.a.s. 8 úrtökur í hverjum úrtökuhring) – LESIÐ ÚRTAKA og LEIÐBEININGAR! Fækkið lykkjum í annarri hverri umf 16-16-16-17-18-18 sinnum, síðan í hverri umf 0-2-4-4-5-7 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 99-107-111-123-135-147 l í umf. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 6-11-12-22-31-40 l jafnt yfir = 93-96-99-101-107 l. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 4 l slétt saman
symbols = 4 l snúnar slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Cristina Borghetti wrote:

Buongiorno, Le diminuzioni del corpo sono 20. Vanno distribuite uniformemente su tutta la lunghezza? Grazie

23.05.2023 - 16:27

DROPS Design answered:

Buonasera Cristina, le prime diminuzioni si lavorano quando il lavoro misura 5 cm, poi ogni 3 cm altre 4 volte. Buon lavoro!

23.05.2023 - 21:59

country flag Lori wrote:

I have tried five times to get the sleeve onto the body. Please help me!!! I don’t want to waste all my work and time and not finish this cardigan. I’m trying to put the sleeve on from the wrong side and it just is not working. Do I need to slip it on to left needle first??? HELP 😳

02.09.2022 - 23:29

DROPS Design answered:

Dear Lori, you need to have all of the pieces in the same row of the pattern and ended on the wrong side. Now, start working with the left front and in the space cast off for the armhole you put the stitches of one of the sleeves, and work on the wrong side. Next, work the back piece and repeat in the other armhole as for the first sleeve. Finish working the right front piece. Happy knitting!

04.09.2022 - 22:55

country flag Susy wrote:

Help!!! I have almost finished the Charlotte cardigan in Paris colour 100 but can't find dyelot 695 anywhere as I need 2 more balls to finish.

19.06.2022 - 13:22

DROPS Design answered:

Dear Susy, you may ask on our social media or contact our DROPS stores to see if anyone has any stock of this dye lot left. We don't have any information regarding the stock of specific dye lots. Happy knitting!

19.06.2022 - 16:58

country flag Ingrid Ehret wrote:

Hall?o, möchte gerne das Modell stricken, möchte dies aber mit einem dünneren Garn stricken, kann ich dann einfach eine größere Größe nehmen, passt dies dann auch, normal habe ich L jetzt würde ich XXL nehmen. Passt dies dann auch

27.05.2022 - 08:12

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ehret, wenn Sie ein dünneres Garn benutzen, wird Ihre Maschenprobe unterschiedlich in der Breite sowie in der Höhe, dann sollen Sie die ganze Anleitung neu anpassen - Hier lesen Sie mehr. Am besten suchen Sie sich ein Modell mit der gewünschten Maschenprobe. Viel Spaß beim stricken!

27.05.2022 - 09:13

country flag Maria Winter wrote:

Hei , Bilde som viser cardigan i oppskriften, i hvilken størrelse er den strikket? Eg vil prøve ã strikke A1 de 2 ganger som angitt p størrelse xxl og xxxl. Eg strikker st. L. Går d an? vh Marij

09.05.2022 - 18:43

country flag Susy wrote:

I echo the question of another knitter. I cannot for the life of me see how to add the sleeves to the Charlotte cardigan nor do I understand the term in the pattern ' Now cast off 6 sts mid under sleeve'. Please can you clarify and please, please do a video showing how to add the sleeves as I think we would all benefit!

24.03.2022 - 11:01

DROPS Design answered:

Dear Susy, to cast off the 6 stitches mid under sleeve, work the last round as follows from marker mid at the beginning of the round: cast off 3 sts, work as before until 3 sts remain, cast off the last 3 sts (= 6 sts cast off mid under sleeve). When working yoke, slip the sleeves on the same circular needle as front and back pieces, the 6 sts cast off on sleeve towards the 6 sts cast off on body - see video. Happy knitting!

24.03.2022 - 11:52

country flag Jane wrote:

I am really struggling to fit the sleeve into the Charlotte cardigan. I have watched the video but it is not helpful to me. I am trying to fit the sleeve in on a wrong side row. I can’t see how it can be otherwise. I cast off on the r/s and then place sleeve on ws. But it looks like the sleeve will be back to front. Please clarify for me. Many thanks.

11.03.2022 - 13:30

DROPS Design answered:

Dear Jane, for the sleeve, you need to cast off the 6 stitches under the arm, on the right side. Then you put all pieces together on the wrong side. First the front, then the sleeve, then the back and the other front. So, when looking at them from the right side, all pieces will be on the right side. Happy knitting!

11.03.2022 - 18:17

country flag Susy wrote:

In the Charlotte cardigan diagram A1, does it read K2 tog, YO, YO, S1? As 'S1 st as if to K, K1, psso', is a confusing way to explain it. Thank you.

11.02.2022 - 01:32

DROPS Design answered:

Hi Susy, Row 3 is: Knit 2 together, 1 yarn over, knit 1, 1 yarn over, then slip 1 stitch, knit 1 and pass the slipped stitch over the knitted stitch (this is more than just slipping 1 stitch). Hope this helps. Happy knitting!

11.02.2022 - 07:56

country flag Lori wrote:

I want to make this cardigan about two inches longer in the size XXL. How much additional yarn should i get and how should I adjust the pattern to start as well as the button hole placement?

12.07.2021 - 05:25

DROPS Design answered:

Dear Lori, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, please contact your yarn store (even per mail or telephone) for any individual assistance, thank you for your comprehension. Happy knitting!

12.07.2021 - 08:13

country flag Sins Carmen wrote:

Je ne trouve pas les diagrammes de ce modèle ??

16.03.2021 - 13:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sins, nous rencontrons actuellement des problèmes de chargement des images sur notre site et faisons notre maximum pour tout remettre en ordre le plus vite possible. Merci pour votre compréhension et patience.

16.03.2021 - 14:42