Jacqueline Westerink skrifaði:
In telpatroon 4A, 4B en 4C ontbreekt in toer 49 : 1r afh, 2r samen, afgeh st overh.
17.03.2025 - 13:39
Mieke Baras skrifaði:
Zou het kunnen dat er in patronen A4B en A4C op n 49 een foutje is geslopen? Er is geen samenbreien van 2 re aan het begin van deze motieven. Dank!
16.03.2025 - 12:10
Mieke Baras skrifaði:
De steken die je voor het armsgat bijzet voor rug en voorpand, in maat XL, dus telkens 3 extra steken aan elke kant ( ik brei een trui hiervan ipv een vest), moeten die in tricot gebreid worden of in ribbelsteken? Aangezien alle delen op 1 rondbreinaald komen, veronderstel ik dat het in tricot moet?
10.03.2025 - 16:58DROPS Design svaraði:
Dag Mieke,
Ja, die steken brei je inderdaad in tricotsteek (recht aan de goede kant).
12.03.2025 - 10:24
Sylvia skrifaði:
Det er helt korrekt at i række 49 er 15 masker i hvert rapport når alle udtagninger er med. Jeg har strikket række 49 magen til række 23. Det giver en fint overgang og burde ændres i opskriften, da samme kommentar/spørgsmål også kom fra andre.
01.03.2025 - 10:43DROPS Design svaraði:
Hej Sylvia, tak for info, vi skal få lavet en opdatering :)
06.03.2025 - 14:18
Sylvia skrifaði:
Som Bea skrev den 26.11. er helt korrekt. I række 49 er der 15 masker i hvert rapport, ellers passer mønster hertil med alle udtagninger. Når der strikkes række 49 magen til række 23, giver det en pænt overgang og masker passer i rapport.
01.03.2025 - 10:31
Mieke Baras skrifaði:
Zet ik dan voor het voorpand hetzelfde aantal steken op als voor het achterpand? De halsuitsnijding voor het linker en rechter voorpand tel ik dan op?
18.02.2025 - 16:51DROPS Design svaraði:
Dag Mieke,
Ja, je zet hetzelfde aantal steken op als het achterpand. Bij het vest heb je een knoopbies, houd daar rekening mee bij het bepalen van de steken voor de hals.
19.02.2025 - 09:08
Mieke Baras skrifaði:
Wat moet ik aanpassen indien ik dit vest wil breien als een trui? Het voorpand zoals het achterpand breien?
11.02.2025 - 17:23DROPS Design svaraði:
Dag Mieke,
Ja, dat zou je kunnen doen, maar misschien wil je de hals ook wat lager maken op het voorpand.
11.02.2025 - 20:39
Jaak Erlich - Chris De Bie skrifaði:
Kan ik dit patroon niet verkrijgen om gewoon met 2 naalden te breien ipv rondbreinaald want daar kan ik niet mee werken, mvg Chris
26.11.2024 - 10:43
Bea skrifaði:
Hallo liebes Team, die Anleitung ist wirklich gut, aber in Reihe 49 des Musters A4b und A4c sind je 2 Umschläge, aber nur einmal werden 2 Maschen zusammen gestrickt. So habe ich nicht 14 Maschen sondern 15. Es kann sich doch nur um einen Fehler handeln? Vielen Dank für Ihre Antwort!
04.08.2024 - 18:47DROPS Design svaraði:
Liebe Bea, es wird insgesamt nur 4 Maschen in A.4B und in A.4C zugenommen (bei der 3., 5. 43. und 47. Reihe), so sollen Sie 14 M in jedem Rapport haben. Viel Spaß beim Stricken!
05.08.2024 - 08:03
Mirkku skrifaði:
Mahtaakohan kaaviossa A4 olla virhe rivillä 47?Vain yksi silmukka lisätään koko rivillä joten lopullinen silmukkamäärä ei täsmää
12.05.2024 - 12:03DROPS Design svaraði:
Hei, tähän ohjeeseen tehdään pian korjaus. Tee piirrosten A.4A, A.4B ja A.4C 47.kerroksella lisäykset samalla tavalla kuin piirrosten 5.kerroksella (mallikertojen ulkoreunoissa).
