Anna skrifaði:
Hei! Det står: «Arb strikkes videre (…) og glstrikk til ferdig mål.» men jeg finner ikke noen målskisse i oppskriften, hvor langt skal det strikkes?
18.09.2024 - 23:18DROPS Design svaraði:
Hei Anna. Den teksten du henviser til gir en forklaring på at arbeidet skal strikkes videre i mørk blågrønn Karisma eller mørk blå Merino Extra Fine og at det skal strikkes glattstrikk til ferdig mål (altså ingen andre farger eller strikkes etter diagram). Videre følges oppskriften og de målene som står der. mvh DROPS Design
19.09.2024 - 09:34
Raquel skrifaði:
Hola, Si quisiera hacerlos sin dibujo, totalmente lisos, cuántos ovillos necesitaria para tejerlos? ¿Con 100 gramos sería suficiente? Muchas gracias.
19.01.2021 - 08:37DROPS Design svaraði:
Hola Raquel, necesitara de 150 g-250 g dependiendo del tamaño para los calcetines lisos. Buen trabajo!
19.01.2021 - 09:08
Lennart skrifaði:
Det är jag som sköter om skrivarna. Det är svårt att få ut mönster rent, utan reklam och tjafs. Vi kör trådlöst Linux rakt över.
25.05.2019 - 20:13DROPS Design svaraði:
Hei Lennart. Om du trykker på printerikonet rett over der det står "Instruksjoner" kommer du rett inn på skriveroppsett. Herfra kan du velge å for eksempel ikke printe ut de bakerste sidene med reklame. God fornøyelse
27.05.2019 - 13:13
Sabine skrifaði:
Kann es sein, dass die Farbe des Fußes auf dem abgebildeten Foto nicht wie angegeben "dunkel blaugrün" (37) ist, sondern "kornblumenblau" (07)?
14.01.2019 - 08:44DROPS Design svaraði:
Liebe Sabine, es wird hier die Farben 37 gestrickt, wie zu dem passenden Pullover und Mütze. Viel Spaß beim stricken!
14.01.2019 - 12:53
Karen skrifaði:
Er det riktig diagram som ligger ute nå?
20.12.2016 - 13:56DROPS Design svaraði:
Hej Karen. Ja, det burde vaere rettet sidste aar
20.12.2016 - 16:13
Jorunn Høsi skrifaði:
Jeg har sett på diagrammet over mønsteret, men jeg får det ikke til å stemme med bildet.For meg ser det ut som at det mangler en del av diagrammet (øverst på diagrammet som blir nederst på leggen på sokken.) modell u-757 Mvh Jorunn
17.09.2015 - 09:25DROPS Design svaraði:
Hej Jorunn, det kan jeg godt se... Vi skal få lagt det rigtige diagram ud. Tak for info!
17.09.2015 - 09:42
Ólafur Socks |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónaðir sokkar fyrir herra með norrænu mynstri úr DROPS Karisma eða Merino Extra Fine. Stærð 35-46.
DROPS Extra 0-1147 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl þar til 7-7-8-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br þar til 7-7-8-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sl þar til 6-6-7-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eina og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br þar til 6-6-7-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 12-14-14-14 l eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 63-63-66-66 l á sokkaprjónar nr 2,5 með litnum dökk blágrænn Karisma eða litnum dökk blár Merino Extra Fine. Skiptið yfir í litinn natur Karisma/natur Merino Extra Fine. Prjónið 1 umf sl. Prjónið síðan stroff (= 1 l snúin sl, 2 l br) í 2,5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf sl JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-6-6 l jafnt yfir = 60 l. Prjónið A.1 (= 6 l) alls 10 sinnum á breiddina. ‚ ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 15 cm. Stykkið er síðan prjónað með litnum dökk blágrænn Karisma/blár Merino Extra Fine og sléttprjóni til loka. Í næstu umf er fækkað um 4 l jafnt yfir = 56 l. Þegar stykkið mælist 16 cm er fækkað um 4-4-0-0 l jafnt yfir = 52-52-56-56 l. Þegar stykkið mælist 18 cm er fækkað um 4 l jafnt yfir í stærð 35/37 (ekki er fækkað fleiri l í hinum stærðunum) = 48-52-56-56 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 23-24-25-26 cm. Í næstu umf er haldið eftir fyrstu 12-13-14-14 l á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24-26-28-28 l á þráð (= miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14-14 l á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka yfir 24-26-28-28 hæl-l í 5-5½-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki í mitt stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtaka hefur verið prjónuð eru prjónaðar upp 11-12-13-14 l hvoru megin við hæl og 24-26-28-28 l af þræði eru settar til baka á prjóninn = 58-64-68-70 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-28-28 l ofan á fæti. Prjónið síðan sléttprjón hringinn JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu l á UNDAN fyrra prjónamerki ofan á fæti snúnar sl saman og prjónið 2 fyrstu l á EFTIR seinna prjónamerki ofan á fæti sl saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 6-7-7-6 sinnum til viðbótar = 44-48-52-56 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-20-22-25 cm frá prjónamerki á hæl (nú er eftir ca 4-4-5-5 cm að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 22-24-26-28 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við hvort prjónamerki þannig: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 2 l snúnar sl saman (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 3-3-4-4 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umf alls 5-6-6-7 sinnum = 8 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1147
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.