DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Brushed Alpaca Silk yarn
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3155.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Pink Connection Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk með gatamynstri, hringlaga berustykki og klauf í hlið. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 167-12

#pinkconnectioncardigan

DROPS Design: Mynstur nr as-056
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
125-150-150-175-175-200 g nr 12, dauf bleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – fyrir kant með garðaprjón.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 6-6-6-6-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3155.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð). Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir gat.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 2 l sl.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 2 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 10, 18, 26, 34 og 42 cm
STÆRÐ M: 2, 10, 18, 27, 36 og 45 cm
STÆRÐ L: 2, 11, 20, 29, 38 og 47 cm
STÆRÐ XL: 2, 11, 20, 29, 38 og 48 cm
STÆRÐ XXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm
STÆRÐ XXXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 51 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 103-115-119-131-137-149 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og aukið út 16-16-24-24-30-30 l jafnt yfir í síðustu umf – LESIÐ ÚTAUKNING = 119-131-143-155-167-179 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, endurtakið A.1 (= 12 l) yfir næstu 108-120-132-144-156-168 l (= 9-10-11-12-13-14 sinnum á breiddina), prjónið fyrstu l í A.1 (þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins í báðum hliðum á stykki), endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 227-251-275-299-323-347 l á prjóni. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm. Prjónið 1 umf slétt frá réttu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út um 12-4-4-4-4-4 l jafnt yfir (ATH: Aukið ekki út yfir l í kanti að framan) = 239-255-279-303-327-351 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 33-35-40-44-48-53 l sléttprjón, setjið næstu 50-54-56-60-64-66 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 8 l, prjónið 64-68-78-86-94-104 l sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 50-54-56-60-64-66 l á annan þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 8 l, prjónið 32-34-39-43-47-52 l sléttprjón, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 155-163-183-199-215-235 l.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki í hliðum (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku með 6-12-6-7-7-18 cm millibili 2-1-2-2-2-1 sinnum til viðbótar = 143-155-171-187-203-227 l. Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki í hliðum (= 4 l fleiri), endurtakið útaukningu í 3. hverjum cm 2 sinnum til viðbótar = 155-167-183-199-215-239 l. Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm frá prjónamerki, prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki, 8 l garðaprjón, sléttprjón þar til 4 l eru eftir á undan næsta prjónamerki, 8 l garðaprjón, sléttprjón þar til 5 l eru eftir, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umf garðaprjón yfir 4 l hvoru megin við hvort prjónamerki er bakstykki og framstykki prjónað til loka fyrir sig (þ.e.a.s. stykkið skiptist við prjónamerki).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 41-44-48-52-56-62 l. Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjóni þar til 4 l eru eftir, endið á 4 l garðaprjón. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-40 cm (nú eru ca 5 cm eftir) frá prjónamerki er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, endurtakið A.2 (= 3 l) þar til 5 l eru eftir JAFNFRAMT er aukið út um 2-2-1-0-2-2 l jafnt yfir í fyrstu umf, endið á 1 l sléttprjón og 4 l garðaprjón = 43-46-49-52-58-64 l. Fellið af þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm alls.

BAKSTYKKI:
= 72-78-86-94-102-114 l. Prjónið sléttprjón með 4 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-40 cm frá prjónamerki er prjónað frá réttu þannig: 4 l garðaprjón, endurtakið A.2 þar til 5 l eru eftir JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-1-2-0-0 l jafnt yfir í fyrstu umf, endið á 1 l sléttprjón og 4 l garðaprjón = 72-78-87-96-102-114 l. Fellið af þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm alls.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 42-45-49-53-57-63 l. Prjónið frá réttu þannig: 4 l garðaprjón, sléttprjón þar til 5 l eru eftir, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-40 cm frá prjónamerki er prjónað frá réttu þannig: 4 l garðaprjón, prjónið A.2 þar til 6 l eru eftir JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til alls 43-46-49-52-58-64 l, endið á 1 l sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 43-46-49-52-58-64 l. Fellið af þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm alls.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka 50-54-56-60-64-66 l af þræði á sokkaprjóna nr 5. Fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa 8 l = 58-62-64-68-72-74 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið úrtöku með 3-3-3-2½-2-2 cm millibili 10-10-10-12-13-14 sinnum til viðbótar = 36-40-42-42-44-44 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 41-41-40-39-39-38 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), jafnið út lykkjufjöldann til alls 36-39-42-42-45-45 l í næstu umf. Prjónið nú A.2 alls 12-13-14-14-15-15 sinnum hringinn. Fellið af þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.10.2016
Leiðrétting: Nýtt mynstur A.1 í stærð XXL-XXXL
Yfirfarið á vefsvæði: 30.08.2019
Leiðrétting: Uppslátt vantaði í mynstri A.1 í stærð S-M.

Mynstur

sl frá réttu, br frá röngu = sl frá réttu, br frá röngu
br frá réttu, sl frá röngu = br frá réttu, sl frá röngu
2 l slétt saman = 2 l slétt saman
takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er EKKI prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er EKKI prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt
sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt
takið 2 l saman laust af prjóninum eins og prjóna eigi þær sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = takið 2 l saman laust af prjóninum eins og prjóna eigi þær sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir - ATH: Þessi er ekki prjónuð í fyrstu og síðustu endurtekningu í mynstri = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir - ATH: Þessi er ekki prjónuð í fyrstu og síðustu endurtekningu í mynstri
2 l slétt saman - ATH: Þessi er ekki prjónuð í fyrstu og síðustu endurtekningu í mynstri = 2 l slétt saman - ATH: Þessi er ekki prjónuð í fyrstu og síðustu endurtekningu í mynstri
sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er EKKI prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt - ATH: Ekki er slegið uppá prjóninn í fyrstu og síðustu endurtekningu í mynstri = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er EKKI prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt - ATH: Ekki er slegið uppá prjóninn í fyrstu og síðustu endurtekningu í mynstri
Diagram for DROPS 167-12
Diagram for DROPS 167-12
Diagram for DROPS 167-12
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Maeve skrifaði:

Dia dhuit, when it says slip 2, k1, psso - do you pass both slipped stitches over or just one?