24.05.2024 - 13:56
Mercy#mercycardigan |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónuð aðsniðin peysa prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Cotton Light með blaðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 168-7 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir handveg á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið er út innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni með því að taka upp þráðinn í bili á milli 2 l, setjið þráðinn frá bili á prjóninn og prjónið þráðinn snúið slétt svo ekki myndist gat (= 1 l fleiri). ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og miðju undir ermi): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l fleiri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = byrjið frá röngu á hægra framstykki og prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman, sláið síðan uppá prjóninn. Fyrsta hnappagatið er fellt af í fyrstu umf frá röngu eftir að útaukning fyrir hálsmáli er lokið. Fellið síðan af 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagöt með 7-7½-8-7-7½-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður og prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á bakstykki, prjónið síðan framstykki áður en öll stykkin eru sett saman og prjónað áfram í eitt stykki til loka. Ermarnar eru prjónaðar hvor fyrir sig, ofan frá og niður. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 17-20-21-24-26-29 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4, prjónið br frá röngu þar til 2 l eru eftir á prjóni og endið á 2 l sl (= kantlykkja við handveg). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantlykkja við handveg), 6-0-1-4-6-0 l sléttprjón, prjónið síðan A.1 yfir næstu 9-18-18-18-18-27 l (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar 9 l). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm er fitjuð upp 1 ný l fyrir hálsmáli í lok næstu umf frá réttu. Prjónið til baka frá röngu eins og áður og fitjið síðan upp 34 nýjar l fyrir hálsmáli í lok næstu umf frá réttu = 52-55-56-59-61-64 l á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl að aftan. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp á sama hátt og á vinstri öxl að aftan og prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4, prjónið 2 fyrstu l slétt (= kantlykkjur við handveg) og prjónið br út umf. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 9-18-18-18-18-27 l (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar 9 l), prjónið 6-0-1-4-6-0 l sléttprjón og endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm er fitjuð upp 1 ný l fyrir hálsmáli í lok næstu umf frá röngu = 18-21-22-25-27-30 l á prjóni. Prjónið 1 umf mynstur til baka frá réttu. BERUSTYKKI AÐ AFTAN: Setjið inn l frá vinstri og hægri öxl á sama hringprjóna nr 4 = 70-76-78-84-88-94 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir allar l með 2 kantlykkjum í garðaprjóni og 6-0-1-4-6-0 l sléttprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-16-15-15-15-14 cm prjónið næstu umf frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 6-0-1-4-6-0 l sléttprjón, prjónið A.2A einu sinni, prjónið A.2B yfir næstu 45-63-63-63-63-81 l (= 5-7-7-7-7-9 mynstureiningar 9 l), prjónið 6-0-1-4-6-0 l sléttprjón og endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 77-85-87-93-97-105 l á prjóni og nú er 1 l fleiri á milli hverra gataumferða. Haldið síðan áfram með A.3A yfir A.2A og A.3B yfir A.2B alveg eins. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-18-17-17-17-16 cm aukið út um 1 l fyrir handveg í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 2-2-5-7-8-11 sinnum – ATH: Útauknu l eru prjónaðar í sléttprjóni. Í fyrstu umf frá réttu eftir síðustu útaukningu eru fitjaðar upp 2-2-3-3-5-7 nýjar l í lok umf fyrir handveg. Endurtakið í næstu umf frá röngu = 85-93-103-113-123-141 l á prjóni. Geymið stykkið og prjónið framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 17-20-21-24-26-29 l á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Skiptið yfir í hringprjóna nr 4, prjónið br frá röngu þar til 2 l eru eftir á prjóni og endið á 2 l sl (= kantlykkjur við handveg). Næsta umf er prjónuð frá réttu: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantlykkjur við handveg), 6-0-1-4-6-0 l sléttprjón, prjónið síðan A.1 yfir næstu 9-18-18-18-18-27 l (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar 9 l). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 5-5-5-7-7-7 cm fitjið upp nýjar l fyrir hálsmáli í lok hverrar umf frá réttu þannig: Fitjið upp 1 l 4 sinnum, 2 l 3 sinnum og 13 l 1 sinni = 40-43-44-47-49-52 l. Haldið áfram með mynstur með 2 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg og 5 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan (nú er pláss fyrir 3-4-4-4-4-5 mynstureiningar af A.1). Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 15-16-15-15-15-14 cm næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 6-0-1-4-6-0 l sléttprjón, prjónið A.2B yfir næstu 27-36-36-36-36-45 l (= 3-4-4-4-4-5 mynstureiningar 9 l) og endið á 5 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni. Þegar A.2B hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 43-47-48-51-53-57 l á prjóni og það er nú 1 l sléttprjón fleir á milli hverra gataumferða. Haldið síðan áfram með A.3B yfir A.2B alveg eins. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-18-17-17-17-16 cm aukið út um 1 l fyrir handveg í hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 2-2-5-7-8-11 sinnum. Í fyrstu umf frá röngu á eftir síðustu útaukningu eru fitjaðar upp 2-2-3-3-5-7 nýjar l í lok umf fyrir handveg = 47-51-56-61-66-75 l á prjóni. Geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp eins og á hægra framstykki. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá rétu. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4, prjónið 2 fyrstu l slétt (= 1 kantlykkja við handveg) og prjónið br út umf. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 9-18-18-18-18-27 l (= 1-2-2-2-2-3 mynstureiningar 9 l), prjónið 6-0-1-4-6-0 l sléttprjón og endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg. Haldið svona áfram með mynstur og prjónið síðan eins og á hægra framstykki, nema fitjið upp nýjar l fyrir hálsmáli í lok hverrar umf frá röngu (í stað hverrar umf frá réttu). Prjónið mynstur eftir mynstri A.2C (í stað A.2B) og haldið áfram með mynstur eftir A.3C (í stað A.3B). Aukið út fyrir handveg frá réttu og fitjið síðan upp 2-2-3-3-5-7 nýjar l fyrir handveg í lok næstu umf frá réttu. Prjónið 1 umf til baka frá röngu eins og áður. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið nú öll stykkin saman frá réttu á hringprjóna nr 4 þannig: Prjónið l frá vinstra framstykki (= 47-51-56-61-66-75 l), setjið 1 prjónamerki, prjónið l frá bakstykki (= 85-93-103-113-123-141 l), setjið 1 prjónamerki og prjónið l frá hægra framstykki (= 47-51-56-61-66-75 l) = 179-195-215-235-255-291 l á prjóni – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka með mynstri eftir mynsturteikningu A.3 og sléttprjón eins og áður og með 5 kantlykkjum við miðju að framan í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 2-2-2½-2½-3-3½ cm millibili alls 7-6-6-6-6-5 sinnum = 151-171-191-211-231-271 l. Þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm (allt stykkið mælist ca 33-35-37-39-41-43 cm frá öxl) takið þá prjónamerkin frá. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.4A (= 11 l), endurtakið A.4B yfir næstu 120-140-160-180-200-240 l (= 12-14-16-18-20-24 mynstureiningar 10 l), prjónið A.4C (= 10 l) og endið á 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (A.4 sem nær yfir allar l koma nú einnig til með að passa við gataumferðina í A.3 á fram og bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út eins og sýnt er í mynstri. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 207-235-263-291-319-375 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.5A (= 15 l), endurtakið A.5B yfir næstu 168-196-224-252-280-336 l (= 12-14-16-18-20-24 mynstureiningar 14 l), prjónið A.5C (= 14 l) og endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 65-67-69-71-73-75 cm frá öxl. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 3 umf stroff (= 1 l sl, 1 l br) með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og 1 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Fellið síðan laust af með sl yfir sl og br yfir br. Peysan mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl. ERMI: Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, síðan er ermin prjónuð í hring á sokkaprjóna til loka. Fitjið upp 23-25-27-31-33-37 l á hringprjóna nr 4 með Cotton Light. Setjið 1 prjónamerki í miðju-l í umf. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið sléttprjón fram og til baka og fitjið upp nýja l fyrir ermakúpu í lok hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 l 1-1-2-5-4-3 sinnum, 2 l 7-8-6-1-1-0 sinnum, 1 l 4-3-5-7-9-14 sinnum og 2-2-3-3-5-7 l 1 sinni = 69-73-79-85-89-97 l á prjóni (stykkið mælist ca 9-9-10-10-11-13 cm). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er prjónað mynstur eftir mynsturteikningu A.6 yfir miðju 17 l (l með prjónamerki í á að passa við miðju-l í mynstri – aðrar l eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar ermakúpan er búin er skipt yfir á sokkaprjóna nr 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi) og haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.6 yfir miðju l. Þegar A.6 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er A.1 prjónað yfir miðju 5 l til loka (aðrar l halda áfram í sléttprjóni). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-12-13-13-14-16 cm er fækkað um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2½-2½-2-2-2-1½ cm millibili alls 15-16-17-19-20-23 sinnum = 39-41-45-47-49-51 l. Þegar stykkið mælist 56-55-55-55-55-55 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri berustykkis) skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan og fellið laust af með sl, ermin mælist ca 57-56-56-56-56-56 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkant. Leggið ermina ca ½ cm inn undri kant í garðaprjóni meðfram handveg og saumið niður þannig að kantur í garðaprjóni sjáist ekki. Endurtakið í hinni hliðinni. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 110 til 116 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er laust af með sl frá réttu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mercycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.