18.03.2019 - 21:09

DROPS Design svaraði:

Dear Maeve, yes you will pass over the 2 slipped sts - see video below. Happy knitting!

19.03.2019 - 10:29

country flag Dolinda Wienese skrifaði:

Eigenlijk een algemene vraag, soms zie ik dat er verbeteringen zijn in een patroon, als ik nu naar een patroon kijk zijn die verbeteringen dan al in het patroon gezet of niet? Dus is in het geval van dit patroon: is Nieuw telpatroon A.1 maat XXL-XXXL al vervangen door de gecorrigeerde?

30.01.2019 - 10:17

DROPS Design svaraði:

Dag Dolinda,

Dat klopt, de correcties zijn al doorgevoerd in het patroon op het moment dat aangegeven is dat er een correctie is. In de gedrukte collectie brochures kan de fout nog wel zitten, vandaar dat hij als correctie op de site staat.

30.01.2019 - 16:14

country flag Laurence skrifaði:

Bonjour, J'en suis à la fin du dos. Pouvez-vous me dire sur combien de rangs il faut tricoter les 8 mailles au point mousse autour des marqueurs avant la séparation du dos et du devant? Je lis "Quand 1 côte mousse a été tricoté au-dessus des 4 m de chaque côté de chaque marqueur, terminer le dos et les devants séparément (c'est-à-dire diviser l'ouvrage aux marqueurs). " Est-ce un seul rang ou plusieurs? Merci de votre aide

12.01.2019 - 17:43

DROPS Design svaraði:

Bonjour Laurence, on doit tricoter 2 rangs endroit pour obtenir une côte mousse (cf POINT MOUSSE au début des explications). Avant de diviser l'ouvrage pour terminer le dos et chaque devant séparément, vous tricotez 2 rangs avec les 8 m des côtés au point mousse. Bon tricot!

14.01.2019 - 10:20

country flag BORSOTTO skrifaði:

Bonjour vous notez " = glisser 1 m à l'end, 1 m end, passer la m glissée par-dessus la m tricotée - NOTE: ne pas faire cette diminution dans le 1er ni dans le dernier motif " pour les diminutions du haut du diagramme A1.... ma question, dois je faire quand même le jeté d'avant.... merci pour votre réponse

15.11.2018 - 11:04

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Borsotto, cette diminution se fait au début de chaque A.1 comme le montre le diagramme, sauf pour le 1er A.1 au début du rang ni pour le dernier A.1 en fin de rang, quand vous tricotez la 1ère m de A.1, tricotez la simplement en jersey, sans diminuer (ni augmenter - cf dernier symbole). Vous n'allez faire le jeté et la diminution que dans les autres A.1 du rang. Ainsi, les 2 côtés sont symétriques. Bon tricot!

15.11.2018 - 13:45

country flag BORSOTTO skrifaði:

Bonjour vous notez " = glisser 1 m à l'end, 1 m end, passer la m glissée par-dessus la m tricotée - NOTE: ne pas faire cette diminution dans le 1er ni dans le dernier motif " pour les diminutions du haut du diagramme A1.... ma question, dois je faire quand même le jeté d'avant.... merci pour votre réponse

15.11.2018 - 11:03

country flag Caroline skrifaði:

Bonjour, le 5ème et le 7ème symbole dans la légende du diagramme A1 n'apparaissent pas sur mon écran (à la place j'ai un point d'interrogation). Pouvez-vous me dire à quel symbole cela correspond dans le diagramme svp? Merci d'avance

08.10.2018 - 18:44

DROPS Design svaraði:

Bonjour Caroline! La legende (symboles et leur desciptions) a ete envoyee a votre adresse mail. Bon tricot!

08.10.2018 - 19:56

country flag Eva-Britt Ahlin skrifaði:

Hej! Jag har kommit tll första ökningen på A1. Min fråga är om jag ska göra ökningen även på den ”extra maskan på A1 som jag stickar innan jag avslutade med de 5 rätstickade framkantsmaskorna?

30.09.2018 - 18:53

DROPS Design svaraði:

Hei Eva-Britt. Nei, der du strikker kun den første masken av A.1, hverken øker eller feller du. Bare strikke den rett/vrang som anvist i diagrammet. God fornøyelse.

01.10.2018 - 15:09

country flag Sarah skrifaði:

Leider wird der Halsausschnitt sehr sehr weit. Die Jacke rutscht ständig die Schultern runter. Ich werde jetzt noch etwas dran stricken müssen. Ausserdem werde ich größere Knöpfe annähen, damit die auch halten. Sonst sehr schönes Design!!!

09.04.2018 - 08:17

country flag Eleonora skrifaði:

Ops! Scusate, non avevo visto la correzione. Grazie comunque

28.02.2018 - 18:48

country flag Eleonora skrifaði:

Salve, il diagramma A1 S-M ha 11 aumenti con gettato. Ma il diagramma parte da 12 maglie e finisce con 24. Ma 12 +11= 23. Devo fare un gettato in più o è un errore di stampa? Grazie

28.02.2018 - 17:21